Morgunblaðið - 13.05.1960, Page 15
Föstudagur 13. maí 1960
MORCTJNRTAfílÐ
15
Lagt aS hinni fornu verstöð í Hrísey
— Með Drang
Framh af bls. 13
£að er bæði flutningur og far-
þegar, sem þurfa að komast á
land í Haganesvík, svo að ekki
kemur til mála annað en að at-
huga, hvernig umhorfs sé þar
inni. En vindurinn reynist það
suðvestlægur, að nokkurn veginn
sæmilegt er, þegar komið er inn
á víkina. Tveir menn koma á
litlum árabát, róandi út á leg-
una. Farþegarnir stíga um borð
í litlu kænuna, kveðja og halda
til lands, stefnan er tekin vestur
fyrir Sauðanes og út fyrir Málm-
ey.
Rætt um skipasmíðastöð
Á leiðinni rabba ég ofurlitla
stund við Norðmanninn Magne
Windsens, fulltrúa skipasmíða-
stöðvarinnar í Florö, sem byggði
Drang. Fyrirtæki hans er ekki
nema 10 ára gamalt og Drangur
22. skipið, sem hleypt var af
stokkunum þar í stöðinni. Nú eru
byggðir þar fjórir til fimm bátar
á ári, af stærðinni 70—350 tonn.
Starfslið þar er 185 manns, þegar
allt er talið. í maí n.k. mun 33.
bátnum, sem skipasmíðastöðin
lætur frá sér fara, verða hleypt af
stokkunum. Windsens er glaðleg-
ur og fjörugur náungi. Hann er
sífellt með myndavélina á lofti og
ljósmyndar hið sérkennilega
landslag, sem við siglum framhjá.
Við okkur blasir nú Málmey og
Hrolleifshöfði á bakborða. Kald-
bakur heitir hæsti blettur Málm-
eyjar. Er það standberg, sem rís
móti norðvestri.
Hin sögufræga Málmey
í Málmey þótti fyrir margra
bluta sakir gott að búa Nú er
hún í eyði, þótt áður fyrr væri
þar jafnan gott bú. Miklar þjóð-
sögur hafa myndazt um þessa
eyju og hún er kunn úr sögu
landsins fyrir fræga atburði. Um
1220 flýði Guðmundur biskup
Arason með fylgdarliði sínu út í
Málmey undan Tuma Sighvats-
syni. Sú trú var að í Málmey lifðu
hvorki mýs né hestar. En mikil-
vægust voru þó álög þau, er á
eyjunni hvíldu, að engin hjón
mættu búa þar full 20 ár, svo
að húsfreyjan ekki hyrfi og kæmi
aldrei aftur. Einmitt þetta hafði
hent þar sem segir í þjóðsögunni
um Hálfdán prest á Felli og för
hans á Grána (Kölska) með
Málmeyjarbóndanum. Sjórinn
freyðir um stefnið á Drang, er
við siglum inn með Málmey, og nú
sjáum við til Drangeyjar. Þótt
eflaust hafi veðrið verið hrika-
legra, þegar þeir bræður Grettir
og Illugi voru sóttir heim í
Drangey, þó liggur við að þessi
vísa úr Illugadrápu Stephans G.
gæti nú átt við:
„Drangey var risin úr
rokinu og grímunni,
réttir upp heiðnaberg,
hvassbrýnt að skímunni.
Drangana hyllti úr
hafsjónum flæðandi.
— Hríðin var slotuð
og stormurinn æðandi“.
Það má segja að flæðandi haf-
sjór hafi skollið á Drang þennan
dag og við séð drangana hilla
gegnum sælöðrið.
Bezta hafnarstæði landsins
Veðrið er nokkuð tekið að
lægja, þegar við siglum rétt undir
bergi Þórðarhöfða og lítum hið
sérkennilega litskrúð og myndir,
sem blasa við á klettaveggnum.
Hér hafa margir bjartsýnir hug-
sjónamenn látið sér detta í hug
að gera mætti einhverja beztu
höfn á þessu landi, með því að
grafa skipgengan skurð gegnum
svonefnda Bæjarmöl, sem gengur
í suður frá höfðanum, en að baki
hans er Höfðavatnið, djúpt og
kyrrt í hvaða veðri sem er.
Næsti áfangastaður er Hofsós.
Það er komið undir kvöld og sól-
in er að ganga bak við Tindastól,
þegar við rennum þar upp að
bryggju. Enn hvarfla vofveifileg-
ir atburðir fram í hugann, þegar
hér er komið að landi. Enn er
okkur í fersku minni höx-mulegt
slys, sem hér skeði við bryggjuna,
aðeins fyrir skömmu síðan, er
þrír ungir menn fórust í ofsa-
veðri.
