Morgunblaðið - 22.07.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.07.1960, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 22. júlí 1960 Leopóldville, 21. júlí. RÚSSNESKAR flutningaflug vélar lentu á flugvellinum í Leopoldville í dag og fluttu þangað sykur og hermenn frá Ghana, sem gerast nú liðs- menn Sameinuðu þjóðanna í Kongó. I Leopoldville áttu menn von á sykri og Ghana- mönnum, en ekki stórum hópi Rússa úr utanríkisþjónust- — Vilhjálmur Þór Frh. af bls. 1 Vilhjálmur Þór lýsti því í gær yfir í fréttatilkynningu, að hann hefði orðið við til- mælum bankamálaráðherra um að láta af bankastjóra- störfum um stundarsakir. — Sendi hann út eftirfarandi yfirlýsingu: YFIRLÝSING VILHJÁLMS ÞÓR „Ég hef orðið við þeim til- mælum þess ráðherra, sem fer með bankamál, að láta af störfum aðalbankastjóra Seðlabankans um stundarsak- ir, þar sem því hefur verið haldið fram, að það gæti ef til vill flýtt og greitt fyrir rann- sókn vegna gjaldeyrisskila Olíufélagsins h,f. og meintra brota fyrrverandi fram- kvæmdastjóra þess. Vilhjálmur Þór“. / 'A' Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk í gær mun Jón G. Maríusson, bankastjóri Seðlabankans, gegna störfum aðalbankastjóra bankans fyrst um sinn, þar til öðru vísi hefur verið ákveðið. unni. Þeir stigu út úr flug- vélunum á undan Ghana- mönnunum og héldu þegar inn í borgina, til fundar við Lumumba. Síðar skýrði blaðafulltrúi Lumumba frá því, að fundur for- sætisráðherrans með Rússunum hefði verið stuttur. Hann hefði þakkað fyrir sykursendinguna og síðan slitið fundinum. Áður hafði Lumumba öllum á óvænt tilkynnt, að hann mundi fara flugleiðis til New York þá þegar til að flytja mál Kongó í Öryggisráðinu. Bað hann ráðið jafnframt að fresta fundum sin- um þar til hann kæmi. — Ekki varð Öryggisráðið við þeirri ósk Lumumba og fundur var boðað- ur þar í kvöld, eins og ráð hafði verið fyrir gert. Upphaflega hafði verið ráðgert að Lumumba færi til New York í næstu viku eftir að hafa rætt við Hammarskjöld í Kongó, en þangað er framkvæmdastjórinn væntanlegur á már.udaginn. Hermenn Sameinuðu þjóðanna streyma til Kongó. í dag voru þeir orðnir 4,500 og búizt er við að innan fárra daga verði þeir 10,000. Sænskir herflokkar voru meðal þeirra, sem komu í dag. Þeir taka við varðstöðunni á flugvellinum í Leopoldville af belgískum failhlífaliðum. Fyrstu írsku hermennirnir fara áleiðis til Kongó á morgun og fleiri koma á eftir, en í dag hafði Lumumba enn ekki aftur- kallað hótun sína um að Rússar verði beðnir um hernaðarað- stoð, ef belgíski herinn verður ekki þegar á brott. En í dag sagði Lumumba, að ekkert mundi aðhafzt fyrr en Öryggisráðið hefði lokið umræðum sínum um málið. Fofystumenn Katanga-héraðs- ins, sem sagt hefur sig úr lögum við Kongó-ríkið, skoruðu í dag á allar þjóðir að viðurkenna sjálf- stæði fylkisms. jr _ Islanasblað ..Politiken fy* NA 15 hnútor SVSOhnútar Snjólomo • ÚSi V Skúrk IC Þrumur W.