Morgunblaðið - 26.07.1960, Page 18

Morgunblaðið - 26.07.1960, Page 18
18 MORCUNBL'AÐIÐ Þriðjudagur 26. júlí 1960 Small í markstöngum en ekki í neti Sögulegur leikur Fram og Vals, sem lauk með jafntefli 1» A Ð var hvað eftir annað bjargað á línunni og það glumdi í markstöngum og slám er skotin hittu þær æ ofan í æ. Undrunarkliður fór um áhorfendur er þeir sáu skorað úr gersamlega lokuð- um markfærum. Þetta var leíkur alls hins ólíklega. — Þetta var leikur í 1. deild á Laugardalsvelli. Fram og Valur áttust við, eða „toppur“ deildarinnar og næstum botn inn. En svo fór að lokum að Fram mátti þakka fyrir að fá annað stigið í leiknum. ★ 3 mörk á 20 mín. Leikurinn byrjaði fjörlega. Á 6. mín. kemst Baldur Scheving útherji Fram inn fyrir með send ingu Grétar miðh. Baldur á skot, sem Gunnl. í markinu réði ekki við, en Árni Njálsson hafði sýnt mikið snarræði og var kominn á marklínu. En spyrna hans lenti við fætur Björgvins innherja Fram og þaðan í netið með föstu skoti hans. 1—0. Og tveim mín. síðar á Grétar skot framhjá mannlausu marki Vals. En vörn „toppliðsins" reyndist ekkert þéttari en vörn Vals. Fram herjar Vals komu henni oft i klípu. Á 11. mín. leika þeir næst um óhindrað inn á teiginn og Björgvin Daníelsson fær skorað af 10—12 m faeri með leiftur- snöggti jarðarskoti út við stöng, svo Geir horfði bara eftir knett- irtum í netið. Og 10 mín. síðar koma Vals- mer.nirnir Fram alveg úr jafn- vægi með því að taka forystunS. Úr aukaspyrnu sem Árni Njáls- son lyfti inn í vítateig Fram reyndi Framvörnin að skalla frá, en Valsmenn ná knettinum og leika út á v. væng. Matthías út- lierji leikur næstum að enda- mörkum og úr lokuðu færi þar reynir hann markskot. Geir er illa staðsettur og það ólíklega skeður. Knötturinn hafnar í neti Fram. ★ Dofnar yfir Eftir þetta dofnar leikurinn og breytist í mikið þóf á miðjunni, þar sem fram fara „tennis“ send- ingar milli mótherja, en uppbygg- ing leiks er næsta sjaldséð. Mörk- in komust ekki í hættu utan einu sinni að Bergsteinn Magnússon nær knettinum úr útsparki Geirs Staðan f 7. delld Fram .. Akranes KR .... Valur .. Keflavík Akureyrj og sendir viffstöðulaust boga- skot að marki yfir Geir. En þá er Ágúst bakvörður kominn i markið og fær bjargað. ★ Misnotuð tækifæri Síðari hálfleikur var leikur hinna spennandi augnablika en herfilega misnotuðu tækifæra. Það byrjaði með því að Berg- steinn kemst einn innfyrir Fram- vörnina með sendingu Gunnars, en spyrnir framhjá kominn í ,,dauðafæri“. Þremur mín. síðar á Grétar skot í stöng Valsmarksins. Og á 10. mín. sendir Björgvin framhjá tómu marki, og á sömu mín. gefur Guðjón fyrir Vals- markið og Baldur á fasta spyrnu, rétt yfir slá. Á 14. mín. kemst Guðm. Elís- son innherji Vals í þrumufæri, en varnarleikmaður kemst fyrir Þaff er varla pláss fvrir alla á markteignum. Hér er barizt og spriklað af miklum eldmóffi. knöttinn á línunni og ver í horn Og nokkru síðar leika Björgvin Dan. og Sigurgeir útherji í gegn um Framvörnina, en fyrir ótrú- leg mistök kom skotið aldrei og