Morgunblaðið - 13.05.1960, Blaðsíða 2
2
MORCVISM AÐ1Ð
Föstudagur 13. maí 1960
Hófleg ve/ð/ gagn-
legri en alger friðun
NOKKRAR umræður fóru
fram á Alþingi í gær um tak-
markaðar dragnótaveiðar í
fiskveiðilandhelgi, en frum-
varp sjavarútvegsmálanefnd-
ar Neðri deildar um að slík-
ar veiðar verði nú heimilað-
ar að nvju, var þá öðru sinni
á dagskrá.
Fvrsta umræða um frumvarpið
í Neðri deild hófst á þriðjudag-
inn var og fylgdi Birgir Finnsson
því úr hlaði og gerði grein fyrir
helztu röksemdum þess, að drag-
nótaveiðarnar verði nú hafnar
undir vísindalegu eftirliti. Við
framhald umræðunnar í gær tók
Jón Pálmason fyrstur til máls og
lýsti andúð sinni á slíkum veið-
um. Eftir að hafa fyigzt með
þeim umræðum, sem fram hefðu
, farið um þessi
mál á Alþingi,
ailt frá bví að
hann fyrst tók
þar sæti, kvaðst
jhann hafa sann-
I færzt um að
dragnótaveiðar í
I landhelgi væru
I eitt það mesta
skaðræði, sem
gerzt gæti. Taldi
J. P. svo mikla hættu stafa af
dragnótaveiðum bátanna, að mun
áhættuminna væri að hleypa tog-
urunum nær landi með veiðar-
færi sín. Þá vitnaði ræðumaður
til mótmæla, sem borizt höfðu
frá smábátaeigendum í kjördæmi
hans. J. P. sagðist lítið leggja upp
úr vísindalegu eftirliti, svo oft
sem reynslan hefði kennt okkur
að vísindin gætu brugðist.
Úthluta
skálda-
launum
FJÓRIR menn voru í gær
kosnir a£ Sameinuðu Alþingi,
til þess að skipta fé því, sem
á fjár'ögum ársins 1960 er
ákveðið að veitt skuli til
skálda, rithöfunda og lista-
tnanna.
Nefndarmenn eru þessir: Bjart-
tnar Guðmundsson, alþingismað-
iir, Helgi Sæmundsson, ritstjóri,
Jónas Kristjánsson .magister, og
Sigurður Guðmundsson, ritstjóri.
— Ekki komu fram á Alþingi í
gær uppástúngur um fleiri menn
en kjósa átti, og voru þeir því
jjálfkjörnir.
Fjárupphæð sú, sem hér um
ræðir, nemur kr. 1.260.000,00, en
við afgreiðslu fjárlaga var nú,
eins og um nokkur undanfarin
gr, ákveðið, að af fénu skyldu
njóta sérstakra heiðursverðlauna
þeir Gunnar Gunnarsson og Hall-
dór Kiljan Laxness, og nema þau
kr. 33.220,00 til hvors. — Að öðru
leyti skal fyrrgreind 4 manna
nefnd skipta fjárhæðinni.
Dagskrá Alþingis
DAGSKRA á deUdarfimdum Alþingis
í dag kl. 13.30 eru þessar:
Efri deild: 1. Innflutnings- og gjald-
eyrismál, frv. 2. umr. 2. Ferskfiskeftir-
lit. frv. 3. umr.
Neöri deild: 1. Sjúkrahúsaiög, frv. 2.
umr. 2. Lögheimili, frv. 2. umr. 3.
Fyrningarafskriftir, frv. 2. umr. 4.
Verzlunarstaður við Arnarnesvog. frv.
