Morgunblaðið - 13.05.1960, Page 6
6
MORCUISBLAÐIÐ
Föstudagur 13. maí 1960
Kristján Davíðsson við eitt málverk sitt.
Sýning Kristjins DovíSssonar
ÞAÐ er hressandi að lita inn á
sýningu Kristjáns Davíðssonar í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Fyr-
ir tveim árum hélt Kristján sýn-
ingu á sama stað, og vakti sú
sýning mikla og verðskuldaða
eftirtekt. Ég fæ ekki annað séð
en að nú hafi Kristjáni tekizt
enn betur en fyrir tveim árum.
Þessi sýning sannar greinilega,
að hann er list'amaður í örum
vexti.
Að þessu sinni sýnir
Kristján Davíðsson 36 olíu-
málverk, sem hann hefur
unnið að undanförnu. Þau
verkefni, er Kristján nú glímir
við, eru tekin fastari og alvar-
legri tökum en áður. Hann bygg
ir verk sín í litum og formum
af meiri tilfinningu, og litasjón
hans hefur fengið meiri þrótt.
Litameðferð Kristjáns Davíðs-
sonar hefur alltaf verið snar
þáttur í list hans, en ég held,
að óhætt sé að fullyrða, að hon-
um hafi ekki áður tekizt eins
vel að nota sjálfan litinn. Fá
hann til að magnast á léreft-
inu, ef svo mætti að orði kveða.
Kristján er að eðlisfari skáld, og
hann hefur alltaf lagt mikla
áherzlu á að yrkja í sjálft efnið,
Kristján Davíðsson er vakandi
listamaður, sem alltaf er opinn
fyrir nýjum áhrifum, leiðum og'
viðfangsefnum.Hann er skemmti
legur og örvandi í list sinni, og
í verkum hans er jafnan eitthvað
ferskt og spilandi. Þessi sýning
í Bogasalnum er gott dæmi um
það. En hún ber þess einnig
vitni, að Kristján Davíðsson er
enginn viðvaningur í málaralist
og að baki hans er margra ára
starf og reynsla.
Það er ástæðulaust að orð-
lengja um þessa sýningu Krist-
jáns Davíðssonar, en ég vil ein-
dregið hvetja alla þá, er ánægju
hafa af myndlist að heimsækja
sýninguna í Bogasalnum. Hún
er fjölbreytt og skemmtileg. Hún
er merkilegur áfangi í þróun
málarans Kristjáns Davíðssonar.
Þetta er tvímælalaust bezta
sýning, sem Kristján hefur efnt
til, og honum til hins mesta
sóma.
Að lokum vil ég þakka Krist-
jáni Davíðssyni fyrir þá ánægju
er þessi ágæta sýning hefur veitt
mér.
Valtýr Pétursson.
Grœna lyftan
frumsýnd hjá
Sýningar á Delerium Bubonis
eru nú orðnar 96 og er alltaf hús-
fyllir. Er það met hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
1 þessum mánuði verður Deleri
um Bubonis svo sýnt í nágrenni
Rieyikjavlíkur og í júnímánuðd
Á LAUGARDAGSKVÖLDEÐ kl.
8,30 frumsýnir Leikfélag Keykja-
víkur Græuu lyftuna eftir Avery
Hopwood í Iðnó. Þetta er ósvik-
inn gamanleikur, sem vakti mikla
kátínu er Fjalakötturinn sýndi
hann hér fyrir 12 árum, þá 40
sinnum.
Leikstjóri er Gunnar Róberts-
son Hansen, sem sett hefur á
svið mörg leikrit fyrir leikfélagið
áður, síðast Glerdýrin fyrir tveim
ur árum, en síðan hefur hann
verið önnum kafinn við að setja
á svið úti á landi og við störf
sín sem skólastjóri Handíðaskól-
ans í vetur.
Aðalhlutverkin leika Arni
Tryggvason og Helga Bachman,
en þau hlutverk léku Alfreð heit-
inn Andrésson og Inga Þórðar-
dóttir fyrir 12 árum. Aðrir leik-
endur eru: Sigríður Hagalín,
Steindór Hjörleifsson, Guðmund-
ur Pálsson, Guðrún Asmundsdótt
ir, Brynjólfur Jóhannesson og
Valdimar Lárusson. Þýðinguna
gerði Sverrir Thoroddsen. En
Öndvegi h.f. sýnir L.R. þá vin-
semd að lána húsgögn á sviðið.
