Morgunblaðið - 15.10.1960, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.10.1960, Qupperneq 11
f Laugardagur 15. okt. 1960 MORGUNBLAÐIÐ 11 Kveðja til Kjarvals ÉG var að lesa íyrir þig í Para- dísarheimt, kaflann þar sem eegir frá fyrsta áfanganum á leið Þjóðreks biskups og Hiíð- arfólksins til Paradísar: „Opnar rú smápilturinn lófa sína i aft , tÍJ fjalla“. jh Þú staðnæmdist í miðjum pen- sildrætti, lagðir frá þér lita- spjaldið og stoppaðir mig í lestr inúm. „Mikið óskaplegt skáld er Ihann Halldór Kiljan, hvílík snilld. Lestu þetta aftur fyrir mig“. Og svo færðistu allur í auk ana við málverkið og tókst að lýsa fyrir mér áhrifum skáld- verksins, þessa margradda óðs til lífsins. Það væri ekki aðeins að bera í bakkafullan lækinn, en bein- línis broslegt, að fara nú enn einu sinni .Jóhannes Kjarval, að því einu nýju tilefni að þú ert inú einu ári eldri en í fyrra, að fjasa um snilli þína framaní fólk- ið, sem vitað hefur allt um hana j. í meira en hálfa öld. Það væri sannarlega þarfara verk af okk- ur, sem notið höfum yfirfljót andi gestrisnf þinnar og þeirra forréttinda að sitja við fótskór meistarans og skyggnast á bak við tjöldin í vinnustofu hans, að slá nú um þig skjaldborg og biðja þér griða og næðist til að fá að lifa og starfa af hjartans lyst. En þú ert venjulega varkárari gagnvart þeim, sem ætla að færa 'þér gjafir, en hinum sem hrifsa vilja af þér. Reynslan hefur ef- laust kennt þér að þeir sem ræna okkur fara með minna en hinir, sem við gefum af fúsum viija. skóna þína, eða jafnvel alveg gleymt að fara í þá, varð okkur hinum oft óþægilega brugðið við að líta undir ræðu þinni í eigin barm og minnast óunnina af- reka, sem meira máli skipti að færu nú úr þessu að sýna sig. Öll íslenzka þjóðin þakkar þér í dag, Jóhannes Kjarval, lista- verkin þín, sem þú hefur sjálfur séð um að prýddu jafnt heimili konunga sem sendisveina, en ekki síður fordæmið, sem þú hefur gefið æsku hennar með lífi, sem ekki er vitað að annar maður ,hafi skilað þjóð sinni í þúsund ár. R. J. MEISTARI Kjarval! Það er alltaf sama sagan, þegar einhver minnist á aldur þinn. Maður rek- ur upp stór augu og spyr sjálfan sig: „Getur þetta verið “ Svo Jóhannes Sveinsson Kjarval er 75 ára i dag Reyndin mun sem fyrr verða sú, að þú ferð þína leið og við verð- um þér hvorki skjaldborg né friðspillar. Jóhannes Kjarval mun standa af sér öll óveður og öll blíðviðri eins og Hornbjarg- ið, veðrast en láta hvergi und- an síga. Kletturinn í hafinu, sem engir straumar né vindar fá unn- ið á. Listaverk þín í þúsundatali eru okkur flestum íslendingum daglegur aflgjafi og bunulind svöl og tær. Þau eru ein af uppi stöðum lífs okkar hér við yztu böf. En í svipinn er það mað- urinn sjálfur, sem mér er efst i ihuga og þá ekki sízt sá, sem birt- ist í orðunum hér að framan. — Hjartanleg gleðin sem Ijómar af endlitinu þegar aðrir fá látið ljós sitt skína og hinn opni hug- ur gagnvart öllu sem er egía, satt og fagurt, allt sem er í ætt við hið innsta í manneðlinu og náttúrunni kringum okkur. Og