Morgunblaðið - 13.05.1960, Page 10
10
MORCVISBLAÐ1Ð
Fðstudagur 13. maí 1960
Fimmtugur i dag:
Falur S. Guðmundsson
útgerðarmaður í Keflavík
FIMMTUGUR er í dag Falur
Guðmundsson . útgerðarmaður í
Keflavík. Foreldrar hans voru
Guðmundur Sigurðsson sjómað-
ur frá Stokkseyri og Margrét
Sveinsdóttir frá Keflavik — Til
12 ara aldurs ólst Falur upp hjá
móðurforeldrum sínum, hjónun-
um Sveini Einarssyni og Ástríði
Gunnarsdóttur. f>á varð það að
íáði, að hann vistaðist til Jó-
hanns Guðnasonar, útvegsbónda
að Vatnsnesi við Keflavík og
konu hans, Bjarnfríði Sigurðar-
dóttur. Þar átti hann aðeins að
vera um skamma hríð. En dvöl-
in að Vatnsnesi varð iengri en
í fyrstu var ætlað — og næsta af-
drifarík. Það mun ekki fjarri
sanni, þótt fullyrt sé, að þegar
hinn 12 ára drengur lagði leið
sína heim að Vatnsnesi, þá hafi
hann stigið sín stærstu og mestu
gæfuspor.
Að Vatnsnesi dvaldist Falur
síðan til fullorðinsára, sem fóst-
ursonur þeirra hjóna, Jóhanns og
Bjarnfríðar. Hjá þeim naut hann
í fyllsta mæli allrar þeirrar um-
hyggju og ástúðar, sem foreldra-
hús fá nokkrum manni veitt.
Lengi framan af vann Falur að
búi fóstra síns og fórst honum
það starf hið bezta úr hendi. En
árið 1934 tók hann að stunda
sjóinn, og aðeins tveimur árum
síðar var hann orðinn formaður
hjá fóstra sínum.
Eigin útgerð hóf Falur árið
1943. Fyrstu árin var hann í fé-
lagi við annan, en frá 1947 hefir
hann gert út sinn eiginn bát. Og
sjálfur var hann formaður til
ársins 1954.
Formannsferill Fals einkennd-
ist af farsæld. Sjálfur var hann
þekktur fyrir difrsku og áræðni,
þegar því var að skipta. En á
hættunar stundu — eða þegar á
móti blés á einn eða annan hátt,
þá var Falur öruggur, hugrór og
traustur. Þeir fundu það jafnan,
sem með honum voru, að þar fór
maður, sem öruggt var að treysta.
Eigi hefir Falur látið við það
eitt sitja, að þreyta fangbrögð
við Ægi. Frá fyrstu tíð hefir
hann verið einn af skeleggustu
baráttumönnum stéttarfélags
síns. Skipstjóra- og stýrimanna-
félags Keflavíkur og nágrennis.
Lengst af hefir hann verið for-
maður þeirra samtaka. I bæjar-
málum hefir hann og látið til sín
taka — og á nú sæti sem vara-
maður Sjálfstæðisflokksins í bæj-
arstjórn Keflavíkur. Skoðanir
hans eru skýrt mótaðar og
ákveðnar. En alls staðar leitast
hann við að koma fram til góðs.
Og hvert það mál, sem miðar til
framfara og heilla er hans hjart-
ans mál. — Falur er maður hrein
skilinn og djarfmáll, og segir
þegar því er að skipta, óhikað
álit sitt, — en ávallt af dreng-
skap og sannsýni.
Það var mikil gæfa fyrir hinn
12 ára vikapilt að verða fóstur-
sonur hjónanna á^Vatnsnesi. En
þó er hans mesta hamingja enn
ótalin. Á Vatnsnesi mætti hann
þeirri konu, er síðar varð eigin-
kona hans. En það er uppeldis-
systir hans, Guðný Helga Þor-'
steinsdóttir. Þau giftu sig 27.
maí árið 1939. Allt frá þeirri
stundu og fram til þessa dags
hefir Helga verið hamingja
manns síns og styrkur. Þau hjón
in hafa eignazt 4 börn. Yngsti
drengurinn, Margeir, lézt á fyrsta
ári. Hin eru öll í föðurgarði.
Elztur er Ingólfur, þá Hörður og
vngst Jóhanna Birna. Öll eru
þau hin mannvænlegustu, bæði
i sjón og reynd.
