Morgunblaðið - 22.07.1960, Page 3

Morgunblaðið - 22.07.1960, Page 3
Föstudagur 22. júlí MOKCVlSfíLAÐIÐ 3 Vona að Hillary finni // sngomannmn 44 — sagði Sir John Hunf á R.víkurvelli í gœr SIR JOHN HUNT, fjallagarpur- inn heimsfrægi, hafði stutta við- stöðu í Reykjavík í gærkvöldi. Hann var á leið til Grænlands að þessu sinni, fór fyrir hópi ungra manna, sem ætla að ganga á fjöll og gera ýmsar vísindalegar rann- sóknir við Kong Oscars-fjörð á austurströndinni og á jöklinum þar uppaf. . ☆ Sir John stjórnaði leiðangrin- um, sem „sigraði" Everest-tind- inn árið 1953. Að þessu sinni hugði hann ekki til neinna stór- sigra, en ,,ég hef aldrei til Græn- lands komið og Grænlandsferð er út af fyrir sig alltaf ævintýri“, sagði hann, er fréttamenn attu tal við hann á flugveliinum. — Þetta er tiltölulega stór leið angur. Um 20 ungir menn og vask ír, konan mín og 19 ára dóttir, sem eru vanar að klífa kletta. Við skiptumst í smáhópa, þegar til áfangastaðar kemur suvnir fara lengst inn á jökul'.nn, aði- ir halda sig við jökúlröndina og enn aðrir reyna að klíta tmdana, sem mest freista okkar. — Við gerum margs kyns rann sóknir, bæði hvað jöklinum við- kemur og á gróðurfari og öðru þar sem jöklinum sleppir. En fyrst og fremst mundi ég segja, að við værum fjallgöngumenn og ætluðum að reyna kraftana, því þeir yngstu eru innan við tví- tugt, samt engir nýliðar. Eftir sex vikur höldum við heimiéiðis. Þið Hillary hafið ekki samflot að þessu sinni, var spurt, og Sir John svaraði því neitandi. því Hillary hefur öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. ☆ — Hann kom heim til mín fyr- ir þremur vikum, en nú er hann kominn til Nýja Sjálands, er að undirbúa Himalaja-leiðangur. — Þessi leiðangur Hillarys mun m.a. leita snjómannsins, sagði Sir John, og var á honum að heyra, að menn gerðu sér vonir um að finna kauða. — Persónuli*0a ^r ég ekk; f Low — hinn kunni kvikmynda tökumaður (Ljósm.: vig.) vafa um að snjómaðurinn svo- nefndi er til, bætti Sir John við. Ég hef séð spor hans á ferðuro mínum í hlíðum Himalaja — og ég hef heyrt í honum. Og það hljóð kom ekki frá neinni skepnu, sem menn þekkja þar um slóðir. Það var einna líkast apa- öskri, eins og í gorilla apa. Sir Jonn hristi höfuðið. „Ég trúi því ekki fyrr en ég fæ ó- yggjandi sannanir", sagði hann. — Þeir höfðu að mínum dómi ekki þá reynzlu, sem til þarf. Þeir sögðust hafa klifið tindinn að næturlagi og þar af leiðandi ekki getað tekið neinar myndir til sönnúnar. Mér er það hins vegar óskiljanlegt hvernig hægt er að klífa Everest í myrkri. — Nógu erfitt hefur það reynzt í björtu. Þar að auki hef ég vitn- eskju um það frá öðrum leið- angri, að veðrið var mjög óhag- stætt þarna dagana, sem Kín- verjarnir sögf^ist hafa verið við tindinn. ☆ .