Morgunblaðið - 13.05.1960, Qupperneq 22
22
MORGVNBLAÐ1Ð
Fostudagur 13. mai 1960
Körfuknattleiksmenn
vilja sérsamband
ÍPelé, hinn brazilíski knatt- )
spyrnumaður er aðeins 19 ára,
en vart er nokkurn að finna,
sem á annað borð hafi áhuga
fyrir knattspyrnu og þekki
ekki hinn brazilíska snilling.
Siðan Brazilía vann heims-
meistarakeppnina í knatt-
spyrnu hefir hinn ungi snill-
ingur verið talinn hinn ó-
krýndi konungur knattspyrn-
unar. Myndin hér að ofan er
tekin í Kaupmannahöfn og
sýnir að danskir drengir dá
Pelé eigi síður en jafnaldrar
þeirra í Brazilíu. Pelé er hinn
alúðlegasti við dönsku dreng-
ina, enda má hann muna það
að fyrir nokkrum árum var
hann aðeins skóburstari, þó
hann í dag sé á góðri leið með
að verða milljónaeigandi.
Akranes
átti leikinn
-en tapaði
REYKJAVÍK vann Akranes 2:1
í bæjakeppninni í gær að 6 þús.
manns áhorfandi, þó fóru fáir
svo af vellinum, að þeim fyndist
ekki hlutur Reykjavikur of stór.
Akranesliðið kom mjög á óvart,
þeir komu án flestra hinna stóru
stjarna, en sýndu strax á fyrstu
mín. að svipur liðsins var sá hinn
saml og þegar þeir léku með.
Uraði, leikni og kraftur eru enn
aðaleinkenni liðsins.
Ellert Schram skoraði bæði
mörk Reykjavíkur, ‘en Helgi
Björgvinsson fyrir Akranes.
Sundmeistaramótið
SUNDMEISTARAMÓT íslands
1960 verður haldið í Sundhöll
Hafnarfjarðar 8. og 9. júní nk. —
Fyrri dagur:
100 m skriðsundi karla, 400 m
bringusundi karla, 100 m skrið-
sundi drengja, 50 m bringusundi
teipna, 100 m baksundi kvenna,
100 m bringusundi drengja, 200
m bringusundi kvenna, 3x50 m
þrísundi drengja, 3x50 m þrí-
sundi kvenna og 4x100 m fjór-
sundi karla.
Seinni dagur:
100 m flugsundi karia, 400 m
skriðsundi karla, 100 m skrið-
sundi kvenna, 100 m baksundi
karla, 50 m skriðsundi telpna,
100 m baksundi drengja, 200 rr
bringusundi karia, 3x50 m þrí-
sundi telpna og 4x100 m skrið-
sundi karla.
Þ; Lttökutilkynningar skulu
sendar íþróttabandaiagi Hafnar-
fjarðar fyrir 28. mai.
AÐ lokinni keppni ÍR og úr-
valsliðsins að Hálogalandi,
bauð stjórn Körfuknattleiks-
ráðs Reykjavíkur, keppend-
um ásamt blaðamönnum til
kaffisamsætis að Café Höll.
ic ERFITT MEÐ DÓMARA
Formaður KKRR, Viðar
Hjartarson, hélt við það tæki-
færi ræðu og sagði frá starfsemi
körfuknattleiksráðsins í vetur og
íæddi um ýmis þau mál, sem
efst eru á baugi hjá körfuknatt-
leiksmönnum.
Viðar gat þess að miklir
erfiðleikar væru að fá dóm-
ara til að dæma körfuknatt-
leiki. Taldi hann að ein
ástæðan væri sú að leikmenn
væru oft nokkuð óvægir í
gagnrýni sinni á störfum
dómara að leik loknum. Hefði
til dæmis ekki tekizt að fá
dómara á úrslitaleik fslands-
mótsins fyrr en klukkustund
New York-búar bíða eftir
keppni meistaranna
ER ÞAÐ fréttist til Banda-verði kölluð „Keppni meist-
ríkjanna að Burnley hefði
orðið Englandsmeistarar í
knattspyrnu, gerði ameríska
stórblaðið New York Herald
Tribune það að tillögu sinni,
að hin mikla alþjóðlega
knattspyrnukcppni, sem
hefst í New York 25. þ. m.