aldrel of gáfaður til að læra af öðrum og njóta þeirra. Þegar við vinir þínir báðum um leyfi þitt til að koma upp afmælissýnigunni til að hressa upp á borgina og veita aðdáend- um þínum nokkurn sumarauka, spurðirðu með þessu einkenni- iega tvíræða brosi. sem þó aldrei •iýgur um hjartalagið: „Þurfa ekki ungu mennirnir sjálfir að nota skálann sinn“. Einihvers staðar hefi ég lesið að skáldin séu samvizka þjóð- anna, og á það sannarlega við um þig umfram flesta menn hér ihjá okkur. Væn ekki samvizka þessarar þjóðar, þessa bæjar, dá- iítið gloppótt á stundum, ef þú Ihættir skyndilega að birtast í Austurstræti og á Borginni, tann Ihvass með reiddan hnefann og augasteinana eins og sprengi- kúlur, eða veifandi hattinum góða til merkis um að þú gæfir ekki alltof mikið fyrir dýrð okk ar ef við snerum við frökkun- um eins og þú. Og þó þú hefðir ekki sjálfur lokið við að reima fór fyrir mér, er þú varst sagður sjötugur og nú er eins um þetta, þegar sagt er: „Hann Kjar.val er sjötíu og fimm ára í dag“. Það hefur verið sagt, að þeir, er séu manni kærir, hafi engan aldur og allan. Þannig er því farið með þig í augúm þjóðarinnar og ég held, að báðir aðilar geti vel við unað. Starfsferill þinn er að vísu orðinn langur, en afköstin og árangurinn eru samt óskiljan- leg á ekki lengri tima. Þú hefur ef til vill ekki tekið eftir því sjálf ur? En þetta er nú sannleikur sögunnar. Þú hefur sjálfur sagt eintovern tímann að það væri mikið starf að vera maður og af- skapalegt erfiði að vera listamað- ur. Er þetta ekki nokkuð góð lýs- ing á sjálfum þér? Er þetta ekki innsti kjarninn í lífi þínu og starfi? Nú eru margir að koma yfir sig húsi í höfuðstaðnum, og það er eitt aðaláhugamál íslendinga að eignast hús. Þeir bókstaflega lifa og deyja í húsbyggingum. Ef ég man rétt, þá átti líka að byggja fyrir þig hús, og stundum var talað um Kjarvalshús. Svo voru lagðir peningar til hliðar fyrir Kjarvalshúsi í nokkur ár og sjóð- urinn gildnaði ár frá ári. Þá leizt þér ekki á blikuna lengur, og þú sagðir við þá á Alþingi: „Ég þarf ekkert hús, gjörið svo vel góðir hálsar, byggið heldur yfir Lista- safn ríkisins, fyrir þessa aura, það er á götunni". Ef þetta for- dæmi þitt kæmist í tízku, hvað þá? Mundi ekki hálf Reykjavík urborg verða að listasafni? Jú vissulega, en vertu alveg rólegur, Kjarval. Svona hluti gerir eng- inn nema þú. Já það er mikið lífsstarf að vera maður. Svo er það hann Guðbrandur okkar, sá hefur nú verið í góðum skóla. Hefur þú talað við hann nýlega? Á etirlaun er hann kom- inn, en hverjum dytti það í hug? Og þegar maður gaukar því að honum, að hann eldist vel, þá svarar hann ósköp blátt áram, að það sé nú mikið honum Kjar val að þakka, hvað kerlingu Elli gangi slælega að ná á sér tók- um. Þarna sérðu, hann hefur verið í góðum skóla, hann Guð brandur. Svo er í honum GILLI- GOGG. Þetta skiljum við. Við skulum ekkert vera að tala um myndlistina í dag. Við vitum þetta öll og við skiljum þetta öll. Þitt framlag á því sviði er og blífur. Það eiga mörg séní eftir að skrifa fram