Morgunblaðið - 26.07.1960, Side 18
18
MORCUNBL'AÐIÐ
Þriðjudagur 26. júlí 1960
Small í markstöngum
en ekki í neti
Sögulegur leikur Fram og Vals, sem
lauk með jafntefli
1» A Ð var hvað eftir annað
bjargað á línunni og það
glumdi í markstöngum og
slám er skotin hittu þær æ
ofan í æ. Undrunarkliður fór
um áhorfendur er þeir sáu
skorað úr gersamlega lokuð-
um markfærum. Þetta var
leíkur alls hins ólíklega. —
Þetta var leikur í 1. deild á
Laugardalsvelli. Fram og
Valur áttust við, eða „toppur“
deildarinnar og næstum botn
inn. En svo fór að lokum að
Fram mátti þakka fyrir að
fá annað stigið í leiknum.
★ 3 mörk á 20 mín.
Leikurinn byrjaði fjörlega. Á
6. mín. kemst Baldur Scheving
útherji Fram inn fyrir með send
ingu Grétar miðh. Baldur á skot,
sem Gunnl. í markinu réði ekki
við, en Árni Njálsson hafði sýnt
mikið snarræði og var kominn á
marklínu. En spyrna hans lenti
við fætur Björgvins innherja
Fram og þaðan í netið með föstu
skoti hans. 1—0.
Og tveim mín. síðar á Grétar
skot framhjá mannlausu marki
Vals.
En vörn „toppliðsins" reyndist
ekkert þéttari en vörn Vals. Fram
herjar Vals komu henni oft i
klípu. Á 11. mín. leika þeir næst
um óhindrað inn á teiginn og
Björgvin Daníelsson fær skorað
af 10—12 m faeri með leiftur-
snöggti jarðarskoti út við stöng,
svo Geir horfði bara eftir knett-
irtum í netið.
Og 10 mín. síðar koma Vals-
mer.nirnir Fram alveg úr jafn-
vægi með því að taka forystunS.
Úr aukaspyrnu sem Árni Njáls-
son lyfti inn í vítateig Fram
reyndi Framvörnin að skalla frá,
en Valsmenn ná knettinum og
leika út á v. væng. Matthías út-
lierji leikur næstum að enda-
mörkum og úr lokuðu færi þar
reynir hann markskot. Geir er
illa staðsettur og það ólíklega
skeður. Knötturinn hafnar í neti
Fram.
★ Dofnar yfir
Eftir þetta dofnar leikurinn og
breytist í mikið þóf á miðjunni,
þar sem fram fara „tennis“ send-
ingar milli mótherja, en uppbygg-
ing leiks er næsta sjaldséð. Mörk-
in komust ekki í hættu utan einu
sinni
að Bergsteinn Magnússon nær
knettinum úr útsparki Geirs
Staðan
f 7. delld
Fram ..
Akranes
KR ....
Valur ..
Keflavík
Akureyrj
og sendir viffstöðulaust boga-
skot að marki yfir Geir. En þá
er Ágúst bakvörður kominn i
markið og fær bjargað.
★ Misnotuð tækifæri
Síðari hálfleikur var leikur
hinna spennandi augnablika en
herfilega misnotuðu tækifæra.
Það byrjaði með því að Berg-
steinn kemst einn innfyrir Fram-
vörnina með sendingu Gunnars,
en spyrnir framhjá kominn í
,,dauðafæri“.
Þremur mín. síðar á Grétar
skot í stöng Valsmarksins.
Og á 10. mín. sendir Björgvin
framhjá tómu marki, og á sömu
mín. gefur Guðjón fyrir Vals-
markið og Baldur á fasta spyrnu,
rétt yfir slá.
Á 14. mín. kemst Guðm. Elís-
son innherji Vals í þrumufæri,
en varnarleikmaður kemst fyrir
Þaff er varla pláss fvrir alla á markteignum. Hér er barizt
og spriklað af miklum eldmóffi.
knöttinn á línunni og ver í horn
Og nokkru síðar leika Björgvin
Dan. og Sigurgeir útherji í gegn
um Framvörnina, en fyrir ótrú-
leg mistök kom skotið aldrei og
Geir tekur á móti „dauðum"
knetti.
