Morgunblaðið - 26.07.1960, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.07.1960, Qupperneq 1
20 síðv^ Brezkur aflakóngur rekinn úr starfi * Var á Kingsfori Jade, sem Oðinn reyndi að taka BtiAÐIÐ Fishingr News skýrir frá því, að skipstjóra togarans King- ston Jade hafi verið vikið úr starfi í þrjá mánuði fyrir að ó- hlýðnast fyrirmætam eigenda skipsins um að halda sig utan við tólf mílna mörkin við ísland. Skipstjórinn, sem er 58 ára heit ir James Shaughnessy og er ein mesta aflakló Hull-borgar. Hefur hann verið ailakóngur Kingston- James Shaughne«c-' togarafélagsins og unnið hin svo- nefndu Copper Chat verðlaun. Þykja það mikil tíðindi þar að honum hefur verið vikið þannig frá starfi. Kaus betri kostinn Fishing News hefur átt samtal við hann vegna þessara atburða. Þar segir hann, að hvorki hann sjálfur né loftskeytamaður tog- arans vilji viðurkenna að þeir hafi verið innan tólf-mílna mark- Um áreksturinn við Óðin að- fararíótt 4. júlí segir skipstjórinn: — Ef ég hefði numið staðar og látið íslenzka fallbyssubátinn taka mig, hefðu þeir farið með okkur inn til Iteykjavíkur. Ég kaus betri kostinn af tveimur slæmum og sígildi á brott frá honum. Ræktar garðinn Shaughnessy skipstjóri kveðst ætla að sitja um kyrrt heima og rækta garðinn sinn þennan tíma, sem hann verður frá starfi. Hann segir að brottvikningin geri sér ekkert til fjárhagslega, því að hann sé vel efnum búinn. Framhald á bls. 19. í fyrsta sinri á fslandi: Norðurlandaráð byrjar 8. þing sitt í Reykjavík á fimmtudag Nixon talinn öruggur CHICAGO 25. júlí. — t dag hófst hér í borg flokksþing republikana. Er það verkefni þingsins að velja forsetaefni flokksins í kosmngunum næsta haust. Þingið hófst með því að Morton framkvæmda- stjóri flokksins flutti ræðu þar sem hann réðst karkalega á demokrata fyrir það að þeir hefðu samþykkt á dögunum stefnuskrá sem þeir gætu aldrei staðið við. Á meðan hann var að flytja 1 ræðuna kom Richard Nixon varaforseti fljúgandi til Chi- cago. Það þykir nú alveg víst, að hann verði kjörinn forseta efni flokksins. Við komuna kvaðst hann mjög ánægður yfir því að hafa náð samkomu lagi við Rockefeller, höfuð keppinaut sinn um stefnuna í varnarmálum og mannrétt- indamálum. Samkomulag það sem þeir gerðu með sér varð andi mannréttindamál gengur miklu lengra en tillögur stefnuskrárnefndar flokksins. Kveðst Nixson vonast til þess að stefnuskárnefndin endurskoði nú fyrri tillögur sinar til samræmis við þetta, ella muni hann sjálfur leggja tillögur fram um þetta á þing inu. j Allir forsætisráðherrar Norðurlanda verða meðal 96 fulltrúa 25 mál liggía fyrir þinginu og má búast við miklum umrœðum norðurlandarAð — sem fyrst kom saman árið 1953 í Kaupm.höfn — heldur 8. þing sitt í Reykjavík dag- ana 27.—31. þ. m., eins og áð- ur hefur verið getið hér í blaðinu, og er það í fyrsta skipti, sem ráðið sezt á rök- stóla hér á landi. Mikill undirbúningur Mikill undirbúningur hefur staðið yfir að undanförnu í sam- bandi við þingið, og hefur mest- ur hluti þess starfs mætt á skrif- stofustjóra Alþingis, Friðjóni Sigurðs^yni, en hann er formað- ur undirbúnir.gsnefndar þeirrar, sem íslands-deild ráðsins kjöri um miðjan júní-mánuð síðastl., aðrir nefndarmenn eru þeir Har- aldur Kröyer, Jóhannes Hall- dórsson og Ólafur Ólafsson. — Mbl. leitaði sér í gær upplýs- inga um þinghaldið hjá Friðjóni Sigurðssyni, og skýrði hann m. a. frá því, er nú skal greina. 