og aftur um list þína, þegar við erum báðir komn ir undir græna torfu, en hvað séní skrifa, er ekki nokkur leið að taka ábyrgð á. Og það er ómögulegt að vita, hvort það verð ur GILLIOGG í þeim. Ef séníin verða ekta, þá eiga þeir að geta lesið mikið úr sjálfum verkum þinum, þótt þeir hafi ekki lifað það að sjá þig á hraðferð eftir Austurstræti, takandi ofan hatt þinn á konunglegan hátt. Eða heyrt þig fara með kveðskap þinn og útskýringar. Séð þig standa við hraunjaðar og hamast við mikið verk. Að ég ekki tali um að hlusta á þig hella úr skálum reiðinnar og skipta síðan um ham til hins betra. Eða þegar ég var eitthvað mikið upp á kant við Ragnar okkar í Smára og þú sýndir mér forkunnar mikið mál verk. Ég spurði, hver ætti þenn- an dýrgrip, og þú svaraðir því til, að hann Ragnar í Smára ætti að fá það. Ég varð forviða og sagði eitthvað á þá leið, að þetta væri allt of gott verk fyrir slík- an ídíót. Þá brostir þú og sagðir, að Raggi væri nú nokkuð góður ídíót. Þar með var það útrætt. En þetta var mörgum árum, áður en þú tókst þig til að bjarga Ragnari frá lögreglusektum og fórst að safna krónupeningum í stöðu- mæla fyrir Ragga. Svona mætti lengi halda áfram, að aumka séníin, sem eiga eftir að láta Ijós sitt skína í framtíðinni. Við skul um annars ekkert vera að fárast yfir þessu. Þú ert búinn að festa þetta allt á léreftið, og þar eiga séníin að lesa þinn persónuleika. Þessar línur eru skrifaðar þér, sem smákveðja í tilefni dagsins. Ég veit að þær eru heldur fáar og mættu vel vera fleiri, en nú ætla ég að vera svolítið sniðugur og geyma hitt til stóra afmælis- ins, þegar þú verður áttræður. Það eru bara fimm ár, og ef ég tóri þar til, þá veit ég, að ég sendi þér línu og byrja á sama hátt og ég hóf þessa kveðju. Svona enda ég kveðjuna með því að óska þér og okkur öllum til hamingju með daginn. Það eru til þúsundir íslendinga, en aðeins einn Jóhannes Sveinsson Kjar- val. Þegar meistari Kjarval á merkisafmæli, þá á GILLIGOGG líka afmæli, en það er dálítið leyndarmál, sem aðeins fáir skilja. Valtýr Pétursson. Þótt vildi ég reyna að yrkja þér óð, er orkan fjörlaus, og sálarglóð kulnandi, og eins og á förum. En þó er gaman, að gleðjast um stund og gægjast á hvor annars vinafund. Við minnumst þess meðan við hjörum. Þínum glófexta hesti þú hleyptir á skeiS. Og hver hefir séð meiri glæsireið? Þar gullstjörnur gneista í sporL Sama hvort ferðu um fjöll eða sund ferðin þekkist, þú einn átt þinn lund með ilmandi angan og vori Og hraunin og mosaþembur hylla þinn dag, því hver hefir kveðið þeim inndælli brag en meistarinn sjálfur þeim syngur? Við aðrir horfum áhöfðingjans verk hissa, og sjáum hve guðsmynd er sterk, og hreyfist þar út í hvern fingur. Ég segi ekki meira, en mætavel skil að um manninn þennan er glaðst við yl, og margir um skáldið skrifi. Og ættjörðin kveði ’onum afmælisbrag með ástarþökk fyrir daginn í dag. Og — meistarifin mikli lifi! Sigurður Arngrímsson. - Bifreidaverkstæði hurfi löggildingu Frumvarp um slíkt lagt tram á Alþingi í GÆR var lagt fram á