Morgunblaðið - 11.02.1960, Blaðsíða 1
20 ^íður
Viðreismin í framkvæmd:
Stdrfelld efling almannatrygginga
IUesta skattalækkun, sem fram-
kvæmd hefur verið hér á landi
Tekjuskattsgreiðendum fækkar úr
63 þúsundum niður í 15 þúsund
Hvít bók ríkisstjórnarinnar um
efnahagsmálin
RÍKISSTJÓRNIN hefur gefið út Hvíta bók um efnahagsmálin.
þar sem gerð er grein fyrir þróun þeirra mála undanfarin ár, og
þeim tillögum, sem stjórnin hefur lagt fyrir Alþingi, eða hyggst
flytja á næstunni til viðreisnar.
Þessi Hvíta bók er gefin út til þess að þjóðin eigi sem hægast
með að kynna sér allar hliðar þessara mála. Verða næstu daga
gerðar ráðstafanir til þess að dreifa bókinni um land allt. í henní
eru fyrst og fremst álitsgerðir þær, sem fylgja viðreisnartillögum
ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Jafnframt eru þar tveir nýir kaflar.
Er hinn fyrri þeirra um tryggingarmálin en hinn síðari um skatta
mál. —
Fullkomnar og öruggar upplýsingar
Ríkisstjórnin á þakkir skildar fyrir útgáfu þessarar Hvítu bók-
ar. Á miklu veltur að þjóðin eigi sem beztan kost á að kynna sér
þá úttekt, sem framkvæmd hefur verið á þjóðarbúskapnum og
ástandi íslenzkra efnahagsmála. Er því nauðsynlegt að hver ein-
asti hugsandi íslendingur eigi greiðan aðgang að fullkomnum og
öruggum upplýsingum um þessi mál og geti byggt afstöðu sína
til lausnar vandamálanna á staðgóðri þekkingu.
ísafoldarprentsmiðja hefur annazt prentun hinnar Hvítu bókar
og er allur frágangur hennar hinn vandaðasti. Er hún 47 bls. að
stærð og ber titilinn „VIÐREISN“.
Hér fara á eftir kaflar bókarinnar um tryggingarmál og skattamál:
„í sambandi við ráðstafanir
þriðja barni, en fullar með
fjórða barni og fleirum í
hverri fjölskyldu. T.d. verða
fjölskyldubætur til foreldra,
sem eiga f jögur börn, yngri en
16 ára, kr. 10.400,00 á ári, en
eru nú kr. 3.496,50 á ári á
Framh. á bls. 13.
Makarios erkibiskup
Radíó-samband við
kafbátinn ?
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um er áformað að hækka bætur
almannatrygginga verulega, svo
sem nánar er gerð grein fyrir
hér á eftir.
2600 kr. með hverju
barni
Frá 1. apríl n.k. verða fjöl-
skyldubætur greiddar með
H. C. Honsen
hættulego veikur
KAUPMANNAHÖFN, 10. febr.
— (Reuter). — Hans Christi-
an Hansen forsætisráðherra
Danmerkur hefur legið á
sjúkrahúsi síðan 29. desember
vegna sjúkdóms í lungum. í
dag var skýrt frá því, að for-
sætisráðherrann væri mjög
þungt haldinn.
Það er rétt ár síðan H. C.
Hansen kom af sjúkrahúsi
eftir hættulcgan uppskurð.
Þjáðist hann þá af meini í
hálsi, en menn vonuðu að þá
hefði tekizt að koma í veg
fyrir það.
hverju barni, eins á 1. og 2.
verðlagssvæði, kr. 2.600,00 á
ári. Nú eru ekki greiddar f jöl-
skyldubætur með fyrstu tveim
börnum í f jölskyldu og aðeins
hálfar fjölskyldubætur með
Buenos Aires, 10. fébr. (Reuter)
FREGNIR frá Nuevo-flóa um
1000 km. suður af Buenos
Aires, höfuðborg Argentínu,
herma að argentínskur flota-
foringi hafi haft radíósam-
band við útlendan kafbát,
sem liggur á botni flóans. —
Síðari fregnir herma, að það
sé ekki einn, heldur tveir
ókunnugir kafbátar, sem nú
eru innikróaðir á Nuevo-flóa.
Yfirstjórn Argentínuflota hef-
ur lítið viljað upplýsa, hvað hef-
ur gerzt í eltingarleiknum við
kafbátinn í dag. Þó sagði Eladio
Vasques, einn af háttsettustu
foringjum flotans, að haldið yrði
áfram varðgæzlu í Nuevo-flóa og
yrði leitað að kafbátnum með
bergmálsdýptarmælum, en talið
er að hann liggi á botni flóans.
í dag var öll skipaumferð um
mynni Nuevoflóa bönnuð. Er
óttazt að hinn ókunnugi kafbát-
ur geti sloppið út með því að
sigla undir botninum á skipum
er þar væru á ferð.
Skömmu eftir að fregnin um
radíósamband argentínska flota-
foringjans, Mario Lar.zarini, við
kafbátinn barst út, var skýrt frá
því, að argentínski flotinn hefði
æskt aðstoðar bandaríska flot-
ans til að loka mynni Nuevoflóa
sem rammlegast. En nú þegar
í mynnið, auk þess sem herskip
hefur tundurduflum verið kastað
eru þar stöðugt á verði.
