Morgunblaðið - 01.05.1960, Side 11

Morgunblaðið - 01.05.1960, Side 11
Sunnudagur 1. maí 1960 MORGVNBLAÐ1Ð 11 lagfært af vinstri stjórninni. Menn skulu því gjalda varhug við upphrópunum kommúnista. Það ber að fagna því að ís- lendingar verða framvegis óháð- ir óeðlilegum viðskiptum við herinn og komið verði í veg fyr- ir að efnahagskerfið bíði tjón af brottför hans. Þar með er efna- hagslegt sjálfstæði styrkt frá því sem var og viðreisnin meiri en f orði kveðnu. Kommúnistar hætta sér því út á hálan ís með þvi að gagnrýna þennan þátt viðreisnarinnar. Það sannar enn betur að þeir vilja hafa varnar- liðið sem tekjulind. Þekkingarskorturinn var þáð sem núverandi stjórnarandstaða ætlaði að byggja á. Því ætlaði liún vitlaus að verða, þegar ríkisstjórnin lét dreifa upplýsing um um efnahagsástandið um landið. Það er mikill fengur fyr- ir þjóðarheildina að vita glöggt hvar við stöndum í dag og bera upplýsingarnar saman við réttmæti viðreisnarráðstafan- Jóhann Sigurðsson: 99Vinir verkalýðsins og efnahagsráð- stafanirnar 66 ÞAU breyttu viðhorf í efnahags- málum, sem nú mæta alþýðu- manninum 1. maí, bera á marg- an hátt annað og hreinna yfir- bragð en oft hefir verið á liðnum árirni, og á ég þar við hreinni línur skýrari og raunhæfari á- form til viðreisnar efnahag þjóð- arinnar, áform sem kalla á mörg' og stór átök og nokkra fórn um isspa Jóhann Sigurðsson stundar sakir. Það er því eðlilegt, að launþeginn horfi með gætni fram á veginn. Réttlátur dómur hlýtur ávallt að byggjast á raun- sæju mati, ef engum á að gera rangt til, og „til þess eru vitin að varast þau“, stendur einhvers staðar. Hér verður því staldrað við , áður en dæmdar eru gerðar efnahagsráðstafanir núverandi ríkisstjórnar. Hverfi maður aftur til ársins 1956, fylgi ilðan tímanum fram að síðast, á árinu 1958, kemur í ijós svo ekki leikur á tveim tungum, að þessi tími, undir for- ustu „vina verkalýðsins", eins og þeir sjálfir kalla sig, hefir verið einn sá örlagaríkasti í efnahags- sögu þjóðarinnar og kippti raun- ar endanlega máttarstoðunum undan fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarbúsins, svo hverjum má vera ljóst, að sú braut varð ekki gengin feti lengra nema upp- lausn og hrun fylgdi á eftir. Þetta tímabil snéri að verkalýðn- um hlið kjararýrnunar skatta og tollaálagna í alls konar lítt skilj- anlegum gervum, og er þar milljónasúpan frá þessum tíma ólygnasti minnisvarðinn. Þar að auki, voru þar, er því varð við komið, verkalýðssamtökin mis- notuð til lífsframdráttar þáver- andi valdhöfum. Nú koma þessir 6Ömu menn, berja sér á brjóst og vilja láta fólkið trúa því, að þeir einir viti rétta lausn og séu fær- ir um að sigla fleyinu heilu í höfn. Aðrir megi þar ekki koma nærri, því þeir leiði aðeins eymd yfir þjóðina, og séu sérstaklega fjandsamlegir vinnustéttum. Slík afstaða og stóryrði fara illa í munni kommúnista og Fram sóknarmanna nú, þeir hafa feng- ið sín tækifæri, en dæmt sjálfa sig úr leik. Reynslan sannaði, að þeir eru ekki vandanum vaxnir, eða hver myndi sækjast eftir að ráða sem stjórnanda í farkost sinn þann sem uppvís væri að því, að sigla skútu sinni í strand, vegna þess að hann kunni ekki, brast kjark og gat ekki lært leið- ina, sem fara varð. Kommúnistar Qg Framsóknar- menn, í sinni stjórnartíð, tefldu sjálfa sig mát, afstaða þeiira nú er því allt í senn ábyrgðarlaus, hjákátleg, svo ekki sé sagt blátt áfram hlægileg. Alþýða þessa lands ætti því að geyma í huga sínum kafla