Með hliðsjón af því, sem nú
hefir verið sagt, getur afmælis-
barnið horft yfir hamingjuleið.
Það blandast engum, sem til
þekkir, hugur um það, að Falur
er gæfumaður. En hitt skal líka
skýrt tekið fram, að hann verð-
skuldar það fyllilega, sem honum
hefir fallið í skaut, — eftir því
sem um mannlegra verðskuldan
getur verið að ræða.
Við óskum þess og biðjum, vin
ir hans, að heill og hamingja
megi fylgja honum og störfum
hans, — heimili hans og fjöl-
skyldu á ókomnum dögum og ár-
um. Bj. J.
S.V.F.Í. byggist á fórn-
, fúsu starfi margra
Þriðjudaginn 9. maí fluttu þeir
Pétur Sigurðsson forstjóri Land-
helgisgæzlunnar og Hjálmar
Bárðarson, skipaskoður.arstjóri
erindi á þingi SVFÍ, sem gest-
ir Slysavarnafélags íslands. ■—
Pétur Sigurðsson ræddi um
björgunrastarf og bátaþjónustu.
og gerði grein fyrir starfi Land-
helgisgæzlunnar á því sviði. ■—
Hjálmar Bárðarson, skipaskoðun
arstjóri flutti erindi um öryggis-
eftirlit með skipum, og skýrði
frá nýjungum, sem fram höfðu
komið í þeim efnum.
Um kvöldið, þágu fulltrúar
kvöldverðarboð Kvennadeildar
Slysavarnafélags íslands í Reykja
vík. Mörg ávörp voru þá flutt,
og jafnframt sýndi Bjöm Páls-
son flugmaður, skuggamyndir af
ferðum sínum um landið. Loks
sáu fulltrúarnir revíuna „Alvöru
krónan“ í Kópavogsbíói í boði
slysavamadeildarinnar í Kópa-
vogi, og þágu veitingar þar í
Keykjavfk
2168
Pr, •*. r^f.tunte,
L S I !i n .
EINS og nýlega var getið í
f'-éttum, hófst áætlunar-
flug Loftleiða milli Reykja-
víkur og Helsinki 30. apríl sl.
og í tilefni þessa flugs voru
send með þessari fyrstu ís-
lenzku áætlunarflugferð til
Finnlands nokkur umslög sem
áprentuð voru sérstaklega til
minningar um flug þetta, og
var Morgunblaðinu sent eitt
þeirra og birtist hér mynd af
því, en fjöldi erlendra safn-
ara sækjast eftir slík-
um umslögum og bera þau
stundum sérstimpla, sem gerð
ir eru í tilefni „fyrsta flugs“
milli ákveðinna staða.
Félag frímerkjasafnara í
Winnipeg
í vestur-íslenzka blaðinu
Lögberg-Heimskringla birtist
nýlega eftirfarandi grein um
söfnun frímerkja, íslenzk frí-
merki, og félag það, er frí-
merkajsafnarar í Winnipeg
stofnuðu nýlega og er frá-
sögmn svohljóðandi:
Frímerki Islands
Ein hin vinsælasta tóm-
stundaiðja — föndur eins og
það er nú pefnt — er frí-
merkajsöfnun. Oft eru það
I menn, sem hafa miklum opin-
berum störfum að gegna, sem
velja þessa leið til að hvíla
hugann frá daglegum skyldu-
störfum. T. d. var George VI.
mik:1! frímerkasafnari, og
sagt er, að hinn mikilhæfi lög-
maður, Isaac Pitblado í Winni
peg eigi fágætt safn kana-
diskra frímerkja. Svo sem
gefur að skilja, getur enginn
frímerkjasafnari náð saman
nokkurn veginn fullkomnu
safni, nema því aðeins að
hann takmarki sig við frí-
merki einnar eða tveggja
þjóða, því allar þjóðir eru
stöðugt að breyta frímerkjum
sínum til að sýna merka
menningarviðburði, landslag
og annað, sem fræðir um-
heiminn um þjóðirnar og
löndin. — Frímerkjasafnarar
verða því venjulega mjög
fróðir um það land, er þeir
safna frímerkjum frá.
Einn af áhugamestu frí-
merkasöfnurum hér í Winni-
peg er Wm. D. Hurst, yfir-
verkfræðingur borgarinnar.