Hér er höfð aðeins skömm við-
dvöl, brátt er Drangur kominn á
fulla ferð á ný og siglir nú þvert
vestur yfir Skagafjörðinn. Við
okkur blasir Tindastóllinn í kvöld
húminu en undir honum stendur
höfuðstaður Skagfirðinga, Sauð-
árkrókur, og þar ætlum við að
stíga á land. A bryggjunni stend-
ur skipstjóri Drangs, Guðbjartur
Snæbjörnsson, sem í mörg ár hef-
ur farsællega siglt flóabátnum á
hafnir Skagfirðinga og Eyfirð-
inga. Hann mun nú taka við
stjórninni og halda til baka með
skipið, en við þremenningarnir,
Steindór Jónsson, Norðmaðurinn
og ég, tökum við bílnum og höld-
um akandi fram Skagafjörð, ég
lendi í Varmahlíð en þeir ætla
að leggja norður yfir Öxnadals
heiði í kvöld, jafnvel þótt hríðar
mugga sé nú skollin á og férða-
útlit nokkuð tvísýnt.
vig.
Fákur efnir til firma-
keppni á gæðingum
FELÖGUM í hestamannafélag-
inu Fák í Reykjavík fjölgar ört,
þar eð fleiri og fleiri bæjarmenn
fá sér gæðing, og er starfsemi
þess í örum vexti. Nú efnir
kvennadeild félagsins til nýstár-
legrar keppni næstkomandi
sunnudag á skeiðvelli félagsins
við Elliðaár. Er þar um að ræða
firmakeppni, sem um 130 fyrir-
tæki taka þátt í. Draga þau um
gæðinga, en síðan dæmir þriggja
manna dómnefnd um gæði hest-
ana og verða 5 viðurkenningar
veittar.
Keppnin hefst kl. 4 á skeið-
vellinum og er öllum frjáls ó-
keypis aðgángur. Knapar, sem
eru á öllum aldri frá 8 ára til
áttræðs, konur og karlar, ríða
hestunum tvo hringi á vellinum.
en dómnefndin dæmir svo gæði
hestanna eftir sjón og ásetu knap
ans. í dómnefndinni eru Bogi
Eggertsson, Gunnar Bjarnason
og Birgir Kristjánsson.
Konur í Fáki skipa fjáröflun-
arnefnd félagsins og stendur hún
að keppni þessari. Mun hún selja
happdrættismiða á vellinum.
Aðalvinningurinn er gæðingur,
en dregið verður á kappreiðum
Fáks á annan hvítasunnudag.
200—300 hesta hús í byggingu
I Fáki eru nú um 400 meðlimir,
50 bættust við á sl. ári. Félagið
undirbýr nú flutning bækistöðva
sinna úr bænum og á orðið hest-
hús fyrir 56 hesta á skeiðvellin-
um. Er unnið þar að fram-
kvæmdum og áformað að þar
verði í framtíðinni hægt að hýsa
200—300 hesta. Fyrir 5 árum
voru aðeins 30 hestar á fóðrum
hjá Fáki, en nú ex-u þeir 174 og
liggja fleiri beiðnir fyrir en hægt
er að sinna. Með byggingu hins
nýja hesthúss, hyggst félagið
skapa sér bætta aðstöðu til að
vera megnugt þess að geta tekið
á móti vaxandi þátttöku bæjar-
manna á þessari hollu íþrótt.
f stjórn Fáks eru Þorlákur
Ottesen formaður, Haraldur
Sveinsson varaform., Björn Hall-
dórsson, ritari, Jón Brynjólfsson,
gjaldkeri og Ingólfur Guðmunds
son.
Hestfjall. — Hvessir af „Helgrindum"
VtOT/fKJAVINMUSTOfA
QG VIOTÆKJASALA
Laufásvegi 41. — Sími 13673. .
Langmest selda garðsláttuvélin á Norðurlöndum
NORLETT mótorsláttuvélin slær og fínsaxar grasið, og dreifir því aftur
jafnt á flötina. Rakstur því óþaríur. Slær alveg að húsveggjum og út í
kanta. Hæðarstilling á öllum hjólum, sem ræður því hve nærri er slegið.
Amerískur Briggs & Stratton benzínmótor. Vinnslubreidd 19 tommur.
Létt og liðleg í notkun.
c^raój
fíötlaa meci
g-s' •i'V "v ^ iSm
VerÖ með söluskatti kr. 3.455.00
Fyrirliggjandi
Einkaumboðsmenn á tslandi fyrir
% flnrsh Leflmetafl
ÖESTSSON
’ UMBOBS OO HEILDVERZLUN
Vatnsstig 3 — Sími 17930.