Leikritið Græna lyftan heitir á
frummálinu Fair and Warmer,
samið 1915. Það hefur lengi verið
ákaflega vinsælt, einkum á Norð
urlöndum og í Þýzkalandi. Höf-
undurinn, sem er bandarískur,
ritaði á sínum tíma átján vel-
heppnuð leikrit á fimmtán árum,
að því er segir í leiksskránni,
grínleiki og melodramatíska leiki,
og voru vinsældir leikja hans
miklar. Kom fyrir að fjögur af
leikritum hans voru samtímis
sýnd í New York. Árið 1925 sló
hann svo botn í allt saman og
hætti að skrifa leikrit, en þrem-
ur árum síðar drukknaði hann
er hann var að synda í Miðjarð-
arhafinu.
Græna lyftan er eina leikritið
eftir Hopwood, sem hér hefur
veríð sett á svið.
Deleríum slær út öll met
Starfsemi Leikfélagsins hefur
gengið vel í vetur, og hafa þegar
verið 97 leiksýningar á þessu ári.
Listasafninu berst
málverk
FRÚ Dorit Foght hefur gefið
Listasafni ríkisins olíumálverk af
manni sínum, Louis F. Foght, for
stjóra, sem nú er látinn. Málverk
ið er eftir einn þekktasta listmál-
ara Dana, Kræsten Iversen. Eins
og kunnugt er gaf Louis Foght
Listasafninu allmörg olíumál.
verk og graflistarmyndir eftir
danska listamenn árið 1953 og
var þá efnt til sýningar á mynd-
unum.
Gjöf þessi barst hingað fyrir
milligöngu Ludvigs Storr, aðal-
ræðismanns.
verður farið með það 1 sýning-
arferð út á land.
Þrítugasta og síðasta sýning á
Gesti til miðdegisverðar verður
á sunnudagskvöld. Hætt er sýn-
ingum á Beðið eftir Godot eftir
7 sýningar.
Hollenzkur listmálari
opnar málverkasýningu
í GÆR opnaði hollenzki list-
málarinn Anton Rooskens mál-
verkasýningu í málverkaverzlun-
inni að Týsgötu 1. Sýnir hann þar
20 myndir, sem hann hefur
málað sl. 2 ár.
Anton Rooskens er mjög þekkt
ur listamaður, sem haldið hefur
sýningar víða um heim við ágæt-
an orðstir. Fyrir fáum árum
sýndi Rooskens hér nokkrar af
myndum sínum og fékk hér sem
annars staðar mjög góða dóma.
Þarf ekki að efa að íslenzkir list-
unnendur gefi þessari sýningu
hans nú gaum.
Þar sem listamaðurinn er ekki
staddur hérlendis, hefur Dr. H.
C. Cassens, sendiráðsfulltrúi í
þýzka sendiráðinu, haft milli-
göngu um sýningu þessa.
Sýningin verður opin næstu 10
daga frá kl. 9—6 e.h.
er hann notar við myndgerð sina
Hann ræður yfir ágætri tækni,
og það á meira en einu sviði,
og hann hefur kjark til að not-
færa sér kunnáttu sína. Mikið
af þessum nýju verkum eru fast
mótuð, rík og glæsileg í litum,
en stundum er eins og litauðgin
verði of mikil, samt tekst honum
jafnan að halda byggingu verks-
ins saman á snjallan og hnit-
miðaðan hátt. Önnur verk sín
byggir Kristján í fáum og mjúk-
um litatónum, og þá er eins og
hann nái mestriefyllingu í verk
sín.
AKRANESI, 10. maí. — 20—30
trillubátar reru héðan í morgun.
Þeir hæstu fengu nær þúsund kg.
Sumir róa með línu, en fleiri róa
með færi. Selt hafa þeir fisk-
sölum bæjarins, en þar er mark-
aður mjög takmarkaður. Síðustu
dagana hefur Hallgrímur Árna-
son keypt fisk af trillunum, salt-
að sumt og hert sumt, en nú hef*
ur Hallgrímur hætt þessum kaup
um af trillunum, a. m. k. í bili.
Biðu sumir trillumanna með
aflakösina á bryggjunni í dag og
þótti ekki gott í efni. Hinir eldri
trillubátamanna hafa árum sam-
an haft föst sambönd við fisk-
sala í Reykjavík og svo er enn.