Al- þingi stjórnarfrumvarp til laga um löggildingu bifreiða- verkstæða og miðar það að því að gerðar verði meiri kröfur en áður til þeirra fyr- irtækja, er taka að sér við- gerðir á bifreiðum. Þykir slíkt eðlilegt og ónjákvæmi- legt framhald af þeim auknu Áður en forsetahjónin ís- lenzku fóru heim, kom forset- inn, á fund í „Kólfi“, sem er einskonar „akademiskur klúbbur“, þar sem nokkrir ísl. háskólaborgarar, aðallega þó eldri menn, hittast við og við. Martin Bartels, formaður þessa félags, bauð forsetann velkominn. Forsetinn lét í ljósi gleði yfir að vera þarna kvöldstund með nokkrum is- lenzkum háskólaborgurum í Kaupmannahöfn. Eftir að menn höfðu setið að snæðingi, spjallaði forsetinn Iengi við alla, sem þarna voru viðstadd- ir. Á myndinni, sem var tek- in á þessum fundi, eru frá vinstri: Hjörtur Þorsteinsson, Hallgrímur Thomsen, Árni Friðriksson, Gunnar Björns- son, Stefán Jóh. Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Ásgeir Ásgeirsson forseti, Stefan Karlsson, Martin Bartels, Vil- hjálmur Finsen, Lárus Einars son, Páll Ásgeir Tryggvasin, Einar Kristjánsson og Páll Jónsson. — Ljósm.: Hallgrím- ur Thomsen, lögmaður. 4v ... .sij*. kröfum, sem með nýjum um- ferðarlögum hafa verið gerð- ar til ásigkomulags vélknú- inna ökutækja. Koma hér bæði til hagsmunir eigend* tækjanna og almennt öryggi í umferðarmálum. Bifreiðaverkstæði — en ekki þjónustustöðvar I hinu nýja frumvarpl dómsmálaráðuneytinu heinuUi „að ákveða, að á tilteknuM stöðum á landinu eða á landimi öllu, megi ekki inna af hendá viðgerðar- eða viðhaldsstörf A bifreiðum eða bifhjólum, greiðslu, hvorki almennar vi0- gerðir né sérviðgerðir, nema á verkstæðum, sem öðlazt hafa til þess löggildingu Bifreiðaeftirlits ríkisins“. Þessu ákvæði eru þó undan- þegnar þjónustustöðvar, sem ann ast daglegt eftirlit ökutækja og vandalitla viðhaldsvinnu. Löggildingarskilyrði verði ákveðin í reglugerð „Með reglugerð, er ráðherra setur, skal kveða á um, hvaða skilyrði löggilt bifreiðaverk- stæði skuli uppfylla, að því er varðar starfslið, verkstjórn, hús- næði, búnað og reikningshald, um form löggildingarumsóknar og meðferð, afturköllun löggild- ingar og annað það, er við kem- ur framkvæmd laga þessara", þar á meðal hvað telja beri þj ónustustöðvar. I greinargerð með hinu nýja frumvarpi segir svo: „Frumvarp þetta er samið f iðnaðarmálaráðuneytinu, að fengnum tillögum Iðnaðarmála- stofnunar íslands, Félags bif- reiðaverkstæðaeigenda og Fé- lags bifvélavirkja. Framangreind samtök hafa um skeið unnið að athugim máls þessa og meðal annars notið í því efni tæknilegra upplýsinga og leiðbeininga norska verkfræð- ingsins Johans Meyer, er dvaldi hér á landi um hríð sl. vetur, á vegum Iðnaðarmálastofnunar ís- lands. Váxandi kröfur Nýlega hafa verið sett umferð- arlög, þar sem lögfestar eru mun meiri kröfur en áður til gerðar og búnaðar skráningarskyldra vélknúinna ökutækja. Hefur slíkt óhjákvæmilega í för með sér, að einnig verður að gera Framhald á bls. 19. .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.