Morgunblaðið - 13.05.1960, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 13. maí 1960
Einstæð salffiskverkun
á Þorsteini Ingólfssyni
I Reykjavík:
B/v Ingólfur Arnarson landaði
7. maí 63 tonn af ísfiski og 87
tonn af saltfiski, samtals 150
tonnum. Við mat skiptist salt-
fiskurinn þannig: 1. fl.: 62,50%,
2. fl.: 21,43%, 3. fl.: 16,07%. Tog-
arinn fer nú í .slipp, því að fyrir
dyrum stendur 12 ára flokkunar-
viðgerð.
B/v Skúli Magnússon landaði
7.—8. maí 310 tonnum af ísfiski,
er aflazt hafði við Vestur-Græn-
land. Skipið mun halda áfram að
veiða í ís.
B/v Þorsteinn Ingólfsson land-
aði 4.—5. maí 48 tonnum af ís-
fiski og 63 tonnum af saltfiski,
samtals 116 tonnum. Við mat
skiptist saltfiskurinn þannig: 1.
fl.: 80,00%, 2. fl.: 15,71%, 3. fl.:
4,29%, og þykir þetta einstæður
árangur. Togarinn fór síðán á
saltfiskveiðar við Grænland.
Erlendis:
B/v Hallveig Fróðadóttir seldi
í GrimsBy 168 tonn fyrir £14.222.
Hann er nú til viðgerðar í Brem-
erhaven.
S
s
s
s
s
s
\
s
s
s
s
s
s
s
Skemmtiþáttur
Cunnars og Bessa
í kvöld.
DANSAÐ til kl. 1.
Sími 35936.
Félagslíf
Frá Ferðafélagi íslands
Ferðir á sunnudag. Gönguferð
á Keili og Trölladyngju, og göngu
för í Raufarhólshelli. Upplýsing-
ar í skrifstofu félagsins, símar
19533, 11798.
íslendingi
þökkuð
bókagjöf
Dr. med. Eduard Busch, yfirlækr.
ir heilaskurðadeildar danska Rík
isspítalans, hefur ritað sendiherra
íslands í Kaupmannahöfn bréf,
þar sem hann skýrir frá því, að
deildinni hafi borizt vegleg bóka
gjöf frá óþekktum íslenzkum
sjúklingi. Er hér um að ræða 75
bindi bóka á íslenzku, flest í
fallegu bandi. í bréfi dr. Busch
segir síðan, að þar sem honum
sé ókleift að ná til gefandans
beint, vilji hann biðja sendiherr-
ann að koma á framfæri inni-
legum þökkum fyrir þessa góðu
gjöf.
Dr. Busch tekur fram, að hin-
um mörgu íslenzku sjúklingum,
sem á undanförnum árum hafi
verið til lækninga á deildinni,
hafi oft þótt miður, hversu lítið
hafi verið þar til af bókum á
íslenzka tungu. Úr þessu sé nú
bætt, til mikillar ánægju fyrir
þá sjúklinga, sem nú séu á deild
ir.ni, og gjöfin muni áreiðanlega
verða mörgum til gleði í fram
tíðinni.
Knattspyrnufél. Þróttur
Æfing verður í kvöld fyrir 3.,
4. og 5. fl., sem hér segir á há-
skólavellinum: 5. flokkur kl. 7;
3. og 4. flokkur kl. 8.
Knattspyrnufélagið Þróttur
Æfing verður í kvöld kl. 8
fyrir meistarafl. og 2. flokk, á
íþróttavellinum. Mjög áríðandi
að allir mæti. — Nefndin.
Reykjavíkurmót 1. flokks
á Melavelli 14. maí kl. 2 Þrótt-
ur og Valur; kl. 3,15 K.R.—Fram.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Tveir ungir menn, sem vinna
vaktavinnu, óska eftir
aukastarfi
í Reykjavík, Kópavogi eða
Hafnarfirði. Bílpróf. Tilboð
óskast send Mbl., merkt: —
„Mikið frí — 3321“, fyrir há-
degi n. k. mánudag.
