Morgunblaðið - 09.08.1960, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.08.1960, Qupperneq 19
Þriðjudagur 9. ágúst 1960 MORCVTS BL AÐIB 19 — Kongó Framh at' bls 1 Kasavúbu var síðan kjörinn for- seti, til þess að reyna að sætta hin ólíku sjónarmið. * MÚTUR OG FJARKÚGUN Þær fregnir gengu í Elisabeth- ville í dag, að beitt væri bæði mútum og fjárkúgun til þess að fá belgiska borgara til þess að dveljast áfram í Katanga og gefa með því héraðinu „friðsemdar- svip“ — til þess að styðja sjálf- stæðiskröfurnar. Það er ekkert leyndarmál, að það eru belgisk- ir stjómarherrar, tæknifræðing- ar og hermenn, sem hafa tryggt hið tiltölulega góða ástand, sem ríkir í héraðinu — og Tshombe ! forsætisráðherra hefir notað sem aðalröksemd gegn íhlutun S. þ.! þar. — Heimildir segja, að Belg- ir hafi fengið kauphækkanir, sem nemi 85—100 dollurum á mán- uði, til þess að þeir dveljist enn um skeið í landinu — og loforð um frekari uppbætur, þegar þeir ; kunni að halda heim síðar. Ef þeir hins vegar ætli úr landi án leyfis, þá hafi þeir fengið að- vörun um það, að þeir muni ekki fá atvinnu heima í Belgíu. — ★ — Tshombe reynir nú að koma sér upp eigin her, sem raunar er sagður telja aðeins um 1.000 menn sem stendur. — Talsmaður innanríkisráðuneytis Katanga sagði í dag, að boð yrði látið út ganga víða um heim til þess að fá erlenda sjálfboðaliða til þess að ganga í „útlendingaher- sveitir Katanga" til þess að berj- ast við hlið innborinna fyrir sjálfstæði og frelsi héraðsins. — Ræða Ingólfs Jónssonar Framh. af bls. 6. i því, hvers konar iðnaður er heppilegastur og arðvænlegastur, sem gerði hvort tveggja að greiða kostnaðarverð fyrir orkuna og skila þjóðarbúinu miklum verð- mætum. Rétt er að upplýsa hér, að iðnaðarmálaráðherra og rík- isstjórnin í heild munu gera ráð- stafanir til þess^ að þetta liggi ljóst fyrir og hvers konar stór- iðnaður væri heppilegastur við þær aðstæðu sem hér eru. Aug- Ijóst er, að stórvirkjun, sem hér um ræðir, getur ekki verið lok- ið 1960, þegar orkuskortur er kominn hér á ný. Er því nú hafin athugun á því, hvort heppilegt er að virkja gufuvirkjun í Hveragerði eða Krýsuvík, en sú virkjun mundi tryggja veitusvæðið gegn raforkuskorti til ársins 1967. Einn ig er í athugun til samanburðar virkjun við Hestvatn, sem gæti fullnægt rafmagnsþörfinni á sama hátt. Á árunum 1967—68 þarf að vera lokið stærri virkj- un í Þjórsá, sem tryggi nægilega orku nokkuð fram í tímann, til venjulegrar notkunar og einnig til nýrra iðjuvera, sem reist verða I á grundvelli nauðsynlegra athug- ana fyrir framleiðslu þeirra iðn- aðarvara, sem gefa þjóðarbúinu mestan hagnað. Verði að því horf ið, eins og brýna nauðsyn ber til, að beiala og nýta, þótt ekki væri nema nokkur hluti af því mikla afli sem aðeins tvær stórár lands ins 'hafa, t.d. Jökulsá og Þjórsá, þá hefur þjóðin bætt aðstöðu sína efnalega og lagt grundvöll að bættum lífskjörum fyrir almenn- ing í landinu. Um leið og þeirri framkvæmd, sem hér hefur verið lokið við Efra Sog, er fagnað, er sjálfsagt að horfa fram til næstu verkefna. Framundan er mikið starf og margþætt. Mörg verkefni þarf að leysa og vinna að næsiu árin til öryggis fyrir efnahag þjóðarinn- ar. Megi sú gifta fylgja landi okk ar, að það takist vel og farsæl- lega, svo að hver landsins þegn geti búið við aukið öryggi og batnandi lífsafkomu. Heill fylgi þessari nýju framkvæmd, sem fagnað er yfir í dag, og öðrum slíkum, sem á eftir koma. — Norðmaðurinn Frh. af bls. 20. „Þessir þrír menn voru: Tveir mjög drukknir unglingar, 17 ára. Tvímenningarnir voru það ölvað- ir, að þeir munu hafa sofnað fljót lega eftir að þeir komu um borð og hafa aðrir skipverjar bor- ið að hafa séð þá sofandi þarna inni. Þriðji maðurinn var Gunnar H. Olsen, en hann var hinn spræk asti allan tímann. Var