Morgunblaðið - 11.02.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.1960, Blaðsíða 4
4 MOHGVlvni.ABlB Plmmtudacrur 11. febrúar 1960 I dag er 42. dagur árslns. Fimmtudagur 11. íebrúar. ÁrdegisflæSi kl. 4,55. Siðdegisflæði kl. 17,12. Siysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. — Læknavörður L.R. Cfyrii vitjanir), er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 1503o Vikuna 6.—12. febrúar verður næturvörður í Laugavegs-apóteki Vikuna 6.—12. febrúar verður næturlæknir í Hafnarfirði, Krist ján Jóhannesson, sími 50056. K Helgafell 59602127. IV/V. 2. □ GIMLI 59602117 — 1 Pr. Atk. I.O.O.F. 5 = 1412118% = 9. I. uppi RMR — Laugard. 13. 2. 60. 20. Kynd. Htb. Brúókaup Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Gislína Krist- jánsdóttir og Guðjón Oddsson, starfsmaður hjá Málaranum. — ASIS tók brúðarmyndina. Skipin Eimskipafélag Islands h.f.: — Dettifoss fór frá Vestmannaeyj- um í gærkveldi til Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá Hafnarfirði 10. þ. m. til Reykjavíkur. Goðafoss fór frá Keflavík 3. þ.m. til New York. Gullfoss fór frá Hamborg 9. þ.m. til Kaupmannahafnar. — Lagarfoss er í Keflavík. Reykja- foss er í Reykjavík. Selfoss fór frá Fredrikstad 10. þ.m. til Ál- borg. Tröllafoss fór frá Gdynia 10. þ.m. til Hamborgar. Tungu- foss fer frá Kaupmannahöfn 11. þ m. til Ábo, Rostock og Gauta- borgar. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er á Austfjörðum á suðurleið. — Skjaldbreið er á Húnaflóa á leið til Reykjavíkur. Þyrill er á leið frá Fredrikstad til Reykjavíkur. Herjólfur fer frá Vestmannaeyj- um í kvöld til Reykjavlkur. — Baldur fer frá Reykjavík í kvöld til Sands og Grundarfjarðar. Skipadeild S.I.S.: — Hvassafell er á Skagaströnd. Arnarfell fer í dag frá New York áleiðis til Reykjavíkur. Jökulfell er í Aber deen. Dísarfell er á Akranesi. — Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell fer frá Hafn- arfirði í dag áleiðis til Rostock. Hamrafell fór frá Reykjavík 2. þ. m., áleiðis til Batum. H.f. Jöklar: — Drangajökull er í Reykjavík. Langjökull kom til Warnemúnde í fyrrakvöld. — Vatnajökull fór frá Reykjavík í gærkveldi á leið til Rússlands. □-------------------------□ LJÓÐ DAGSINS ÚR „HRÆREKI KONUNGI" Við vorum fram úr rekkjum reknir sem refir í greni teknir. Tryggðir máttu sumir sverja, suma nægði að kvelja og merja, blinda og berja. Blóðug eru böðlasporin. Burt var tunga úr einum skorin. Þá var kristinn sálmur sunginn og síðan Maríukvæði, svo voru augun úr mér stungin, — augun mín bæði. Allt var glatað, gleðin þrotin, gæfan sundur brotin, land mitt týnt og lýðir allir, lausafé og hallir. Aft mitt þvarr og andans styrkur. Yfir mig kom dauðans mvrkur, eins og brim það um mig flóði, — augun grétu blóði. Davlð Stefánsson. Hafskip: — Laxá er í sements- flutningum í Faxaflóa. Eimskipafélag Rvíkur h.f.. — Katla er í Riga. — Askja er vænt anle'g til Reykjavíkur á föstu- dag. ESlFlugvélar Flugfélag Islands h.f.: — Hrím- faxi er væntanlegur til Reykja- víkur kl. 16:10 í dag frá Kaup- mannahöfn og Glasgow. — Inn- anlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða, Isafjarðar, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vest mannaeyja og Þórshafnar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, — Hornafjarðar, Kirkjubæjarklaust urs og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: — Hekla er væntanleg kl. 7:15 frá New York. Fer til Oslóar, Gautaborgar, Kaupmannahafnar kl. 8:45. — Edda er væntanleg kl. 19:00 frá Hamborg, Kaupmannahöfn, — Gautaborg og Stavanger. Fer til New York kl. 20:30. g^Ymislegt Orð lifsins. — Jesús svaraði og sagði við þá: Verið ekki m^ð þennan kurr yðar á meðal, eng- inn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, dragi hann, og ég mun uppvekja hann á efsta degi. Ritað er í spámönn- unum: Þeir munu allir verða af Guði fæddir hver sem heyrir föð urinn og lærir, sá kemur til mín. (Jóh. 6). Kvenfélag Kópavogs: — Tága- vinnunámskeið félagsins hefjast í Kópavogsskóla 18. þ.m. Annað námskeið verður haldið í P-árs- nesskóla fyrir Vesturbæjar-kon- ur og hefst það 3. marz n.k. — Nánari upplýsingar gefur kenn- arinn, frú Elsa Guðmundsdóttir, í síma 