Morgunblaðið - 01.05.1960, Page 2

Morgunblaðið - 01.05.1960, Page 2
2 MORGUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 1. maí 1960 Herlög í Ankara og Miklagarði MIKLAGARÐI, 30. apríl — Hernaðarástandi hefur nú verið lýst í Miklagarði og Ankara og mun það gilda í þrjá mánuði fyrst um sinn. í dögun í morgun voru fjölmargir stúdentar hand- tcknir og fluttir í fangabúðir hersins. Þetta gerðist í Miklagarði. Mik ill fjöldi stúdenta neitaði að yfir- gefa háskólann þrátt fyrir að lýst hafði verið yfir hernaðar- átsandi og útgöngubanni. Var þeim gefinn stundarfjórðungs- fnestur til að hverfa úr háskól- anum í gærkvöldi, en þeir fóru hvergi. Hraðkeppnismótið; Úrslit f kvöld ÚRSLITALEIKIR Hraðkeppnis- mótsins verða að Hálogalandi í kvöld og hefjast kl. 8.15 — Búast má við skemmtilegri keppni. F. H. stillir öllum landsliðsmönn- um sínum upp í a-liðið, en beztu 2. fl. piltarnir skipa b-lið félags- ins. Gaman verður einnig að sjá Fram aftur meðal meistaraflokk- anna, en sem kunnugt er vann Fram sig upp úr 2. deild á íslands mótinu. Úrslitaleikurinn á ís- landsmótinu milli F. H. og K. R., er einnig enn í huga K.R.-inga, og er enginn vafi á að þeir munu gera sitt til að stöðva hina miklu sigurgöngu F. H., en F. H. hefir tekið þátt í 13 hraðkeppnismót- um innanlands og utan og sigrað tíu sinnum. Allur ágóði rennur til utan- farar Kvennalandsliðsins og ætti það eitt að draga menn og konur til leikjanna. Ellefu bátar nieð 38 Vz lest SANDGERÐI, 29. apríl. — Ellefu bátar komu til Sandgerðis í gær með 88% lest. Guðbjörg var hæst með 15,2 lesJtir, Stafnes hafði 13,2 lestir og Steinunn gamla 12,9 lestir. Línubáturinn Jón Gunnlaugsson íékk 9,5 lestir. — Axel. Ekkert var aðhafzt í nótt, en snemma í morgun sló herinn hring um háskólann og handtók mikinn fjölda stúdenta. A. m. k. 20 herflutningabílar óku skömmu síðar frá skólanum þéttskipaðir stúdentum, sem fluttir voru beint í fangelsi. Hermenn voru hvarvetna á verði í Ankara, Miklagarði og Izmir og skriðdrekar voru settir við mikilvaegar byggingar. Þegar síðast fréttist var samt allt með kyrrð í borgunum. Ánægjulegir tónleikar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ var þéttskip- að áheyrendum sl. föstudags- kvöld á fimmtu afmælistónleik- úm Sinfóníuhljómsveitar íslands undir stjórn Dr. Smetaceks frá Prag. — Efnisskráin var tékk- nesk-íslenzk: Forleikur að gam- anleik eftir Jinrich Feld, því næst kom verk eftir Hallgrím Helgason: Intrada og kanzóna — samið fyrir strengjasveit. Var höf undur verksins kallaður á sviðið og hylltur sérstaklega er það hafði verið leikið. Síðan var leik- in syrpa af dönsum frá Mæri. — Eftir hléið var leikin hin fræga 9. sinfónía 1 e-moll eftir Dvorák, „Frá nýja heiminum". Stjórnanda og hljómsveit var frábærlega vel tekið. Sérstklega í lok hljómleikanna er fagnaðar- lætin náðu hámarki sínu. Smeta cek var kallaður fram hvað eftir annað og hylltur ákaflega af hrifnum og þakklátum áheyrend- um. Voru tónleikarnir í heild sér staklega ánægjulegir. Hásetarnir, sem voru við landtökuna. — Þeir bera hinn ósvikna „tjalia-svip“, eins og togarasjómenn okkar kalla hina brezku starfsbræður sína. — (Sjá frétt á bls. 24). Sýning á verkum nem- enda Myndlistaskólans MYNDLISTASKÓLINN í Reykja vík opnaði í gær sýningu á verk- um nemenda skólans í húsnæði Ásmundar Sveinssonar