Morgunblaðið - 26.07.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.07.1960, Blaðsíða 20
Islendingar I Bangkok. — Sjá bls. 3. MPv$unMdbib 167. tbl. — Þriðjudagur 26. júlí 1960 Íbróttasíðan er á bls. 18. Bíil með 18 valt í Krossá Snarræði bílstjóra hve fljótt tókst að bjarga Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ var hópur ferðamanna í lang- ferðabíl hætt kominn er bíll þess valt skyndilega á hliðina, er hann var að fara yfir Krossá við Þórsmörk. Sagði sjónar- vottur blaðinu í gær, að það hafi verið óhugnanleg sjón að sjá bílinn stingast á kaf í ána og velta á hliðina, en heyra mátti óhljóðin frá fólkinu í bílnum langar leiðir. Allt fór þó vel, og má þakka það dugnaði eins manns. spili og löngum ★ Stakkst í ána í>að var milli klukkan 8—9 sem þessi bíll kom að Krossá. Var hann með ferðafólk á vegum Ferðafél. íslands og var ferðinni heitið inn í Húsadal. Þetta var sýnilega birgðabíllinn I bílalest- inni, því á þaki hans var hlaðið rniklu af farangri og öðrum ferða útbúnaði. Lagði bíllinn á vaðið og hafði skammt farið, er hann stakkst beint ofan í djúpan ál og þungur straumur Krossár, hreif bílinn með sér. Skipti engum togum, að er hann tók niðri, valt hann á hliðina og var að mestu á kafi í ánni. Heyra mátti óskapleg óhljóð frá hinu nauðstadda fólki i bilnum. Þar við ána var einn bíla Guð- mundar Jónassonar. Heitir sá Hreiðar Steingrímsson er honum ekur, sýnilega þaulvanur og kunnugur staðháttum öllum. Hafði Hreiðar er hann sá hvað var að gerast, þegar hafið undir- búning að björgun fólksins. Bíll Bóndi undir traktor Á FIMMTUDAGINN var varð slys á manni austur í Mýrdal, er traktor sem hann var á valt með hann. Gerðist þetta í Fagradal í Mýrdal. Jónas Jakobsson bóndi þar, hafði verið að vinna á túninu með traktor- inn, sem hann er þaulvanur að fara meS. í dálitlum halla hafði traktorinn oltið á hlið- ina og Jónas orðið undir hon um að nokkru. Enginn ann- ar var nærri er þetta gerðist, en Jónas er hraustmenni og hafði tekizt að losa sig und- an traktornum og komst hann hjálparlaust heim á bæ. Varð Jónas að fara í rúmið og mun verða að vera rúmfastur um nokkurn tíma. hans er með dráttarvír. ★Fólkið kemst á þak Fólkinu í Ferðafélagsbílnum tókst að brjótast út úr bílnum og klifraði það upp á hlið hans. Var sýnilegt að mikill ótti hafði gripiö um sig meðal þess, því eng:nn vildi leggja út í straum- inn og brjótast yfir ána. ★ Snarræði Hreiðars Hafði Hreiðar Steingríms- Framhald á bls. 19. Fólkið stendur á bílnum Síldaraflinn minni en í fyrra um Munaði um s.l. helgi alls 70 þús. málum og tunnum Friðrik 8.-9. SKÁKMÓTINU í Buenos Aires er lokið, en ekki er Mbl. kunnugt um endanlega röð í heild. Reshevsky, Bandaríkj- unum og Korschnoi Rússlandi gerðu báðir jafntefli í síðustu umferð og deildu því 1. sæti á mótinu, hlutu 13Í4 vinning. Reshevsky tefldi við Frið- rik og eftir það jafntefli er Friðrik með 1014 vinning á mótinu og er í 8.