Morgunblaðið - 03.01.1960, Qupperneq 4
4
MORCUN BLAÐIÐ
Sunnudagur 3. janúar 1960
I dag er 3. dagur ársins.
Sunnudagur 3. janúar.
Árdegisflæði kl. 8:36.
Síðdegisflæði kl. 21:04.
Slysavarðstofan er opin allan
sólarhringinn. — Læknavórður
L.R. (fyrir vitjanir), er á sama
stað frá kl. 18—8. — Sími 15030
Næturvarzla vikuna 2.—8.
janúar er í Vesturbæjat-apóteki.
Sími 22290.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Kristján Jóhannesson. Sími 50056
Á annan dag jóla voru gefin
saman í hjónaband ungfrú María
Leós ,símamær, Selfossi og Eirík-
ur Hallgrímsson, bílstjóri.
Á gamlársdag voru gefin sam-
an í hjónaband af sr. Óskari J.
Þorlákssyni ungfrú Ragnhildur
Friðriksdóttir og Bjarni Bergs-
son skipasmiður. Heimili þeirra
verður að Lindargötu 42A.
Á gamlársdag voru gefin sam-
an í hjónaband af sr. Óskari J.
Þorlákssyni ungfrú Sigrún Sig-
marsdóttir og Örn Scheving.
bankaritari, Ingólfsstræti 20 og
fil. stud. Guðmundur Magnússon,
Laugarnesvegi 34.
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Sigríður
Brynjólfsdóttir, bankaritari (Pét
urssonar vélstjóra á Bíldudai)
og örn Engilbertsson, flugnemi,
Guðmundssonar, tannlæknis, Há-
teigsvegi 16).
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Elín Guð-
mundsdóttir, Sörlaskjóli 84 og
Magnús Bergmann Bjarnason,
Básenda 11, Reykjavík.
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Sjöfn Jóns-
dóttir, símamær, Selfossi og
Steindór Hjörleifsson, vélvirki,
sama stað.
— Jón, sagði konan skjálfandi
af hræðslu, — heyrðir þú nokk-
uð?
— Já, það hlýtur að vera inn-
brotsþjófur, svaraði eiginmaður-
inn og stökk út úr rúminu.
— Ó, Jón, farðu varlega! —
Hvað ætlar þú að gera?
— Læsa svefnherbergisdyrun-
um, svaraði Jón.
— Ég var að spila Bach í dag.
— Jæja, vannst þú nokkuð?
— Pabbi, gekkst þú í sunnu-
dagaskóla, þegar þú varst lítill?
— Auðvitað, drengurinn minn.
— Hm. Veiztu, ég held bara
að ég hafi heldur ekkert gott af
því.
RMR Sunnud. 3-1-20 — Hrs —
Mt — Htb.
EESMessur
Frá skrifstofu biskups: Messað
í kapellu Háskólans kl. 11 f. h.
Séra Bragi Friðriksson prédikar.
Dómkirkjan: — Messa kl. 11
f.h. Sr. Óskar J. Þorláksson.
lE^Brúökaup
í gær voru gefin saman af séra
Jóni M. Guðjónssyni, Svava Guð-
rún Eiríksdóttir frá Réttarholti í
Reykjavík og Guðjón Pétursson,
Akranesi. — Heimili brúðhjón-
anna verður að Höfðabraut 8,
Akranesi.
Heimili þeirra verður í Nes-
kaupstað, Norðfirði.
Á annan dag jóla voru gefin
saman í hjónaband í Skive í Dan
mörku, Dagny Pedersen kennari,
Hemmersvej 2, Skive og Magnús
Jónsson kennari, Hverfisg. 21-B,
Hafnarfirði. — Heimili ungu
hjónanna er að Skúlaskeiði 6,
Hafnarfirði.
C^Hiónaefni
Á gamlársdag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Kristín Páls-
dóttir, Skólavörðustíg 22-A og
Vilheim Heiðar Lúðvíksson,
lyfjafræðingur, Hringbraut 97.
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína Valdís Árnadóttir,
ijgBH Skipin
Skipadeild S.Í.S. — Hvassafell
væntanlegt til Stettin á morgun.
Arnarfell átti að fara í gær frá
Stettin til Kaupmannahafnar.
Jökulfell er í Reykjavík. Dísar-
fell kemur til Reykjavíkur í dag
frá Húnaflóahöfnum. Litlafell
losar á Vestfjörðum. Helgafell
kemur í dag til Sete í Frakk-
landi frá Klaipeda. Hamrafell
fór 29. f.m. frá Reykjavík áleiðis
til Batum.
P^áAheit&samskot
Flóðasöfnunin: — Guðbjörg;
Tómasdóttir kr. 500,00.
Lamaði íþróttamaðurimt: —
H Ó krónur 50,00.
Sólheimadrengurinn: A krón-
ur 200,00.
Hofsóssöfnunin: Á B kr. 200,00.
H! Ymisleg'
Kvenfélag Háteigssóknar býð-
ur öldruðum konum í Háteigs-
sókn á jólafund félagsins í Sjó-
mannaskólanum, þriðjudaginn 5.
janúar kl. 8,30 stundvíslega. —
Væntir félagið þess að sem flest
ar þeirra geti komið. Meðal þess
sem fram fer er að Vigfús Sigur
geirsson sýnir kvikmynd og
Andrés Björnsson les upp. — Þá
verður söngur og sameiginleg
kaffidrykkja.
