Morgunblaðið - 22.07.1960, Blaðsíða 11
MORCUNBL AÐ1Ð
11
Föstudagur 22. júlí 1960
'Wojr
Frá kappreiounum. — Kirkjubæjar-Blesi jafnar Isl.met í 250 m. hlaupi í harðri keppni við Ör.
(Myndirnar tók vig.)
Glœsilegt fjórðungsmót
hestamanna \ Borgarfirði
Koma þarf fastara sniði á hesta-
mannamótin
son, Hæli formaður L. H. mótið
með ræðu. Þá flutti séra Guð-
mundur Þorsteinsson á Hvann-
eyri ávarp og blessunarorð og
síðasta atriðið fyrir hádegi var
sýning stóðhesta. í dómnefnd
voru Gunnar Bjarnason hrossa-
ræktarráðunautur, Símon Teits-
son, Borgarnesi og Ingólfur Guð-
mundsson, Reykjavík.
Tamdir stóðhestar
1. Baldur frá Bóndhól, mó-
brúnn, 7 ára, eigandi HRSB,
Borgarfjarðar. Hann hlaut silfur-
bikar, sem á sínum tíma var gef
inn af alþingismönnunum Pétri
Ottesen og Bjarna heit. Ásgeirs-
syni. Er bikar þessi faraadgrip-
ur.
2. Roði frá Skörðugili í Skaga
firði, rauður, 9 ára. Eigandi
HRSB Borgarfjarðar.
3. Rökkvi frá Dalkoti, dökk-
jarpur, 4ra vetra, eigendur Guð-
mundur Magnússon, Stóra-Ási
og Garðar Halldórsson, Hóli,
Borg.
Ótamdir stóðhestar
1. Hrímfaxi frá Langholtsparti
í Flóa, 3ja vetra, tleikvindóttur
(faðir Silfurtoppur). Eigandi
HRSB Borg.
2. Stjörnufákur, brúnn, 2ja
vetra. Eigandi Þorlákur Ottesen,
Reykjavík.
3. Skuggi frá Kiðafelli, jarp
ur, 3ja vetra. Eigandi Hjalti Sig-
urbjörnsson, Kiðafelli, Kjós.
Eftir hádegi hófst dagskrá með
því að Pétur Ottesen, fyyrv. al-
þingismaður, flutti ávarp. Síðan
voru hryssur sýndar.
Tamdar hryssur
Dómnefnd skipuðu: Bogi Egg-
Verðlaun afhent fyrir Baldur, bezta stóðhestinn. T. v. Pétur
Ottesen, fyrrv. alþingismaður, sem verðlaunin afhenti en þau
eru farandgripur gefinn af honum og Bjarna heitnum Ás-
geirssyni fyrrv. alþingismanni og sendiherra. Símon Teitsson
veitir verðlaununum móttöku. Að baki þeirra Baldur og
U M síðustu helgi var háð
fjórðungsmót hestamanna á
Vesturlandi á vegum Búnað-
arfélags Islands og Lands-
sambands hestamannafélaga.
Mótið fór fram á mótstað
hestamannafélagsins Faxa á
Hvítárbökkum, þar sem heit-
ir að Faxaborg.
Veður var hið ákjósanlegasta
báða mótsdagana, nema hvað,
moldryks gætti nokkuð, enda
brakandi þurrkur. Þetta fjórð-
ungsmót mun að líkindum eitt
hið -^"fjölsóttasta sem háð hefur
verið og sýnir það greinilega vax
andi vinsældir slíkra móta svo og
grózku í hestamennsku lands-
manna. Það er vel til fallið að
halda þessi fjó^ðungsmót þau ár-
in sem landsmot eru ekki haldin
og skipta þeim milli landsfjórð-
unga. Mót sem þessi er í raun-
inni ákaflega víða hægt að halda,
aðeins þarf að ganga frá löglega
byggðum skeiðvelli. Við höfum
ekki enn komizt upp á lag með
að tileinka okkur svipaðan út-
búnað og erlendis tíðkast á mót-
um sem þessum. Enn erum við
ekki farnir að nota hestflutninga
vagna (trailers) sem þar eru
mjög ailgengir og eru ekki síður
nauðsynlegir hér, þar sem að til-
tölu við hesta- og fólksfjölda
eru veglengdirnar miklum mun
meiri.