—9. sæti ásamt Unzicker, sem lengi hafði forystu framan af. í GÆRKVöIyDI birti Fiskifélag íslands hið vikulega yfirlit um gang síldarvertíðarinnar. Segir þar að um þetta leyti í fyrra, hafi bræðslu og saltsíldaraflinn verið orðinn nokkru meiri en hann er nú. Var hann á miðnætti á iaugardaginn 507.741 mál og tunnur. Er bræðslusíldaraflinn rúmlega 423,700 mál, en saltsíld- araflinn 74,739 tunnur á móti rúmlega 125,400 tunum um þetta leyti vertíðarinnar í fyrra. Síld- araflinn var þá orðinn alls 577.180 mál og tunnur. Síðan seg ir í skýrslunni. Þrátt fyrir sæmilegt veiðiveður var afli rýr í vikunni sem leið. Voru skipin mest að veiðum útaf Norðurlandi en einnig nokkuð á austursvæðinu. Vikuaflinn var 88.658 mál og tunnur á sama tíma í fyrra. Vitað var um 250 skip (217), sem fengið höfðu afla, en 233 skip (212) voru búin að fá 500 mál og tunnur eða meira og fylgir skrá yfir þau, er aflað hafa yfir 1500 mál á bls. 6. Nú er búið að frysta rúmlega 830 tunnur. í fréttaskeyti frá Siglufirði í gærkvöldi, segir að þangað hafi komið í gær 47 skip og hafi þau verið með smáslatta, alls um 4500 tunnur. Var aðeins lítill hluti síldarinnar söltunarhæfur, fyrir það hve síldin var smá. Mörg skip lágu inni á Siglufirði og fara dræmt út því veiðiveður er ekki gott og aflavon því lftil. — Guðjón. Veiða grálúðu Neskaupstað, 25. júlí. 1 GÆR kom hingað amstur- þýzka togskipið Ernst Thál- man. Þurfti skipið á viðgerð I að halda og einn skipverja á læknisaðstoð. Með skipinu eru í þessari veiðiferð tveir vísindamenn frá náttúrufræðisafninu í Erfurt og vinna að rannsókn- um á dýra- og jurtalífi sjáv- arins. Þetta skip reyndi í síðustu ferð hér við land, ásamt öðru skipi, síldveiðar í flotvörpu, en sú tilraun þeirra gaf ekki árangur og veiða þau nú að- tllega grálúðu. — Sv. L. horfinn er lögregla og sjukralið kom MILLI kl. 1—2 aðfaranótt sunnudagsins fékk lögregla og slökkvilið boð um að bíl- slys hefði orðið um það bil 1 km. fyrir ofan Lögberg við Lækjarbotna. Fóru lögreglu- bílar og tveir sjúkrabílar þegar á vettvang. Óttazt var að slys hefði orðið á fólkinu Tveir Kætt komnir Á SUNNUDAGINN milli kl. 2 og 3 voru tveir menn sunn- an úr Keflavík hætt komnir, er bát hvolfdi undir þeim, þar sem þeir voru að silungs- veiðum á Reyðárvatni á Uxa- hryggjum. — Mátti ekki tæp- ara standa að þeir björguð- ust, en það voru menn héð- an úr Reykjavík á mjög vel útbúnum vatnabáti sem björguðu þeim. Var þá logn á vatninu. ★ Neyðaróp. Reykvíkingarnir voru að búast Ólöfu Pálsdóttur boðið að sýna í Fœreyjum er bát þeirra hvolfdi á Reyðarvatni LISTAMANNAFÉLAG Færeyja hefur þann sið að efna til mynd- listarsýningar irlega I Thors- havn. Hefur það »ð jafnaði opn- að hana á Ólafsvökunni, sem er þjóðbáHðardagur Færeyinga. í ár hefur undirbúningsnefnd til brottferðar frá vatninu, þar sem þeir höfðu verið að veiðum frá þvi á laugardaginn. Komu þá til þeirra menn, sem kváðust hafa heyrt neyðaróp utan af vatninu. Er að var gáð, sáu Reyk víkingarnir að menn voru í vatn inu. Eigandi vatnabátsins, sem Reyk víkingarnir höfðu notað, Ólafur Grímsson, Þórsgötu 5, hratt þá bát sínum á flot og fór Jón Egg- ertsson, starfsmaður í Þjóðleik- húsinu með honum. Báturinn er vélknúinn og sóttist ferðin greitt. Eftir um 700 metra siglningu