%, Kutíaskit Hifaski/ H Hml L LmgS í GÆR fylgdi danska dagblað- inu „Politiken" 20 síðna auka- blað, sem allt fjallar um fsland, og verður það selt á götum Reykjavíkur í dag. Blaðið er gefið út í tilefni þess, að í gær kom Norræna menning- armálanefndin saman á fyrsta fund sinn, en á miðvikudaginn 27 þ. m. hefjast fundir Norður- landaráðsins í Reykjavík. Blaðið er afar glæsilegt að öll- um ytri og innri búnaði og svni- legt, að mjög hefur verið tii þess vandað og ekkert sparað til að gera það sem bezt úr garði. Á forsíðu er skemmtilegí landa bréf af fslandi í biáum og grá- um lit, sem ber yfirsitriftina: „fsiand den gamle Saga0 — den unge Republik“. Þar er kvæði eftir hið þekkta skáld, Ove Ab- ildgaard, „Den lyse 0“, en hann hefur dvalizt hér á landi. Skemmtileg og fróðleg grein er þar einnig eftir Martin I.arsen, sem nefnist ,,Et helt nyt land at leve i“. og fjallar um sögu lands- ins á seinustu árum. Á annarri síðu eru ávörp frá forseta ís- lands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni, utanríkisráðherra, Guðmundi f. Guðmundssyni, utanríkisráð" herra Dana, Jens Otto Krag (ávarp hans heitir „Samme vestlige alliance"), ambassadör fslands í Danmörku. Stefán Jóh. Stefánsson og ambassadör Dana hér, Bjarne Paulson. Þá eru margar greinar um ýmsa þætti í málefnum íslands eftir danska höfunda. Má þar helzt nefna grein jarðfræðilegs efnis eftir dr. phil. Niel Nielsen, próf., sem heitir „Heklas helvede og Gunnars fagre li“, grein eftir Ove Abildgaard, „Jeg möder min elskede“, grein um tónlist (með skemmtilegri teikningu af Páli ísólfssyni eftir Bendix) eftir Frede Schandorf Petersen, grein um raforku „Seks millioner heste kræfter í fossen" eftir Jörgen Söholt Christensen, grein eftir dr. med. Johannes Frandsen, land lækni Dana, er nefnist „Det er landnamstid pá ny“, „Ung kunst í gammelt land“ eftir Bertel Engelstoft, „Skálholt" eftir Svend Erik Möller, grein um Thors- bræður eftir Martin Larsen, Altid i Norden“ eftir Johannes Lindskov Hansen, „Andet end glima“ eftir Wilbour Nielsen, „Flyvende landnamsmænd östpá og vestpá“ eftir Jörgen Sandvad, „Festdag i Island" eftir Gerd Grieg, „Post og passagerer med mælkebilerne" eftir Chr. Nyborg Madsen, „Da handelen blev fri“ eftir Sören Hansen, „Adam i Paradis" eftir Martin Larsen og Den lille ’ádne klippe-hest“ eft- ir Holger Worm. Þessir íslendingar skrifa í blað- ið auk þeirra, sem áður er getið: Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, á greinina „Drastisk ökonomisk sanering", Atli Stein- POLITIKEN og dótturblað þess, Ekstrabladet réðu hóp reykvískra blaðsöludrengja í þjónustu sína í gær til þess að ganga með auglýs- ingaspjöld um borgina vegna íslandsblaðsins, sem fylgdi Politiken í gær. Hér er mynd af einum piltanna, sem er vitaskuld stoltur af búningi sinum. arsson, blaðamaður, „Vi oplever kampen mellem ild og is“, Hall- dór Laxness „Digter og publikum i Island“, Davíð Ólafsson, fiski- málastjóri, „Trawlere mod krigs- skibe“, Jón Helgason, prófessor, „Stadig nye fund“ og Bjarni M. Gíslason á kvæðið „Afskedens time“. Fjöldinn allur er af alls konar smágreinum um ísland. Ötalinn er enn einn höfuðkostur blaðsins, en það eru myndirnar, sem skreyta síður þess. Þær eru bæði margar og fagrar. Mikið er um auglýsingar frá íslenzkum fyrir- tækjum í blaðinu. SÍS og Sem- entsverksmiðja rikisins eiga t. d. heilsíðuauglýsinguar inni í blað- inu, en Flugfélag Islands hefur litprentaða auglýsingu yíir alla öftustu siðu. Ekki ber að efa, að blað þetta muni stuðla mjög að aukinm þekkingu Dana á íslandi og íbú- um þess, því að „Politiken" er eitt útbreiddasta blað Danmerk- ur, en greinarnar allar