Morgunblaðið - 05.01.1960, Side 3
Þriðjudagur 5. Jan. 1960
MORCVNBLAÐ1Ð
3
VERTÍÐ er nú að hefjast í
stærstu verstöð landsins, Vest
mannaeyjum. Um aflahorfur
telja Vestmannaeyingar sig
ekkert geta sagt, frekar en
aðrir, svona í byrjun vertíð-
ar. Það hafa verið miklar ann-
ir við vertíðarundirbúninginn
og er enn verið að búa hinn
mikla flota á veiðar Flestir
bátanna er úr Eyjum, en þang
að koma til vertíðarróðra jafn
an nokkrir aðkomubátar. Enn
sem komið er, eru fáir að-
komumenn komnir til Vest-
mannaeyja. Þar hafa og verið
allmargir Færeyingar, á ver-
tíð undanfarin ár.
Fréttaritari Mbl. ,í Vest-
mannaeyjum, Björn Guð-
mundsson, skýrði blaðinu frá
þessu í gærdag. Hann taldi
sennilegt að á vetrarvertíð
mundu verða 85 bátar með
línu og net, heima bátar 72,
en aðkomubátar verða senni-
lega 13. Þessi tala getur auð-
vitað breytzt. Flestir aðkomu-
bátanna verða frá Austfjarða-
höfnum. Þá er vitað um 20
báta, sem verða með línu og
handfæri. Þegar vetrarver-
tíðin nær hámarki, í marzmán-
uði, er daginn fer verulega að
Slengja munu róa héðan alls
um 140 bátar, stórir og smáir.
Aliflestir hinna stærri báta,
sem mynda kjarnann í fiski-
bátaflotanum, verða komnir á
veiðar um næstu mánaðamót.
En eins og nú horfir, sagði
Björn Guðmundsson, munu
Voaa að Flug-
iékgiðióileyfið
— segir Lynge
ÉG vona, að danska ríkið
veiti Flugfélagi íslands
heimild til að hefja áætlun-
arflug til Grænlands, sagði
Mikil vinna er við að bæta gömul net fyrir hverja vertíð og fella á ný, hyggja að kúluni, steinum,
merkja baujur og sitthvað fleira.
vertíö í
Eyjum
140 bátar
a
margir bátar geta byrjatJ
róðra í næstu viku og er það
óvenju snemma.
1 bátaflota Vestmannaey-
inga eru góð skip og hafa flot
anum t.d. bætzt þrír fallegir
stálbátar um og yfir 100 tonna
skip og sá fjórði er væntanleg-
ur í næsta mánuði.
0 0 0 0 ie JÍ- .0 0
Fyrsti róðurinn á vetrarver-
tíðinni var farinn 2. janúar er
tveir bátar reru. Huginn heit-
ir annar þeirra og fékk hann
4 tonn. Hinn báturinn, Stíg-
andi fékk tæplega 15 tonn.
Var megnið af aflanum langa
og keila.
Varðandi Færeyinga og
ráðningu þeirra í skiprúm hér
sagði Björn, er þess að geta,
að í fyrra voru 230—240 á bát-
um héðan, misjafnlega margir
á hverjum. Nú eru taldar horf
Við Básaskersbryggju.
ur á því að þelr muni verða
álíka margir, jafnvel þó eitt-
hvað fleiri. Hafa margir hinna
færeysku sjómanna ýmist
skrifað eða símað útgerðar-
mönnum og skipstjórum hér.
Hafa þessir menn látið í ljósi
von um að komast í skiprúm.
En nú munu standa yfir samn
ingaumleitanir um kaup og
kjör þessara manna og ann-
arra Færeyinga, sem hyggja
á vertíð á íslandi. Er ekki vit-
að hversu semjast muni.
grænlenzki ferðamálamað-
Tveir merm fórust
á Keflavíkurvelli
Annar nýkvæniur, hinn 5 barna faðir
urinn L,ars Lynge i viðtali
við eitt Kaupmannahafnar-
blaðanna. Flugfélag íslands
hefur um margra ára skeið
farið fjölda leiguferða til
Grænlands án nokkurs
óhapps — og leyst þar af
hendi verkefni, sem aðrir
höfðu ekki aðstæður eða
tíma til að gera, sagði
Lynge. Ég mundi fagna inni
lega, ef Flugfélaginu yrði
leyft að fljúga til Græn-
lands, það opnaði okkur enn
einar dyr mót umheimin-
um, sem við þarna norður
frá höfum verið einangrað-
ir frá allt of lengi. Þróunin
er öll í þá átt, að farþega-
flutninga til og frá Græn-
landi svo og innan þess
verði að leysa af hendi með
flugvélum: Vegna land-
fræðilegrar legu Græn-
lands, öryggis og hag-
1 kvæmni.