* Misnotkun á síma?
Not af síma eru ein af þess-
um hlunnindum nútimans,
sem okkur finnst við ekki
lengur geta verið án. Sumir
segja að vísu að síminn sé
misnotaður í mörgum tilfell-
um. En er það misnotkun, ef
hann getur aukið á ánægju
okkar af að spjalla við aðra
manneskju? Sumir sálfræð-
ingar halda því fram, að það
sé beinlinis lífsspursmál fyrir
manneskjuna að geta létt á
huga sínum með því að ræða
það sem á hann sækir við
einhvern annan. Hvað sem um
það :ná segja, hafa margir
gaman af rabbi, og við hljót-
um að reikna með því að þeir
einir sem hafa gaman af því
tali að óþörfu í sima.
En svo eru þau skipti, þeg-
ar síminn kemur að miklu
gagni, getur beinlínis bjarg-
að mannslífum, t. d. er þarf
að ná í lækni á stundinni. Og
eitt er víst, þær eru teljándi
manneskjumar, sem vilja án
síma vera, ef þær eiga þess
kost.
* Símaafnotin dýr?
En þá kemur að því atriði,
að símaafnotin eru dýr, of dýr
til að hægt sé að veita sér
þessi þægindi, að sumum
finnst. Ýmsar óánægjuraddir
heyrðust þegar símagjöldin
hækkuðu nýlega og fékk Vel-
vakandi þá nokkur bréf (sém
flest voru frá ónafngreindum
og því ekki hægt að birta
þau).
í því sambandi datt mér í
hug sú spurning hvort síma-
afnot væru orðin dýrari hér
en í öðrum löndum. Ýmislegt
hlýtur að þurfa til símaþjón-
ustu, hvar sem er og útgjöld-
in sennilega svipuð. Og nú
þegar búið er að skrá krónuna
okkar rétt, hlýtur að mega
fá einhverja hugmynd með
samanburði.
Mér hefur verið sagt, að
símagjöld séu hærri á Norður
löndum en hér, en ekki veit
ég sönnur á því. Ef borið er
saman við Bretland og Banda
ríkin er útkoman þessi:
FERDINAND
• Fleiri frísamtöl hér
Ársgjaldið er hér hærra en
i Bretlandi, en lægra en í
Bandaríkjunum. Hér er árs-
fjórðungsgjaldið kr. 450.00 á
heimilissímum, en 650.00 á
verzlunarsímum eða 1800.00
kr. ársgjald _ á venjulegum
heimasima. I Bretlandi er
afnotagjaldið kr. 1284,80 á
ári, en í Bandaríkjunum
2568.00 kr. En svo kemur ann-
að til greina. Hér fáum við
600 símtöl á ársfjórðungi frítt
eða 200 á mánuði, en í Bret-
landi ekkert og í Bandaríkj-
unum 75. I Bretlandi kostar
hvert símtal sem svarar kr.
1,35, auk afnotagjalds.
Svo eru það langlínusam-
tölin. Að síma 48—56 km. í
Bretlandi kostar kr. 5,35, 56—
80 km kr. 9,40, 80—-120 km
kr. 12.05, 120—200 km. 16.05,
en þar yfir kr. 18,75. í þess-
um tölum er miðað við 3 mín-
útna samtal.
Langlínusamtölin á íslandi
virðast heldur dýrari Að síma
25—100 km kostar kr. 11,00 á
3 mín., 100—225 km kr. 15 00,
225—350 km 17,00 kr. og þar
yfir kr. 21.00.
Bandarísku gjöldin eru svo
töluvert dýrari. T. d. kostar
að síma 40—48 km vegalengd
þar kr. 11,60 og 160—200 km
vegalengd kr. 23.20.
Þetta er ekki óhagstæður
samanburður fyrir okkur. Nú
skal það tekið fram að verið
getur að samanburður við önn
ur lönd sé óhagstæðari. Þessi
tvö eru valin af handahófi —
Einnig eru tölurnar ekki alveg
nákvæmar, því í breytingu á
mílum í km og erlendum gjald
eyri í íslenzkan, rúnnaði ég af
tölur. En það breytir engu
sem nemur.
En þetta er sem sagt nið-
urstaðan af vangaveltum mín-
um um verðlagið á símanum.