Morgunblaðið - 14.10.1960, Síða 20

Morgunblaðið - 14.10.1960, Síða 20
Útvegsmal Sjá bls. 11. JVtotgnmÞIðfriijfr 235. tbl. — Föstudagur 14. október 1960 IÞROTTIR eru á bls. 18. slendingar um174þúsund NÝ Hagtíðindi skýra frá því, að af 173.855 íbúum landsins árið 1959, hafi 116,043 búið í kaupstöð um landsins á móti 57.812 í sýsl- um, en þar af búa í kauptúnum og þorpum 21.395 manns. Er íbúa tala sveitanna og þorpa, með færri en 300 íbúa alls 36.417. — Konur eru rvú alts 86.082 á móti 87.773 körlum. Eftirfarandi yfirlit sýnir mann fjöldann í kaupstöðum og sýslum landsins, eins og hann vai 1. des. 1959 og 1958. Kaupstaðir 1958 1959 Reykjavík 69268 71037 Kópavogur 5149 5611 Hafnarf jörður . 6606 6881 Keflavík 4377 4492 Akranes 3644 3747 ísafjörður 2701 2701 Sauðárkrókur . 1105 1175 Siglufjörður 2691 2703 Óiafsfjörður 875 888 Akureyri 8422 8589 Húsavík 1411 1431 Seyðisfjörður 748 723 Neskaupstaður ... • 1417 1456 Vestmannaeyjar . • 4425 4609 Samtals 112839 116043 Sýslur 1958 1959 Gullbringusýsla • 5212 5331 Kjósarsýsla 2254 2331 Borgarfjarðarsýsla 1459 1430 Mýrasýsla 1856 1861 Snæfellsnessýsla . • 3507 3606 Dalasýsia 1126 1159 A-Barðastrandars # 572 531 V-Barðastrandars. 1904 1949 V-ísafjarðarsýsla . 1823 1862 N-ísafjarðarsýsla . . 1850 1823 Strandasýsla 1594 1592 V-Húnavatnssýsla • 1372 1395 A-Húnavatnssýsla • 2269 2276 Skagafjarðarsýsla . . 2712 2699 Eyjafjarðarsýsla . • 3806 3771 S-Þingeyjarsýsla . • 2739 2770 N-Þingeyjarsýsla . . 1974 1954 N-Múlasýsla 2530 2487 S-Múlasýsla 4240 4262 A-Skaftafellssýsla . 1299 1353 V-Skaftafellssýsla . 1415 1412 Rangárvallasýsla .. 3073 3056 Árnessýsla .......... 6731 6902 Samtals 57317 57812 Á öllu landinu 1958 170156 1959 173855 Slysið á Njarðargötunni: Bent á manninn, áfengið tékkst sem hjá ENN er unnið að rannsókn slyss ins, sem varð á dögunum á Njarðargötunni, er bíl var ekið með ofsahraða á húsvegg. Einn þáttur rannsóknarinnar hefur beinzt að því að fá upplýst, hvar piltarnir tveir, sem í bílnum voru, komust yfir áfengi, þá um daginn eða kvöidið. Við rannsóknir kom það fram, að piltarnir höfðu farið með flöskuna á kvöldsýningu í Austurbæjarbíói. Eftir hlé, sem ér um klukkan 10, tóku þeir flöskuna upp og meðan á sýn- ingu stóð, eða á tæpri klukku- stund, luku þeir úr henni. Við mjög ítariegar og endur- teknar yfirheyrslur, hefur kom- ið í ljós að piltarnir náðu i á- fengisflöskuna að kvöldi þess sama dags og slysið varð. Þá hafði þriðji pilturinn verið í för með þeim. Sá þeirra í bílnum, sem minna slasaðist, og þriðji pilturinn hafa nú borið það fyrir rétti hjá rann sóknardómara málsins, Ólafi Þor lákssyni, að flöskuna hafi þeir fengið hjá manni einum hér í bænum, 26 ára gömlum skrif- stofumanni og fyrrverandi leigu bílstjóra. Þessi maður var þegar tekinn til yfirheyrzlu. Hann skýrði frá því að annar piltanna, sem í Aðalblaðafulltrúi NATO talar á námskeiði S.U.S. AÐALBLAÐAFULLTRÚI Atlantshafsbandalagsins, Paul de Lieven, er væntan- legur hingað til lands á morg- un. Er ákveðið, að hann tali á utanríkismálanámskeiði Sambands ungra Sjálfstæðis- manna, sem verður í Skíða- skálanum í Hveradölum um helgina. De Lieven er af lettneskum aðalsættum, sem áttu miklar eignir í Rússlandi. Hann flúði undan kommúnistum og stund- aði háskólanám í Þýzkalandi. Þaðan fluttist hann til Kanada og gekk í her landsins nokkru fyrir siðustu heimsstyrjöld. 