3. umr. 5. Aburðarverksmiðja, frv. 2.
umr. 6. Landnám, ræktun og bygging-
ar I sveitum, frv. 2. umr. 7. Dragnóta-
veiðar i fUkveiðilandhelgi, frv. Frh. 1.
umr. 8. Bifreiðaskattur o. fl., frv. 2.
umr. 9. Toliskrá, frv. io. Tollskrá, frv
Álit hinna dómbærustu
Guðlaugur Gíslason var með-
mæltur frumvarpinu og kvað
tímiabært að byrja nú að nytja
þann fisk, sem vaxið hefði upp á
því svæði umhverfis landið, sem
íslendingum einum væri ætlað.
Þar væri um að ræða hagsmuna
mál allrar þjóðarinnar. Ekki
væri skynsamlegt, að ala upp
fiskinn til þess eins, að togar-
ar, mestmegnis erlendir, gætu
veitt hann, þegar hann leitaði út
fyrir fiskveiðitakmörkin. G. G.
kvaðst ekki skyldu dæma um
skaðsemi dragnótarinnar, en sú
væri skoðun þeirra manna, sem.
þjóðin teldi dómbærasta í því
efni, að réttmætt væri að hefja
nú dragnótaveiðar og það jafn-
vel í ríkara mæli en frumvarpið
gerði ráð fyrir.
Á ekkert skylt víð rányrkju
Pétur Sigurðsson sagðist fylgja
þessu frumvarpi og telja rétt að
byrja nú dragnótaveiðar, þó að
nann á hinn bóginn hefði verið
einlægur stuðningsmaður þeirra
friðunaraðgerða, sem hér hefði
verið framfylgt á síðustu árum.
Vitnaði P. S. til umsagna Arna
Friðrikssonar og fleiri fiskifræð-
inga um að dragnótaveiðar inn-
an fiskveiðitakmarkanna væru
ekki aðeins æskilegar heldur
væri hófleg veiði
þar til meira
gagns en algjör
friðun um lang-
an tíma. Afstöðu.
sjómanna kvað
P. S. í mörg-
um tilfellum
markast af því,
hverra hags-
muna þeir ættu að gæta, en það
væru hagsmunir þjóðarinnar
allrar, að nú yrði hafizt handa
og veiðarnar heimilaðar. Drag-
nótaveiðarnar sköpuðu aukna at-
vinnu á æskilegum tíma, og gætu
aukið mjög gjaldeyristekjur þjóð
arinnar. Þær takmörkuðu drag-
nótaveiðar undir vísindalegu
eftirliti, sem fyrirhugaðar væru
samkvæmt frumvarpinu, ættu
ekkert skylt við þá rányrkju, sem
hér hefði átt sér stað fyrr á ár-
um.
Birgir Finnsson mælti nokkur
orð og skýrði m. a. frá áskorun
46 útvegsmanna af Suðurnesjum,
sem óskuðu eftir því að drag-
nótaveiðamar yrðu leyfðar með
þeim einu takmörkunum, sem
fiskideild Atvinnudeildar Há-
skólans og Fiskifélag íslands
settu.
Að svo búnu var umræðunni
aftur frestað.
Kartöflulaust fram
að næstu helgi
Kjartan Thors setur fundinn
BÆRINN mun nú vera um það
bil kartöflulaus í bili. Kartöflur
voru búnar hjá Grænmetissöl-
unni upp úr hclginni og munu nú
vera á þrotum hjá verzlunum.
Stafar kartöfluskorturinn af
því að Dettifoss, sem átti að
vera kominn til lándsins, kemur
ekki fyrr en næstkomandi laug-
ardag. Og ef þær upplýsingar
eru réttar, þá koma kartöflurnar
í búðirnar strax eftir helgi, sagði
Þorgils Steinþórsson, fulltrúi hjá
Qrænmetissölunni, er blaðið
leitaði upplýsinga um þetta í
gær.
Með Dettifossi koma mánaðar-
birgðir af kartöflum frá Póllandi.
Ekki gat Þorgils upplýst okkur
um hvað þá tæki við, hvort meira
af kartöflum kæmi frá Póllandi
eða hvort hugsanlegt væri að
hægt yrði að fá eitthvað af nýrri
uppskeru frá Hollandi.
