Morgunblaðið - 09.01.1960, Side 18

Morgunblaðið - 09.01.1960, Side 18
18 MORCUNBLAÐ1Ð Laugardagur 9. jan. 1960 millj. kr. boðnar í Pele 7,5 millj. í Simonsson HlWTff frægi mðiframherji sænska knattspyrnulandsliðsins Agne Simonson er víða umtalað- nr um þessar mundir. Hvarvetna J>ar sem rætt er um beztu íþrótta afrek ársins 1959, kemur hann til umræðu og á það einkum að þakka frábærri frammistoðu í lansdleik Svía og Englendinga, sem Svíar unnu 3—2 og skoraði Simonsson 2 markanna. • Margir um boðið En á ítalíu tengjast umræður um Simonsson öðru máli. Þar vilja menn fá hann sem atvinnu- leikmann. Þar er aðeins beðið eftir „rásmerkinu" — það er að segja deginum þegar aftur verð- ur leyft að kaupa erlenda knatt- spyrnumenn til að leika knatt- spyrnu fyrir ítölsk félög. Það græna ljós telja menn að verði gefið eftir Olympíuleikana. Torino og Udinese hafa þegar rætt við Simonsson og það er talað um upphæð sem svarar til 25 milljón ísl. króna (eftir skráðu gengi!). Fleiri félög hafa áhuga á Simonsson og ailir telja sig hafa „lausa stöðu“ handa hon- um. • 7 milljón Pele — hinn ungi Brasilíu- maður er einnig til umræðu. Og í sambandi við hann er ekki talað um rúma milljón (ísl. króna) heldur 7 milljónir. Það er jafnmikið og mest hef- ur verið borgað áður fyrir kaup á knattspyrnumanni. Það var greitt fyrir Sivori frá Argentínu, en mikill hluti þess fjár rann til féiags hans. • 25 Svíar keyptir Síðan Gunnar Nordal gerðist atvinnumaður á ítalíu fyrir 11 ár- um fyrir 400 þús. kr. (ísl) hafa 25 Svíar farið að hans fordæmi og verið keyptir fyrir samtals um 3 millj. sænskra króna. Mest var greitt fyrir Hamrin, sem Juventus „keypti“ fyrir 265.00 sænskar krónur. KR og ÍR mæt ost í kvöld EINS og skýrt var frá í blaðinu í gær hefst afmælismót KR í handknattleik í kvöld. Er það hraðkeppni karia ög kvenna. Úr- slit mótsins verða svo annað kvöld. í keppninni taka þátt 7 kvenna- flokkar og 10 flokkar karla. Er þetta því ein fjölmennasta hrað- keppni’ sem hér hefur farið fram. Vafalaust verður keppnin tví- sýn og spennandi. Svo hafa öll hraðkeppnismót hér verið. Meðal leikja í kvöld má: nefna leik KR og ÍR í mfl. kariá. Armenn- ingar til Þýzka- lands HANDKNATTLEIKSFLOKKUR frá Glímufélaginu Armanni, fer utan til Þýzkalands í dag 9. þ.m. Flokkurinn fer til Hamborgar í boði Hamborgarlögreglunnar og er ráðgert að leika nokkra leiki í Hamborg og að auki í Kiel. Flokkur þessi, sem eru 14 menn, hefur æft sérstaklega undir ferð þessa og verður farastjóri Asgeir Guðmundsson kennari. Einn leik mann fékk Ármann að láni, hinn velþekkta handknattleiks- mann Karl Jóhannsson (KR). Ekki var búið að ganga enda- lega frá tilhögun keppninnar úti í Þýzkalandi, en ráðgert er að koma heim aftur sunnudaginn 24. þ.m. Eins og kunnugt er kom flokk- ur frá Hamborgarlögreglunni í boði Armanns, vegna 70 ára af- mæiis Ármanns á sl. ári oe léku hér nokkra leiki. Egyptar fá lán NEW YORK, — Alþjóðabank- inn tiikynnti nýlega, að hann hefði ákveðið að lána Egyptum 20 milljón sterlingspund til at breikka og dýpka Súes-skurðinn. Mikil andstaða