Vagnar sem mótsbyggingar
Flutningavagnar þessir eru af
ýmsum stærðum og gerðum. Hin
ir stærstu þeirra eru svo notaðir
á mótunum sem íverustaðir
starfsmanna og sem dómpallar og
matarvagnar. Veitingar eru í
tjaldborgum. Segja má að ekki sé
eðlilegt að einstaklingar hér á
landi eigi hina stærri hestflutn-
ingavagna, en jafn eðlilegt væri
að Landssamband hestamannafé-
laga og stærstu hestamannafélög
in ættu slíka vagna. Það er firra
að ætla sér, að leggja mikinn
kostnað í byggingar fyrir mót,
sem standa tvo daga ár hvert.
Þess vegna verðum við að til-
einka okkur háttu annarra, sem
lengri reynzlu hafa á þessu sviði.
En þetta var í rauninni útúr-
dúr, þótt skylt sé skeggið -hök-
unni. Faxaborg er vel búin að
húsum, þótt fyrirferðarlítil hefðu
þau orðið fyrir fjöldann ef stór-
rigningu hefði gert. Allur undir
búningur þessa móts var vel og
skipulega framkvæmdur og létu
þeir aðkomustarfsmenn, sem
þarna þurftu að vinna bæði í
dómnefndum og fleiru, vel yfir.
Á laugardaginn var mætt með
skrásett hross hjá dómnefndum
og unnu þær að dómum fram eft
ir degi. Um kvöldið voru kapp-
reiðar og sölusýning.
Smekklegri ldæðnaó '
og betri ásetu
Á sunnudagsmorguninn kl.
10,30 riðu hestamenn fylktu liði
undir félagsfánum inn á sýning-
arsvæðið og mátti þar líta glæsi-
lega fylkingu. Það eina sem
skyggir á slíkar hópsýningar hjá
okkur enn er hve búningur
margra knapanna er ósmekkleg-
ur. Það verður að fara að leggja
meiri áherzlu á að búningar
knapa séu viðunandi og ásetan í
föstum stíl. Það er einhver losara
bragur yfir þessu hjá okkur
ennþá.
Það er ekki síður nauðsynlegt
að setja fastar reglur um hegðun
og búnað sýningarknapa heldur
en knapa á kappreiðum. Það verð
ur einnig að ■ setja rpglur um,
hvernig sýningarsvæði skuli
skipulagt og á hvern hátt skuli
mætt með hestana fyrir dóm-
nefnd. Erlendis er þetta í mjög
föstum skorðum og ákveðnar
reglur, sem um þetta gilda. Þess
vegna getur allt gengið í röð og
reglu og sýningin getur borið
glæsibrag.
Engar skipulagsreglur
Landssamband hestamannafé-
laga verður að taka þessi mál
fastari tökum en verið hefur. —
Mestur tími þinga þess hefur far
ið í rifrildi um peningamál og
framkvæmdir, sem engar skipu-
lagsreglur eru fyrir. Það er
hlægilegt að henda tugum og
hundruðum þúsunda í byggingu
sýningarsvæða án þess að nokk-
ur skipulagsreglugerð skuli vera
fyrir um það, hvernig slík sýning
arsvæði eiga að vera. Útkoman
verður því að eitt mótið er haldið
við þessar aðstæður og annað
við hinar og hvorki starfsmenn,
dómnefndir eða sjáifir sýnendur
hafa raunverulega áttað sig á
skipulaginu fyrr en mótinu er
lokið.
Hér er ekki á þetta bent vegna
þess að skipulagið hafi verið
venju fremur slæmt á Hvítár-
bökkum. Þar var það eins og
bezt verður á kosið við núverandi
aðstæður. Hitt er verkefni hins
unga Landssambands, og
knapinn. —
kannske vart von að lengra sé
komið, enda verður ekki allt
unnið í senn, að sjá um að bæði
fullkomin kappreiðareglugerð og
sýningarreglugerð ásamt viður-
kenndum dómstigum sé gefið út,
svo menn viti að hverju þeir
ganga og ekki þurfi eilífar móðg
anir og rifrildi eftir á.
Kl. 11,15 setti Steinþór Gests-
ertsson, Guðm. Pétursson, Hesti,
og Gísli Ellertsson, Meðalfelli.