Sjálfstæðiskonur: — Munið
jólatrésskemmtun Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Eddu í Kópa-
Keðjuborvél
af sérstökum ástæðum er til sölu og sýnis nýr keðju-
bor í Síðumúla 19. Sími 35688.
vogi í dag kl. 2 e.h. í félagsheim-
Skemmtun fyrir unglingana kl. 8
Misritun leiðrétt: Á annan í
jólum voru gefin saman í hjóna
band af sr. Ólafi Skúlasyni, Val-
gerður Guðlaug Guðmundsdóttir
og Sigurbjörn Pálsson, Básvegi 3,
Keflavík. Nafn brúðgumans mis-
ritaðist í blaðinu, og eru hlutað-
eigendur beðnir afsökunar.
K.F.U. M. og K., Hafnarfirði.
Sunnudagaskólinn er kl. 10,30.
Drengjafundur kl. 1,30, og al-
menn samkoma kl. 8,30. Bene-
dikt Arnkelsson cand. theol.
talar. — Á mánudagskvöld kl.
8,30 er unglingafundur.
JFélagsstörf
Frá Kvenfélagi Laugarness-
sóknar: — Munið nýársfundinn
5. janúar í kirkjukjallaranum
kl. 8,30. Kvikmyndasýning o. fl.
l^Pennavinir
Finnst stúlka, 16 ára gömul,
óskar eftir að hafa bréfaskipti
við íslenzka stúlku eða pilt 16
ára eða eldri. Aðaláhugamál
hennar eru flug, útreiðar, alls
konar dýr og nútímatónlist. Hana
langar til að fræðast um land og
þjóð og vill skrifa á ensku. —
Stúlkan heitir: Tellervo Aitto-
vaara. Heimilisfang: Helsinki,
Vainamoisenkatau 15. A.26, Fin-
land.
ÞUMALÍIMA — Ævintýri eftir H. C. Andersen
Hún fléttaði sér rúm úr
stráum og hengdi það upp
neðan undir stóru súrublaði,
til þess að ekki skyldi rigna á
hana. — Hún gæddi sér á
hinu sæta úr blómunum og
drakk döggina, sem stóð á
FERDIIMAND
þeim á morgnana. Þannig liðu
sumarið og haustið — en þá
kom veturinn, hinn kaldi,
langi vetur.
Allir fuglarnir, sem höfðu
stytt henni stundirnar með
söng sínum, flugu á braut.
Lauf trjánna fölnuðu, og
blómin visnuðu. Stóra súru-
blaðið, sem hún hafði búið
undir, vafðist saman og varð
að gulum og visnum stilk —
og henni varð skelfilega kalt,
því að fötin hennar voru rifin,
og sjálf var hún svo ‘lítil og
fíngerð. Vesalings Þumalína,
það var ekki annað sýnna, en
hún mundi frjósa í hel.
f * '
Oheppileg fyrirmynd
Samkomur
Skógarmenn K.F.U.M.
Árahátíð skógarmar.na verður
að þessu sinni dagana 8. og 9.
jan. n.k. — Föstud. 8. jan. kl.
7,30 fyrir skógarmenn yngri en
12 ára. — Laugard. 9. jan. kl. 8
fyrir 12 ára og eldri. — Aðgöngu
miða sé vitjað í húsi KFUM við
Amtmannsstíg, ekki seinna en á
fimmtudagskvöld. — Stjórnin.
Bræðraborgarst.gur 34
Sunnudagaskóli kl. 1. Almenn
samkoma kl. 8,30. — Allir vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11: Helgunarsam
koma, kl. 2: Sunnudagaskóli, kl.
4: Jólafagnaður fyrir börn og
fullorðna, kl. 20,30: Hjálpræðis-
samkoma. Frú Majór Nilsen tal-
ar. — Mápudag kl. 20,30: Her-
mannahátíð. Þriðjudag kl. 20,30:
Jólatré fyrir Hjálparflokkinn. —■
Allir velkomnir.
K. F. U. M. — í dag
Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn,
kl. 1,30 e.h., drengir, kl. 8,30 e.h.
Fórnarsamkoma. Ástráður Sigur
steindórsson, skólastjóri, talar.
Allir velkomnir.
Kennslo
K E N N S L A
Enska, danska, áherzla á tal-
mál og skrift. — Fáeinir tímar
lausir.
Kristín Óladóttir. Sími 14263.
I. O. G. T.~
Barnastúkan Æskan nr. 1
heldur fund í G.T.-húsinu kl.
2 í dag. Kosning embættis-
manna, kvikmyndasýning. Verið
stundvís. — Gæzlumenn.
St. Framtíðin nr. 173
Fundur annað kvöld kl. 1,30.
Innsetning embættismanna. —
Helgi Tryggvason, erindi, fortíð
og framtíð. — Æ.t.
Víkingur
Fundur annað kvöld, mánu-
dag kl. 8,30 í G.T.-húsinu.
Kosning embættismanna.
Hagnefndaratriði.
Önnur mál.
Fjölsækið fyrsta fund hins ný
byrjaða árs. — Æ.t.
Svövu-félagar
Munið fundinn í dag.
Gæzlumenn.
Skógarmenn
K. F. U. M.
Árshátíð Skógarmanna verð-
ur að þessu sinni dagana 8. og
9. janúar næstkomandi. —
Föstud. 8. jan. kl. 7,30 fyrir
skógarmenn yngri en 12 ára.
Laugard. 9. jan. kl. 8 fyrir 12
ára og eldri. — Aðgöngumiða
sé vitjað í húsi KFUM við
Amtmannsstíg, ekki seinna en
á fimmtudagskvöld.
STJÓRNIN