Morgunblaðið - 30.09.1960, Blaðsíða 17
Föstudapur 30. sept. 19ð0
MORCUNBLAÐ1Ð
17
Fimmtugur:
Jón G. Sólnes
Bankafulltrúi
í DAG er fimmtugur einn af
■kunnustu borgurum á Akureyri,
Jón G. Sólnes bankafulltrúi. Jón
er fæddur á ísafirði, en fluttist
barn að aldri með fósturforeldr-
um sínum hingað til bæjarins.
!Á unglingsaldri hóf Jón störf við
Landsbankaútibúið hér á Akur-
cyri og hefur unnið þar sleitu-
lítið síðan, eða um 30 ár.
í öllu starfi sínu við bankann
hefur Jón notið trausts og álits,
enda starfs- og hæfileikamaður
ágætur. Hefur hann nú um all-
langt skeið verið bankafulitrúi.
Jón tók gagnfræðapróf frá
skólanum hér á Akureyri 15 ára
gamall, og þar á ofan hefur hann
með sjálfsnómi allt fram á síð-
ustu ár aflað sér góðrar mennt-
unar m. a. í helztu tungumálum
álfunnar. Þá var hann um eitt
skeið við nám í Englandi og vann
ennfremur við Hambrosbanka.
Jón G. Sólnes hefur átt gildan
|>átt í margvíslegri félagsmála-
starfsemi hér á Akureyri. Hann
hefur verið einn af forystumönn-
um Verzlunarmannafélagsins og
um hríð við stjórn þess, starfað
mikið í Bridgefélagi og Golf-
klúbb Akureyrar og var einn af
stofnendum Lionsklúbbs Akur-
eyrar, — og næst-fyrsti forseti
hans. >á var hann einn af stofn-
endum Varðar, fél. ungra Sjálf-
stæðismanna 1929 og átti sæti í
fyrstu stjórn félagsins. Hann
hefur síðan verið einn af helztu
forustumönnum Sjálfstæðis-
manna á Akureyri og gegnt marg
víslegum trúnaði á þeirra veg-
um.
Formaður Brunabótafélags ís-
lands var Jón kjörinn, þegar
lögum þess var breytt 1955.
Hann var kjörinn bæjarfull-
trúi 1946 og hefur verið það ó-
slitið síðan og lengst af þeim
tíma í bæjarráði. Hefur óvenju
staðgóð þekking hans á fjármál-
um og atvinnumálum komið þar
að góðum notum .Hann hefur
staðið að ýmsum mikilvægum
framkvæmdum á vegum bæjar-
félagsins, og við störf sín í þágu
Akureyrarbæjar hefur hann
Mikil aðsókn að
Bogasalnum
Á LAUGARDAGINN var opnuð
í Bogasal Þjóðminjasafnsins list-
sýning þar sem listakonan Bat-
lYosef og John Ffrench sýna verk
sín. Sýnir Bat Yosef allmargar
klippmyndir og nokkrar andlits-
myndir, en Ffrench sýnir leir-
muni sem allir eru gerðir úr ísl.
leir og nokkrar litlar teikningar.
Fjöldi gesta var við opnunma.
Og mikil aðsókn var um helgina
og tala gesta um 700. Bat Yosef
hefur selt 12 myndir og nær ail-
ir leirmunir Ffrench seldust um
helgina. Sýningin er opin dag-
lega frá 2—10 síðdegis.
notið fyllsta trausts og fylgis,
sem engan veginn er einskorð-
að við samherja hans og flokks-
bræður.
Jón G. Sólnes er maður ákveð-
inn í skoðunum, einarður og
hreinskilinn, skurpgreindur og
úrræðagóður. Enginn málrófs-
maður," en prýðilega orðfær, ef
því er að skipta. Hvatur maður.
og röskur og aldrei nein logn- ]
molla í kringum hann. Hvergi,
vílsamur en hress og kátur ogj
dregur slenið af öðrum með nær
veru sinni.
Jón er að maklegleikum vin-
sæll og vinmargur, veitull höfð-
ingi og menningarmaður að allri
gerð. Hann er kvæntur Ingu
Pálsdóttur frá Reykjavík og eiga
þau fimm mannvænleg börn. Ég
þakka Jóni Sólnes drengskap og
vináttu í minn garð og bið hon-
um og fjölskyldu hans allra
heilla.
Akureyri, 30. september 1960.
Gísli Jónsson.
POSTHOLF
Átt þú ekki pósthólf, sem þú notar lítið
cða ckkert. Kg vil kaupa pósthólf góðu
verði. Tilboð sendist Mbl. sem fyrst
merkt: „Póstliólf — 1959“.
POSTHOLF
Unglingar
óskast til að bera blaðið út við
SJAFNARGÖTU
HRINGBRAUT II
Talið við skrifstofuna sími 22480.
Sparisjóðurinn PIJNDIÐ
Klapparstíg 25
ávaxtar sparifé með hæstu
innlánsvöxtum.
Opið kl. 10,30—12 f.h.
og 5—6 e.h.
Kranabílt
með ámoksturtækjum til leigu.
Steinstólpar hf.
Hötðatúni 4 — Sími 17848.
Ceymslupláss óskast
Óska eftir 300—400 ferm. geymsluplássi í
2—3 mánuði. Þarf að vera á götuhæð og
með stórri hurð fyrir innkeyrslu bíla.
Uppl. í síma 13410.
Byggingarsamvinnufélag prentara
4ra herb. íbúð til sölu
Af sérstökum ástæðum er 4 herb. íbúð til sölu á 12.
hæð í háhýsi félagsins að Sólheimum 23. íbúðin er
að verða tilbúm undir tréverk. Uppl. kl. 10—12 á
staðnum og kl. 5—7 á skrifstofu félagsins að Haga-
mel 18.
B. S. F. prentara.
íbúð til leigu
5 herbergja hæð í nýju húsi til leigu. Tilboð merkt:
„1962“ sendist Mbl. sem fyrst.
Ensk fataefni
glæsilegt úrval nýkomið.
ÁRNI & BJARNI
Bankastræti 9.
Börn — Fullorðnir
Lærið talmál erlendra þjóða í fámennum flokkum.
Innritun alla daga frá kl. 5—7 í Kennaraskólanum,
sími 13271.
!J{(Md<)tyþetvten$$toar\
UMIR
Yfirfelldar lamir, amerísk
gerð fyrirliggjandi.
$ltiph<»lt%
Sími 2-3737
/...allir þekkja
KIWI glj áann,
KIWI
er heimsþekkt
gæðavara.
O. JOHNSON & KAABER H/F, REVKJAVIK