Morgunblaðið - 30.09.1960, Page 13
Föstudagur 30. sept. 1960
MnnarnvhL 4 ðið
13
Uggur og dvissa í alþjdðamálum
New York, mánudaginn 26. sept.
Þ A Ð er enginn vafi á því, að
þckking alheimsins á Islandi
hefur aukizt stórkostlega við
þátttöku okkar í samtökum Sam-
einuðu þjóðanna. Það er einnig
viðurkennt, að íslenzka sendi-
nefndin hefur komið mjög mál-
efnalega fram og oft reynt bein-
línis að miðla málum. Er óhætt
að fullyrða að inntaka Islands í
SÞ var síðasta sporið í hinni
pólitísku sjálfstæðisbaráttu okk-
ar. Þá fengum við viðurkenningu
allra þjóða heims á sjálfstæði
okkar og skipuðum okkur á bekk
með öðrum sjálfstæðum þjóðum,
með atkvæðisrétti á alheimsþing-
inu á borð við aðrar þjóðir, jafn-
vei stórveldin.
Þannig komst Thor Thors
ambassador, formaður íslenzku
sendinefndarinnar á 15. allsherj-
arþinginu m. a. að orði þegar
Mbl. átti stutt samtal við hann
í fundarhléi eftir árdegisfundinn
í dag. Thor Thors hefur verið
formaður íslenzku sendinefndar-
innar allt frá því, að ísland gerð-
ist aðili að SÞ 19. nóvember
árið 1946. Hann hefur getið sér
þar ágætan orðstír og verið
landi sínu og þjóð til hins mesta
sóma og gagns.
Forsetakosningarnar
— Hvert er álit þitt á upphafi
þessa þings og þá m. a. forseta-
Thor Thors, for-
rnaður íslenzku
sendinefndar-
innar á allsherj-
arþingi SÞ síðan
1946.
(Ljósm.: SÞ)
Samtal við
sendiherra
allsherjarþingsins
verkefni þess
Thor Thors
um upphaf
og
kosningunum, sem þú varst
sjálíur viðriðinn?
— Um þær er það að segja,
að þegar vitað var, að Krúsjeff
og helztu leiðtogar kommúnista-
rikjanna í Austur-Evrópu myndu
sækja það, þá varð það Ijóst,
að forsetakosningarnar myndu
verða eitt fyrsta átakamálið
milli stórveldanna, og að bæði
Bandaríkin og Sovétríkin myndu
sækja það af alefli að tryggja
sér sem flest atkvæði. Annars
vegar með Boland frá írlandi,
sem studdur var af Bandaríkj-
unum, Bretlandi og Frakklandi,
hins vegar með Nosek frá Tékkó-
slóvakíu, sem var frambjóðandi
kommúnistaríkj anna.
Þessi harða sókn stórveldanna
hafði þau áhrif, að nær öll Suð-
ur-Ameríkuríkin, sem höfðu tal-
ið líklegt að þau myndu kjósa
fulltrúa Islands, og jafnvel veitt
vilyrði í þá átt, hétu nú að kjósa
Boland.
Ýmis Afríku- og Asíuríki, sem
höfðu verið hlynnt framboði ís-
lands og talað um, að hvorug
stórvéldin ættu að ráða forseta
þessa þings, hétu nú Rússlandi
að kjósa frambjóðanda þess. Það
hafði verið talið líklegt, alveg
fram til síðustu daga fyrir þing-
ið, að Nosek fengi ekki meira
en um 15 atkvæði. En vegna
fyrrgreindra átaka urðu atkvæði
hans 25. Rússarnir beittu einnig
mjög þeirri röksemd, að hópríki
þeirra hefðu haft forsetaefni í
kjöri i 14 ár og aldrei fengið
nema örfá atkvæði. En það væri
réttlætismál, að þeir fengju nú
að ráða vali þingforsetans.
Hins vegar hafði verið talið að
Boland ætti ekki von á nema 32
atkvæðum. En hann hlaut 46, sem
var nægilegt til þess að ná kosn-
ingu í fyrstu umferð.