A&alfundur Vinnuveifendasambands
íslands hófst í gœr
25. AÐALFUNDUR Vinnuveit-
endasambands íslands hófst í
Kaupþingsalnum í Reykjavík í
gær, en Vinnuveitendafélag ís-
lands, nú Vinnuveitendasamband
fslands var stófnað hér í Reykja-
vík 23. júlí 1934.
Formaður V. S. í., Kjartan
Thors, sem jafnframt var kjör-
inn fundarstjóri, setti fundinn og
tilnefndi Gústaf E. Pálsson, verk
fræðing, sem fundarritara.
Gaf fundarstjóri síðan fram-
kvæmdastjóra V. S. í., Björgvin
Sigurðssyni orðið. Áður en Bjorg
vin hóf flutning skýrslu sinnar
minntist hann 70 ára afmælis
Kjartans Thors, hinn 26. apríl sl.,
en hann hefir verið formaður
V. S. í. frá stofnun þess. Risu
fundarmenn úr sætum og hylltu
formann með ferföldu húrra-
hrópi.
Framkvæmdastjóri V. S. í.
flutti síðan ítarlega skýrslu um
störf sambandsins, sem sýndi
glögglega, hversu fjölþætt og
yfirgripsmikil starfsemi þess er.
Hefir Vinnuveitendasambandið
afskipti af nær öllum kaup- og
kjarasamningum, sem gerðir eru
í landinu auk þess, sem það kem-
ur mjög oft fram sem sameigin-
legur fulltrúi vinnuveitenda
gagnvart ríkisvaldinu.
Meðal þeirra málefna, sem
framkvæmdastjórinn ræddi voru
aðgerðir núverandi ríkisstjórnar
í efnahagsmálum. Fórust honum
í því sambandi orð á þessa leið:
„Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur ávallt, hvaða ríkis-
stjórn, sem í hlut hefur átt, reynt
að styðja þær aðgerðir, sem mið-
að hafa að því að hefta verð-
'f' NA /5 hnútor / SV 50 hnútar K Snjótoma » 05 i m* V Stúrír íí Þrumur w% Kuldaskil Hif.sk,/ H H»» L Lcm»
FRÁ meginlandinu streymir
þurrt og hlýtt loft vestur um
ísland og Grænlandshaf. Enda
þótt vindstaða sé SA-læg á
landi sézt varla ský á lofti.
Hins vegar er ljósleit móða í
loftinu eins og títt er á megin-
landinu og stafar að veru-
legu leyti af verksmiðjureyk.
Þar sem sjórinn við strönd-
ina er mun kaldari en loftið,
myndast þoka, einkum að næt
urlagi. Um hádegisbilið í gær
var 19 stiga hiti á Egilsstöðum
en 17 stig í Reykjavík og er
það svipaður hiti og á sama
tíma austan hafs.
Veðurútlit: SV-mið: Austan
gola, SV-land til Vestfj., Faxa
fl. mið til Vestfj.miða: Hæg-
viðri, léttskýjað, en þokumóða.
N-land til SA-lands, N-mið til
SA-miða: Hægviðri.
bólgu, auka öryggi í atvinnu-
rekstri og koma á jafnvægi í
þjóðarbúskapnum og svo mun
enn verða. Margir erfiðleikar eru
..
Björgv. Sigurðsson flytur skýrslu
á veginum framimdan og veður
öll válynd á þeim vettvangi, sem
V. S. f. hefur haslað sér. En við
munum horfast í augu við stað-
reyndir og haga viðbrögðum okk
ar eftir því.“
Flutningur skýrslu frkv.stj.
stóð í rúml. 2 klst.