Neyðarástand meðal
norskra fiskimanna
MARGIR norskir fiskimenn
eru þeirrar skoðunar, að úti
sé með alla vetrarsíldveiði við
vesturströnd Noregs, ekki að-
eins í ár, heldur um langa
framtíð. í síðustu viku, þegar
menn héldu að veiðin væri að
hefjast, veiddust aðeins 55
þúsund hektólítrar. í þessari
viku hefur aflinn verið enn
minni. 40 síldarverksmiðjur,
sem geta unnið úr 400 þúsund
hektólítrum á sólarhring,
standa auðar og aðgerðarlaus-
ar. Um 30 þúsund sjómenn
eru að heita má atvinnulaus-
ir og sjá þeir neyð fyrir dyr-
um. —
Mikið er rætt um þetta geig-
vænlega ástand í norskum blöð-
um. Greina þau frá því, að
norsku fiskimennirnir séu marg-
ir orðnir taugaveiklaðir af þess-
ari eilífu bið. Nú er farið að bera
á því, að jafnskjótt og einhverj-
ar lausafregnir berast um að
orðið hafi vart síldar, þyrpast
bátarnir þangað. En síldarboðin
hafa ætíð reynzt gabb eða mis-
skilningur.
Þannig gerðist það nú í byrj-
un vikunnar, að orðrómur barst
um það, að síldar hefði orðið
vart við Máloy. Fjöldi báta kom
á staðinn áður en það var ljóst,
að þetta var misskilningur. Síð-
ar sama dag barst orðrómur um
að vitavörður einn hefði séð
mikið fuglager á einum stað við
ströndina. Þær fréttir reyndust
og ýktar. A mánudaginn sendi
sjálft fiskirannsóknaskipið „G.
O. Sars“ út tilkynningu um að
það hefði orðið vart við „fremur
litlar síldartorfur" skammt frá
bænum Stad. Margir herpinóta-
bátar komu á vettvang og leit-
uðu um stórt svæði, en fundu
ekki neitt.
Fullt tungl á föstudag
Eina von norskra fiskimanna
nú er að breyting verði á þessu
með fullu tungli á föstudaginn.
Þeir fiskimenn eru þó fleiri sem
óttast að öll frekari bið muni
verða árangurslaus. Eru gömul
munnmæli um það í Vestur-
Noregi, að síldveiðin haldist 22
ára tímabil. En nú eru einmitt
liðin 22 ár síðan síldin fór að
koma í miklu magni upp að
ströndinni.
— ★ —
Einn af aflakóngum Norð-
Framhald á bls. 19.
I
Hótan-
ir á víxl
NÍKÓSÍA, 10. febr. (NTB). —
Þjóðernisleiðtogar Kýpur-búa,
Grikkinn Makarios og Tyrk-
inn Kutchuk hafa nú í hót-
unum við Breta um að stofna
lýðveldi á Kýpur án alls at-
beina þeirra. En slíkt væri
brot á Kýpursamningunum.
Aðstoðar-nýlendumálaráð-
herra Breta Julian Amery hef-
ur dvalizt á Kýpur og rætt við
helztu foringja eyjarskeggja.
Hafa þeir fundir verið mjög
stormasamir. í dag hótaði Am-
ery að hverfa tafarlaust heim
til Bretlands um hádegísieyt-
ið. —
Brottför hans dróst þó fram
eftir deginum og átti hann enn
langa fundi með Makariosi og
Kutchuk. Ekki varð þó neinn
árangur af þeim fundi. Eitt-
hvað hefur skapið pó lægt,
því að þegar ráðherran.n f’aug
loksins heim til BretlancLs
seint um kvöldið lét Makarios
erkibiskup þau orð falla, að
dyrnar stæðu enn opnar til
samkomulags.
Ágreiningur Breta og Kýp-
urbúa fjallar um herstöðvar
Breta eða réttara sagt um það,
hve mikið landssvæði Bretar
skuli fá undir herstöðvar sín-
ar. Vegna þeirrar deilu hefur
stofnun lýðveldis á Kýpur
tvisvar verið frestað og nú
síðast í þriðja skiptið um óá-
. kveðinn tíma.
Mikoyan elst
tvo daga í Oslo
ÓSLÓ, 10. febr. (NTB). - Mikoy-
an aðstoðar-forsætisráðherra Sov
étríkjanna mun koma við í Ósló
á heimleiðinni frá Kúbu. Er bú-
izt við flugvél Mikoyans til Forne
bu-flugvallar við Ósló árdegis á
sunnudag. Mun hann dveljast
einn eða tvo daga í Ósló, skoða
sig um og ræða við norska ráða-
menn.
□-
Fimmtudagur 11. febrúar.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 2: Svar til dr. Benjamíns Eiríks-
sonar frá dr. Jóhannesi Nordal.
— 3: í Nazaret, grein eftir Pétur
Ottesen.
8: Eden beygði sig fyrir jþrem
læknum.
— 9: Yfirflugfreyja Loftleiða.
— 10: Ritstjórnargreinarnar: Sjálfsá-
kæra. — Út úr myrkviði.
— 11: Úr fjárlagaræðu fjármálaráð-
herra.
— 17 og 18: Lesbók barnanna.
— 19: íþróttir.