Kona hans, frú Gyða, átti dá-
lítið safn frímerkja, þegar þau
giftust, en það höfðu foreldr-
ar nennar gefið henni, Gísli
Johnson ritstjóri og Guðrún
heitin Finnsdóttir skáldkona.
Mr. Hurst fékk áhuga fyrir
þessu safni og tók að bæta við
það og hefir haldið því áfram
síðan; hann hefir sambönd við
frímerkjasafnara á Islandi;
hefir komizt yfir fágæt ís-
lenzk frímerki í New York,
London og víðar, og mun nú
safn hans með þeim fullkomn
ustu íslénzkra frímerkja vest-
an nafs.
Frímerkjasafnarar í Winni-
peg hafa myndað félag og
hélt það fund í St. Charles
hotel á miðvikudagskvöldið í
fyrri viku. Mr. Hurst var að-
alalræðumaður kvöldsins og
flutti hann fyrst ágæta ræðu
um Island, er fundarmenn
urðu mjög hrifnir af, en fæst-
ir þeirra munu lítið hafa vit-
að áður um þjóðina og landið.
Vildum við seinna, þegar rúm
leyfir, mega birta þá ræðu.
Því næst skýrði Mr. Hurst
frá fnmerkjasöfnun sinni og
ræddi aðallega um þau frí-
merki, sem afar fágæt eru
orðin, en það eru þau fyrstu
frá 1873 og 1874, en þá hófst
■ frímerkjanotkun á Islandi.
íslenzk frímerki eru mörg
afar fögur, eins og þau, er
gefin voru út 1930. Hafði Mr.
Hurst sýnishorn af þeim, og
voru frímerkjasafnararnir
mjög hrifnir af þeim. Var
þessi kvöldstund hin ánægju-
legasta.
D A N M Ö R K
Nýlega gáfu Danir út frí-
merki, sem vekja eiga athygii
á dönskum landbúnaði og eru
þau frábrugðin fyrri útgáfum
danskra frímerkja bæði hvað .
gerð og útlit snertir, en held-
ur þótti lítið til koma með
útgáfu flóttamannafrimerkis-
ins sem út var gefið í Dan-
mörku 7. apríl sl. Þann 24.
þ. m. eiga dönsku konungs-
hjómn • silfurbrúðkaup og
verða í tilefni þess gefin út
ný dönsk frímerki.J. Hallgr.
húsinu í boði bæjarstjórnar
Kópavogs.
Þingið var allan tíman mjög
önnum kafið, því að fulltrúar
voru margir langt að komnir og
þurftu að komast heim. Miðviku
daginn 10. maí hófst fundur kl.
10.00 árdegis. Þá flutti Björn
Pálsson flugmaður erindi um
sjúkraflugið og nauðsyn þess.
Þingfulltrúar létu óspart í ljós
þakklæti sitt við Björn Pálsson
fyrir ómetanlegt brautryðjanda-
starf hans á þessu sviði. Það
kom greinilega í Ijós af ræðum
fulltrúa hvaðanæfa af landinu,
hve mikil þörf er fyrir þessa
þjónustu.
Björn Pálsson lagði áherzlu á
að þar sem flugvélin væri orðin
6 ára gömul þyrfti hún bráðlega
endurnýjunar við, og auk þess
væri orðin aðkallandi þörf að
kaupa nýja flugvél, en hver slík
flugvél kostar nú fullbúin um 1
milljón króna.
Voru þingfulltrúar á einu máli
um að koma yrði á fastri skipan
þessara mála með aðild og þátt-
töku Slysvarnafélags íslands og
var stjórninni falið að beita sér
af alefli fyrir því máli við op-
inbera aðila.
Fórnfúst starf.
Á landsþinginu kom nú fram
eins og endranær, frábær áhugi
og fórnfýsi félagsdeildanna út
um land. Sem dæmi um það má
nefna að Steindór Hjaltalín út-
gerðarmaður tilkynnti þingmu
það, að Björgunarskúturáð Norð
urlands hefði ákveðið að ráð-
stafa tekjuafgangi sínum, sem nú
væri fyrir hendi á þessa leið:
Til sjúkraflugvélar ..
Framh. á bls. 23
Aðal bí I a s a I a n, I ngólfsfrœti 11
hefur stærsta og bezta sýnlngarsvæðið í bænum, rétt við Bankastræti.
Símar 15.0.14 og 2.31.36