ýmist niðri í þessum klefa, eða á þeytingi fram og aftur um skipið — og lét ófriðlega á köflum“. Hafði slegið og sparkað „Gunnar hafði lent í áflogum við hinn látna í landi“, hélt Er- lendur áfram, „slegið hann og sparkað í hann — og skömmu áður en látið var úr höfn hafði Gunnar verið á bryggjunj mjög æstur í skapi og síðar verið með hníf á lofti og látið dólgslega". Erlendur Björnsson hefur nú yfirheyrt 11 skipsfélaga Gunnars H. Olsen og mun þeim þætti rarnn sóknarinnar lokið. Einn íslend ingur var einnig yfirheyrður, Benedikt Jónsson, Háagerði 87 í Reykjavík. Sagði skipstjóranium að fara frá Hann er starfsmaður Skeljungs og hefur verið nokkra daga á Seyðisfirði við afgreiðslu á olíu til síldveiðiskipanna. „Hann var á bryggjunni, þegar grunaði veif- aði hnifnum á þilfari skips síns og hafði í hótunum við Islend- inga“, sagði Erlendur. „Benedikt kallaði þá til skipstjórans og skip aði honum að fara með skipið frá bryggjunni áður en eitthvað verra hlytist af — og gerði skip- stjórinn það“. Mbl. hafði tal af Benedikt í gær og sagðist hann hafa orðið vitni að því, er hinn umræddi Olsen og Finni einn úr skipshöfninni áttust við skammt fyrir ofan bryggjuna. Hafði Olsen kastað grjóti í Finnann. Þeir héldiu Olsen „Svo fór ég niður á bryggju", sagði Benedikt, „um klukkustund áður en Sjannöy fór. Þá kom lög- reglan með Alfred Eltvig. Olsen var þá búinn að slá hann og hjálp aði ég Tryggva lögregluþjóni að styðja Eltvig úr bílnum og yfir borðstokkinn niður á þilfarið, en þar tóku skipstjórinn og annar skipsmaður við honum og fóru með hann undir þiljur. Eltvig var þá blóðugur og illa til reika. Lög- reglan flutti annan um borð, það var unglingur, ofurölvi". „Olsen lét ófriðlega, þegar hann gekk niður bryggjuna — og þeg- ar hann kom um borð brá hann hnífnum. Þeir héldu honum, en hann var ólmur og við leystum spottana og skipið sigldi frá,“ sagði Benedikt. í sjómannaheimilinu Sjannoy liggur nú við festar úti á höfninni á Seyðisfirði og bíður komu Garm. Gunnar H. Olsen hefur ekki fengið að ræða við skiþsfélaga sína síðan hann var færður frá borði. Fyrstu nótt- ina var hann í herbergi í skrif- stofuhúsi bæjarfógetans, en síð- an var hann fluttur í norska sjó- mannaheimilið, því ekkert fanga- hús er á staðnum. ^ Hann borðar þar í matsalnum ' með öðrum gestum, en lögreglu- J þjónn er ávallt við hlið hans. Á Seyðisfirði eru tveir lögregluþjón | ar og einn var sendur frá Reykja J vík þeim til liðsauka yfir síld- arvertíðina. Þrimenningarnir skiptast á um að gæta hins 23 ára gæzlufanga, fara oft með hann út undir ber- an himin, en víkja aldrei hárs- breidd frá honum. Óhug hefur slegið á menn á Seyðisfirði vegna þessa atburð- ar. Áfengisverzlunin vár lokuð á föstudag og laugardag, en í gær fækkaðj skipunum í höfninni og var útsalan þá opnuð aftur. - /þróffir * Framh. af bls. 8 4. Þórður Indriðason HSH 13.85 110 m grindahlaup: Isl.m.: Pétur Rögnvaldsson KR 14.6 (Met) 2. Sigurður Björnsson KR 15.3 3. Ingi Þorsteinsson KR 15.6 400 m hlaup: Isl.m.: Hörður Haraldsson A 50,2 2. Grétar Þorsteinsson A 50,6 3. Guðm. Hallgrímsson IBK 53.9 ^ Úrslit á laugardag: 200 m hlaup: Isl.m.: Hörður Haraldsson A 22,8 I 2. Valbjörn Þorláksson IR 23.0 | 3. Grétar Þorsteinsson A 23.1 1 4. Ulfar Teitsson KR 23.8 ' Kúluvarp: Isl.m.: Guðm. Hermannss. KR 15.58 2. Gunnar Huseby KR 15.25 3. Erling Jóhannesson HSH 13.91 4. Björgvin Hólm IR 13.49 Hástökk: Isl.m.: Jón Pétursson KR 2.00 2. Jón Þ. Olafsson IR 1.80 3. Birgir Helgason KR 1.70 800 m hlaup: Isl.m.: Svavar Markússon KR 1:54,3 2. Guðm. Þorsteinsson IBA 1:57,1 3. Helgi Hólm IR 2:05,0 Spjótkast: Isl.m.: Valbj. Þorláksson ÍR 61.32 2. Björgvin Hólm IR 57.08 3. Pétur Rögnvaldsson KR 54,61 4. Kristján Stefánsson FH 48,18 Langstökk: Isl.m.: Vilhj. Einarsson ÍR 7.01 2. Einar