ritaðar af góðum skilningi á högum lands og þjóðar. Tíminn ' við sama heygarúshornið — Þykir ríkissjóður nú ekki hafa greift nóg vegna Hellu-brúarinnar Vaxandi lægð við Gæsaflóa. Á hádegi í gær var grunn lægð yfir fslandi. Lægsti þrýstingur við sjávarmál var um 1003 millibör. Önnur lægð, nýlega mynduð og vax andi, var skammt suðaustur af Gæsaflóa í Labrador og stefndi norðaustur á bóginn. Búasf má við, að hún _ verð: komin í námunda við ísland á laugardag. Stórt þokusvæði er á haf- inu austur af Nýfundnalandi, en eins og lesendur hafa ef- laust ráðið í, er þoka táknuð á kortinu með þremur, lárétt- um, samhliða strikum. Við Labrador er alldjúp lægð á hreyfingu norðaustur. Veðurhorfur næsta sólarhring SV-land til Vestfjarða og SV mið til Vestfjarðamiða, hæg breytileg átt og viðast létt- skýjað í nótt og fram eftir morgundeginum, SA-kaldi og skýjað með kvöldinu. Norður land til Austfjarða og Norður mið og Norðausturmið: NA- gola, skýjað og víða þoka til fyrrramáls, S-gola og þoka í nótt en léttir til á morgun. SA-land og SA-mið : vestan gola og síðar kaldi, bjart veð- ur. I MÁLEFNASNAUÐ sinni heldur „Tíminn“ enn áfram að fjölyrða um skaðabætur þær, sem ríkissjóður var dæmdur til að greiða kaupfé- laginu „Þór“ á Hellu, vegna þess að horfið var frá stað- festum skipulagsuppdrætti um lagningu brúar yfir Rangá. SAMA NIÐURSTAÐA VÍS I ritstjórnargrein í gær reyn ir blaðið enn að ala á tor- tryggni í garð fjármálaráð- herra vegna þess að gert hafði verið út um málið „án þess að farið væri hin venjulega dómstólaleið“. í tilefni af þessu skal það enn rifjað upp „Tímanum“ til fróðleiks, að gerðardómur sá, sem um málið fjallaði, var skipaður 3 hæstaréttardómur- um, og voru þeir sammála um niðurstöðuna. Þar sem dómar- ar þessir mynda meiri hluta í Hæstarétti, hefði nið- urstaða málsins í Hæstarétti óhjákvæmilega orðið hin sama, ef málið hefði komið til kasta hans — aðeins kostnað- urinn við málsmeðferðina hefði þá orðið annar — og það miklu meiri. VÖXTUM AFSTÝRT Þá kvartar „Tíminn“ nú yf- ir því, að ríkissjóður skuli hafa staðið í skilum með greiðslu skaðabótanna. I því sambandi er ástæða til að benda „Tímanum" á það, að hæstaréttardómararnir úr- skurðuðu, að bæturnar skyldu greiðast fyrir 1. júní 1960 — en ella falla á greiðsluupphæð ina 10% ársvextir. Það er því vægast sagt vafasöm f jármála speki að álíta skynsamlegra að bíða eftir því að vextir hlað ist á skuldina. En ef „Tíminn“ er ekki enn búinn að fá sig fullsaddan af skrifum um mál- ið, upplýsir hann máske í næsta sinn, hversu þunga vaxtabyrði hann hefði talið hyggilegt að baka ríkissjóði, áður en skuldin var greidd. „TÍMINN“ EINN >essi tvö atriði sem að of- an eru rakin og „Tíminn" hcf- ur nú síðast lagt megin- áherzlu á, hafa því verið leidd til lykta á þann hátt, sem ríkis sjóði var ódýrastur og hag- kvæmastur — og svo var nm málið í heild. Þetta er öllum landsmönnum löngu ljóst. Það er aðeins hið vesæla blað „Tíminn“ sem ekki hefur enn skilið þetta til fulls — eða kannske getur hann bara ekki sætt sig við, að fjármálum landsins sé svn vel stjórnað sem raun ber vitni, nú þegar hans aðstendur eru víðs f jarri. Rússneskar flugvélar í Leopoldville Lumumba fer til New York, en Öryggis- ráðið bíður ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.