Er framkv.stj. hafði lokið
skýrslu sinni fór fram stjómar-
kosning. Stjórn sambandsins
skipa nú 36 menn en þriðjungur
þeirra gengur úr stjórn árlega
Þessir voru kjörnir í stjórnina til
næstu þriggja ára:
Elias Þorsteinsson, Guðrnundur
Vilhjálmsson, Ingólfur Flygen-
ring, Ingvar Vilhjálmsson, Jón
Árnason, Jón Bergsteinsson, Ól-
afur H. Jónsson, Skúli Thoraren-
sen, Kjartan Thors, Guðjón
Teitsson, Björgvin Fredriksen,
Jón Bergs, Öm O. Johnson, Jó-
hannes Zoega, Jónas Jónsson og
Árni Brynjólfsson.
Endurskoðendur voru kjörnir
— 109 sluppu
Framh. af bls. 1
í skipulegri röð og renndu sér
niður um segldúksrennur sem
festir voru við þá. Gekk þetta
allt mjög greitt. Meðal far-
þeganna var 91 árs kona og
gekk henni ágætlega að renna
sér niður seglið.
Það hefur nokkuð borið á
því á farþegaþotum af tegund-
inni Boeing 707, að hjólaútbún
aður þeirra sé í ólagi. Til dæm
is gerðis það sl. sumar yfir
Idlewild-flugvelli, að Boeing-
þota varð að eyða benzínforða
sínum í það að hringsóla í
4 klst. yfir vellinum áður en
liún nauðlenti með bilaðan
hjólaútbúnað.
Oddur Jónsson og Jón E. Agústs-
son.
Fundurinn hefst aftur kl. 10 30
og verða þá rædd nefndaálit.
Klukkan 17—19 sitja fundar-
menn síðdegisboð félagsmálaráð-
herra í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Fundinum lýkur á laugardag.
Verða fréttir af hoaum birtar
jafnótt og þær berast.
Frú
Laurn Finsen
kona Vilhjálms Finsens, fyrrv.
sendiherra, lézt í sjúkrahúsi
í Osló í fyrradag.
— Ráðherrarnir
Framh. af bls. 1.
fundurinn hafi verið hinn gagn-
legasti og góður árangur hlotist
af honum.
— Héiduð þið svo heim á leið
strax að fundinum loknum?
— Meðan á fundinum stóð, bauð
gríska stjórnin okkur að koma
til Grikklands og dveljast þar í
nokkra daga. Við þáðum það og
fórum að fundinum loknum til
Aþenu og dvöldum þar í góðu yf-
irlæti.
Gríska stjórnin vildi með þessu
boði sýna þakklæti sítt til ís-
lendinga fyrir stuðning íslands
við málstað Grikkja í Kýpur-
deilunni.
Megum vel viff una
Utanríkisráðherra hefur dval-
izt ytra, síðan skömmu áður en
sjóréttarráðstefnan í Genf hófst,
eða um nær 2ja mánaða skeið.
Tíðindamaður Mbl. spurði hann,
hvað hann vildi helzt segja í
stuttu máli um niðurstöðu ráð-
stefnunnar.
— Við hefðum að sjálfsögðu
óskað, sagði ráðherrann, — að
við gætum fengið okkar 12 mílna
fiskveiðilögsögu viðurkennda. Úr
því að það var ekki hægt, megum
við mjög vel sætta okkur við nið-
urstöðurnar.
— Hvað viljið þér segja um
gang mála að henni lokinni?
Málstaffur okkar kynntur
— Eftir ráðstefnuna voru mikl-
ar ýfingar með mönnum, ekki
sízt meðal vestrænu ríikjanna.
Við áttum því von á, að áfram-
halcl yrði á umræðum um málið
í Miklagarði og fórum því
þangað báðir, Bjarni Benedikts-
son og ég. Málið var ekki á dag-
skrá fundarins og kom þar ekki
til umræðu. Við notuðum hins
vegar tækifærið til að ræða okk-
ar sjónarmið við fulltrúa þar og
teljum að það hafi orðið til að
skýra og upplýsa málið, málstað
okkar til framdráttar.
Eftir dvöl sína í Grikklandi
héldu þeir ráðherrarnir svo heim
á leið um París og gekk ferðin
vel. —