Morgunblaðið - 27.10.1960, Side 1
20 síður
47 árgangnir
246. tbl. — Fimmtudagur 27. október 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsini
Þýzkir
flug-
menn
yfirheyrðir
Bonn og London, 26. okt.
(NTB-Reuter)
ALLIR flugmenn þýzka flug
hersins, sem voru í flugi á
þriðjudagsmorgun hafa nú
verið yfirheyrðir i sambandi
við það hve nærri þeir hafi
komið Comet-þotu Elísabet-
ar Bretadrottningar á leið
hennar frá Kaupmannahöfn
til London. En flugmcnn
Bretadrottningar halda því
fram að tvær orustuþotur,
merktar þýzka járnkrossin-
um, hafi flogið háskalega
nærri drottningarvélinni.
Rannsóknum er svo til lokið í
Vestur-Þýzkalandi og verða nið-
urstöður þeirra lagðar fyrir sam-
eiginlega nefnd til athugunar. —
Talið er að sú nefnd ljúki ekki
athugunum sínum fyrr en eftir
nokkra daga.
Margra þjóða vélar
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytis Vestur-Þýzkalands sagði í
dag að um það leyti er háska-
flug þetta átti sér stað hafi
margar vestur-þýzkar og annarra
þjóða flugvélar verið á þessum
slóðum, en vildi ekki gefa upp
þjóðerni vélanna nánar.
Þýzka ríkisstjórnin hefur til-
kynnt brezka sendiherranum í
Bonn að hún harmi þetta atvik,
og það án tillits til þess hvort í
Ijós kemur að flugmennirnir hafi
verið þýzkir eða annars þjóð-
ernis.
Að minnsta kosti eitt þýzkt
þýzkt dagblað, óháða blaðið Der
Mittag, lýsir í dag yfir sannfær-
ingu sinni um að flugmennirnir
hafi verið þýzkir.
Á réttri flugleið
Talsmaður varnarmálaráðu-
ineytisins skýrði frá því í dag að
fiugleið Comet-þotu Bretadrottn
ingar hafi verið tilkynnt með
fjögurra daga fyrirvara, og hafi
öllum deildum þýzka flughersins
verið tilkynnt um hana. Hafi
drottningarvélin nákvæmilega
haldið flugáætlun, sagði hann.
Pranz-Josef Strauss varnarmála
ráðherra hefur fyrirskipað ná-
kvæma rannsókn og sagt að ef
hinir seku reynist vera Þjóðverj-
ar, verði þeir látnir sæta ábyrgð.
Kommúnistar vilja verkföll
en ekki
kjarabætur
MORGUNBLABIÐ hefur að undanförnu nokkr
um sinnum vikið að því, að ýmsar leiðir væra
færar til að bæta kjör launþega, án þess að
skerða hag atvinnuveganna. Hefur blaðið skor-
að á málgagn kommúnista, sem allra manna
bezt þykjast berjast fyrir hag verkalýðs, að
taka upp umræður um það mál. Frá Þjóðvilj-
anum hefur þó hvorki heyrzt hósti né stuna,
enda segin saga að kommúnistar missa ætíð
málið, þegar rætt er um raunverulegar kjara-
bætur og þjóðfélagslegar umbætur.
i tillögum sínum um endurbætur á hög-
um launþega, hafði Morgunblaðið m. a. hlið-
sjón af áliti hagfræðings norska alþýðusam-
bandsins, sem hér var í sumar á vegum laun-
þegasamtakanna. Morgunblaðið benti á, að með
bættri vinnutilhögun og heilbrigðu samstarfi
launþega og vinnuveitenda væri hægt að bæta
vinnuafköstin svo, að verulegar kjarabætur
gætu fengizt án þess að hag fyrirtækjanna
væri stefnt í voða. Við töldum að ítarlega
rannsókn ætti að gera á því, hvort ekki væri
hægt að hækka nokkuð dagvinnukaup gegn
því að lækka eftirvinnu- og næturvinnukaup
og reyna þannig að koma í veg fyrir, að
verkamenn þyrftu að vinna lengur en venju-
legan vinnudag til að njóta sæmilegs lífsfram-
færis. Þá var bent á, að ákvæðisvinnufyrir-
komulag ætti að taka upp sem víðast og mætti
gjarnan hafa það í því formi, að sérstök við-
bótarlaun væru greidd þeim, sem færu fram
úr ákveðnum afköstum. Loks var svo mælt
með því, að sem víðast yrði leitazt við að
koma á vikukaups- og mánaðarkaupsgreiðslum.
Cm þessi mál er rætt í forystugrein blaðs-
ins í dag.
Handrifin
Ijósmynduð
Kaupmannahöfn, 26. okt.
Einkaskeyti til Mbl.
grá Páli Jónssyni.