»
\
^ En hvort það verður
| danskt félag eða eitthvert
/ annað, sem leysir vanda
J Grænlendinga, það skiptir
\ engu máli. Aðalatriðið er,
1 að flugsamgöngur verði
l teknar upp, sagði Lynge.
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 4.
janúar: — Það hörmulega slys
gerðist á Keflavíkurflugvelli
skömmu fyrir hádegi á gamlárs-
dag að orustuþota af gerðinni
F 89 Scorpion hrapaði til jarðar
og fórst áhöfn hennar, tveir
menn.
Nánari tildrög eru þau, að þot-
an var að koma úr venjulegu æf-
ingarflugi. Veður var fagurt,
suðaustan andvari, heiðskírt og
snjóföl á jörðu. Þotan gerði
venjulegt aðflug fyrir braut 12
sem er lengsta brautin á Kefla-
víkurflugvelli. Þegar þotan var
að beygja á lokastefnu, um það
bil 3000 fet frá enda flugbraut-
arinnar, steyptist hún til jarð-
ar og varð sprenging í henni, um
leið og hún nam við jörðu. Þotan
sundraðist gjörsamlega og flug-
mennirnir munu hafa látizt sam-
stundis.
Áhöfn vélarinnar voru tveir
menn, Arnold J. Ross, liðsfor-
ingi, sem var flugmaður frá
Greenriver Utah, 27 ára að aldri,
Hann lætur eftir sig konu og 5
börn. Radarmaður var Robert K.
Slussar, 26 ára að aldri, frá
Philadelphia. Hann hafði verið
kvæntur í 5 mánuði og hafði
kona hans hug á að koma til
Keflavíkur og dvelja hjá manni
sínum. Báðir þessir ungu menn
höfðu komið til íslands fyrir fá-
um vikum. Ross liðsforingi er
þaulæfður flugmaður og hafði
flogið mörg hundruð klukku-
stundir þotum af gerðinni F 89.
Orsök slyssins ókunnar
Ekkert er ennþá vitað um or-
sök slyssins. Rannsóknarnefnd,
sem skipuð er reyndum flug-
mönnum frá varnarliðinu, tók til
starfa þegar á gamlársdag og hef
ur hún enn ekki lokið störfum.
Erfitt mun að komast fyrir um
orsök slyssins, þar sem flugvél-
in tættist sundur við sprenging-
una. Flugvélin hafði talsamband
við flugturninn á meðan á að-
fluginu stóð og nefndi flugmað-
urinn ekki að neitt óvenjulegt
væri við flugvél sína. Viðskipti
flugturnsins við flugvélina, eru
öll til á segulbandi og er ekkert
óvenjulegt við þau.
Þegar ég kom í flugturninn um
það bil hálfri klst. eftir að slys-
ið varð, voru íslenzku flugum-
ferðarstjórar að vísu dálítið föl-
ari á vangann en venjulega, en
þeir voru þó rólegir að afgreiða
flugvélarnar, sem voru að koma
inn til lendingar. Þeim varð þó
oft litið vestur að endanum á
flugbraut 12. Þar gaf stór kol-
avartur blettur í snjónum til
kynna, að fyrir hálfri klukku-
stund höfðu 5 börn í fjarlægu
landi orðið föðurlaus. — B.Þ.
Mikið flogið
iimanlands
MIKIÐ annríki hefur verið hjá
Flugfélagi íslands cftir áramótin.
