Morgunblaðið - 09.01.1960, Page 19

Morgunblaðið - 09.01.1960, Page 19
Láugardagur 9. jan. 1960 MOnCVTSHLAÐÍÐ 19 — Bókmenntir Framh. af bls. 13. Með eigin höndum hlóðst þú fangelsið til verndar frelsi þínu. Og blindir hnefa þínir berja að dyrum reiðinnar, því á mynd þína af heiminum vantar þig sjálfan“. Fimmti og næstsíðasti hlutit bókar eru „Rímuð ljóð“. Fyrsta kvæðið 6r áróðúrskvæði, sem ég fæ ekki séð að nái tilgangi sín- um. En svo kemur „Kvæðið um manninn", sem er eitt þeirra fáu kvæða, sem lifa mun um aldir og verða því meira metið sem lengra líður. Sá er svo getur kveðið þarf ekki að kvíða gleymsku: „Máttug er hðnd þín og blóð þitt er blátt, og blindur er kraftur þinn, og auðlegð og völd þín og heimska þín hrópa í himininn. í daganna andárdrætti felst dauði og píslarvætti. Þín hugsjón er fögur sem madonnumynd, þú mænir til himins og trúir á guð og sekkur í synd! I>ú himneski andi í helblindum leir, hann hamingja og smán þín er. Hann risastór musteri og ræn- ingjabæli reisir þér! Sjá spámenn hans grófust gleymsku og gáfur hans urðu að heimsku. Mótsögn og villa var æði hans allt, en ókunnan himin og framandi jörð þú skapa skalt“. Það er ekki mjög algengt á vorri tíð, að saman fari mikið mannvit og meistaralegur skáld- skapur; venjulega verður lesand inn að láta sér nægja annaðhvort — og ósjaldan vera án beggja! í þessum hluta bókar, sem er úrval nýrra ijóða höf. er hvert kvæðið öðru betra og skal les- andinn ekki þreyttur á neinni upptalningu. Skáldið hefur vaxið stórlega að kunnáttu og leikni á síðari árum. Nægir að benda á hið gullfagra ljóð: „Ljóðið um ástina“, til að sýna snillartök höf. Hann er nú þegar kominn í fremstu röð íslenzkra skálda — og ekki aðeins hinna yngri. Lokakafli bókarinnar eru „Þýdd Ijóð úr Spámanninum, eft- ir Kahlil Gibran" — Gibran var Austurlandamaður, sem ritaði á ensku og dvaldi síðustu ár sín í Ameríku. Hann varð heimsfræg tir fyrir ,Spámanninn‘ sem er dul rænt snilldarverk, og þó svo ein- falt og ljóst, að hver unglingur getur haft fullt gagn af því. Það liggur í augum uppi að erfitt er að þýða slíkt verk og hafa marg- ir jafnvel talið það ógerlegt. En Þýðing Gunnars Dal er svo meist aralega gerð, að það er síður en svo að skáldverk Gibrans hafi tapað neinu. Ég hef borið gaum- gæfilega saman frumtextann og þýðinguna, því Spámaðurinn er eitt af uppáhaldsskáldverkum mínum. Og ég fæ ekki betur séð en að hann sé jafnvel enn feg- urri í útleggingu Gunnars Dal. Stefnir-dansleikux í kvöld HAFNARFIRÐI — Stefnir held- ur dansleik í Sjálfstæðisliúsinu í kvöld kl. 9. — L.ions-kvintettinn leikur, en auk þess verða skemmtiatriði. Það vekur ekki lengur heimsathygli þó gervihnetti sé skotið út í geiminn. Engu að síður er það afrek á vísindasviðinu, þegar nýr gervihnöttur bætist í hóp þeirra, sem þegar eru á ferð í geimnum. Þessi mynd er af bandaríska hnettinum Könnuði VII, sem nú gengur á braut um- hverfis jörðu. Könnuður þessi verður a. m. k. eitt ár „á Iofti“ og sólarrafhlöðurrar í honum munu alla tíð veita sjálfvirku senditækjunum nægilegan rafstraum. — /. landhelgi Framh. af bls. 1. Mbl. aflaði sér þeirra upp- lýsinga í gær, að írski „flot- inn“ væri aðeins 3 korvett- ur, byggðar í byrjun síðustu heimsstyrjaldar á stærð við Þór og þrír gamlir óvopnaðir flutningabátar á stærð við Sæbjörgu. Ekki var vitað í gærkvöldi, hvaða brezk herskip höfðu þá verið send á vettvang til ír- landsstranda. hann aðhylltist kynþáttaskoðanir nazista. Hins vegar er það upp- lýst, að hann hafi verið rekinn úr nazistaflokknum árið 1944, vegna þess, að hann lýsti sig mót- fallinn ofsóknum nazista gegn Tékkum á stríðsárunum og hlaut hann fyrir það að sitja í fangelsi til stríðsloka. Síldveiðar í vörpu á 50 lesta báti VÉLBÁTURINN Sæborg frá Keflavík, hefur verið seldur þaðan, og er meðal hinna nýju eigenda hans Gísli Auðunsson skipstjóri. Hyggst Gísli stunda síldveiðar á bátnum nú í vetur hér við Suðurland. Var Gísli, sem er einn hinna kunnu Auðunsbræðra, skip- stjóri á togskipinu Hafþdr, ei hann var við veiðitilraunirnar hér í haust. Mun Gísli hafa mikla trú á því að stunda megi síldveiðar í stórum stíl, með hinni sænsku flotvörpu, sem Hafþór var með við veiðitil- raunirnar. 