★ Hart endastríð
Á 35. mín. fá Framarar dæmda
Fyrsta mark Fram.
inn og skoraffi.
Arni hafði bjargað á línu en Björgvin (á leið úr markinu) fékk knött-
(Ljósm. Sv. Þormóðsson).
Skagamenn komust seint „í
gang", en unnu örugglega
Á SUNNUDAGINN fór fram á
grasvellinum í Njarðvíkum leik-
ur Akurnesinga og Keflvíkinga t
1. deiidarmótinu. AHhvass hliðar-
vindur var meðan á leik stóð, og
áhorfendur voru ekki margir.
Eftir jafnan fyrri hálfleik tókst
Akurnesingum aff tryggja sigur
sinni og unnu leikinn 4 mörk
ffegn 1.
★ Tækifæri Keflvíkinga
Kelfvíkingar mættu án fyrir-
liða síns og samnefnara Haf-
steins Guðmundssonar, sem var
veikur. En liðið náði þó góðri
byrjun og sótti fast á. Náðu Skaga
menn aldrei fyrsta hálftíma leiks
ins að ógna marki Keflvíkinga.
En tækifæri Keflvíkinga voru
nokkur mjög góð og opin, þó ekki
tækist að nýta nema eitt.
Strax á 5. min. leiksins kom-
ast Keflvíkingar í opið færi.
Komst útherjinn Þórhallur
Stígsson innfyrir að sendingu
í eyffu. Helgi hleypur út mis-
heppnuðu úthlaupi og Þórhall
ur fær skotiff — en á síffustu
stundu tekst bakverffi að
bjarga á línunni.
13 mín. síffar eiga Keflvík-
ingar annað „dauðafæri“.
Barst knötturinn að Akranes-
markinu frá höfffi af höfði og
loks blasir markið við, en Jón
Leósson fær bjargað á Iínunni.
Boltinn hrekkur til Högna mið
herja sem á skot — en fram-
hjá.
En loks á 27. mín. kemur
markið, sem svo lengi hafði
„Iegið i loftinu“. Sig. Alberts-
son sendir góffa sendingu fram
völlinn, sem S,kúli nær aff nýta
vel, kemst innfyrir móti Helga
markverði og fær skorað.
Þarna stóð 1—0 fyrir Kefla-
vík — gat hæglega verið 2—0
eða meir.
★ Skagamenn jafna
Við þetta færðist meiri sam-
eining í Akranesliðið, sem lýk-
ur með því að Jóhannes útherji
og Ingvar miðherji vinna saman
að marki. Sendi Jóhannes fyrir
og Ingvari tókst að vippa í netið
— nokkuð ódýrt mark. Þá voru
8 min. til leikhlés og var leikur-
inn jafn fram að því.
if 3—0 i síðari hálfleik
Á fyrstu mín. siðari hálf
leiks ná Skagamenn foryst-
unni. Sendi Sveinn Teitsson
háan knött að marki Keflvík-
inga. Markvörðurinn misreikn
affi sendingu — varff of seinn
upp og undir slá smaug bolt-
inn. Mikið klaufamark fyrir
Keflvíkinga úr hættulausu
tækifæri.
Og við þetta mark brotnar
mótstaða þeirra. Þeir missa sjón-
ar af stutta spilinu sem hafði
gefið þeim góða uppskeru, rugl-
ast i ríminu og missa æ meir tök-
ir. á Skagamönnum. Tvívegis
komst Högni þó í færi en varð of
seinn að skalla í bæði skiptin.
Og nú tóku Skagamenn að
ná sér á strik. Á 21. mín.
mistekst varnarleikmánni
Keflvíkinga aff „hreinsa frá“.
Jóhannes útherji fær knöttinn,
leikur gegnuni vörn Keflvík-
inga laglega og skorar af
stuttu færi meff jörð.
Þrem mín. fyrir leikslok
kemur laglegasta mark leiks-
ins Sveinn Teitsson leikur
fram, gefur til Jóhannesar sem
var óvaldaður á kantinum.
Hann sendir laglega fyrir og
Skúli innherji kemur aðvíf-
andi og skorar fallegt mark
4—1.