— Þegar fréttin barst var ég með rússneskum fjallagörpum, sem heimsóttu Bretland. Tveir þeirra áttu í rauninni að vera með Kínverjunum, en samkomu- lagið var ekki upp á það bezta og Rússarnir fóru ekki, eða Kín- verjarnir skildu þá eftir: Allir Rússarnir hristu höfuðið og hlógu. Þeir lögðu ekki minnsta trúnað á fréttina. í leiðangri Sir John Hunt var annar heimsfrægur maður, Ný- sjálendingurinn George Lowe. Hann var í Everest-leiðangri Hunts og tók kvikmyndina frægu. Hann fór líka m,eð Fuchs yfir suðurheimskautslandið og tók kvikmynd. Hann ætlar að taka kvikmynd í Grænlandi og heldur svo til móts við Hillary og verð- ur með honum. Hann ætlar sér að verða fyrstur manna til að mynda „snjómanninn". Og ekki er hann síður en Sir Hunt trú- aður a sannleiksgildi sögusagn- anna. --, - ----------------- En hann er vægast vantrúaður á Everest-sögu Kinverja — Ég hef líka talað við áreið- anlegt fólk, sem hefur séð kvik- indið. Það hefur lýst því íyrir mér. Það leikur enginn vafi á að þarna er „snjómaður", eða senni- lega einhver apategund. Ég vona að Hillary hafi heppnina með sér, sagði Sir John. Blaðamaður Þjóðviljans spurði þá hvað hann vildi segja um af- rek kínverskra fjallagarpa, sem á dögunum sögðust hafa „sigrað“ Evere ' ’v Hunt og dóttlr á fiugvellinum í gæ- Lowe hefur áður komið til fs- lands. Þá var hann í Grænlands- ferð. En Sir JohA hefur hvorki til íslands né Grænlands kom- ið. „Að vísu munaði mjóu hér um árið, að ég kæmi hingað til íslands", sagði Sir John. „En það varð úr að Hillary færi.“ Sir John Hunt var léttur í spori þegar hann steig út úr flug- vélinni. Hópurinn kom með Flugfélags- vél frá London í gærkvöldi. Um miðnæturs'keið var Sólfaxi full- búinn til að flytja leiðangurs- menn til Meistaravíkur. Þeir Öxl- uðu ísaxir sínar og þrömmuðu út að flugvélinni, allir vel búnir til fótanna og í reglulegum úti- legufötum. Garparnir voru glað- ir í bragði, þetta er í rauninni sumarfrí hjá þeim, því ekki er sögð von „snjómanna" í Meist- aravík. h.j.h. ^ ^ F Ahöfn snekkjunnar neitar að sigla HOLLENZKA áhöfnin á ítölsku skemmtisnekkjunni Franz Terzo, sagði blaða- manni Mbl. í gær, að það væri útkljáð mál, að þeir neituðu að sigla snekkjunni til Græn- lands. Hinsvegar kváðust þeir ekkert vita, hvaða ráðstafanir yrðu gerðar til að koma skip- inu til Grænlands, eða aftur til Evrópu. Skipsmenn lögðu enn sem fyrr áherzlu á það, að snekkjan væri ekki gerð fyrir siglingar í Norðurhöf- um. Þá kváðust þeir hafa heyrt á íslenzkum sjómönn- um, að Grænlandssiglingar væru erfiðar og hættulegar. „Fáeina daga“ Skipsmenn báðu fréttamann Mbl., að leiðrétta það sem hefði staðið í samtali við þá í blaðinu í gær, að þeir væru óvanir sjó- menn. Það kveða þeir alls ekki vera rétt. Sá sjómaðurinn, sem haft var eftir að hann hefði verið sjómaður í hálfan mánuð, sagðist einungis hafa tekið svo varlega til orða (understatement), að hann hafi verið sjómaður „fáeina daga“. Blaðamaðurinn hafði síð- an spurt hann hvað marga og hann svarað „fifteen", en þar átti hann við ár, en ekki daga. Eins og að drekka vatn Fjöldi fólks fór niður að lysti- snekkjunni í gærdag til að skoða hana. Er það miður farið að snekkjunni skuli hafa vevið lagt utan á gamlan ryðkláf, pví að marga langar til að skoða hana og getur jafnvel hætta verið sam fara því, að margir klöngrast yfir Gvend gamla Júní, sem ver- ið er að rífa. I gær, þegai fréttamaður Ml kom í snekkjuna, var röð fóll meðfram borðstokknum á Gu mundi Júní og heyrðust mer rabba um snekkjuna. Einn sagf — Ætli þetta sé ekki manndráp kláfur? En annar svaraði: - Blessaður vertu, ég skyldi sig henni til Grænlands eins og í drekka