Vélbátar til sölu
12 Iesta rtieð 70 ha. June-Munk. Elac mæli, í góðu standi.
13 lesta með nýlegri Kelvin-Dieselvél, Atlas mælir.
18 Iesta I góðu standi, dragnótaveiðafæri og humarveiða-
færi sem ný fylgja
18 lesta smíðaá,r 1956, Caterpillar vél, góður mælir, góð
spil.
25 lesta smíðaár 1958, sérstaklega fallegur og vandaður
að öllum frágangi, 150 ha. G.M. diesel spil og allur
vélbúnaður fyrsta flokks, línu og netaveiðarfæri,
ásamt ufsanót geta fylgt.
28 lesta með 115 ha. Caterpillar, nýgegnumtekinrj.
38 lesta með nýrri G.M. vél.
51 lesta með nýlegri Buda-Diesel 260 ha.
50—60 lesta bátar tilbúnir á síldveiðar með öllu útb.
Vélbátar frá 12 til 100 lesta.
Austurstræti 10, 5. hæð
sími 13428 og 24850
eftir kl. 7, sími 33983.
ísvélin nýja að verki.
Emmes — rjómaís
kemur á markaðinn
BLAÐAMENN Reykjavík-urblað
anna voru í óvenjulegri veizlu í
gær, og víst er að ungviði höfuð-
borgarinnar hefði öfundað þá.
Mjólkursamsalan bauð þeim í
eigi nafni og hinna stærstu mjólk
ursamlaga landsins, til veglegrar
rjómaísveizlu. Er nú tekin til
starfa í Mjólkurstöðinni rjóma-
isframleiðsla. En ísframleiðsla er
ein höfuðgrein mjólkuriðnaðar-
ins í öðrum löndum, sagði Stefán
Björnsson, forstjóri Samsölunn-
ar, er hann í gærdag skýrði frá
þessari nýju starfsemi. Gat hann
þess, að takmarkið með þessu
væri að gera rjómaís að mjólk-
urmat, sem komi á hvers manns
borð.
Rjómaísinn er framleiddur í
nýjum fullkomnum vélum, sem
eru i Mjólkurstöðinni, og verður
í þrem mismunandi stórum um-
búðum og gerðum, frá V* lítr. í
1 lítr. og loks verða íspinnar. Við
önnumst ekki sjálfir dreifingu á
honum, sagði Stefán, heldur mun
um við fela það þeim aðilum,
sem þegar annast þá dreifingu,
en hér í bænum eru margir slík-
ir staðir. Einnig verður hann á
boðstólum á íssölustöðum úti á
landi. Verður kostað kapps um að
ísinn verði sem allra auðfengn-
astur, sagði forstjórinn.
f smásölu mun verðið vera frá
kr. 7,50 og upp í 26,00, en íspinn-
arnir munu væntanlega kosta kr.
4.50. Þeir koma á markaðinn eft-
ir nokkra daga, en hinar rjóma-
ístegundirnar nú um helgina.
Samsalan hefur keypt bíl, bú-
inn frystiklefa til dreifingar hér
í bænum og næsta nágrenni, en
út um land verður búið um ísinn
í sérstökum umbúðum.
Forstjórinn og þeir Oddur
Helgason og Oddur Magnússon,
sýndu blaðamönnunum rjómaís-
framleiðsluna eins og hún gengur
fyrir sig í hinum nýja vélakosti,
en síðan var boðið til ísveizlu.
Var það sannkallaður 'veizlumat-
ur, og var m.a .borin fram is-
terta, fagurlega skreytt sem af-
mælisterta.
Þessi nýja framleiðsla heitir
einu nafni Emmess ís, en nafnið
er skammstöfun á orðinu „mjólk
ursamlögin“. Hefur með þessari
nýju framleiðslu hafizt nýr þátt
ur í starfsemi mjólkursamlag-
anna, en sem kunnugt er hafa
mjólkurafurðir okkar þótt frem-
ur fábreytilegar.