25 mál til meðferðar Þingið verður í styttra lagi að þessu sinni, bæði sökum þess, að skammt er liðið frá því að Norð- urlandaráð kom síðast saman — og einnig þar sem ákveðið bef- ur verið að halda næsta þing strax í febrúar næstkomandi. Engu síður liggja fyrir til ■•nrjBí" "" hafa átta þeirra einnig verið rædd á fyrri þingum en 17 eru ný. Auk þess hefur þingið til með- ferðar skýrslur frá ríkisstjórn- um landanna, þar sem gerð er grein fyrir, hvað þeim hefur orðið ágengt við að hrinda ein- stökum ályktunum fyrri þinga í framkvæmd. Almennar umræður Siðast en ekki sízt er svo að geta greinargerðar frá stjórnar- nefnd þingsins um störf Norður- landaráðsins frá síðasta þingi, en í sambandi við hana fara fram á þinginu almennar um- ræður um norræna samvinnu. Taka þær umræður oftast mest- an tíma þingsins, og má t. d. gera ráð fyrir, að ráðherrar þeir, * j.óustu viku gerðu Banda- ríkjamenn tilraunir með að skjóta Polaris-flugskeytum loft frá kafbátnum George Washington. Tókust tilraunir þessar mjög vel. Kafbáturinn var á 30 metra dýpi, þegar hann hleypti af tveimur eld- flaugum. Þær þutu fyrst upp að yfirborði sjávar, hófu sig síðar upp í háloftin og hittu eftir fjórtán mínútur í mark í 1700 km fjarlægð. Mynd þessi var tekin þegar fyrra flug-1 skeytið af tveimur þaut upp ] úr hafinu. sem þingið sækja, geri við það tækifæri grein fyrir afstöðu sinni til mala — fremur en við umræður um einstök mál síðar. Líkur eru til, að talsverðar umræður t.akist um ýmis þeirra mála, sem fyrir þinginu liggja nú. Þar á meðal eru tiliögur á sviði utanrikismála, um breytt fyrirkomulag sendiráðanna á Norðurlöndunum innbyrðis og sameiginleg sendiráð í nýjum Framhald á bls. 19. Þing Norðurlandaráðsins: Forsætisráðherra deildaforsetar komu rinna og * i FORSÆTISRÁÐHERRA Finnlands, V. J. Sukselainen, og þeir deildaforsetar Norð- urlandaráðsins K. A. Fager- holm frá Finnlandi, Erik Er- iksen frá Danmörku, og Bert- il Ohlin frá Svíþjóð, voru meðal farþega „Hrímfaxa", sem lenti á Reykjavíkurflug- velli um 11-leytið í gær- kvöldi. Eru þeir, sem kunnugt er, all- ir komnir hingað til lands, til þátttöku í 8. þingi Norðurlanda- ráðsins. Voru í fylgd með þeim nokkrir fleiri af þátttakendum í þinginu. Á móti þeim tóku þeir Gísli Jónsson, formaður tslandsdeildar Norðurlandaráðsins, Friðjón Sig- urðsson, skrifstofustjóri og Har- aldur Kröyer, forsetaritari, auk sendiráðsstarfsmanna o. fl. — Tíðindamaður Mbl. var stadd ur á flugvellinum, þegar hinir norrænu gestir komu út úr flug- vélinni, og hitti örskamma stund að máii þá Sukseiainen, forsætis- ráðherra, og Fager'-olm, þing- forseta. í fyrsta sinn á tslandi Báðir létu þeir hið bezta af því, að vera komnir til tslands. — Þetta er í fyrsta skipti, sem ég kem hingað, sagði Sukselain- en, forsætisráðherra, — en mig heur lengi langað til þess. — Hver af málum þingsins telur finnska sendinefndin mikil- verðust? ÖII málin mikilsverS — Við leggjum ekki höfuð- áherzlu á neitt eitt umfram önn- ur, svaraði forsætisráðherrann, um leið og hann svipaðist þolin- móðlega um eftir farangrj sin- um, sem starfsmenn F. f. komu aðvífandi með í sömu andrá. — Þetta eru allt stórmál, sagði Fagerholm þingforseti. — Mjög erfitt að gera upp á milli margra þeirra. Það stærsta fyrir jkkur er máske það, að vera komnir til íslands. Gekk fljótt. Farþegaafgreiðslan gekk mjög greiðlega fyrir sig og voru ekki nema rúmar 10 niínútur liðnar frá því að hinir norrænu fulltrúar stigu út úr flugvélinni, þangað til rykið þyrlaðist upp að baki bif- reiðum þeim, tem fluttu þá tii næturgistingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.