10239. Leiðrétting: — I frétt í blaðinu í gær var það missagt að Stefán Pálmason hefði verið bústjóri á Korpúlfsstöðum frá 1931. Hann var þar verkstjóri frá 1931, en bústjóri eftir 1942, eftir að Reykjavíkurbær eignaðist jörð- ina. Æskulýðsráð Reykjavíkur: — Tómstunda- og félagsiðja fimmtu daginn 11. febrúar 1960. — Lind- argata 50: kl. 7,30 e.h. Ljósmynda mv^gunícciffimi Hún horfði hneyksluð á mann sinn. — Hansen veit vel að þú drekkur ekki vín — og svo segir þú að hann hafi boðið þér heim til að fá einn léttan. Hvað seg- irðu við annari eins móðgun? — Hm, ég — ég renndi hon- um bara niður, svo lítið bar á. ¥ Maðurinn kom mjög niðurlút- ur inn í blómaverzlun og bað um bjómvönd. Afgreiðslustúlkan, sem hélt að það væri vegna jarð- arfarar, varð mjög undrandi er maðurinn bað hana að senda konu sinni vöndinn vegna brúð- kaupsafmælis þeirra. „Og hve- nær er það?“ spurði stúlkan. „f gær“, svaraði hann dauf- lega. iðja; kl. 7,30 e.h. Smíðaföndur; kl. 7,30 e.h. Söfnunarklúbbur (Blóm). — Miðbæjarskóli: kl. 7,30 e.h. Brúðuleikhúsflokkur. — Laugardalur (íþróttavöllur): kl. 5,15, 7 og 8,30 e.h. Sjóvinna. ^Pennavinir Norræna félagið hefur beðið blaðið að birta eftirfarandi nöfn unglinga, sem gjarna vildu komast í bréfasam- band við íslenzka unglinga. Birgitta Wáfeldt, Lönnvágen 5 Álta, Sverige. Hún vill skrifast á við dreng á aldrinum 16—18 ára. Skrifar sænsku, ensku eða þýzku. Sonja Blomquist, Utsiktsvágen 2, Násbypark, Stockholm. Hún er 26 ára gömul og óskar eftir að skrifast á við VILLISVAIMIRIMIR - Ævintýri eftir II. C. Andersen einhvern Islending. Hún vinnur h.já bókaforlagi og hefur mikinn áhuga fyrir Islandi. Lennart Daníelsen, Batsmansvágea 10, Lidingö 1, Sverige. Er 12 ára gam- all og óskar eftir að skrifast a viM dreng á Islandi. Tord Öptman, Bergsgaten 2, Katríne holm, Södemanland, Sverige. Er 14 áre og vill skrifast á við stúlku á IslandL Mr. H. Ivett, 61 Melbury Rd. Woodt- horpe, Nottingham, Englandi. — Er frímerkjasafnari og óskar eftir sarn- bandi við íslenzkan frímerkjasafnara. Oskar Sörensen, Carstensgade 17, Tönder, Danmark. — Er 20 ára gamall- og frímerkjasafnari. Báðir þessir menn óska eftir að skiptast á frímerkj um við Islendinga. Björn Myhre, Eklundvejen 19, Fred- rikstad, Norge. (15 ára). N. P. Renning Sanatorium Berg en fiosch Bilthoven Holland (Frímerkja- safnari). Skrifar ensku, þýzku og frönsku. Hans Ivan Storvik, Box 72, Vágáno, Norge (Frímerkjasafnari). Gerd Einvoll, Kjelling, via Bodö Norge. (15—17 ára pilt eða stúlku). Gabriella Rasmo, Via Nicoló d’Arcö, 2, Trento, Italy. Christel Schlivka Gelsenkirchen — Horst Teplitzerstr. 13, Deushland (1€ ára). Svanirnir settust rétt hjá henni og blökuðu stórum, hvítum vængjum sínum. Jafnskjótt og sólin var gengin undir, féllu álftar- hamirnir af þeim — og þarna stóðu þá ellefu fríðir kóngs- synir. Það voru bræður Elísu. — Hún hljóðaði upp yfir sig, því að hún þekkti þá þegar, þótt þeir hefðu reyndar breytzt mikið. Hún fann, að það hlutu að vera þeir, og hún þaut beint í faðm þeirra og nefndi þá með nafni. Þeir urðu himin-lifandi glaðir, þegar þeir sáu litlu systur sína, sem nú var reynd ar orðin stór og yndisfögur stúlka. Þau hlógu og grétu i senn, og brátt komu þau hvert öðru í skilning um, hve óskaplega vond stjúpa þeirra hafði verið við þau. P^gAheit&samskot Til Hallgrímskirkju í Saurbæ: Frú Pálína Aðalsteinsdóttir I skrifstofu Morpunblaðsins hefur í dag afhent mér 3.795,00 kr„ sem sendar höfðu verið til blaðs- ins, sem gjafir til Hallgríms- kirkju í Saurbæ. — Rvík 10. febrúar 1960. Matth. Þórðarson. Áheit og gjafir til Barnaspit- alasjóðs Hringsins. — Minningar gjöf um Guðbjörgu Sveinbjörns- dóttur, Efstasund 47, frá Óskari Matthíassyni, lllugagötu 2, Vest- mannaeyjum, kr. 500,00. Minn- ingargjöf um Magnús Má Héðins son frá föður hans kr. 100,00. — Minningargjöf um Þórarinn Guð- jón Stefánsson, frá foreldrum hans, kr. 100,00. — Áheit frá fjórum systkinum kr. 100,00; Á M kr. 150,00. — Kvenfélagiö Hringurinn færir gefendunum beztu þakkir. Rafnkelssöfnunin: — Ómerkt kr. 50,00; G B 200,00; Suðurnesja kona 100,00; O J 25,00. FERDIIMAIMD Eins og pabbi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.