Þetta voru sem sagt átök milli
stórveldanna, og svo fór líka að
vesturveldin unnu.
Norðurlöndin stóðu saman
ísland má fagna því að Norð-
urlöndin öll stóðu eindregið sam
an og sýndu enn einu sinni að
þau láta ekki segja sér fyrir
verkum. Það var líka ánægjulegt
að það voru merkustu og sjálf-
stæðustu ríki Suður-Ameríku,
sem sé Mexíkó, Brazilía og Arg-
entína, sem greiddu fulltrúa ís-
lands atkvæði. Einnig mun ísrael
hafa^greitt atkvæði með íslandi
enda þótt það ríki verði að sjálf-
sögðu að hafa nána samvinnu við
stórveldin meðal vestrænna
ríkja.
Thor Thors segir að hann sé
því feginn að hafa losnað við
þann alveg óvenjulega og ófyrir-
sjáanlega vanda að stjórna þessu
þingi, þar sem togað verður í
forsetann úr báðum áttum. Það
hefði verið ánægjulegt, s.egir
hann, að vera kjörinn forseti
venjulegs ársþings Sameinuðu
þjóðanna. En nú sé ekki um neitt
slíkt að ræða, því hinir óvænt-
ustu og alvarlegustu atburðir
geti gerzt hér á hverri stundu.
Uggur og óvissa
— Hvernig lízt þér á þessa
fyrstu daga 15. þingsins?
— Það eru að sjálfsögðu eink-
um tvær ræður, sem mesta at-
hyglina hafa vakið. í fyrsta lagi
ræða Eisenhowers Bandaríkja-
forseta, sem þótti hógvær og frið-
samleg.
I öðru lagi hin hálfs þriggja
klukkutíma ræða, sem Krúsjeff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
flutti daginn eftir. Sú ræða hef-
ur sett svip sinn á þingið og
fyllt menn ugg og óvissu. Hin
grimmilega árás hans á Hamm-
arskjöld, framkvæmdastjóra SÞ,
og allt skipulag þeirra, gerir það
að verkum, að enginn veit,
hvernig þetta þing á að geta
starfað og unnið að nokkrum
skynsamlegum árangri.
Krúsjeff heimtaði að Hammar-
skjöld yrði vikið frá, og að þrír
aðalforstjórar tækju við völdum,
einn sem fulltrúi Rússa, annar
sem fulltrúi svokallaðra hlut-
lausra ' ríkja, og Hammarskjöld
fengi svo e. t. v. að dingla með
sem fulltrúi vestrænna lýðræðis-
þjóða. Einnig vildi hann láta
flytja bækistöðvar SÞ burt frá
Bandaríkjunum og minntist í
því sambandi á Sviss, Austur-
ríki eða jafnvel Moskvu.
Einstæð árásarræða
Önnur eins árásarræða hefur
aldrei verið flutt í sögu Samein-
uðu þjóðanna hér á þingi
þeirra. Menn voru hreinlega
undrandi og agndofa undir
henni.
Síðan hefur Krúsjeff sagt við
blaðamenn hér, að það þýði ekki
að tala um lausn mála, eins og
t. d. afvopnunarmálsins, fyrr en
kröfum hans sé fullnægt.
Slíkt er viðhorfið í dag, og
þess vegna skal engu spáð um,
hvað við taki. Þó eru margir að
vona að úr þessum ofsa dragi og
að unnt verði að hefja málefna-
legar umræður.
Diefenbaker, forsætisráðherrá
Kanada, var rétt í þessu að ljúka
ræðu sinni. Hann svaraði Krús-
jeff fullum hálsi, en lét í ljós von
um að Rússar sýndu að athuguðu
máli vilja til samninga og við-
ræðna.