Róstur í
vígsluleik
EJASKEGGJAR á Mallorca
hugðust hafa mikinn viðbúnað
er þeir vígðu hinn nýja knatt
spyrnuvöll eyjarinnar. Og til
þess að fá að sjá góða knatt-
spyrnu buðu þeir brezka at-
vinnuliðinu Birmingham þann
heiður að kynna enska knatt-
spyrnu í vígsluleiknum gegn
ínattspyrnuliði eyjarinnar At-
letico de Balears. Það má
iegja að Spánverjarnir hafi
haft gott eitt í huga og
farið inn á völlinn í hinum
sanna íþróttaanda. — En
hinn góði ásetníngur er ekki
ávallt nógur til raunhæfra
framkvæmda og það sannaðist
átakanlega í þessum leik
þeirra Spánverjanna og Eng-
lendinganna. Englendingar
hafa ávallt kunnað illa við að
tapa í knattspyrnu og Spán-
verjar hafa alla tíð þótt örir í
skapi og lítið þurft til að blóð-
ið ólgaði í æðum þeirra.
Þegar leikar stóðu þannig,
að heimamenn höfðu náð 2ja
marka hreinni forustu var
Bretunum farið að líða illa,
sem bezt kom fram í fólsku-
iegum árásum þeirra á heima-
menn. Einn slíkur árekstur
milli Bretans Murphy og Spán
verjans Crespi olli því að
Spánverjinn varð að yfirgefa
mllinn. Þetta var of mikið
fyrir blóð Spánverjanna sem
réðust til hreinna slagsmála
við Bretann, svo dómarinn
varð að slíta leiknum, er átta
mínútur voru eftir af leiktím-
aranna ‘.
Meðal þátttakenda í keppninni
verða fjögur knattspyrnulið, sem
í ár hafa unnið meistaratitil lands
síns í knattspyrnu, auk Burnley
eru það Rapid, knattspyrnumeist-
arar Austurríkis, Red Star knatt
spyrnumeistarar Júgóslavíu og ír
landsmeistararnir Glenavon. Og
auk þessara liða má nefna sænska
liðið Norrköping, Bangu frá
Brazilíu, The Sporting Club frá
Portúgal og Kilmarnock frá Skot
landi, þannig að í meistarakeppn
inni verða átta knattspyrnulið,
af 11 þátttakendum, sem hvert í
sínu heimalandi hafa skipað tvö
efstu sætin í 1. deildarkeppni,
hvers lands fyrir sig.
„Keppni meistaranna" verður
leikin í tveim riðlum og endar
annar í júní en hinn í júlí og
ákveðið er að úrslitaleikurinn
fari fram 6. ágúst.
í keppninni er keppt um fork-
unnar fagran bikar sem Wagner
borgarstjóri í New York hefir
gefið. Til þess að gera keppnina
enn tvísýnni hafa „hinir fjórir
stóru“ verið settir í sinn hvern
riðilinn og keppa England og ír-
land saman í riðli og Júgóslavía
og Austurríki í hinum riðlinum.
Burnley keppir fyrsta leik sinn
í keppnmni á Polo Grounds 28.
mai n.k. og mæta þá Bayern-
Múnchen frá Þýzkalandi, en ír-
landsmeistararnir Glenavon opna
keppnina að Roosevelt Stadium
í Jerseyborg þann 26. maí n.k.,
en þá keppa írarnir við New
York úrvalið.
Kilmarnock frá Skotlandi mun
keppa fyrsta leikinn að Polo
Grounds þann 25. maí gegn Þýzka
landi, en The Sporting Club frá
Portugal, sænska liðið Norrköp-
ing og Bangu frá Brazilíu eru í
síðari riðlinum sem byrjar 2. júlí
í sumar.
Ernie Cunliffe
1.47.8 - 880
jards
ic Á frjálsíþróttamóti í Los Ang-
eles sl. laugardag vann Ernie Cun
liffe 880 jarda (804,67 m) hlaup-
ið á 1:47,8, stuttu eftir að hann
hafði komið fyrstur í mark í mílu
hlaupinu, en þar náði hann 4:12,2.
Tími Cunliffs samsvarar 1:47,1
—1:47,2, er miðað er við 800 m
hlaup og er það 5/10 lakari tími
en hann hefir náð áður. Ástæð-
una taldi Cunliffs einungis þá,
að hann hefði ekki h'aft nægan
tíma til að jafna sig eftir míiu-
hlaupið.