áranna, sem nefnd eru hér að framan, og veigra sér ekki við að bjóða kommún- istum og Framsóknarflokknum uppá lestur registurs sinna eigin verka fyrr og síðar. Það er yfirlýst stefna núver- andi ríkisstjórnar, að snúa sér þegar á fyrsta áfanga, að við- reisn efnahagsmálanna, enda höf uðnauðsyn, því efnahagurinn er óumdeilanlega hornsteinninn að allri annarri veraldlegri velferð. Hér veltur því á miklu, að vel takist og rétt sé á haldið. Það ber því að hafa í huga, að þeg- ar vinstri stjórnin gafst upp var engra góðra kosta völ. Það lá því beinast við sem gert var, að upplýsa og leggja vandann um- búða- og undanbragðalaust á borðið svo þjóðin ætti þess kost að gera sér ljóst, hvar á vegi hún væri stödd í þessum efnum. Þær ráðstafanir, sem nú hafa verið gerðar í efnahagsmálum, eru ekki settar fram með því gylliloforði, að enginn þurfi neins í að missa, heldur var þegar í upphafi skýrt frá þeirri stað- reynd, að það væri óframkvæm- anlegt, að gera það sem að gagni kæmi, nema það hefði í för með sér nokkra fórn í bilL Stjórn- arandstaðan hefir því gripið feg- ins ‘ hendi þá afstöðu, að túlka efnahagsaðgerðirnar einhæft sem kjararýrnun og árás á fólkið. Hins geta þeir ekki, að efna- hagsaðgerðirnar fela í sér grund- völl heilbrigðrar efnahags- afkomu í framtíðinni, og einnig þegja þeir um það, að sérstakar ráðstafanir eru gerðar til að koma til móts við þá sem eru verst settir og erfiðasta hafa að- stöðuna. Á ég þar við niðurfell- ingu skatta og stórhækkaðar fjölskyldubætur, sem og örorku og ellilífeyrir. Það er bjargföst skoðun mín, að fái þær efna- hagsráðstafanir, sem nú hafa séð dagsins ljós, tíma og frið til að sína hvers þær eru megnugar þá muni að skömmum tíma liðnum, allir réttsýnir menn fagna því sfóra og þunga skrefi, sem nú verandi ríkisstjórn hefir stigið til bjargar og uppbyggingar landi og þjóð. Það er ekki ósanngjörn krafa að fórna nokkrum tíma svo í Ijósi reynslunnar fáist úr því skorið, hvort hér er verið á réttri leið. Það er því ósk mín til íslenzkrar alþýðu í dag, að hún beri gæfu til að fella ekki sinn dóm á nú gerðar ráðstafanir í efnahags- og gjaramálum fyrr en hún hefir dóm reynslunnar til hliðsjónar. Jóhann Sigurðsson. Pélur Sigurðsson alþm. Hvað er framundan? A HATIÐISDEGI verkalýðsins fer sá siður í vöxt og fer vel á, að sem flestir launþegar láti til sín heyra um kjaramál sín og önnur hagsmunamál, baráttuna sem er að baki og sem framundan er. Nú sem oftar eru það síðustu efnahagsaögerðir sem efst eru á baugi. Enginn vafi er á því að allur almenningur hefur fullan skiln- ing á nauðsyn þeirra aðgerða, og því að lengur yrði ekki haldið á sömu braut og farin hefur verið. Engmn vafi er heldur á því að yfirgnæfandi meii’ihluti allra launþega vill gefa aðgerðum ríkisstjórnarinnar tíma til að sanna gildi sitt, og vill una óhjá- kvæmilegum kjaraskerðingum um skeið, sérílagi vegna þess að nú hefur verið ráðist að sjálfum orsökum vandamálanna, en ekki kákað við afleiðingarnar. Og því verið skapaður möguleiki á fram búðarlausn þessara viðkvæmu mála, um leið og grundvöllur er lagður að skilyrðum til raun- hæfra kjarabóta þjóðinni allri til hagsbóta. Þá er og víst að yfirgnæfandi meirihluti allra launþega telur sjálfsagt að bíða átekta unz allar aðgerðir þingmeirihlutans og ríkisstjómarinnar eru komnar í ljós og til framkvæmda, ekki sízt hinar miklu mótráðstafanir til að mæta verðhækkunum þeim sem stafa af gengislækkuninni, og má telja þar á meðal