Það er einnig vitað, að Mac-
millan, forsætisráðherra Breta,
sem var í fyrsta sinni á fundin
um í dag, muni tala á svipaða
lund og e. t. v. vinna að því bak
við tjöldin að viðræður geti haf-
izt. Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, mætti einnig hér í dag og
er vitað að hann mun beita sér
fyrir málamiðlun.
— Árásin á Hammarskjöld
kom að því leyti á óvart, að
fyrir örfáum dögum hafði
aukaþing SÞ veitt honum
traustsyfirlýsingu með 70
atkvæðum gegn engu. Jafnvel
kommúnistaríkin sátu hjá.
Afvopnun og efnahagsaðstoð
— Hver eru helztu málin, sem
fyrir þessu þingi liggja?
— Það eru fjölmörg vandamál,
sem koma til kasta þess, fyrst og
fremst afvopnunarmálið og önn-
ur skyld mál. Ennfremur marg-
vísleg efnahagsmál, einkum um
fjárhagslega aðstoð við hin nýju
Afrikuríki og önnur miður sett
lönd.
Svipur þingsins hefur ger-
breytzt við það, að 13 ný Afríku-
ríki hafa tekið hér sæti. Mun
það geta breytt styrkleikahlutföll
unum á þessu þingi og fram-
vegis.
Stríðir stormar geysa
Hér á allsherjarþinginu geysa
nú stríðir stormar. Og ekki mun
sennjlega lægja við ræðu Castros,
forsætisráðherra Kúbu, sem ætl-
ar að tala hér á eftir í „aðeins“
fjórar klukkustundir, að því er
boðað hefur verið.
Á morgun mun Nasser, forseti
Arabíska sambandslýðveldisins,
svo taka til máls. En menn bú-
ast við að hann wilji fara ein-
hverja millileið.
Þegar leiðtogar allra þjóða eru
búnir að tala mun setzt á rök-
stóla í nefndum. Þá fyrst mun
andrúmsloftið hreinsast eitt-
hvað, og menn geta gert sér í
hugarlund, hver verða muni ör-
lög þessa 15. þings Sameinuðu
þjóðanna, sagði Thor Thörs að
lokum.
Stormasamur síðdegisfundur
Við höfum aðeins tíma til að
fá okkur kaffisopa áður en síð-
degisfundurinn hefst kl. 3 síð-
degis. Forsætisráðherra Albaníu
er fyrstur á mælendaskrá. Hann
talar í um það bil eina klukku-
stund. En á eftir honum flytur
Fidel Castro ræðu, sem stendur
á fimmta tíma. Þau tíðkast nú
hin breiðu spjótin. Kúbumaður-
inn slær öll met í fáryrðum og
málalengingum. Hann rekur
sögu Kúbu frá upphafi, ræðst
ákaflega á nýlenduskipulagið og
kemst að þeirri niðurstöðu að
Rússar séu eina þjóðin, sem
aldrei hafi gerzt sek um slíkan
ósóma!
Til gamans má geta þess, að
Castro eyddi a. m. k. hálftíma af
ræðutíma sínum til þess að
skamma hótel það hér í New
York, sem hann fékk fyrst inni
hjá, en flutti af eftir einn sólar-
hring. En í blöðum hér var frá
því skýrt að aðalástæða þess að
hann flutti hafi verið sú, að að-
stoðarmenn hans sumir hafi
komið með óreitta kjúklinga,
sem þeir plokkuðu og matreiddu
í herbergjum sinum til lítilla
þrifa á staðnum!
Síðdegisfundinum lýkur klukk
an að ganga níu. Leið okkar
liggur frá bökkum Austurár, þar
sem alheimsþingið hlustar á leið-
toga þjóðanna flytja boðskap
sinn. Það er komið myrkur, heitt
myrkur yndislegs haustkvölds í
hrikalegri stórborg. Sírenur lög-
reglubifreiða og bifhjóla, sem
eiga að vernda þá Krúsjeff og
Castro, skrækja svo að sker í
eyrun. Svo er önn þessa dags á
allsherjarþinginu lokið.
S. Bj.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á fundi.