Frímannsson KR 6.61 3. Þórður Indriðason HSH 6.49 4. Þorvaldur Jónasson KR 6.48 5000 m hlaup: Isl.m.: Kristl. Guðbj. KR 2. Agnar Levi KR 400 m grindahlaup: 15:27,0 17.16,0 Hjartans þakkir læri ég öllum þeim, sem glöddu mig á sjötugs afmælinu með gjöfum, heimsóknum og skeyt- um. — Guð blessi ykkur öll. Lovísa Jónsdóttir, Hrisey. Hjartanlegar þalikir til fjölskyldu minnar, samstarfs- fólks og annaria frænda og vina, sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 2. ágúst s.l. með höfðinglegum gjöfum, heimsóknum og heillaóskaskeytum. Guð blessi ykkur öll. Brynjólfur Kinarsson, Skeiðarvogi 20. Lokað í dag frá kl. 1—4 vegna jarðarfarar. Skólavörðustíg 13. Isl.m.: Sigurður Björnsson KR 56.8 2. Ingi Þorsteinsson KR 58.4 3. Hjörl. Bergsteinsson A 60.4 MOT KVENNA (laugardagur) 100 m hlaup: Isl.m.: Rannveig Laxdal IR 13.0 2. Guðlaug Steingrímsd. USAH 13.3 3. Svandís Hallsdóttir HSH 13.6 4. Helga Ivarsdóttir, Samh. 13.8 Kúluvarp: Isl.m.: Oddrún Guðm.d. UMSS 10.96 (Met) 2. Guðlaúg Kristinsdóttir FH 10.71 3. Ragnheiður Pálsd., Hvöt 9.32 4. Sigríður Kolbeinsd., Akran. 8.55 Hástökk: Isl.m.: Guðlaug Kristinsd., FH 1.41 (Met) 2. Sigrún Jóhannsd., Akrah. 1.30 3. Þórdís Jónsdóttir IR 1,30 4. Ragnh. Pálsd., Hvöt 1,25 (Sunnudagur, 80 m grindahlaup: Isl.m.: Rannveig Laxdal IR 13.3 (Met) 2. Mjöll Hólm IR 17.3 Kringlukast: Isl.m.: Ragnh. Pálsd. Hvöt 31.67 2. Guðlaug Kristinsd. FH 29.65 3. Oddrún Guðmunds. UMSS 29.18 4. Fríða Júlíusd., Akranesi 25,26 4x100 m boðhlaup: Isl.m.: Sveit IR ............ 57,2 2. Sveit Samhyggðar .......... 58,3 Dóttir okkar og unnusta mín ÞÚKÍÖUR SIGUKÐARDÓTTIK Hrófá, Steingrímsfirði, lézt í Landsspítalanum 7. þessa mánaðar. Guðrún Jónatansdóttir, Sigurður Helgason, Birgir Kritjánsson. Systir okkar ÓLAFlA AGCSTA GUÐMUNDSDÓTTIR sem lézt 1. ágúst verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. ágúst kl. 2 e.h. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningar- sjóð Guðrúnar Einarsdóttur. , Hjördís Guðmundsdóttit, Kristín Guðmundsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Asgeir Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Þorleifur Guðmundsson. Jarðarför móður okkar og stjúpmóður MARGKKl AR G. ÞORSTEINSDÓTTUR fer fram miðvikudaginn 10. ágúst frá Fossvogskirkju kl. 10,30 f. h. — Þeim sem vildu minnast hinnar lá,tnu er bent á líknarstofnanir. Hlíf Sigurjónsdóttir, Kgili Skúli Ingihergsson, Krlingur Þ. Gissurarson, Kbba U. Jakobsdóttir. Útför JÚLfUSAR HAVSTKKN fyrrverandi sýslumanns Þingeyinga, fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, miðvikudaginn 10. ágúst kl. 3 s. d. Athöfninni verður útvarpað. BLóm afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hins látna eru beðnir að hafa Slysavarnafélag Islands í huga. Börn og tengdabörn. Útför föðursystur okkar SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Móhúsum, Stokkseyri, fer fram frá Fríkirkjunni 11. ágúst kl. 1,30 e. h. Valgerður’ Andrésdóttir, Magnús Andrésson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar GUÐRÚNAR PALMADÓTTUR Zophonias Zophoniasson, Blönduósi. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför MATTHILDAR ÞORSTEINSDÓTT UR Skaiði, Vestmannaeyjum. Ragnhildur Þórarinsdóttir Stolzenwald, Hlíí Þórarinsdóttir, Þórður Bjarnason, Hildur Þórarinsdóttir, Theódóra Þórarinsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för mannsins míns LÁRUSAR bjarnasonar Eskihlíð 20A. • Klísabet Jón&sdóttir, börn og tengdabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR NARFASONAR Sérstaklega þökkum við Haraldi og Sturlaugi H. Böðv- arssonum. Jóhanna Jónasdóttir, Ánii Heigason. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SIGRlÐAR KJARTANSDÓTTUR prestsekkju frá Holti undir Eyjafjöllum. Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.