Morgunblaðið - 11.02.1960, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.02.1960, Blaðsíða 10
10 M O R C V N Tt r 4 n 1 Ð Fimmtudagur 11. febrúar 1960 Útg.: H.f Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Krxstinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið SJÁLFSÁKÆRA Þarna verða pass'íuleikirnir sýndir í mai n.k. — Séð yfir hluta bæjarins Ober-Ammergau í Suður-Bayern, sem liggur í 850 metra hæð yfir sjávarmáli. Helgileikirnir Ammergau AÐ er að vísu fátítt, en hendir þó, að afbrota- menn komi að eigin frum- kvæði til dómarans og skýri honum frá yfirsjónum sínum og afbrotum. En þetta hefur þó gerzt hér á landi nú. Fram- sóknarmenn og kommúnistar eru með útmálun sinni á verðhækkunum og kjara- skerðingum af völdum geng- isbreytingarinnar að ákæra sjálfa sig frammi fyrir alþjóð fyrir afleiðingar þeirrar verð- bólgustefnu, sem vinstri stjórn þeirra markaði á árun- um 1956—1958. Það er nefni- lega af þeirri stefnu, sem þjóðin er að súpa seyðið nú. Viðurkenning stað- reynda Núverandi ríkisstjórn hefur vissulega ekki fund- ið upp á því sér til dægra- dvalar að fella gengi ís- lenzkrar krónu. Hún er að- eins að viðurkenna þá ömurlegu staðreynd, að gengi krónunnar var fallið áður en hún komst til valda. AFT er talað um það, að " ýmiss konar spilling ríki í þjóðfélagi okkar. Að menn séu ekki jafnir fyrir lögun- um og að fullkominn heiðar- leiki sé ekki lengur í háveg- um hafður. Mikið af þessu tali er sem betur fer ýkt, en því miður á það samt við veruleg rök að styðjast. Einskonar „náttúrulög- mál“ Ekki er nokkur vafi á því, að haftakerfið hefur átt veiga mikinn þátt í þeirri spillingu, sem vart verður : þjóðlífinu. En þetta kerfi hefur nú stað- ið svo lengi, að þjóðin er orð- in því vön að ýmsu leyti, og eru sumir jafnvel farnir að líta" á það sem eins konar „náttúrulögmál"! Svo mjög geta illar venjur breytt hugs- unarhættinum. Það hlýtur eitthvað að vera bogið við skipan mála, þegar sá hugsunarháttur er almennur, að meira sé upp úr því að hafa að „þekkja rétta menn“ heldur en að vinna vel og dyggilega. Þegar öflun „leyfa“ og ýmiss konar ívilnana er orðin eftirsóttari, en að Gengisfall íslenzkrar krónu hefur verið að gerast undan- farin ár, og hröðust var,ó- heillaþróunin á valdatímabili vinstri stjórnarinnar. Hin pólitísku verkföll, sem kommúnistar og Her- mann Jónasson hófu árið 1955, innsigluðu fellingar- dóminn yfir hinum íslenzKa gjaldmiðli. Þá var hafið kapp hlaup milli kaupgjalds og verðlags, sem stóð fram til ársloka 1958. Vinstri stjórnin kunni engin ráð til þess að lækna þetta sjúka efnahags- ástand. Hún kákaði aðeins við að dylja sótthita þess með gagnslausum hrossalækning- um. — Hrun og atvinnuleysi Nú er með viðreisnarráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar reynt að skera fyrir sjálft meinið. Og þá er byrjað á því að viðurkenna staðreyndir og segja þjóðinni sannleikann um ástand efnahagsmála hennar. En það finnst komm- únistum og Framsóknar- mönnum ganga glæpi næst. vinna fyrir raunverulegum verðmætum, vill vegur dyggðarinnar verða vand- rataður og hrösulum verða hætt. Bauð spillingunni heim Afnám haftakerfisins tákn- ar vissulega ekki, að eitthvað misjafnt geti ekki viðgengizt. En með afnámi þess er of- stjórn rutt úr vegi, sem bein- línis hefur boðið spillingunni heim. Að höftunum frátöldum mun skattakerfið hafa átt mestan þátt í því að deyfa til- finninguna fyrir réttu og röngu. Skattarnir hafa verið svo óréttlátir, að stór hluti þjóðarinnar hefur talið það sjálfsagt að draga eins mikið undan skatti og unnt hefur verið. Þetta virðingarleysi fyrir ranglátum lögum hefur svo færzt í sumum tilfellum yfir á önnur lög. Það eru því meira en efna- hagsmál í þrengstu merkingu, sem um er að ræða, þegar verið er að leiða þióðina út úr myrkviði kreppu- og styrjaldarhagkerfisins, og ýmiss konar óréttlætis á öðr- um sviðum. — tara fram í maí n.k. UNDANFARIÐ hefur allt verið „á öðrum endanum“ í smábænum Ober-Ammergau í suðurhluta Bayerns — og svo mun enn verða um skeið. Ástæðan? — í maí hefjast þar hinir frægu passíu- eða helgi- leikir, sem fram fara á 10 ára fresti — og allir, sem vettl- ingi geta valdið, vinna nú að undirbúningi þeirra. — Nú þegar er hver einasti að- göngumiði að sýningunum seldur — en þrátt fyrir það berast ferðaskrifstofu bæjar- ins enn daglega 500—600 bréf með aðgöngumiðapöntunum. # Plágan Hver er annars forsaga þessara einstæðu „leiksýninga“? — Það var árið 1632, að litla sveitaþorp- ið Ober-Ammergau fékk að kenna á hinni harðvítugu plágu, „svarta dauðanum". — Fólkið hrundi niður unnvörpum — og ótti greip um sig meðal íbúanna. 