vatn. SKAGASTRÖND, 21. júlí. Hingað barst í dag fyrsta sílc á þessu sumri. Var það söltun; síld, sem veiddist í nótt á Skaf grunni. Bjarni frá Dalvík v með 150 tunnur og Baldvin Þc valdsson 70. — Þ. J. STAKSl EIIMAH Koníak í kassanum í Alþýðuhúsinu birtist fyrir skömmu eftirfarandi frétt: „Ekiki alls fyrir löngu vildi svo til i kaupstað einum norðan- lands, að húsfrú nokkur gerði pöntun á isskáp. ísskápinn pant- aði frúin hjá kaupfélaginu á staðnum og beið síðan í ofvæni eftir gripnum. Á sínum tíma kom isskápur- inn til landsins frá Þýzkalandi. Konan greiddi andvirði hans í kaupfélaginu og lofuðu sam- vinnumenn að senda skápinn heim. Svo var það einn góðan veður dag, að sendimenn frá kaupfé- laginu komu akandi heim til . konunnar með gríðarstóran kassa meðferðis og tjáðu henni, að þarna væri skápurinn kom- inn. Hin norðlenzka húsfreyja var harla glöð yfir að fá ísskáp- inn sinn, hafizt var handa um að rífa upp kassann stóra og sjá: í kassanum var enginn ísskáp- ur, heldur var kassinn fullur af dýrindis koníaki og líktist frek- ar vínskáp en trékassa utan af ísskáp. Að sjálfsögðu vakti þessi mikla sending mikla furðu á heimili konunnar og vissu menn ekki hvaðan á sig stóð veðrið. En ekki leið á löngu áður en fulltrúi frá kaupfélaginu heim- sótti húsfreyju og kvað hér hafa verið um misskilning að ræða. Óskaði hann eftir því, að fá inní hald trékassans aftur og lofaði að senda ísskáp í staðinn við fyrsta tækifæri. Hann hafði þá ekki erindi sem erfiði, því koníakið var alls ekkl Iátið af hendi“. S m y g 1 Morgunblaðið veit ekki sönn- lir á þessari sögu, en athyglis- vert er, að málgagn SÍS hefur ekki leitazt við að hrekja hana. Alltaf öðru hvoru birtast í blöðunum fréttir af stórfeldu smygli. Yfirleitt eru þó óvand- aðir einstaklingar að verki en ekki fyrirtæki. Þessi saga um koníakskassann, ef sönn er,. er því sýnu alvarlegri heldur en venjulegar fréttlr af smygli. Eftir fréttinni að dæma virðist sem sagt stórt fyrirtæki vera við smyglið riðið. Verður að vona að mál þetta upplýsist og samvinnumenn hreinsi sig af áburðinum, ef sag- an er röng. Komið við hiartað í hvert sinn sem á það er minnzt, að íslendingar þurfi að tryggja sér frjálsræði í viðskipt- um á borð við nágrannaþjóðirn- ar, er eins og komið sé við hjart- að í þeim Þjóðviljamönnum. 1 gær birti Þjóðviljinn ritstjórnar- grein í tilefni af því að Morgun- blaðið minnti á það fyrirheit Sjálfstæðisflokksins í kosninga- stefnuskrá sinni, að stefnt yrði að frjálsum viðskiptum og þátt- töku í fríverzlunarbandalögum. Þjóðviljinn er nú kominn að þeirri niðurstöðu að við ættum ekki einungs að selja þriðjung afurða okkar austur fyrir tjald, eins og nú er, heldur helminginn og sjálfsagt helzt allt með tím- anum. Þá vaknar spurningin um það, hvað eigi að kaupa fyrir and- virði hinna útfluttu vara. Er þeirri hugmynd hér með komið á framfæri við Þjóðvljann, að hann reyni að reka áróður fyrir því meðal sinna manna, að þeir kaupi rússneskar vörur, til dæm is rússnesku bílana. Sannleikur- inn er sem sé sá, að Mir eru gætnari í innkaupum en komm- únistar sjálfir, sem vandlega forðast að kaupa hinar Iélegu austurvörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.