1 styrjöldinni var hann í víkinga- sveitum og barðist bæði í Norð- ur-Afríku og á grísku eyjunum. Hann hefur starfað í upplýsinga deild Atlantshafsbandalagsins því nær frá því samtökin voru sett á stofn, og vegna starfs síns hefur hann ferðazt um flest lönd í bandalaginu. Eins og áður hefur verið til- kynnt, verður Pétur Benedikts- son, bankastjóri, aðalleiðbein- andi á utanríkismálanámskeiði SXJS, en auk hans og de Lieven tala þar Gunnlaugur Pétursson, borgarritari, og Jóhann Haf- stein, bankastjóri. Námskeiðið hefst kl. 3,30 á morgun. bílnum var, hefði komið til sin með margumrædda flösku, dag - inn sem slysið varð, beðið sig að geyma hana fyrir sig þar tii síðar. Enn voru þeir tveir teknir fyrir dóm og nú skýrðu þeir nokkru nánar frá málavöxtum, og kom nú annað í Ijós. Þeir sögðust hafa keypt flöskuna hjá skrifstofumanninum. — Og sá þeirra, sem þekkir hann gjörst, sagði að hann hefði fengið hana „upp á krít“. Hefði hann oftar fengið flösku upp á þá skilmála og þá á sama verði og í útsölum ÁVR. — Þessi þriðji piltur, sem dróst inn í málið, hafði skilið við fé- laga sina áður en þeir drukku upp úr flöskunni í bíóinu. Skrifstofumaðurinn var nú kallaður enn á ný fyrir rann- sóknardómarann. Honum var skýrt frá framburði piltana. En Síld á Akureyrarpolli AKUREYRI, 13. okt. — Tvö skip hafa undanfarið verið að sild- veiðum hér á Akureyrarpolli. Hefur afli verið fremur tregur þar til í dag, að síldin gaus upp og fékk annar, Ester, 600 tunnur síldar í einu kasti. Er það milli- síld 25—28 sentim. löng. Mest- megnis fór síldin til beitufryst- ingar, en einnig hafði hún farið í niðursuðu. — St. E. Sig. 95 nemendur á Laugarvatni í VETUR verða 95 nemendur við Menntaskólann að Laugarvatni. Var ekki hægt að taka við öllum sem sóttu um skólavist. Nær allir nemendur skólans búa í heima- vist. í sumar hefur verið að því unnið að gera vistlegar setustof- ur fyrir nemendur og taldi Jó- hann Hannesson skólameistari, að þar með hafi tekizt að leysa mikið vandamál heimavistarinn- ai. Þá var í sumar fullgerður há tíðasalur skólans, og skólinn sjálfur málaður utan sem innan. í vetur hefur Ólafur Briem leyfi frá störfum, en kennslu- störf hans annast Kristinn Krist- mundsson norrænudeildarmaður. nú neitaði skrifstofumaðurinn eindregið að svara nokkrum spurningum rannsóknardómar. ans varðandi þetta mikilvæga atriði í rannsókn málsins. Því hefur ekki verið hægt að fram- kvæma frekari samprófanir í málinu og skrifstofumaðurinn neitað fullyrðingu að hjá honum hafi flóskuna „upp á hefur ekki piltanna, um þeir keypt krit“. Hallvarður Sigurjónsson, pilt- urinn sem slasaðist meira, er enn meðvitundarlaus. Hvað