Morgunblaðið - 09.01.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.01.1960, Blaðsíða 4
4 MORCVNBLAÐIÐ Laugardagur 9. jan. 1960 í dag er 9. dagur ársins. Laugardagur 9. janúar Árdegásflæði kl. 2.21 Síðdegisflæðí kl. 14.44 Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. — Læknavórður L.R. (fyrir vitjanir), er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030 Næturvörður vikuna 9.—15. jan. verður í Reykjavíkurapóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði, vik una 9.—15. jan. verður Ólafur Einarsson. □ mMíir 5960117 — 1 atkv. GESMessur Dómkirkjan: — Messa kl. 11 f. h. Séra Jón Auðuns. — Barna- samkoma í Tjarnarbíói kl. 11 12. Séra Óskar J. Þorláksson. — Síðdegismessa fellur niður. Háteigssókn: — Messa í hátíða sal sjóroannaskólans kl. 2. Barna samkoma kl. 10,30 árdegis. Séra Jón Þorvarðsson. Bústaðaprestakall: — Messa í H&agerðisskóla kl. 5. — Barna- samkoma kl. 10,30 árdegis. Séra Gunnar Árnason. Laugarneskirkja: — Messa kl. 2 e.h. — Barnaguðsþjónusta kl. 10,15 f.h. Séra Garðar Svavarss. Hallgrin-skirkja: — Messa kl. 11 f.h. Séra Sigurjón Árnason. Messa kl. 5 e,h. Séra Lárus Hall- dórsson. Neskirkja: — Barnaguðsþjón- usta kl. 10,30 og messa kl. 2 e.h. Séra Jón Thorarensen. Langholtsprestakall: — Messa fellur niður. Hallgrímssókn: — Sunnudaga- skóli Hallgrímssóknar er í Tóm- stundaheimilinu, Lindargötu 50, kl 10,30. Öll börn velkomin. — Helgi Tryggvason. Frikirkjan: — Messa kl. 2 e.h. Séra Skarphéðinn Pétursson í Bjarnanesi messar. — Séra Þor- steinn Björnsson. Kirkja óháða safnaðarinsf — Barnasamkoma kl. 10,30 árdegis. Öll börn velkomin. — Séra Emil Björnsson. Kaþólska kirkjan: — Lágmessa kl. 8,30 árdegis. — Hámessa og prédikun kl. 10 árdegis. Fíladelfía: — Guðsþjónusta verður sunnudag kl. 8,30. — Ás- mundur Eiríksson. Frikirkjan í Hafnarfirði: Messa á morgun kl. 2 e.h. Börn, sem eiga að fermast næsta vor og einnig 1961 óskast til viðtals eft ir messu. Séra Kristinn Stefánss. Keflavíkurprestakall: Kefla- víkurkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. á sunnudag. — Ólafur Skúlason. Fíladelfía, Keflavik. — Guðs- þónusta kl. 4 eji. — Haraldur Guðjónsson. Garðaprestakall: — Stofnfund ur Garðasóknar verður haldinn í samkomuhúsinu á Garðaholti á morgun (sunnudag) kl. 2 síðd. Kosnir verða starfsmenn fyrir hina nýju sókn og rætt um áframhald á endurbyggingu Garðakirkju. — Séra Garðar Þorsteinsson. Elliheimilið Grund: Guðsþjón- usta kl. 10 árdegis. — Heimilis- prestur. ipiBrúókaup Á Gamlársdag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Garðari Svavarssyni, Lonní J. Hansen og Örn Egilsson, Stigahlíð 4. — Heimili ungu hjónanna er á Hjallaveg 42, Reykjavík. Á annan dag jóla voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Thorarensen María Níelsdóttir og Sigurður Gunnarsson, bifreiða- stjóri, Faxaskjóli 12. Annan jóladag voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Lilja Hjartardóttir, Kárastíg 14 og Guðmundur E. Guðmundsson, rafsuðumaður, sama stað. Nýlega voru gefin saman í hjónaband á Möðruvöllum í Hörg árdal ungfrú Bente Anna Micael- sen og Haukur Berg, bæði til heimilis að Fífilgerði í Eyjafirði. Gefin hafa verið saman af sr. Bergi Björnssyni í Stafholti, eft- irtalin brúðhjón. — Hanna Hann- esdóttir og Baldur Jóhannsson. Heimili þeirra er í Borgarnesi. — Valgerður Anna Guðmundsdótt- ir og Jónmundur Heiðar Árnason, bóndi. Heimili þeirra er að Stað- arhúsum, Borgarhreppi. — Sigríð ur Þorvaldsdóttur og Jón Þór Jónasson, búfræðingur. Heimili þeirra er að Hjarðarholti, í Staf- holtstungum. Hjónaefni Á fimmtudag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Guðrún S. Guð mundsdóttir frá Lóni í Keldu- hverfi og Sigurdór Eggertsson, vörubílstjóri, Ólafsvík. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú María Þorleifsdóttir, Sóleyjargötu 31 og Anton Hreið- ar Aðalsteinsson, Eskihlið 13. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína ungfrú Guðlaug Jóhannes dóttir hjúkrunarkona, Gauksstöð um, Garði og Jón G. Tómasson, lögfræðingur, Víðimel 29, Reykja vík. Nýlega opinberuðu trúlofun sína Svafa Finnsdóttir, Eskiholti, Borgarhrepp, Mýrarsýslu og Jón Guðmundsson, Bóndhól, sömu sveit. 24. des. opinberuðu trúlofun sína ungfrú Elsa G. Vilhjálms- dóttir, Akurgerði 46 og Leifur Pétursson, Haðarstíg 12. Á Gamlársdag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Aðalheiður f. Hafliðadóttir, Miklubraut 46 og Baldur Ingvarsson, vélstjóri, Skip holti 10. BS Skipin Hafskip: — Laxá fór frá fsa- firði 8. þ.m. áleiðis til Akraness og Hafnarfjarðar. H.f. Jöklar: — Drangajökull verður í Gibralta í nótt. — Lang- jökull er í Reykjavík. — Vatna- jökull fór frá Rostock 5. þ.m. á leið til Reykjavíkur. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fer frá Rvík á hádegi austur um land í hringferð. — Esja er í R- vík. — Herðubreið er á Austfjörð um. — Skjaldbreið fer frá Akur- eyri í dag vestur um land til Reykjavíkur. — Þyrill kom til Fredrikstad í gær. — Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21 í kvöld til Reykjavíkur. -metf mc^iuUeaffmUy Nei„ auðvitað hugsa ég ekki alltaf um sælgæti . . . en þegar ég hugsa, er það um sælgæti. Enska tímaritið Family Doctor auglýsti eftir nokkrum mönnum, sem hrytu mjög ákaft — til þess að reyna á þeim nýtt meðal gegn þessari ömurlegu næturíþrótt. Helzt var óskað eftir kvænt- um mönnum, því að konur þeirra gætu sannað hvort hið nýja með- al verkaði eður eigi. ★ Móðirin tók Jón litla með sér I stóra verzlun í New York, — og þau komu auðvitað við í Ieik- fangadeildinni. Þar klifraði Jón upp á rafmagnsrugguhest og neit- aði að koma aftur niður af hon- um. Loks var móðir alveg að gefast upp. — Jón, sagði hún, ef þú kemur nú niður skaltu fá stóran ís. — En mamma, sagði Jón, ég kæri mig ekkert um ís núna, ég vil bara sitja hér á hestinum. Verzlunarfólkið reyndi einnig að fá hann niður, en varð ekki ágengt. Loks var sent eftir sál- fræðingi verzlunarinnar. Hann gekk til Jóns, hvíslaði einhverju að honum — og sá litli fór á augabragði niður af hestinum. — Hvað í ósköpunum sögðuð þér við hann? spurði móðirin hrifin. — Ég sagði aðeins, eð ef hann ekki hoppaði niður af hestinum eins og skot, skyldi ég gefa hon- um nokkra góða selbita. Flugvélar Loftleiðir h.f.: — Saga er vænt anleg kl. 7:15 frá New York. Fer til Glasgow og Amsterdam kl. 8:45. — Leiguflugvél Loftleiða er væntanleg kl. 19:00 frá Kaup- mannahöfn og Ósló. Fer til New York kl. 20:30. Flugfélag ísland h.f.: — Milli- landaflug: Gullfaxi er væntanleg- ur til Rvíkur kl. 16:10 í