fjölskyldu- bæturnar, afnám og lækkun tekjuskattsins, auk framlagsins úr Jöfnunarsjóði 'Sveitafélaga, til lækkunar á útsvörum. Afkoma einstaklinga og fjöl- skyldna verður því alls ekki met- in fyrr en ársafkoman öll er krufin til mergjar og athuguð í heild. Sá uggur er menn bera í brjósti nú er ekki vegna aðgerð- anna sjálfra, því efnahagsaðgerð Pétur Sigurðsson V-Evrópuríkin hafa á síðustu árum hvað af öðru tekið upp hið svokallaða frjálsa hagkerfi. Við sem komum í þessi lönd í dag erum furðu lostnir, á hinni tröllauknu uppbyggingu, stór- kostlegu framförum á öllum svið um og hinni almennu velmegun. Þessi ríki hafa náð þessu með því fyrst og fremst að innleiða frels- ið. Með því að leysa úr læðing sterkaiga mátt hverrar þjóðar, mátt einstaklingsins. Þær hafa létt af höftum og drepandi skött- um og gefið þjóðum sínum at- vinnu og frámkvæmdafrelsi. Þegar kommúnistar hafa viljað draga fram hin lélegu kjör verkamanna hér heima, þá hafa þeir fyrst og síðast borið þá sam- an við verkamenn hins frjálsa hagkerfis í nágrannalöndunum, en aldrei þá, sem búa við hag- kerfi kommúnista og þeir telja æðstu sælu fyrir fslendinga að búa við. Nú þegar rikisstjórn okkar er að stíga fyrstu skrefin til að koma á efnahagsker'fi, sem skapar þá almennu velmegun sem kommúnistar sjá ástæðu að vitna til sem fyrirmyndar, þá ætla þeir vitlausir að verða, þrátt fyrir eigin viðurkenningu á því, að þrátt fyrir völd sín í hinum voldugu launþegasamtökum og beitingu þess valds undanfarin ár, auk setu í eigin ríkisstjóm sem stjórnaði í anda hafta, skattpíningar og ófrelsis, þá sé afkoma launþega verri í dag, en hún var fyrir 10 árum!!! Skyldi 'hagur launþega, hagur þjóðar- innar ráða þessari afstöðu? Ég hefi heilshugar stutt að við- reisn ríkisstjórnarinnar. Því ég veit af eigin raun, að efnahags- aðgerðir hennar, eru, þrátt fyrir tímabundnar kjaraskerðingar, öll um launþegum, allri þjóðinni hin raunverulega leið til bættra lífs- kjara. Og þótt steinvölum og björgum þurfi að ryðja úr þeirri leið, held ég því hiklaust fram, að hagsmunaharátta launþegans í dag og næstu framtíð, sé stuðn- ingur hans við viðreisn ríkis- stjórnarinnar, stuðningur i bar- áttunni gegn niðurrifsöflum, sem koma blygðunarlaust fram I gervi erlendra leppa og annar- legra sérhagsmunamanna. Mín bezta ósk til félaga minna á sjónum og annarra launþega á hátíðisdegi verkalýðsins er sú að þeim auðnist að slá skjaldborg um sína eigin hagsmuni. Sigurður G. Sigurðsson ir í einni eða annarri mynd hafa verið árlegur viðburður síðustu ár. En um þær aðgerðir má und- antekningarlaust fullyrða, að síðan gengislækkunin var fram- kvæmd 1950, hafa aðgerðirnar síðan átt það sameiginlegt, að i hafa engan möguleika haft til að standa til frambúðar. Það er fyrst nú, að þeir mögu- leikar eru fyrir hendi og ótti launþegans í dag, er óttinn um að viðreisn sú, sem verið er að framkvæma fái ekki að standa, heldur verði brotin niður af þeim óábyrgu niðurrifsöflum, sem vita að akur þeirra er niðurbrotið efna hagslíf þjóða, óða-verðbólga og almenn upplausn. Launþegasamtök allra þeirra landa sem lengst eru komin á sviði almennrar velmegunar við- urkenna að grundvallarskilyrði kjarabóta sé aukin framleiðsla. Hjá okkur gildir þessi staðreynd ekkert síður. Fyrsta skilyrði raun hæfra kjarabóta, er aukning út- flutningsverðmæta. Með þeim stórvirku vinnslutækjum sem við j eigum nú þegar í landinu sí- vaxandi, fullkomins fiskiskipa- flota, sky nsamlegri