1 því skyni að milda hina illu anda, er menn hugðu valda plág- unni, hét bæjarráðið því, að upp frá því skyldi sýna passíuleik í bænum tíunda hvert ár, þar sem lýst yrði píslum og dauða Krists — ef pestarfaraldurinn stöðvað- ist. Svo brá við, að sjúkdómurinn Bœrinn hefir gífur- legar tekjur af sýningum þessum — enda gerast nú „Mammons-sjónar- miðin œ ágengari... fjaraði brátt út — og síðan hafa helgileikir verið sýndir í bænum tíunda hvert ár, eins og bæjar- ráðið hafði heitið. Aðein’s þrjú frávik hafa orðið frá venju þess- ari: Þegar fransk-þýzka stríðið geisaði og í heimsstyrjöldunum tveimur. • Enginn er verri, þótt hann vökni Parísarleikirnir hefjast kl. 8,15 að morgni og standa til kl. 18 að kvöldi — svo að það má segja, að leikararnir hafi ærið dags- verk að vinna, a. m. k. þeir, sem með aðalhlutverkin fara. — Leik urinn fer fram í miklu hringleika húsi, sem reist var aldamótaárið. Þar er rúm fyrir 5200 áhorfend- ur — talsvert fleiri en allir íbúar Anton Presinger, sem fer með hlutverk Jesú Krists. — Mynd- in er tekin fyrir utan gistihús- ið hans. bæjarins eru. — Leikhúsið er opið, þ. e. a. s. þaklaust, og ekk- ert skýli er einu sinni yfir leik- sviðinu. Leikararnir verða því að vera við því búnir að vökna — því að sýningu er aldrei frestað, þótt ausandi rigning sé. — All- ir, sem með hlutverk fara, eru innfæddir bæjarbúar — yfir 1000 talsins. — Það skilyrði er sett, að allar konur, sem þátt taka í leikn um, séu ógiftar. • Feikna-tekjur Enn er byggt á sama grunni og í upphafi — hið trúarlega er höfuðatriðið í sambandi við þessa erfðavenju. Þó verður því ekki neitað, að „peningasjónarmið" eru tekin að gera allmjög vart við sig í seinni tíð. Má geta þess til dæmis, að enginn aðkomumað- ur fær keyptan aðgöngumiða að leiksýningunum, nema hann skuldbindi sig jafnframt til þess að gista a. m. k. tvær nætur í einu af gistihúsum bæjarins. Tekjurnar af sýningunum eru líka feikilegar, eins og nærri má geta — svo miklar, að segja má, að bærinn „lifi“ á þeim þau tíu ár, sem líða milli sýninga. — Þannig er það t.d. nú, að þegar hafa verið unnar miklar fram- kvæmdir „út á“ væntanlegan hagnað af næstu sýningum — í maí. Byggð hefir verið ný slökkvi stöð, nýtt ráðhús, stærðar-skóla- í Ober- hús og nýtt holræsakerfi. Upp- til 60 millj. ísl. króna, hefir verið hæðum, sem svara til a. m. k. 50 varið til þess að betrumbæta vegi til bæjarins og byggja nýja. Og þegar líða tekur að hátíðinni, þarf aukið vinnuafl í ýmsum greinum — t. d. mun þurfa að ráða 100 starfsmenn við póstaf- greiðslu til bráðabirgða. Nú þeg- ar vinna 35—40 manns að stað- aldri í ferðaskrifstofunni myrkr- anna milli — og betur má, ef duga skal, þegar nær líður hinni miklu stund. • Mammon sækir á Við minntumst áðan á „pen- ingasjónarmið“ í sambandi við passíuleikina. — Það hefir orðið til þess, að íbúar þorpsins hafa skipzt að nokkru í tvo hópa út af sýningunum. — Þeir sem vilja hafa þennan aldagamla sið í full- um heiðri og halda honum „hrein um og ómenguðum", vilja, að sýn ingarnar verði framvegis sem hingað til aðeins á tíu ára fresti. Aðrir telja það hreinustu firru, með tilliti til þess mikla áhuga, sem fólk hefir sýnt helgileik- unum, að halda þá ekki oftar en nú — helzt á hverju ári. Munu þeir jafnvel vera heldur fleiri, sem aðhyllast þessa skoðun — en talið er líklegt, að sætzt verði á það í bráð, að leikirnir verði framvegis haldnir fimmta hvert ár. — En þróunin sýnir, að „Mammon gamli“ er farinn að láta þarna æði mikið til sín taka. • Kristur — hóteleigandi 1 hópi þeirra, sem telja, að halda beri fast við hina gömlu Irmgard Dengg, önnum kafin við sín daglegu störf í skrif- stofunni. — Hún fer með hlut- verk Maríu „tradisjón”, er maðurinn, sem fór með hlutverk Krists síðast og vakti þá mikla aðdáun fyrir næma og innilega túlkun sína á frelsaranum: Anton Presinger, 47 ára gamall hóteleigandi í bæn- um. Hann fer einnig með hlut- verk Jesú í ár. — Presinger er á Framh. á bls. 12 ÚT ÚR MYRKVIÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.