Morgunblaðið - 30.09.1960, Qupperneq 24
fUc?íPí#faíMfí>
223. tbl. — Föstudagur 30. september 1960
ÍÞRÓTTIH
eru á bls. 22.
Thor Thors
Sjá bls. 13.
Kaupmenn hœffa sölu c
kartöflum
Grænmetisverzlunin selur i heilum
og hálfum pokum
MATVÖRU- og kjötkaupmenn
ætla að hætta að selja kartöflur
frá og með nk. mánudegi. Græn-
metisverzlun landbúnaðarins,
sem dreifir kartöfium til kaup-
Náði Cylfi
flóðinu ?
PATREKSFJARÐARTOGARINN
Gylfi átti að landa í Grimsby í
nótt. Óvíst var í gærkvöldi hvort
hann næði flóðinu og kæmist
inn í höfnina í tæka tíð. Af hálfu
útgerðarinnar var lögð áherzla á
að skipið gæti iandað í nótt eink
um vegna þess að yfirmenn á tog-
urum halda fund í dag. Töldu
menn, að e. t. v yrði eitthvað
óhagstæðara að landa eftir fund-
inn.
ísafjarðartogarinn Sólborg
landaði 100 tonnum í Þýzkalandi
í gær, en ekki var kunnugt um
söluna, þegar Mbl. fór í prentun
í gærkvöldi. 1 fyrradag seldi
Harðbakur 161 tonn fyrir 114.800
mörk. í dag landar Ágúst 110
tonnum í Þýzkalandi. Afli tog-
aranna, sem selja í Þýzkalandi
er mestmegnis ufsi, þorskur og
karfi.
manna í bænum, hyggst setja
upp útsölu á kartöflum í heiluin
og hálfum pokum, e. t. v. á fleiri
en einum stað í bænum, þar til
Iausn málsins verður fundin.
Samkvæmt því, er Sveinn
Snorrason, framkvæmdastjóri
kaupmannasamtakanna, tjáði
Mbl. í gærkvöldi, eru málvextir
þeir, að kaupmenn telja sig ekki
getað vigtað kartöflurnar og selt
í smábréfapokum, þar eð mikill
halli sé á þeim viðskiptum, bæði
vegna þess að álagning sé lítil á
kartöflur og vegna þess, að papp-
írspokar hafi hækkað í verði.
Sveinn sagði, að kaupmenn töp
uðu a. m. k. 94 krónum á því að
selja 100 kg. af kartöflum vigtuð
í eins kg. bréfpoka. Ef sama
magn vigtað í 10 kg. poka væri
Alþingi kvatt
saman 10. okt.
HANDHAFAR valds forseta ís-
lands, hafa, að tillögu forsætis-
ráðherra, kvatt reglulegt Alþingi
1960 til fundar mánudaginn 10.
október, og fer þingsetning fram
að lokinni guðsþjónustu, er hefst
í dómkirkjunni kl. 13.30.
(Frá forsætisráðuneytinu)
Tíðar skemmdir
á sæsímanum
Slifncði enn einu sinni fyrir nœr 10 dögum
SÆSÍM ASTREN GURINN milli
Seyðisfjarðar og Færeyja er nú
óvirkur til símskeytasendinga. —
Fyrir nær 10 dögum slitnaði
hann og hefur ekki verið aðstaða
til þess að framkvæma viðgerð
á honum.
Þorsteinn Gíslason, fyrrum
simstöðvarstjóri á Seyðisfirði,
sem betur þekkir hinn gamla sæ-
mw%jt m
Bobby Fischer
kemur hingað
SKÁKSAMBAND íslands
reyndi fyrr á þessu ári að
fá hingað bandariskan skák-
meistara, og þá helzt Bobby
Fischer, og var ætlunin að
hann keppti á Gilfers-mót-
inu.
Af þessu gat ekki orðið,
en í gær barst skáksamband
inu skeyti um að Bobby
Fischer væri væntanlegur
til íslands I dag. Enn mun
ekki ákveðið, hvernig
keppni hans hér verður
háttað.
símastreng en nokkur annar,
sagði í símtali við Mbl. í gær,
að á þessu ári hefðu orðið oftar
bilanir á sæsímastrengnum en
nokkru sinni áður.
Það er einkennandi fyrir þess-
ar bilanir, sagði hann, að þær
verða ýmist suður við Færeyjar
eða hér upp undir landi — á
veiðisvæðum hinna stóru togara.
Það eru þeir sem skemmdunum
valda með botnvörpu sinni.
Þegar sæsímastrengurinn slitn-
aði nú síðast, var sæsimaviðgerð-
arskipið frá Stóra norræna síma-
félaginu í Kaupmannahöfn rétt
nýkomið heim, eftir að hafa fram
kvæmt viðgerð á strengnum um
70 milur út af Seyðisfirði.
Mælingar, sem Þorsteinn Gísla
son hefur nú gert á strengnum,
sýna að hann hefur slitnað um
60 mílur út af ströndinni.
Þetta er í fjórða skiptið sem
sæsíminn slitnar á þessu árL —
Óhagstætt veður og slæmt sjó-
lag hefur hindrað viðgerð und-
anfarið.
tapið allt frá 16 krónum, vinnan
væri það mikil, pokarnir dýrir
og álagningin lítil.
Auk þess hefði borgarlæknir
gert þær kröfur, að kartöflur
væru vigtaðar og settar í neyt-
endaumbúðir í sérstökum her-
bergjum, sem eingöngu væru til
þess ætluð. Kartöflur mætti ekki
vigta upp úr strigapokunum í
búðinni vegna ryksins og óþrif-
anna, sem af því hiytust.