skyldi hann nú hafa brotið af sér þessi? Ljósmynd ari blaðsins kom þar að í gær sem lögregluþjónn var að setja ofan í við ökumann. Aumingja maðurinn hafði lagt bílnum sinum upp við gangstéttina ; fyrir framan Búnaðarbanka- húsið, og stungið krónu í gjald mælinn, en hvort sem hann hefur nú átt leiðinlegt erindi í bankann eða bara verið að fá sér kaffisopa á Café Höll, hefur hann verið dálítið utan við sig — og ekið öfugt inn í Austurstrætið. Kópavogur SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kópa vogi halda fund í Valhöll í kvöld og hefst hann kl. 8,30. — Ólafur Thors, forsætisráðherra, flytur ræðu um það, sem efst er á baugi í landsmálunum. — Sjálfstæðis- menn í Kópavogi eru hvattir til þess að fjölmenna á fundinn. Aðalfundur Verzl- unarráðs íslands AÐALFUNDUR Verzlunarráðs íslands hófst í gær. 1 upphafi fundarins minntist Gunnar Guð- jónsson, formaður ráðsins, kaup- sýslumanna, er látizt höfðu frá því er síðasti aðalfundur var haldinn, og heiðruðu fundar- menn minningu hinna látnu með því að rísa á fætur. Fundarstjóri var kosinn Arni Arnason, kaup- maður, og fundarritarar þeir Sveinn Finnsson og Gísli V. Ein- arsson. Formaður ráðsins flutti ræðu. Talaði hann aðallega um efna- hagsráðstafanir þær, sem ríkis- stjórnin gerði á árinu og ræddi áhrif þau, sem þær hafa haft til þessa. Er ræða hans birt á 6. síðu blaðsins í dag. Farinn á veiðar irá St. Johns FLJÓTT og vel hefur geng- ið að þétta og lagfæra tog- arann Skúla Magnússon í hafnarborginni St. Johns á Nýfundnalandi. Það var 4. okt. sl. að Hafnarf jarðartog- arinn Maí kom með togar- ann til hafnar. f fyrradag barst svo Bæj- arútgerð Reykjavíkur skeyti frá skipstjóranum, þess efnis að vonir stæðu til að togarinn kæmist á veiðar aftur um hádegisbilið i gær, fimmtudag. Næst flutti framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins, Þorvarður J. Júlíusson, skýrslu um störf stjórnarinnar á liðnu starfsári og las upp reikninga. Þessu næst voru kjörnar nefnd ir, er fjalla eiga um þau mál, sem fyrir fundinum liggja. Að lokum voru birt úrslit stjórnarkosninga. Stjóm V. í. skipa nú eftirtaldir menn: Tilnefndir af sérgreinafélögum V. f.: Birgir Einarsson, ísleifur Jónsson, Gunnar Asgeirsson, Hans R. Þórðarson, Kristján G. Gíslason, Eggert Kristjánsson, Egill Guttormsson, Hilmar Feng- er og Gunnar Friðriksson. Kosnir af meðlimum V. I. utan sérgreinafélaga: Gunnar Guð- jónsson, Þorvaldur Guðmunds- son, Magnús Víglundsson, Magn- ús J. Brynjólfsson, Othar Elling- sen, Sveinn Guðmundsson, Hall- grímur Fr. Hallgrímsson, Tómas Björnsson, Sigurður Óli Ólafsson og Sturlaugur H. Böðvarsson. Smygi? BÍLSTJÓRI einn kom á lögreglu stöðina í fyrrinótt og kvaðst hafa grun um, að tveir menn, sem hann hafði nýlega ekið um bæinn, hefðu haft smyglvarning í fórum sínum. Lögreglan fór á fund mannanna eftir tilvísun bil stjórans og lagði hald á ferða- tösku eina. en í henni voru síga- rettur og tyggigúmmí. Málið er í rannsókn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.