Á sunnudag fluttu flugvélar þess
yfir 300 farþega frá Akureyri til
Reykj avíkur. Skymasterflugvélin
Sólfaxi fór þá m. a. 3 ferðir norð-
ur og Viscount eina. Ein ferð var
líka farin milli Húsavikur og Ak-
ureyrar. Ekki hefur verið hægt
að fljúga til Vestmanrtaeyja í tvo
daga sakir veðurs og til Horna-
fjarðar hefur ekki verið farið
vegna holklaka í brautinni. Til
ísafjarðar voru farnar tvær ferð-
ir í gær.
STAKSTEINAB
Framstkn
og sannleikurinn
t áramótagrein sinni lýsir foV>
maður Framsóknarflokksins mjög
yfir stuðningi sínum við sann-
leikann. Vitnar hann m. a. i setn-
ingu þá, sem skráð er í horn-
stein Alþingishússins: „Sannleik-
urinn mun gera yður frjálsa“.
I lok áramótahugleiðinga sinna
vitnar Hermann Jónasson síðan
í ljóð Þorsteins Erlingssonar:
„Ég trúi því sannleiki,
að sigurinn þinn
að síðustu vegina jafni“.
Það er vissulega ánægjulegt, a#
formaður annars stærsta stjórn-
málaflokks þjóðarinnar skuli þess
svo alráðinn sem raun ber vitni í
þessum áramótahugleiðingum, að
umgangast sannleikann trúverð-
uglega á nýbyrjuðu ári. Hitt mun
mörgum koma i huga, að ýmis-
Iegt hefði öðru vísi farið fyrir
Framsóknarflokknum á undan-
förnum árum, ef ást Hermanns
Jónassonar á sannleikanum hefði
þá verið jafn einlæg og hann
segir að hún sé nú.
„Ánetjast
afturhaldskenninguJ*
Björn Franzson. skrifar hlnn
30. desember .sl. hressilega grein
í Þjóðviljann, þar sem hann
ræðst gegn klám- og kynórabók-
menntum af miklum dugnaði.
Átelur hann harðlega ýmsa fé-
laga sína í kommúnistaflokknum
fyrir dekur við slíkar bókmennt-
ir. Um þetta kemst Björn Franz-
son m. a. að orði -á þessa leið:
„Hér er ástæða til að minnast
á þá staðreynd, að ýmsir íslenzk-
ir sósíalistar hafa á síðari timum
látið ánetjast þeirri afturhalds-
kenningu, að klám í bókmennt-
um og listum sé merki um eitt-
hvert ógnarmikið frjálslyndi og
nýtízkulegt hugarfar. Þessi kenn-
ing hefur fengið byr undir báða
vængi við það, að gamall og mik-
ilsmetinn félagi Sósíalistaflokks-
ins og fyrrum Kommúnistaflokks
ins, viðurkennt skáld og rithöf-
undur, gengur fram fyrir skjöldu
og þýðir í gríð og ergi listvana
og illa skrifuð klámrit Agnars
Mykle hvert af öðru á vora
tungu (meðal annars bæði „Rúb-
íninn“ og „Lúnu“, þó að aðeins
önnur þessara bóka kæmist hér
á prent af fyrrgreindum ástæð-
um), en aðalmálgagn sósíalista,
Þjóðviljinn, ver með oddi og egg
þessa starfsemi skáldsins, svo og
bókmenntastarfsemi þá, sem fyrr-
greind sorprit túlka“.
„í andstöðu við
menningarhugsj ónir
sósíalismans£í
Ljótt er að heyra, að ýmsir ís-
lenzkir sósíalistar skuli hafa lát-
ið ánetjast „afturhaldskenningu"!
Björn Franzson lýkur hugleið-
ingu sinni með þessum orðum:
„Það er tími til kominn, að ís-
lenzkir sósíalistar geri hreint fyr-
ir sínum dyrum í þessu efni. Hér
skal þess vegna lýst yfir því og
lögð á það þyngsta áherzla ,að
kynóra- og klámstefnan í listum,
bókmenntum og blaðamennsku,
hefur alla tíð verið í strangri og
algerri andstöðu við menningar-
hugsjónir sósíalismans og verka-
lýðshreyfingarinnar“.
Þannig mælti Björn Franzson,
og mun mörgum finnast sem
hann hafi beint skeytum sínum
að fleiri sósíaliskum rithöfundum
en þeim, sem þýtt liefur Mykle-
1 bókmenntir.