Norska landsliðið
valið
i
NORÐMENN hafa lagt mikla
vinnu í undirbún. að vali norska
landsliðins. Og þó að menn vilji
halda því fram að norsk knatt-
spyrna hafi litlum breytingum
tekið frá því í fyrra, þá eru til
menn sem halda því *fram að
eftir hverja keppnishelgi megi
benda á „ljósa punkta“, sem fram
hafa komið í leikjum helgarinn-
ar, sem dæmi um rétta fram-
þróun til betri knattspyrnu. —
Fremstir í þessum flokki eru
íþróttafréttaritarar blaðanna.
Norðmenn eiga að leika lands-
leik við Dani 26. þ.m. og verður
norska landsliðið valið eftir
frammistöðu knattspyrnumann-
anna í leiknum „Landsliðið —
Pressan", sem fram fór í Ósló í
gærkvöldi.
íþróttafréttaritarar hafa lagt sig
fram um að velja nýja menn til
landsliðsins o>g gefa þannig ung-
um efnilegum knattspyrnumönn-
um tækifæri til að sýna getu sína
í liði „Pressunnar". Báðir hlið-
arframverðirnir í „Pressuliðinu"
eru nýliðar. Er þetta gott dæmi
um það traust sem íþróttafrétta-
ritarar sýna ungu kynslóðinni því
í nútíma knattspyrnu eru það
einmitt hliðarframverðirnir, sem
einna mestar kröfur eru gerðar
til. Þeir eru ef til vill ekki knatt-
spyrnulega séð mestu snillingar
liðsins, og þannig þeir, sem á-
horfendur taka fyrst eftir, en
sendingar þeirra verða að vera
öruggar, og reyndin er sú að í
nútíma knattsjjyrnu finnst ekki
sterkt knattspyrnulið, sem ekki
hefir sterka og trausta menn í
þessum tveim stöðum. Úthald
áður en leikur átti að hefjast.
Sagðist hann vonast að tak-
ast mætti að bæta samstarf
leikmanna og dómara.
Á síðastliðnu ári hefðu 9—10
menn tekið landsdómarapróf, en
fæstir þeirra fengjust til að
dæma. Tíu leikmenn hefðu lokið
boklegu dómaraprófi í fyrra og
hefðu átt að dæma 10 leiki hvor
til að öðlast full réttindi. Aðeins
einn. Sigurðuf Guðmundsson,
Ármanni, hefði lokið þeim
áfanga og afhenti Viðar honum
dómaraskírteinið, sem út er gef-
ið af ÍSÍ.
Viðar gat þess að KKRR hefði
skipað þriggja manna nefnd til
að endurskoða og gera tillögur
til breytinga á reglum ISl um
körfuknattleiksmót. en þær regl-
ur eru orðnar úreltar.
★ UTANLANDSVIÐSKIPTI
Viðar gat um bréfaskrift-
ir ÍSÍ fyrir atbeina KKRR við
stjórn danska körfuknattleiks
sambandsins. Hefði lengi stað-
ið á svari frá Dönum og hefði
nú nýlega loksins borizt svar
þar sem Danir telja sig ekki
geta af fjárhagsástæðum kom-
ið til Íslands og leikið lands-
leik í Reykjavík.
Formaður DBBF kvartaði
undan litlum skilningi, sem
óskir körfuknattleiksmanna
mættu hjá danska íþrótta-
sambandinu.
Viðar gat þess að stjórn
KKRR hefði íarið þess á leit við
ÍSl að haldið yrði áfram við-
ræðum við Dani og einnig yrði
leitað hófana við Svía og Finna
um væntanlega landsleiki ytra.
* SÉRSAMBAND
Formaður KKRR gat þess
ennfremur að ráðið væri nú að
vinna að undirbúningi stofnunar
sérsambands körfuknattleiks-
Framh. á bls. 23
Talið að ofan. Jan Nilsen frá
Lisleby og Arne Jacobsen frá
Válerengen.
þeirra og styrkur verður að vera
slíkur, að þeir verða að geta
fylgt sókn sem vörn. Þetta eru
miklar kröfur, en hafi knatt-
spyrnulið tvo hliðarframverði,
sem uppfylla þessar kröfur, þá
er keppnin um miðju vallarins
unnin.
í pressuliðinu í gær, stilltu
íþróttafréttaritararnir upp tveim
ungum knattspyrnumönnum, sem
hafa leikið hliðarframverðir í
Unglingalandsliðinu. Þessir tveir
ungu menn eru Jan Nilsen frá
Lisleby og Arne Jacobsen frá
Válerengen.