— Hjá Edison j
Frh. af bls. 3.
aðferðina. — Sem dæmi um
pað, hve ákaflega nákvæm-
Lega þetta undratæki Edisons
Elutti tóna, er þessi litla saga,
sem einh forstjóranna sagði
mér:
+ GENGUR EKKI
Edison og nánustu samstarfs-
nenn hans höfðu legið yfir
því dögum saman að reyna
nýjar plötur, sem teknar
löfðu verið upp á hljóðrit-
ann. Miklum fjölda þeirra
var fleygt vegna einhvers
xmávægilegs framleiðslugalla.
—• Svo kom röðin að nokkr-
um verkum, sem frægur
fiðlusnillingur hafði leikið
inn a plötur og Edison vænti
mikils af. En þeim var einnig
fleygt. — Fiðlusnillingurinn
gekk nú á fund hugvitsmanns
ins og beiddist skýringar á
því, hvers vegna plöturnar
hans hefðu ekki þótt nógu
góðar. Edison yppti öxlum.
„Þær eru ekki nógu góðar
fyrir mig. Þetta er slæm
músík — heyrið bara þessa
hljóma. Maður veitir slíku
reyndar ekki eftirtekt í
hljómieikasal, en þegar tal-
vélin mín á að flytja það —
ja, þá gengur það ekki“.
Snillingujinn varð að við-
urkenna, að ekki væri allt
með felldu um vissa tóna, er
hann hlustaði á plöturnar —
en ekki gat hann gert sér
grein fyrir, af hverju það
stafaði. Edison tók nú fiðluna
hans og rannsakaði strengina
í öfli'gri smásjá. Þá kom í
ljós, að ofurlítill slitflötur var
kominn á einn strengjanna —
og voru tónar hans því ekki
fullkomlega hreinir og tærir.
☆
Þegar við komum aftur út, j
mættum við Edison, sem var
á leið til rannsóknarstofunn-
ar. Eg notaði tækifærið til
þéss að lýsa aðdáun minni á
því, sem ég hafðí séð og
heyrt. Hann stóð hreyfingar-
laus nokkur andartök, gróf
hendurnar djúpt í frakka-
vasana, tuggði vindilstubb-
inn og horfði rannsakandi á.
mig gráum augum sínum,
sem mér virtust nú dýpri en
nokkru sinni. Svo mælti
hann skyndilega:
„Be sure you are right,
young man, then go ahead“ —
vertu þess fullviss, að þú sért
á réttri leið, ungi maður, og
haltu svo þitt strik. — Að svo
mæitu rétti hann mér hönd-
ina til kveðju og hvarf inn
um dyrnar.
_________________________
Enui
Magnús Sigurður
Alþingi kaus í gœr;
Karl
Halldór
Nefnd til úthlutunar atvinnu- og fram-
leiðsluaukningarfjár
ir menn voru sjálfkjörnir, þar
eð ekki var stungið upp á fleir-
SAMKVÆMT fyrirmælum
fjárlaga kaus Alþingi í gær
5 manna nefnd, til þess að út-
hluta 14 millj. króna, sem
veittar eru á fjárlögum til
atvinnu- og framleiðsluaukn-
ingar í landinu.
1 nefndina voru kosnir þeir
Emil Jónsson (A), ráðherra, og
alþingismennirnir Halldór E.
Sigurðssor. (F), Karl Guðjóns-
son (K), Magnús Jónsson (S) og
Sigurður Bjarnason (S). — Þess-
um.
Af áðurnefndum 14 millj. kr.,
sem nefndin skal úthluta, er í
fjárlögum kveðið á um að 4
millj. kr. skuli varið til sam-
göngubóta á landi, eftir nánari
ákvörðun nefndarinnar.