Geir tekur á móti „dauðum" knetti. ★ Hart endastríð Á 35. mín. fá Framarar dæmda Fyrsta mark Fram. inn og skoraffi. Arni hafði bjargað á línu en Björgvin (á leið úr markinu) fékk knött- (Ljósm. Sv. Þormóðsson). Skagamenn komust seint „í gang", en unnu örugglega Á SUNNUDAGINN fór fram á grasvellinum í Njarðvíkum leik- ur Akurnesinga og Keflvíkinga t 1. deiidarmótinu. AHhvass hliðar- vindur var meðan á leik stóð, og áhorfendur voru ekki margir. Eftir jafnan fyrri hálfleik tókst Akurnesingum aff tryggja sigur sinni og unnu leikinn 4 mörk ffegn 1. ★ Tækifæri Keflvíkinga Kelfvíkingar mættu án fyrir- liða síns og samnefnara Haf- steins Guðmundssonar, sem var veikur. En liðið náði þó góðri byrjun og sótti fast á. Náðu Skaga menn aldrei fyrsta hálftíma leiks ins að ógna marki Keflvíkinga. En tækifæri Keflvíkinga voru nokkur mjög góð og opin, þó ekki tækist að nýta nema eitt. Strax á 5. min. leiksins kom- ast Keflvíkingar í opið færi. Komst útherjinn Þórhallur Stígsson innfyrir að sendingu í eyffu. Helgi hleypur út mis- heppnuðu úthlaupi og Þórhall ur fær skotiff — en á síffustu stundu tekst bakverffi að bjarga á línunni. 13 mín. síffar eiga Keflvík- ingar annað „dauðafæri“. Barst knötturinn að Akranes- markinu frá höfffi af höfði og loks blasir markið við, en Jón Leósson fær bjargað á Iínunni. Boltinn hrekkur til Högna mið herja sem á skot — en fram- hjá. En loks á 27. mín. kemur markið, sem svo lengi hafði „Iegið i loftinu“. Sig. Alberts- son sendir góffa sendingu fram völlinn, sem S,kúli nær aff nýta vel, kemst innfyrir móti Helga markverði og fær skorað. Þarna stóð 1—0 fyrir Kefla- vík — gat hæglega verið 2—0 eða meir. ★ Skagamenn jafna Við þetta færðist meiri sam- eining í Akranesliðið, sem lýk- ur með því að Jóhannes útherji og Ingvar miðherji vinna saman að marki. Sendi Jóhannes fyrir og Ingvari tókst að vippa í netið — nokkuð ódýrt mark. Þá voru 8 min. til leikhlés og var leikur- inn jafn fram að því. if 3—0 i síðari hálfleik Á fyrstu mín. siðari hálf leiks ná Skagamenn foryst- unni. Sendi Sveinn Teitsson háan knött að marki Keflvík- inga. Markvörðurinn misreikn affi sendingu — varff of seinn upp og undir slá smaug bolt- inn. Mikið klaufamark fyrir Keflvíkinga úr hættulausu tækifæri. Og við þetta mark brotnar mótstaða þeirra. Þeir missa sjón- ar af stutta spilinu sem hafði gefið þeim góða uppskeru, rugl- ast i ríminu og missa æ meir tök- ir. á Skagamönnum. Tvívegis komst Högni þó í færi en varð of seinn að skalla í bæði skiptin. Og nú tóku Skagamenn að ná sér á strik. Á 21. mín. mistekst varnarleikmánni Keflvíkinga aff „hreinsa frá“. Jóhannes útherji fær knöttinn, leikur gegnuni vörn Keflvík- inga laglega og skorar af stuttu færi meff jörð. Þrem mín. fyrir leikslok kemur laglegasta mark leiks- ins Sveinn Teitsson leikur fram, gefur til Jóhannesar sem var óvaldaður á kantinum. Hann sendir laglega fyrir og Skúli innherji kemur aðvíf- andi og skorar fallegt mark 4—1. ★ Liðin Lið Keflvíkinga fór vel af stað, en þegar ógæfan henti þá með klaufamarkinu