Ennfremur sagði Sveinn, að
Frh. á bls. 23
Kosið á Akureyri
um miðjan okt.
NORÐUR á Akureyri er verið
að undirbúa prestkosningar, en
á þesSu hausti verður þar kosinn
annar tveggja presta bæjarins.
Biskupsstofan skýrði Mbl. svo frá
í gær að prestkosningar myndu
fram fara um miðjan næsta
mánuð.
Johan Johansen, skipstjórinn á Rodny. Bróðir hans leitar nú
með Garm við ísröndina.
Þíennt slasaðist
i gœrkveldi
Billinn ók á brúarhandrið
SEINT í gærkvöldi varð alvar-
legt slys á Suðurlandsvegi. Stór
amerískur fólksbíll ók á hand-
AKRANESI, 29. sept. — Á morg-
un, 30. sept. kl. 5 s.d. er boðað
til bæjarstjórnarfundar og með-
al þess, sem þar verður tekið til
umræðu, er ályktun borgarafund
arins — Oddur.
Bókmenntakynning
á verkum Grðmundar Daníelssonar
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ og
ísafoldarprentsmiðja hf. gangast
fyrir bókmenntakynningu á verk
um Guðmundar Daníelssonar í
hátíðasal háiskólans kl. 3 síðd. n.
k. sunnudag. Er kynningin hald-
in í tilefni af fimmtugsafmæli rit
höfundarins, sem er 4 okt. n.k.
Á bókmenntakynningunni flyt
ur Helgi Sæmundsson erindi um
Guðmund Danielsson, en úr verk
um hans lesa þau Iðunn Guð-
mundsdóttir, dóttir rithöfundar-
ins, Þórarinn Giuðnason læknir,
Ævar Kvaran leikari og rithöf-
undurinn sjálfur.
Einsöng syngur Árni Jónsson
við undirleik Karls Billich.
Aðgangur er ókevpis og öllum
heimill.
Hvalveiðibáturinn Rodny, sem let ur heimahöfn 13. ágúst og
ekkert samband hefur náðst við síðan 16. ágúst.
Árangurslaus leit
Veðurskilyrði á leitarsvæðinu
lakrri i dag
LEITIN að norska hvalveiði-
bátnum Rodny bar engan
árangur í gær. Tvær Neptune
flotaflugvélar frá varnarlið-
inu voru yfir 12 stundir á
Iofti. Þær flugu allt frá Prins
Christians Sund við Hvarf
norður á 67. breiddargráðu og
könnuðu 50 mílna breitt belti
meðfram strandlengjunni. —
Sáu flugvélarnar mörg fiski-
skip á þessum slóðum. Norsku
og dönsku Katalínubátarnir
könnuðu strandlengjuna og
samkvæmt upplýsingum frá
varnarliðinu voru báðir flug-
bátarnir um kyrrt í Kulusuk
í nótt. Danski báturinn kann-
aði syðsta hluía strandlengj-
unnar, en sá norski svæðið
fyrir norðan Kulusuk og þar
umhverfis.
— ★ —
Veðrið var Sæmilegt til leitar-
innar í gær. Sunnan til var allt
að 3.000 feta skýjahæð og skyggm
allt að 20 km. Upp við strönd.
ina var víða logn, en nokkur
strekkingur utan við strandlengj
una. Nyrðra á leitarsvæðinu voru
skilyrði hins vegar lakari. Banda
rísku flugvélarnar lentu í þoku,
Frh. á bls. 23
riðið á Hólmsárbrú, sem er
skammt fyrir neðan Gunnars-
hólma. Þrennt var í bílnum og
slasaðist það allt. Bíll frá Vega-
gerðinni kom fyrstur á slysstað-
inn. Var það ljót aðkoma, fólks-
bíllinn hékk í handriðinu og fólk
ið gat sér enga björg veitt.
Vegagerðarbíllinn hefur talstöð
og kallaði bílstjórinn þegar í
loftskeytastöðina, sem hafði
strax samband við slökkvistöðina.
Fór sj úkrabíll á vettvang og kom
með fólkið í bæinn um miðnætt-
ið. í bílnum var Jóhann Karls-
son, forstjóri verksmiðjunnar
Magna í Hveragerði, kona hans
og sonur, sem ók. ÖH voru þau
meira og minna slösuð, Jóhann
þó mest. Voru þau flutt í Slysa-
varðstofuna.
DREGIÐ hefur verið í skyndi-
happdrætti Karlakórs Reykja-
víkur og kom upp nr. 2016. Vinn
ings skal vitjað til húsgagna-
verzlunarinnar Meiðs við Hall-
armúla.
Þeir dansa á rós-
um í Hólminum
Stykkishólmi, 29. sept.
HAUSTVEÐRÁTTAN hef-
ur verið með afbrigðum
góð við Breiðafjörð, sólskin
og hiti. Blómin eru meira
að segja enn að springa út
í görðum. 1 garði Harðar
Ásgeirssonar, verkstj., eru
meira að segja nýútsprungn
ar rósir. Þessi garður er við
aðalgötu þorpsins og
staldra margir vegfarendur
við til þess að horfa á
blómadýrðina í garði Harð-
ar, enda er það einsdæmi,
að rósir springi út í septem
berlok hér vestur á Snæ-
fellsnesi. — Fréttaritari.