1. Venus frá Reykjum í Mos-
fellssveit, leirljós, 8 vetra. Eig-
andi Málmfríður Bjarnadóttir,
Reykjum. Venus hlaut í verð-
laun, silfurbikar, gefinn af Kaup
félagi Borgfirðinga. 7
2. Nótt frá Kolstöðum í Dala-
sýslu, brún, 7 vetra. Eigandi Guð
mundur Guðmundsson, Kolstöð-
3. Gletta frá Skeljabrekku I
Borgarfirði rauð, 10 vetra. Eig-
andi Jón G slason, Skeljabrekku.
Góðhestar
Dómnefnd skipuðu: Steinþór
Gestsson, Hæli, Björn Jónsson,
Akureyri og Jón Bjarnason,
Selfossi.
Sýndir voru góðhestar frá 6
hestamannafélögum, fyrstur varð
Hrannar, brúnskjóttur, 11 vetra,
eigandi Sólveig Baldvinsdóttir,
Hafnarfirði. Hrannar hlaut Vest-
urlandsskeifuna 1960.
2. Börkur, sótrauður, 13 vetra,
eigandi Þorlákur Ottesen, Rvík.
i. Goði, leirljós, 15 v., eigandi
Höskuldur Eyjólfsson, Hofsstöð-
um í Hálsasveit.
4. Glókollur, rauður, 10 vetra,
eigandi Leo Sveinsson, Rvík.
5. Svaði, brúnstjörnóttur, 9
vetra, eigandi Björn Jóhannes-
son, Sturlu-Reykjum.
Að lokinni góðhestasýningunni
voru verðlaun afhent þeim er
Faxaskeifuna hlaut, en hún er ár-
lega veitt af Hestamannafélag-
inu Faxa í Borgarfirði. Skeifuna
hlaut að þessu sinni Reykur,
grár, 6 vetra, eigandi Gisli Hös-
kuldsson, Hofsstöðum, Borgar-
firði.
Kappreiðar
Á laugardaginn kl. 17,00 síðdeg
is fóru fram undanrásir í kapp-
reiðum. Hófust þær með skeiði.
Sá háttur var hafður á á þessu
móti að hverjum skeiðhesti var
gefinn kostur á að hlaupa tvo
spretti og réði betri tíminn úr-
slitum, hvort sem hann náðist í
fyrri eða seinni spretti. Sprett-
lengd var 250 m. þar af hreint
skeið 200 m.
Hið gamalkunna skeiðhross
Gletta Sigurðar Ólafssonar vann
skeiðið og lá hún fyrri sprettinn
á 25,2 sek. og voru henni veitt
fyrstu verðlaun. Það má merki-
legt telja hve vel Gletta heldur
út orðin 22 ára gömul.
Önnur varð Venus Málfríðar
Bjarnadóttur á Reykjum. Hún lá
báða sprettina en fékk betri tíma
seinni daginn, 25,7 sek.
Þriðja var Frekja Tryggva
Stefánssonar, Skrauthólum, Kjal
arnesi. Hún lá fyrri daginn og
hljóp á 26,1 sek.
Þátttökuna í skeiðinu má telja
góða en 11 hross mættu til leiks.
Má telja vir4 að sú tilhögun að
taka gildan betri sprett skeið-
hrossanna sé orsök í vaxandi
þátttöku í skeiðinu og er það vel,
því mörgum áhorfendum þykir
skeiðið skemmtilegust keppnis-
greina, sem við eigum völ á hér.
250 m. folahlaup
Þar mættu til leiks 7 hestar. —
Sigurvegari varð Kirkjubæjar-
Blesi Jóns M. Guðmundssonax á
Reykjum. Hljóp hann í undanrás
á 19,9 sek., en í úrslitum á 19,8
sek. og er það sami tími og stað
fest met. 2. varð Ör Þorkels-
Bjarnasonar á Laugarvatni. —
Hljóp í úrslitum á 19,9 sek. — 3.
varð Fálki Þorgeirs í Gufunesi,
hljóp á 20,8 sek.
300 m. stökk
Þar mættu 8 hestar til leiks.
Fraiohald á bls. 13.
Þessar myndir eru frá afhendingu verðlauna fyrir góðhestakeppni og kynbótahryssur.______T. v.
Björn Jónsson afhendir Kristni Hákonarsyni verðlaunin fyrir bezta góðhestinn, Hrannar úr
Hafnarfirði. T. h. Gunnar Bjarnason afhendir Jóni Guðmundssyni verðiauuúi fyrir beztu kyn-
bótahryssuna, Venus frá Reykjum.