féll liðið mikið saman. Stutta spil liðsins er ár- angursríkt, en ekki nógu fast- mótað. Það skorti og á fasta leik skipan þ.e.a.s. foringja á vell- inum í stað þess hrópuðu margir sundurleitar fyrirskipaniri Heim- ir í markinu gekk ekki heill til leiksins. Styrkur er liðinu að Sig urvin bakverði, sömúleiðis að framvörðunum þó þeir sæki á köflum um of fram. Skúli er beztur framlínumanna en miðju- spil var alltof einhæft hjá liðinu, en kantarnir vanræktir. Lið Skagamanna fór seint í gang og það var óöryggi í vörn- inni framan af. En smám saman náðu Sveinn og Jón Leós yfirráð- um p miðjunni. og var Sveinn mikilvirkur við að mata fram- herjanna. Þar áttu Jóhannes, Skúii og Helgi beztan leik. En í heild var þetta með lakari leikj- um liðsins. > A. St. ýítaspyrnu á Val og Guðm. Óskarsson skorar örugglega úr henni og jafnar leikinn. Hófst nú mikið og hart lokastrið og í því veitti Val betur að skapa hin opnu færi. Þeir fengu óbeina víta- spyrnu á Val, en því skoti var hrundið vasklega og örlitlu síffar eru Valsmenn aftur í „dauffafæri". Bergsteinn á skot fyrir opnu marki — í stöngina. Knötturinn hrekkur fram á völlinn fyrir fætur Steingríms útherja, sem þrum. ar að marki — í stöngina. Þessu upphlaupi svara Fram- arar meff mikilli pressu á Vals markið. Guðm. Óskarsson á skot í stöng og Framarar pressa en Valsmönnum tekst . aff bjarga á línu. Og leik var lokið 2—2. -Á Liffin Framliðið var sundurlausara i þessum leik en fyrr. Það virðist illa þola að komast undir í leik. Lausungiarbragur einkennir þá leik þess. Það er hlaupið fram og aftur, .mjög sprett úr spori, en forsjálni, hugsun og einbeittni við uppbyggingu gleymist. Liðið slitnaði á löngum köflum í sund- ur, framverðirnir fengu ekki tengt það, svo framlína varð bit- ’ítil og vörnin opin. Geir mark- vörður átti erfiðan dag og var ekki 5 essinu sínu. Valsliðið barðist af krafti og sýndi með betri leikjum sínum j mótinu. Breytingar í liðinu eru tvímælalaust til bóta, en óheppni og mistök framherjanna í þess- um leik eru þeim alvarleg áminn ing. Að opin tækifæri skuli hvað eftir annað ekki nýtast segir ekk- ert nema hve framherjarnir eru óöruggir. Vörnin getur opnazt illa vegna staðsetningargalla hjá varnarmönnum — en Gunnlaug- Ur í markinu er liðinu styrkur. A. St. Með bolta í lottí í 4Vi tíma NORSKI knattspyrnumaöur inn Tore Hansen setti í dag nýtt heimsmet í þeirri þraut aff halda knetti á lofti. Átti hann 35000 spörk í knöttinn áður en hann nam við gólf. Þessi norski piltur hefur áður vakiff mikla athygli fyrir afrek sitt. Hafði hann náð að sparka eða skalla 30.122 sinnum í knöttinn áffur en hann snerti gólf. Hið nýja met setti hann í Málm- ey og voru það menn úr íþróttaforystu þar er þurftu aff telja spörkin 35000. Þrautin fór fram í stóru vöruhúsi í bænum og höfðu fleiri þúsundir manna komið og horft á hann um það er lauk, en hann var meff knött inn á lofti í klukku- stund. Viff tilraunina beitti Norðmaðurinn fótum, höfði og brjósti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.