Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 15
Fimmtudas'ur 24. das. 1959 M ORGUTS BLAÐIÐ 39 Ferðamannabærinn Xossa de Mar. Hvergí KVENNAÞÆTTINM barst fyrir skömmu bréf frá ís- lenzkri konu, frú Hansínu Helgadóttur, sem hreiðrað hefur um sig ásamt fjölskyldu sinni í ferðamannabænum Tossa de Mar á Spánarströnd. Akureyri fyrir stuttu síðan. Um bæinn og lifnaðarhætti á Spáni segir frú Hansína: Eftirsóttur feroamannabær Tossa de Mar heitir bærinn sem við dveljum í. Hann stendur á mjög fallegum stað tíma. Ég hef hvergi séð hvít- ari og bragglegri þvott en hér. Ég er viss um það, að mörg húsmóðirin heima með allar sínar fínu þvottavélar myndi öfunda þær, ef hún sæi mis- muninn. Ljúffengt kjöt Hér er aðallega eldað á opn- um eldstæðum, sem er komið fyrir í eldhúsinu og eru þau kynnt með viðarkolum. Það þarf töluverða leikni og æf- ingu til þess að kveikja eld í þessum eldstæðum. Viftu úr strái er slegið fram og aftur þar til eldur logar. Síðan er kjötið steikt á grind, sem er yfir glóðinni. Kjötið er mjög ljúffengt. Langur skóladagur Skólatimi barnanna er mjög langur miðað við heima. Börnin mæta kl. 9 á morgn- ana og eru til kl. 12 á hádegi. Síðan mæta þau aftur kl. 3 e. h. og eru til kl. 8 e. h. Allar verzianir eru opnar frá kl. 8—2 e. h. og svo eru þær opnaðar aftur kl. 4 e. h. til kl. 9 að kvöldi. Á sunnu- dögum eru allar verzlanir opnar til k1. 4 síðdegis. Ég held, að þetta þætti nokkuð langur vinnutími á Islandi. Tvær messur á dag Spánverjar eru mjög kirkju rækið fólk. Næstum því allir þorpsbúar fara í kirkju á sunnudögum. Auk þess eru tvær messur daglega, og kirkj an, sem er mjög stór, virðist fullsetin við báðar messur. Hér eru auðvitað allir kaþólsk ir eins og annars staðar á Spáni. Allt kvenfólk, sem fer í kirkju, lætur á sig þessar fallegu, spænsku blúndu- og knapplingaslæður, meðan þær hlýða messu. Þær eru settar á höfuðið á alveg sérstæðan og mjög fallegan hátt. Fallegar telpur Á Spáni ganga bæði gamlar og ungar konu með eyrna- lokka daglega. Þegar stúlku- barn er 3—4 daga gamalt, stingur ljósmóðirin göt á eyrnasneplana og setur litla hringi í eyrun. Litlu telpurn- ar hér eru alveg sérstaklega fallegar. Þær eru með dökk- brún augu og mjög brosmild- ar. Eins eru þær með mjög vel snyrt hár, oft olíuborið, svo það verður kolsvart og gljáandi. Hlý veðrátta Þegar ég skrifa þetta bréí síðast í nóvember, er enn svo hlýtt veður, að enginn er far- inn að nota utanyfirflík (kápu eða þess háttar). Sum- arið byrjar fyrst í apríl og er veðrið mjög hlýtt og þægilegt til septemberloka. En það er nú einu sinni svona. Þótt dvalizt sé er- lendis, þá vill hugurinn alltaf leita heim. segir frú Hanssna Helga- dóftir, sem nú dvelur á Spánarströnd Spönsk stúlka í hátíðarbúningi Segir hún í bréfi sínu, að öll fjölskyldan bíði í eftirvænt- ingu eftir hverri sendingu af Morgunblaðmu og börnin, sem eru 12, 8 og 4ra ára, hafi í fyrsta skipti fengið heimþrá, er þau sáu í blaðinu mynd af snjónum og vetrarríkinu á á hinni þekktu Costa Brava strönd.. Síðastliðin ár hefur þetta þorp orðið mjög eftir- sóttur ferðamannabær. Ibúar hér í Tossa eru að- eins 12—1400 talsins, en sl. sumur hafa komið hingað dag- lega um 5—6 þúsund manns og eykst ferðamannastraum- urinn með ári hverju. Fyrir nokkrum árum voru hér að- eins örfá hótel, en eru nú milli 50—60. Ennfremur eru mörg í byggingu, sum mjög stór, t. d. er eitt um 200 her- bergja hótel í smíðum með öllum hugsanlegum þægind- um, m. a. stórri sundlaug o. fl. Flestir bæjarbúar auka tekjur sínar með því að leigja ferðafólki herbergi yfir sum- armánuðina og dugar ekki til. Fjöldi sumargesta verða að gera sér að góðu að sofa á ströndinni í svefnpokum. Hvítur þvottur