dag frá Kaupmh. og Glasgow. — Hrím- faxi fer til Ósló, Kaupmh. og Hamborg kl. 08:30 í dag. Væntan legur aftur til Rvíkur kl. 15:40 á morgun. — Innanlandsflug í dag: til Akureyrar, Blönduóss, Egils- staða, ísafjarðar, Sauðárkróks og ÞUMALIIMA Ævintýri eftir H. C. Andersen JÞegar þau komu þar að, sem dauði fuglinn lá, rak mold- varpan breiða nefið sitt upp undir loftið og rótaði burtu jarðveginum ,svo að stórt gat myndaðist, sem dagsljósið gat skinið inn um. Á miðju moldargólfi gang- anna lá dauð svala. Hinir fögru vængir hennar þrýstust þétt að búknum, en höfuð og fætur voru dregnir inn í fiðr- ið. Það virtist augljóst, að vesalings fuglinn hafði dáið úr kulda. — Þumalína litla kenndi sáran í brjósti um hann — henni þótti svo vænt um alla litlu fuglana, sem höfðu kvakað og sungið fyrir hana allt sumarið. — En mold- varpan sparkaði í svöluna með stuttum fótunum og sagði: — Nú tístir hún ekki lengur. Það hlýtur að vera ömurlegt að fæðast sem lítill fugl. Svo er guði fyrir að þakka, að ekkert af börnunum mínum verður þannig. Slíkur fugl á ekkert nema kvak sitt og tíst — og svo deyr hann úr hungri að vetrinum! FERDINAND Þrystingsbreytingar Vestmannaeyja. — Á morgun: til Akureyrar, Húsavíkur og VesU mannaeyja. Ymislegt Orð lífsins: — Og dramblæti mannsins skal lægjast og hroki mannanna beygjast, og Drottinn einn skal á þeim degi háleitur vera. Og falsguðirnir — það er með öllu úti um þá. Þá munu menn smjúga inn í bjarghella og jarðholur fyrir ógnun Drott- ins og fyrir ljóma hátignar hans, þegar hann rís upp til þess a3 skelfa jörðina. (Jesaja 2). Happdrætti: — Dregið hefir verið í Happdrætti pípuorgels- sjóðs Sauðárkrókskirkju, Sauð- árkróki. Upp komu þessi.númer: 0017 Ryksuga „Rafha“ — 0029 Flugfar til Norðurlanda með Loft leiðum — 0362 Svefnpoki — 0385 Armbandsúr.— 0447 Leikföng frá SÍBS — 0449 Morgunsloppur — 1368 Flugfar til Norðurlanda'með Flugfél. ísl. — 1387 Körfustóll — 2192 Lituð ljósmynd af Sauðár- króki — 2232 Bækur fyrir 1 þús. kr. frá Norðra — 3105 Málverk eftir listam. Jóhannes Geir Jóns- son — 4237 Leikbrúða — 5045 Ritsafn Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi — 5276 Kvenúlpa — 6351 Málverk eftir listmál. Sig- urð Sigurðsson - 6826 Leikbrúða. Munanna skal vitja hjá Kristjáni C. Magnússyni, Sauðárkróki. Útdráttur í happdrætti fjáröfl- unarnefndar Kópavogskirkju þ. 31. des. 1959: Upp komu eftir- talin númer: 2579 Lóðarréttindi í Kópavogi og teikning af húsi — 1662 Flugfar til Ameríku fram og aftur — 3634 Flugfar til Kaup- mannahafnar fram og aftur — 881 Ferð með m.s. Gullfossi til Kaupmannahafnar fram og aftur — 2174 Hringferð kring um land- ið. — Kvenfélag Óháða safnaðarins: Munið jólafundinn í Kirkjubæ á mánudagskvöldið kl. 8:30. Leitarstöð Krabbameinsfélags íslands er opin alla virka daga, nema laugardaga, til kl. 18. Fólk, sem óskar eftir rannsókn, gefi sig fram í síma 16947. Leiðrétting: — í reininni „At hugasemd við ritdóm“, sem birt ist í Mbl. í gaer, féll niður orð, sem breytir nokkuð meiningu setningarinnar. Stendur í grein- inni: Þannig hlýtur járnsmiður Ásmundar Sveinssonar aðeins að vera áþreifanlegt efni í horfi þeirra, sem hafa myndrænt skyn, á að vera: sem ekki hafa mynd- rænt skyn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.