kom Ólafur að tveim mönnum, sem héldu sér uppi á dufi, en bátur þeirra maraði í kafi í vatnsskorpunni. ★ Hætt kominn. Ólafur Grímsson og Jón félagi hans renndu að mönnunum, og var annar þeirra, Jakob Helga- son það hress, að hann gat hjálp arlítið klifrað upp í bátinn. En hinn maðurinn, Jón V. Jónsson, múrari, Kirkjuteig S, var sýningarinnar boðið einum is- lenzkum listamanni, Ólöfu Páls- dóttur myndhöggvara, að taka þátt í sýningunnij sem gesti fé- lagsins. Er það í fyrsta skipti, sem færeysku listamannasam- tökin bjóða íslendinei þátttökuj orðinn svo máttfarinn, að hann í slíkri sýningu. ' pat hend- ina til björgunarmannanna. Hér má geta þess, að Ólafur hefir í sínum báti lítinn gúmbát (líf- bát) ef óhapp ber að höndum. Veiðifélagar Reykvíkinganna biðu mannanna á vatnsbakkan- um og þaðan voru þeir leiddir heim í tjald. Var Jón þá svo kaldur, er þangað kom, að hann var orðinn blár á baki og brjósti. Jón B. Jónsson, Herskálabúðum 33, sem var í hópi Reykvíking- anna fór úr fötum sínum, klæddi Jón nafna sinn í þau og lét hann niður í gæruskinnspoka ásamt hinum Keflvikingnum. Síðan hit uðu þeir hressingu handa mönn- unum, sem voru aftur orðnir ferðafærir milli klukan 6—7. — Hinum megin vatnsins biðu í bíl kona Jóns V. Jónssonar og sonur þeirra. Geta má þess, að bát ur þeirra er úr plasti og smið- aður í Njarðvíkum. Var honum náð um kvöldið. Víst er að Ólafur Grímsson og veiðifélagar hans björguðu lifi þessara manna, sagði heimildar maður Mbl. að þessari frétt, seint í gærkvöld, er því barst frétt um þettn. Segir ekki frá ferðum lögreglu og sjúkraliðs, sem fóru svo hratt sem verða máttí, unz komið var á þann stað er slysið hafði orðið. Var þá engin bíll þar sjáanlegur eða slasað fólk. ★ Saga sjónarvotta En lögreglan fékk vitneskju um það frá vegfarendum er ekið höfðu þarna hjá skömmu eftir að slysið varð, að um bíl frá Keílavíkurflugvelli hefði verið að ræða. Ekki virtist folkið í bíln um hafa orðið fyrir alvárlegum meiðslum en allir virzt hafa feng- ið taugaáfall eða verið ölvaðir mjög. Var að sögn sjónarvotta um að ræða 3 stúlkur og fjóra Banda ríkjamenn. - Á slysstað var talið sennileg- ast að fólkið hefði komizt á bíln- um aftur upp á þjóðveginn og ekið til bæjarins. Um talstöð lög- reglubílanna var lögreglustöðin látin vita. Sendi hún lögreglubil strax í veg fyrir hinn horfna bíi. Skammt austan við Árbæ stöðv- aði hún bíl. Var þar kominn „týndi billinn", — skemmdur mjög. ★ Engin þurfti læknis Tók lögreglan bílinn í sínar vörzlur og flutti fólkið á lög- reglustöðina. Ekki taldi neinn í bílnum sig vera svo meiddan að læknis þyrfti með. Sendi lögreglan Bandaríkjamennina, sem voru hermenn úr varnar- liðinu í orlofi til Keflavíkur- flugvallar, en bílnum var haldið eftir, þar eð ekki var talið forsvaranlegt að aka í honum. Hafði billinn sýnilega oltið heila veltu, þ. e. af hjói unum og á þakið og siðan á þau aftur. Ekkert kom fram * við rannsókn málsins um nótt ina er benti til þess að öku- maður bílsins hefði verið und- ir áhrifum áfengis er óhappið varð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.