hefur verið gegn þessari lánveitingu í Bandaríkjun um, aðallega meðal Gyðinga og þeirra sem þeim eru hlynntir. Svartur dogur fyrir Oiympíu- stjörnur Danir vanda til lokaþátl ar Olympíuþjálfunar DANlR eru nú að undirbúa loka- lið þjálfunar knáttspyrnumanna sinna fyrir Olympiuleikina. Og segja má að þexr vandi mjög l>ann undirbúning. Sá undirbún- ingur er ekkert pukur landsliðs. nefndar eða knattspyrnusam- bandsins. Knattspyrnusamband- ið hefur skipað sérstaka „Olymp- íu-landsliðsnefnd“ en hana skipa Ebbe Schwartz, Érik Span Lar- sen, Vilhelm Rkousen, Klavs Vedel og Sören Agerschou ásamt framkvæmdastjóra sambandsins Erik Hyldstrup. Auk þess hafa verði til kvaddir í nefndina einn maður frá hverju félagi — 16 alls — sem eiga leik- menn meðal þeirra, sem valdir hafa verið til sérstakrar þjálfun- ar fyrir leikina. I þessari nefnd leggur „Olymp- íu-landsliðsnefndin“ fram tillög- ur um þjálfunina og verður sú áætlun rædd af fulltrúunum öll- um. Það má því segja að Danir setji ábyrgðina ekki á herðar eins eða fáliðaðrar nefndar. 'SL. laugardag fór fram æfinga- mót í Innsbruck og kepptu þar eingöngu þeir sem líklegir eru til farar á Olympíuleikana í Squaw Valley. Þetta varð mikill óhappa- dagur. Verst úti varð Austur- Þjóðverjinn og stökkmeistari þeirra Harry Glass, sem vann bronsverðlaun í Cortina 1956 og var ein skærasta stjarna Þjóð- verja á leikunum sem framundan eru. Eftir að hann hafði með miklum glæsibrag stokkið 72 metra og lent með ágætum féll hann í rótum brekkunnar og braut fót sinn um ökla. Brotið er mjög slæmt, og það er næstum vfst, að Harry Glass verður ekki keppnisfær í Squaw Valley. Rétt áður en slysið henti Þjóð- verjann féll austurríska „verð- launavonin" Walter Habersatter í ísaðri brekkuhlíð. Hann meidd- ist svo illa, að nú liggur hann í sjúkrahúsi. Fall hans leit illa út, því aðeins munaði hársbreidd að tveir litlir drengir, sem voru á- horfendur að æfingamótinu, yrðu fyrir honum. En þeir sluppu með hræðsluna eina saman. Betty Allen syngur á tónleik- um Tónlistarfél- agsins á mánudag og þriðjudag HIN víffkunna, bandaríska mezzo-sópran söngkona, Betty Allen, kemur hingaff til lands um helgina og mun syngja hér í Reykjavík á tvennum tón- leikum fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins — í Aust- urbæjarbíói. Fyrri tónleikarn- ir verffa á mánudaginn kl. 7 síffd. og hinir síffari á þriðju- daginn á sama tíma. — Ekki er fullákveðið, hvort söngkon an heldur e.t.v. einnig sjálf- stæða tónleika fyrir almenn- ing. ★ Betty Allen hefir á undan- förnum árum unnið sér frama sem ein allra fremsta mezzo- sópran söngkona Bandaríkj- anna, og fáar söngkonur, i hennar raddflokki a.m.k., munu geta hrósað sér af jafn- hástemmdu lofi gagnrýnenda austanhafs og vestan sem hún. Þar má lesa upphrópanir eins og: Fegursta rödd, sem heyrzt hefir----hreinasta gull-- röddin geislandi, fögur og full komin — o.s.frv. — Hún er einkum konsertsöngkona og hefir sungið ýmist með píanó- undirleik eða sem einsöngvari með hljómsveitum, svo sem Fílharmóníu-hljómsveitinni í New York, undir stjórn