314 börn skírð í Reykjavík UM hátíðirnar höfðu sóknarprest ar í Reykjavík í mörg horn að líta. Messur voru margar og óvenju fjölsóttar og jafnframt var mikið um hjónavígslur og skírnir. Morgunblaðið leitaði frétta hjá sóknarprestum bæjarins um skírn ir þessa daga, og fékk þær upp- lýsingar, að 314 böm hefðu verið skírð. Athyglisvert er, að af þeim voru 143 börn skírð í kirkjum bæjarins, og er það óvenju há tala. Þeir prestar í Reykjavík og úti á landsbyggðinni, sem Mbl. hef- ur átt tal við, eru þeirrar skoð- unar, að kirkjusókn hafi almennt aukizt allverulega á áirinu. Bretar segja: Aðeins eðfi/eg kurteisisheimsókn SEINT í nótt barst Mbl. svo- hljóðandi skeyti frá Reuters- fréttastofunni: „TalsmaSur brezka flota- málaráðuneytisins bar í dag til baka fregnir um að brezk herskip væru farin að vernúa fiskiskip á veiðum innan írsku fiskveiðitakmarkanna. Tals- maðurinn sagði m. a.: „Brezkt fiskiverndarskip er nú statt í Cobh á suðurströnd írlands i fullkomlega eðlilegri kurteisis heimsókn og meira er ekki um málið að sgja. Talsmaðurinn svaraði spurn ingu um það, hvort brezk her- skip væru farin að vernda fiskiskip innan írska fiskveiði takmarka: „Við vitum ekki til þess og ég held, að það sé eng- inn fótur fyrir því.“ Atómvísindamaður snýr heim frá járntjaldslandi London, 8. jan. (Reuter). BREZKI atómvisindamaðurinn Ian Campbell, hefur nú snúið heim til Bretlands eftir að hafa dvalist átta ár austan við járn- tjald. Campbell starfaði áður fyrr við ensku læknisfræðistofnunina og var vel metinn vísindamaður. En árið 1951 hvarf hann, fjö:skylda hans og félagi allt í einu. Þau fór austur fyrir járntjald og hef- ur Campbell síðan unnið við Marie Curie geislalækningastofn unina í Varsjá og við atómrann- sóknarstofnun Pólverja. Þegar Campbell sneri nú aftur heim til Bretlands yfirheyrði Scotland Yard hann og skýrði hann þar frá því að hann hefði farið til Varsjár 1951 af eftirfar- andi ástæðum: í fyrsta lagi, hann var hlynnt- ur því starfi pólsku stjórnarinnar að byggja þjóðlíf Póllands upp á grundvelli kapitalisma. í öðru lagi vissi hann, að Pólland skorti vísindamenn sem kynnu að fara |með geislavirk efni í læknis og j líffræðirannsóknum. Þá hafði hann gengið með kommúnískar skoðanir í kollinum á þessum tíma. Nú segist Campbell engar póli tískar skoðanir hafa. Hann sé að- eins vísindamaður og hafi hann losnað undan áhrifum kommún- iskra skoðana við dvölina fyrir austan járntjald. Valdi þessu m. a. breytingar sem orðið hafi í sósíalísku ríkjunum, sem sýni hið rétta eðli stefnunnar. Sækja «m yfir- hafnsögumaima- starfið NÆSTA sumar mun Þorvarður Björnsson, yfirhafnsögumaður Reykjavíkurhafnar, láta af störf- um, fyrir aldurs sakir. Nokkrir samstarfsmenna Þor- varðar, hafnsögumenn við Reykja víkurhöfn, hafa sótt um starfið, þeir Einar Thoroddsen, Kolbein i Finnsson, Magnús Runólfsson og Theódór Gíslason. Mínar innilegustu þakkir sendi ég börnum mínum, tengdabörnum, systkinum, venzlafólki, frændum og vin- um, sem glöddu mig með heimsóknum, höfðinglegum gjöfum og heillaskeytum á sextugsafmæli mínu. Sérstak- lega þakka ég Kirkjukór Skagastrandar og skólabörnum og unglingum Höfðaskóla góðar og fagrar gjafir. Öllu þessu fólki óska ég góðs árs og friðar á, nýbyrj- uðu ári. Páll Jónsson, Höfðakaupstað. Hjartanlega þakka ég ættingjum og vinum sem minnt- ust mín á átttræðisafmæli mínu 27. des. með heimsókn- um, gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Heiðimansdóttir, Skagnesi Mýrdal. Bróðir okkar VALDIMAB SIGUBÐSSON fyrrum fjárræktarmaður á Grænlandi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjud. 12. þ.m. kl. 1,30 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Þeir sem vildu minnast hins látna vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta. Fyrir hönd bræðra minna. Guðrún Sigurðardóttir, Flókagötu 10. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför MABGBÉTAB STEFÁNSDÖTTUB Bakkakoti, Meðallandi. Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför JÓNS ÓFEIGSSONAE frá Vatnagarði. Guðfinna Þórðardóttir og börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.