★ Liðin
Lið Keflvíkinga fór vel af stað,
en þegar ógæfan henti þá með
klaufamarkinu féll liðið mikið
saman. Stutta spil liðsins er ár-
angursríkt, en ekki nógu fast-
mótað. Það skorti og á fasta leik
skipan þ.e.a.s. foringja á vell-
inum í stað þess hrópuðu margir
sundurleitar fyrirskipaniri Heim-
ir í markinu gekk ekki heill til
leiksins. Styrkur er liðinu að Sig
urvin bakverði, sömúleiðis að
framvörðunum þó þeir sæki á
köflum um of fram. Skúli er
beztur framlínumanna en miðju-
spil var alltof einhæft hjá liðinu,
en kantarnir vanræktir.
Lið Skagamanna fór seint í
gang og það var óöryggi í vörn-
inni framan af. En smám saman
náðu Sveinn og Jón Leós yfirráð-
um p miðjunni. og var Sveinn
mikilvirkur við að mata fram-
herjanna. Þar áttu Jóhannes,
Skúii og Helgi beztan leik. En í
heild var þetta með lakari leikj-
um liðsins.
> A. St.
ýítaspyrnu á Val og Guðm.
Óskarsson skorar örugglega úr
henni og jafnar leikinn. Hófst nú
mikið og hart lokastrið og í því
veitti Val betur að skapa hin
opnu færi.
Þeir fengu óbeina víta-
spyrnu á Val, en því skoti var
hrundið vasklega og örlitlu
síffar eru Valsmenn aftur í
„dauffafæri". Bergsteinn á
skot fyrir opnu marki — í
stöngina. Knötturinn hrekkur
fram á völlinn fyrir fætur
Steingríms útherja, sem þrum.
ar að marki — í stöngina.
Þessu upphlaupi svara Fram-
arar meff mikilli pressu á Vals
markið. Guðm. Óskarsson á
skot í stöng og Framarar
pressa en Valsmönnum tekst
. aff bjarga á línu. Og leik var
lokið 2—2.
-Á Liffin
Framliðið var sundurlausara i
þessum leik en fyrr. Það virðist
illa þola að komast undir í leik.
Lausungiarbragur einkennir þá
leik þess. Það er hlaupið fram
og aftur, .mjög sprett úr spori,
en forsjálni, hugsun og einbeittni
við uppbyggingu gleymist. Liðið
slitnaði á löngum köflum í sund-
ur, framverðirnir fengu ekki
tengt það, svo framlína varð bit-
’ítil og vörnin opin. Geir mark-
vörður átti erfiðan dag og var
ekki 5 essinu sínu.
Valsliðið barðist af krafti og
sýndi með betri leikjum sínum j
mótinu. Breytingar í liðinu eru
tvímælalaust til bóta, en óheppni
og mistök framherjanna í þess-
um leik eru þeim alvarleg áminn
ing. Að opin tækifæri skuli hvað
eftir annað ekki nýtast segir ekk-
ert nema hve framherjarnir eru
óöruggir. Vörnin getur opnazt
illa vegna staðsetningargalla hjá
varnarmönnum — en Gunnlaug-
Ur í markinu er liðinu styrkur.
A. St.
Með bolta
í lottí í
4Vi tíma
NORSKI knattspyrnumaöur
inn Tore Hansen setti í dag
nýtt heimsmet í þeirri þraut
aff halda knetti á lofti. Átti
hann 35000 spörk í knöttinn
áður en hann nam við gólf.
Þessi norski piltur hefur
áður vakiff mikla athygli
fyrir afrek sitt. Hafði hann
náð að sparka eða skalla
30.122 sinnum í knöttinn
áffur en hann snerti gólf. Hið
nýja met setti hann í Málm-
ey og voru það menn úr
íþróttaforystu þar er þurftu
aff telja spörkin 35000.
Þrautin fór fram í stóru
vöruhúsi í bænum og höfðu
fleiri þúsundir manna komið
og horft á hann um það er
lauk, en hann var meff knött
inn á lofti í klukku-
stund. Viff tilraunina beitti
Norðmaðurinn fótum, höfði
og brjósti.