Flest er mjög ólíkt og heima. T. d. þekkjast varla önnur rafmagnsáhöld en strokjárn. Allur þvottur er þveginn úti upp úr köldu vatni, aðeins nuddaður og skrúbbaður úr stangarsápu. Síðan er hann hengdur upp á snúru óuppundinn og þornar vitaskuld á mjög skömmum Gérald Philipe látinn NÝLEGA lézt í París hinn 38 ára gamli leikari, Gérard Philipe, úr hjartaslagi, eftir stutta legu. Hann var giftur leikkonunni Anne Naveaux og átti tvö börn, 2ja og 5 ára gömul. Gérard Philipe er einn þeirra, sem hæst hefur borið undanfarin ár á frönsku leik- sviði og í kvikmyndum. Per- sónuleiki hans þótti með af- burðum sterkur, svo sterkur, að kvikmyndastjórarnir gerðu aldrei tilraun til að breyta honum eftir eigin geðþótta og framsögn hans þeim hæfilgik- um gædd, að hún hlaut að t ö f r a alla, er á hlýddu. Um hann hefur verið sagt: .... Þegar hann tálar, er 1 í k a s t því, að franskan væri e r f i 11 mál fyrir Frakka“. Philipe lék einkum í hinu vin sæla leikhúsi Par- ísar, „Théatre National P o p u 1- air“, undir leið- s ö g n meistarans Jean Vilar. Þ a r lék hann h i n a r klassísku, róman- tísku, ofsafengnu eða geðveiku hetj- ur, svo sem í leik- ritunum „Le Cid“ e f t i r Corneilles, „Prinsinn af Hamburg" eftir Kleists og hinn vansæla hug- sjónamann Mussets „Loren- zaccio“. 1 kvikmyndinni „Idiotinn" eftir Dostojevski lék hann Myshkin prins af svo mikilli sannfæringu að það mun seint mönnum úr minni líða. Af öðrum kvikmyndum, sem hann hefur leikið í má minna á kvikmyndirnar: „í líki djöf- ulsins“ (’46), „Hringekja ást- arinnar“ og „Fanfan“, þrjár kvikmyndir sem René Clair hefur stjórnað: „Fegurð djöf- ulsins" (’50), „Fegurð nætur- innar“ (’52) og „Herbragðið mikla“ (’55). Ennfremur lék hann drykkfelda lækninn í sögu Yves Allégrets (og Sar- tres): „Hinir drambsömu" (’53) af mikilli snilld, og síð- ast en ekki sízt í hinni umtöl- uðu og forboðnu mynd: „Hættuleg sambönd", en þar lék hann á móti Annette Strþyberg. Ný Heyderdahl-kvik- mynd Páskaeyjan leyndardóms- fulla er viðfangsefni Thor Heyerdahls í nýju ferðalit- kvikmyndinni hans, sem frum sýnd verður í Ósló hinn 22. janúar. Heyerdahl varð heimsfræg- ur af bók sinni og kvikmynd um Kon-tiki-flekann og sigl- ingu hans yfir Kyrrahafið. — Skrítinn fugl Þið megið geta þrisvar upp á, af hverjum myndin er, og er þó ólíklegt að ykkur takist það. Þetta er nefnilega Orson Welles, í hanastélsveizlu, sem haldin var í tilefni nýrrar kvikmyndar, í hverri hann leikur aðalhlutverkið. Mynd- in heitir ,Drame Dans un Miroir", en hvers vegna Orson Welles mætir þar flibbalaus, fylgir ekki sögunni. En Welles er nú enginn venjulegur mað- ur og er þekktur af furðuleg- um uppátækjum. Trompetstúlkan Barbara Pinney heitir þessi gullfallega stúlka og er hún aðeins 21 árs. Þó hefur hún þegar komið fram í 18 kvik- myndum, ekki sem nein stór stjarna, heldur ung leikkona, sem kann sitt af hverju og hefur þar af leiðandi samn- inga í það óendanlega. M. a. þykir hún spila dálaglega á trompet — auk þess sem það klæðir hana ljómandi vel. Bókin og kvikmyndin urðu afarvinsæl um allan heim, eins og kunnugt er, og gáfu Heyerdahl töluverðan skild- ing í aðra hönd. Hann skrifaði bók sína „Aku-Aku“ um leiðangur sinn til Páskaeyjarinnar og þar fór kvikmyndatakan einn- ig fram. Heyerdahl, sem nú býr í Róm, mun mæta á frum- sýningunni í Ósló, og hefur Ólafi konungi verið boðið á frumsýninguna. — Nokkrum dögum síðar verða svo sýning- ar hafnar á kvikmyndinni í einu stærsta kvikmyndahúsi Stokkhólms. Fregnazt hefur, að myndin sé með norskum, sænskum, enskum og þýzkum skýringartextum. Nú eru 10 ár liðin, síðan „Kon-tiki“- kvikmynd Heyerdahls var frumsýnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.