hagnýtingu þeirrar aflaaukningar, sem frið- unaraðgerðimar hafa skapað, og stóraukin vinna kringum allt lendinga seu orðnir f'jölþættirog land vegna nytja hans, (þ. e. flatfiskjarins) vegna þessa og heilbrigðs starfsgrundvallar út- flutningsframleiðslunnar sem aftur stafar af raunhæfri gengis- skráningu. Þá geta nú verið fram Sigurður Guðmann Sigurðsson: Verkalýður á íslandi bregzt ekki skyldu sinni MEÐ heildarsamtökum sínum, Alþýðusambandi íslands, treysti verkalýðurinn baráttu sína fyrir bættum lífskjörum. Sú barátta hefur orðið árangursrik, enda þótt hún hafi stundum mótazt af vafasömum aðgerðum mis- heppnaðrar forystu. í þeirri bar- áttu hefur 1. maí öðrum dögum fremur túlkað kröfur verkalýðs- ins og markað spor hans til sókn- og sigurs. Víst munu — að þessu sinni — koma fram ýmsar kröfur vegna efnahagsmálanna og aðgerða rikisvaldsins, sem verða túlkað- ar á vissan hátt, af róttækri stjómarandstöðu. Enda þótt þær fái misjafnan hljómgrunn hjá verkalýðnum, er þó víst, að hann á sínar sameiginlegu kröfur um atvinnuöryggi í hinum einstöku starfsgreinum og trygga lífsaf- komu i efnahagslega sjálfstæðu þjóðfélagi. Þýðingarmesti atvinnuvegurinn. Þótt atvinnuvegir okkar ís- undan blómlegri tímar hjá ís- lenzku þjóðinni, en nokkru sinni fyrr. Hinar mjög tímabæru kaup- hækkanir til togarasjómanna á- samt efnahagsaðgerðunum, hafa fært nýtt líf í starfsemi þessara atvinnutækja, sem ómótmælan- lega hafa verið og eru stórvirk- sjávarútvegur og landbúnaður ekki lengur þær einu, sem lands menn sækja afkomu sína til, er sjálfur útvegurinn þó sá atvinnu vegurinn sem skapar nær öll út- flutningsverðmætin og byggir npp gjaldeyrisgetu þjóðarinnar. Efnahagsleg afkoma landsmanna og þá ekki síður afkoma ann- arra atvinnugreina, er því undir því komin hvernig að þeim aðal atvinnuvegi er búið og fram- leiðsla hans selst. íslenzkur verkalýður hefur ávallt fundið að lífskjör hans eru nátengd aðalatvinnuvegi þóð ustu og afkastamestu framleiðslu arinnar. Hann veit að arður sjáv tæki okkar. / larútvegsins var undirstaða hinna miklu framfara og þjóðfélags- legu þróunar sem skapast hafa hér á landi síðustu áratugina. Sú þróun var jöfnum höndum verk hinna vinnandi stétta og þeirra dugmiklu einstaklinga sem ruddu nýjar brautir í atvinnulífinu. Og þótt verkalýðurinn fari stundum með skarðan hlut frá borði dró hann ekki af sínu þýðingarmikla starfi: Að afla og hagnýta verð- mætin, þótt aðbúðin væri oft lé- leg og vinnudagurinn langur. Verðbólgan ógnaði atvinnulífinu, Sú nýsköpun atvinnulífsins ex hófst fyrir 15 árum undir for- ustu Sjálfstæðisflokksins, færði verkalýðnum miklar vonir um atvinnuöryggi og betri lífsaf- komu. Þær vonir hafa ekki bein linis brugðizt, þótt okkur auðn- aðist ekki að skapa hinum nýju atvinnutækjum þá aðbúð, sem gæti tryggt starfsemi þeirra og traustan efnahag þjóðarinnar. Verðþensluhjólið hélt áfram að snúast. Útflutningsframleiðsl- an varð of dýr til þess, að selj- ast á kostnaðarverði, en þar sem gjaldeyrisöflun var nauðsynleg, komu útflutningsstyrkir með hækkandi sköttum og síðan geng islækkun. í þeirri verðþennslu varð hlutur verkalýðsins enn minni og ekki síður í stjórnartíð verkalýðsflokkanna undir for- ustu Framsóknarflokksins. Þrátt fyrir hin mörgu loforð um betri lífsafkomu. Samhugur og samstarf. Lengi hefur íslenzkt þjóðlif borið svip þeirrar hagsmunabar. áttu einstakra stétta, sem setja Framh. á bis. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.