að Freyju götu 41. Á sýningunni eru 140 teikningar og krítarmyndir eftir nemendur í teiknideild, 20 olíu málverk eftir nemendur í málara deild og 15 höggmyndir eftir nem endur í höggmyndadeild. Alls eru þarna listaverk eftir ' AVMVtt > •t' /««wrn» ■■ t t t tr tt t tt\ 'ííKWflft,t t rt'-t f t t ttrtfifirrrrtv r s vv.ttt . j tt | Z*' NA 15 hnútor J l/ S V 50 hnutar ¥: Snjókoma > OSi X7 SJrúr/r K Þrumur w%, Kuldaskil Hitaski/ H L 1 MORGUN var hæðarmiðja (1032 mb) nálægt Akureyri, svalt í veðri en heiðríkt um land allt. Austanlands var N- kaldi og A-átt sunnanlands en logn á Vestfjörðum og Norður landi. Kaldast var í Möðrudal 5 st. frost, en hlýjast í Eyjum 2 st. hiti. 1 nótt var lágmarkshiti í Reykjavík — 1.6 stig og alveg niðri við jörð var 4 stiga frost. Fyrir norðaustan landið er allmikii lægð á hreyfingu SA eftir. Veðurútlit Sv-land tii Norðurlands, Sv- mið til Norðurmiða: Breytileg átt og hægviðri, bjartviðri. NA land og Austf. NA-mið Aust- fj. mið: — Vaxandi norðan átt, léttskýjað. SA-land og SA- mið: Stillt og bjart veður iTvær ungar húsmæður í hinu/ )nýja og enn ört vaxandi íbúð-/ ■larhverfi í Hálogalandi, hafay ,fyrir skömmu opnað vefnaðar- /vöruverzlun. Kaupkonurnart , eru frú Ragnheiður Jónsdóttir^ J)og Svanhildur Svanbergsdótt- kir og heitir verzlunin Sólheima) ; búðin og er í verzlunarhúsinu') Sólheimar 35. Auk þess semv /þar er á boðstólum hvers kon-t )ar álnavara og fatnaður, hafa/ ) kaupkonurnar í hinni smekk-/ . Iegu verzlun sinni einnig á) , boðstólum ýmis konar smá-v /vörur, tölur, tvinna og þessC )háttar. Á þessum stað verður/ )helzti verzlunarstaður þessa/ \ hverfis og er þar þegar komin > , kjörbúð, Jónskjör, fiskbúð og) /kjötbúð. Drengurinn fannst I GÆRDAG var auglýst í út- varpinu eftir fjögurra ára dreng, sem hafði horfið að heiman frá sér um morguninn og var enn ókominn. Var hafin leit að drengnum og tilkynnt lögregl- unni, en hann fannst um miðj- an dag. um 50 nemendur. Viðfangsefni eru mjög fjölbreytt, einkum teiknideildar, enda hefur kenn- ari hennar, Ragnar Kjartansson haft þann hátt á að fara með nemendur sína víðsvegar um bæ inn, og þeir síðan teiknað myndir af því, sem fyrir augu bar, m. a. eru þarna myndir frá höfninni, frystihúsum, gróðrarstöðvum, söfnum og fl. Flestar myndirnar eru gerðar með penna, blýani og kolum, auk þess eru æfingar með japanskri olíukrít, pastel og vatnslitum að ógleymdri glerprentun (svartlist araðferð), sem er nýjung hér á landi. Þá eru athyglisverðar tilraunir í nýjum formum í myndhöggvara deild undir handleiðslu okkar aldna og ágæta Ásmundar Sveins sonar, myndhöggvara. Kennari málaradeildar er Veturliði Gunn arsson, listmálari. Sýningin verður aðeins opin í dag kl. 2—10, en um miðjan þenn an mánuð verður væntanlega sýn ing á verkum nemenda í barna- deild skólans. Viðskipti við Pólland SAMKOMULAG um viðskipti við Pólverja, er undrritað var í Varsjá 5. marz 1959 og falla átti úr gildi hinn 31. marz sl., hefur nú verið framlengt óbreytt til septemberloka 1960 með erinda skiptum milli utanríksráðuneyt- isns og sendráðs Pólverja í Reykjavík. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 29 apríl 1960. — Lúðvik Dagskrá Alþingis DAGSKRAR á fundum Alþingis á morgun kl. 13:30 verða sem hér segir: Efri deild: — 1. Utsvör, frv. 3. umr. — 2. Sjúkrahúsalög, frv. — Frh. 3. umr. — 3. Jarðræktarlög, frv. — Frh. 3. umr. — 4. Orlof húsmæðra, frv. — 3. umr. — 5. Lækningaleyfi, frv. — 1. umr. — 6. Ráðstöfun erfðafjárskatts og erfða- fjár til vinnuheimila, frv. — 1. umr. — 7. Lögheimili, frv. — 3. umr. Neðri deild: — 1. Ríkisborgararéttur, frv. — 3. umr. — 2. Reykjanesbraut, frv. — 1. umr. — 3. Abúðarlög, frv. — 2. umr — 4. Matreiðslumenn á skip- um, frv. — 1. umr. — 5. Menntaskóli Vestfirðinga, frv. 1. umr. Ef deildin leyfir. — 6. Innflutnings- og gjaldeyr- ismál, frv. — Frh. 2. umr. — 7. Dýra- læknar, frv. — 1. umr. — 8. Skólakostn aður, frv. — 1. umr. Ef deildin leyfir. — 9. Sala tveggja jarða í Austur-Húna vatnssýslu, frv. — 3. umr. Framh. af bls. 1 staðlhæfingu Lúðvíks, að þeir Hermann Jónasson hafi viljað flytja tillögu annars efnis? — Það er rétt, að slík hugmynd kom fram í nefndinni, en sam- komulag varð um, að ekki væri vit í að flytja slíka tillögu, fyrr en búið væri að kanna, hvaða und irtektir hún mundi fá. Tók Lúðvík Jóseísson að sér að kanna fylgi kommúnista- ríkjanna. Eftir að hann hafði tekizt það á hendur lét haim aldrei í nefndinni heyra í sér um tillöguna. Og þegar hann á síðara stigi var spurður, hvort hann vildi filytja aðrar tillögur en þær, sem lágu fyr- ir, kvað hann nei við! Er augljóst að þegar hann ' kynntist afstöðu kommúnista ríkjanna, vildi hann ekki að hún kæmi í ljós á ráðstefn? unni, en notar nú þessa hug- mynd til þess að skapa tor- tryggni í - garð samnefndar- manna. — Lúðvík lætur nú svo sem það hafi verið rangt að iýsa í fyrstu ræðu utanríkisráðherra yfir stuðningi við kanadisku tillöguna, eins og hún þá lá fyrir. — Já, viðtalið við Lúðvík verð ur ekki skilið á annan veg og hlýtur það að koma öðrum nefnd armönnum á óvart, því að um það var aldrei snefill af ágrein- ingi í nefndinni, að við ættum að samþykkja hina upphaflegu tillögu Kanada, meðan í henni var ekki gert ráð fyrir neinum sögulegum réttindum. Miðaði allt við hagsmuni Rússa — Lúðvík Jósefsson fjölyrðir um, að við höfum gerzt líklegir til að „svíkja samherja okkar“ á ráðstefnunni. — Það leynir sér ekki, hverjir voru samherjar Lúðvíks á ráð stefnunni. Hann miðaði allt við að fylgja Rússum í einu og öllu og varð æfur af til- hugsuninni um þann mögu- leika, að íslendingar gætu tryggt sér viðurkenningu á óskertri fiskveiðilandhelgi. Hann taldi meira um vert, að ráðstefnan færi út um þúfur, heldur en þó baráttunni fyrir 12 mílum Iyki með fullum sigri íslendinga. Samhugur Rússa við okkar málstað náði þó ekki lengra en svo, að þeir voru ófáanlegir til að samþykkja nokkuð um sér- stöðu utan 12 mílna, þó að flestir aðrir fengjust að Íokum til að samþykkja tillögu í þá átt, sem að vísu er þó ekki fullnægjandi, en spor í rétta átt. Einlægnina í stuðningi komm- únistaríkjanna við baráttu Is- lendinga fyrir 12 mílum má svo marka af hótunum Lúðvíks um pað, að þessi ríki mundu hefja veiðar innan við 12 mílurnar, ef önnur ríki samþykktu tillögu um, að hinn „sögulegi réttur“ skyldi ekki taka til Islands. Sýslumaður Húnvetninga RUGLINGUR varð á myndum er blaðið í gær var búið til prent- unar. Myndin með fréttinni af því að Jón Lsberg hefði verið skipaður sýslumaður í Húnavatns sýslu var ekki af honum. Rétta . myndin af hinum nýja sýslu- j manni Húnvetninga birtist hér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.