Bern steins, og Bostonar-sinfóníu- hljómsveitinni, undir stjórn Charles Munchs. ★ Auk Bandaríkjanna, hefir Betty Allen sungið víða í Suð- Betty Allen ur-Ameríku, Afríku og Evrópu. — Er hún nú að hefja aðra söngför sína um Evrópu, sem standa mun 3 mánuði — og er ísland fyrsti viðkomu- staðurinn. — Fyrir sex árum hlaut hún tvenn merk verð- laun fyrir söng sinn, sem að- eins eru veitt ungum söngvur- um, sem þykja óvenjulega efnilegir og líklegir til að skara fram úr á sínu sviði. Er hér um að ræða hin svonefndu „John Hay Whitney“-verð- laun og „Marian Anderson“- verðlaunin, en Betty Allen er Negri eins og Anderson. , ★ A fyrrgreindum tónleikum hér mun Betty Allen m.a. syngja lög eftir Richard Strauss, Robert Franz og arí- ur úr óperunum Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, Don Carlos eftir Verdi og Carmen eftir Bizet. Vegir spillast vegna aurhlaups VEGIR í nágrenni bæjarins hafa spillzt nokkuð í hlákunni undan- farið vegna aurhlaupa. Er slík aurbleyta á vegunum líkust því sem ekið sé í hafragraut, eins og einn langferðabílstjóri komst að orði. Gott dæmi um hvernig á- standið á vegunum er, er t.d. vegurinn upp að Álafossi, og eins mætti nefna Miklubrautina. Þetta stafar af því að klaki var kominn í jörðu er hlána tók aft- Gullbrúðkaup GULLBRÚÐKAUP eiga í dag hjónin Hallbera Jónsdóttir og Björn Einarsson, trésmiður og fyrrum bóndi í Svangrund. — Björn er sonur hjónanna Sigurlaugar Björnsdóttur og Einars Guðmundssonar, smiðs og bónda á Síðu í Refasveit, en frú Hallbera er Rangæingur að ætt og uppruna. Hún stundaði í meira en 30 ár ljósmóffurstörf í Engihlíðarhreppi og síffar á Blönduósi af mjög miklum dugnaði og prýði. Þeim hjónum varff átta barna auðiff og eru sjö þeirra á lífi. Yinir þeirra halda þeim samsæti í kvöld á Blönduósi. ur. Vatnið gat ekki komizt niður úr slitlaginu, heldur „hrærðist það upp“ undan hjólum bílanna. Enn sem komið er, hefur' ekki þótt ástæða til þess að takmarka þungaflutninga um vegina. En vegamálastjóri, Sigurður Jó- hannsson sagði Mbl. í gær, að ef áfram hélcLi að þiðna, myndi vegagerðin neyðast til þess að grípa til takmarkana á þunga- flutningi um vegina, svo að þeir stórskemmdust ekki, eins og iðu- lega í vorleysingum. Vegirnir hafa líka fairið verr fyrir það, að mikið vatn var í sjálfu slitlag- inu, vegna hins óvenju votviðra- sama sumars og hausts hér syðra. Vegamálastjóri sagði að þjóð- vegir væru yfirleitt allir færir, en fjallvegirnir eru tepptir. Vilja hærri starfsstyrk A AÐALFUNDI Bandalags llsta- manna var nýlega samþykkt ein- róma eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur Bandalags ís- lenzkra listamanna lýsir undrun sinni yfir því að Menningarsjóð- ur skuli að eins veita 15 þúsund króna starfsstyrk alls til fimm rithöfunda, þannig að ekki nema 3000 kr. komi í hlut hvers þeirra. Fundurinn skorar á Mennta- málaráð að hækka heildarupp- hæðina a. m. k. í 50 þúsund kr., og sé Rithöfundasambandinu í sjálfs vald sett hvort fjárhæðin fellur í hlut eins eða fleiri höf- unda.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.