1 FRUMVARPI dönsku
stjórnarinnar til fjárlaga,
sem lagt var fram í þing-
inu i dag, er meðal ann-
ars gert ráð fyrir þriggja
ára fjárveitingu til ljós-
myndunar á handritum úr
safni Árna Magnússonar.
Lagt er til að veittar
verði samtals 30.000 dansk-
ar krónur á þrem árum
(ísl. kr. 166.000,—).
Áður hafa verið veittar
og notaðar 45.000 d. kr. í
þessum tilgangi, en aðeins
er lokið við Ijósmyndun
þriðjungs ritanna.
Herinn fluttur
frá Leopoldville
Leopoldville, 26. október.
(NTB-Reuter)
MOBUTU hershöfðlngi sam-
þykkti í dag að flytja herlið
sitt burt úr blökkumanna-
hverfum Leopoldville og fyr-
irskipaði því að dvelja um
kyrrt í herbúðum utan borg-
arinnar. — Verður flutningi
hersins lokið á fimmtudag.
Undanfarna daga hefur
hvað eftir annað komið til
átaka milli herliðs Mobutus
og íbúa Leopoldville og hafa
Framhald á bls. 19.
Ljóðskdldið Saint John Perse hlaut
bókmenntaverð-
laun IMobels
Prins úrkynjunarinnar, segir Quasimodo
Marseille, 26. október. — (NTB-Reuter)
FRANSKA Ijoðskáldinu Saint-John Perse voru í dag veitt Nobels-
verðlaunin í bókmenntum. Perse er 73 ára. Hann hóf ljóðagerð
árið 1909 og kom fyrsta bók hans út tveim árum seinna. Hafa
lióð hans verið þýdd á fjölda tungumála. Meðal annars þýddi
T. S. Elliott nokkur ljóða hans á ensku. Gagnrýnendur telja ljóð
Perse hafa haft grundvallaráhrif á ljóðlist nútímans.
Við bókasafn Bandaríkjaþings
Perse starfaði í utanríkisþjón.
ustu Frakka frá 1914 til 1940, og
var einn helzti sérfræðingur
þeirra í málefnum Asíu. Þegar
þýzki herinn réðist inn í Frakk.
land árið 1940, flýði hann til
Bandaríkjanna og hefur búið
þar síðan. Hann er ráðunautur
bókasafns Bandaríkjaþings i
Washington varðandi franska
ljóðagerð.
Átti ekki von á þeim
Þegar tilkynnt var að harvn
hefði hlotið Nobelsverðlaunin í
bókmenntum, var Perse staddur
á Riveraströndinni í Frakklandi.
Vissi skáldið ekki fyrr en nokkr
um tímum eftir að úthlutunin
hafði verið tilkynnt í Stokk-
hólmi að honum hefði verið veitt
verðlaunin. Þegar blaðamenn til
kynntu honum um úthlutunina,
kom það honum mjög á óvart.
„Ég heyrði að vísu orðróm um
það í gærkvöldi að til mála
kæmi að ég hlyti Nobesverðaun
in, en ég átti sannast að segja
ekki von á því“, sagði hann
blaðamönnunum.
Löridunum hætt
HULB, 26. okt (NTB-Reuter): —
Tilkynnt hefur verið í Hull eft-
ir áreiðanlegum heimildum að
hætt verði að flytja íslenzkan fisk
til Bretlands með flutningaskip-
um þar til umræðum um fiskveiði
lögsöguna lýkur.
Samtök togarasjómanna í Bret-
landi hafa mótmælt þeirri ráð-
stöfun að senda slægðan fisk með
flutningaskipum frá íslandi eftir
að islenzkir togaraeigendur hættu
löndunum í Bretlandi í bili.
í dag var 1200 kössum af fiski
frá íslandi landað í Hull og ann-
ar farmur er á leiðinni, en full-
yrt er að þetta séu síðustu farm-
arnir, sem sendir verða þar til
viðræðum lýkur.
Saint-John Perse
Ummæli Quasimodo
Perse lét í ijós ánægju sína
yfir því að ljóðskáld hlyti nú
Nobelsverðlaunin. ,,Það er undir
stöðuatriði að ljóðagerð sé met-
in að verðleikum og ég tel þá
ráðstöfun fyllilega í anda Nób-
els.“
Fjöldi rithöfunda og gagnrýn-
enda hefur látið í ljósi ánægju
sína yfir því að verðlaunin voru
veitt Perse. ftalinn Salvatore
Quasimodo, sem hlaut verðlaun-
in á síðasta ári, lýsti því hins-
vegar yfir að Perse væri einn af
prinsum úrkynjunarinnar í bók-
menntum Evrópu. „Þótt hann sé
hinsvegar girðingar (en Quasi-
modo er talinn vinstrisinnaður),
rétti ég samt með ánægju hönd
mína út til hans“, sagði Quasi-
modo.
Árnaðaróskir
Formaður rithöfundasambands
Evrópu, ítalinn Giovanni Batt-
Framn. á bis. 2.