Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. okt. 1960 MORCTIISTILAÐIÐ 5 MENN 06 = MALEFNI= Fyrir rúmium mánuði kom fröken Gerda Brunskog, æf- ingakennari frá Uppsölum, hingað til landsins á vegum fræðsluskrifstofu Reykjavík- ur. Hún hefur flutt hér erindi á fræðslufundum kennara, kennt á námskeiðum fyrir barnaskóiakennara og heim- sött barnaskóla bæði hér í bænum og utan hans. Gerda Brunskog hélt heimleiðis í fyrradag, en nokkru áður hafði fréttamaður blaðsins tal af henni. — Við hvað starfið þér í Svíþjóð? — Ég kenndi sem æfinga- kennari við kennaraskóla í Uppsöium og var einnig náms stjóri fyrir nokkra tilrauna- skóla í landinu, en af þessum störfum lét ég fyrir 3 árum. Nú ferðast ég um og leiðbeini við kennslu á vegum fræðslu- skrifstofunnar í Stokkhólmi. — I hverju er starfsemi til- raunaskólanna fólgin? — Skólaskylda í Svíþjóð er nú 7 ár, en í tilraunaskólun- um eru börnin 9 ár. Þar eru reyndar nýjar kennsluaðferð- ir og ef þær gefast vel eru þær einnig teknar upp við aðra barnaskóla. Fyrsti til- raunaskóli í Svíþjóð hóf starf- semi sína 1949 og nú er þriðji hluti allra barnaskóla í land- inu rekinn með þessu sniði og gera má ráð fyrir að 1970 verði allir barnaskólar í land- inu starfræktir með þessu fyr irkomulagi. — Er kennslutilhögun í sænskum barnaskólum frá- brugðin því er tíðkast hér á landi? — Já, kennslukerfið hér er strangara og fer eftir ákveðn- ari reglum. í Svíþjóð höfum við til dæmis engin próf í lok hvers skólaárs heldur prófa kennararnir börnin af og til yfir veturinn og gefa þeim cinkunnir á vorin. Til þess að gera kenniurum kleift að sam- ræma prófin höfum við svo vissar reglur, en þær gilda að eins um móðurmálið og stærð fræði. Tímaskipun er ekki eins ströng og tíðkast hér, stundum vinna börnin ef til vill að einu fagi 2—3 vikur í senn og eru svo prófuð í því í lok þess tímabils. Rcynt er að láta lesgreinanámið ekki byggjast eingöngu á minni heldur haga kennslunni þann- ig að hún þroski börnin sem mest. Þeim er kennt að vinna sjálfstætt og saman í hópum eftir því sem hægt er. Við skiptum börnunum ekki í bekki eftir getu, en samt reyn um við að láta hvert barn hafa verkefni, við sitt hæfi. Þegar börnin setjast í 7 ára bekk er alls ekki ætlazt til að þau séu orðin læs og er yfir- leitt talið æskilegra að svo sé ekki. — Hvernig lízt yður á skól- ana hér? — Mér finnst þeir mjög vist legir, sérstaklega nýju skól- arnir. Einnig eru þeir yfirleitt byggðir á mjög hentugan hátt. Hrifnust var ég af Breiðagerðisskólanum og held ég að segja megi að við höfum ekkert svo skemmtilegt barna skólahús í Svíþjóð. Einnig þótti mér anddyri Melaskól- ans mjög skemmtilegt, það er bæði bjart, rúmgott og fallega skreytt. Umgengni í skólum hér virðist yfirleitt vera mjög góð, þeim vel við haldið, og börnin prúð og vel vanin. — Vilduð þér ekki að lok- um segja nokkur orð um dvöl yðar hér? — Ilún hefur í alla staði verið mjög ánægjuleg. Kenn- arar hafa sýnt mikinn áhuga á námskeiðunum, þau hafa verið mjög vel sótt. Einnig hef ég verið heppin með veð- ur og þar af leiðandi notið hinnar sérstæðu náttúrufeg- urðar íslands í ríkum mæli. i Flugfélag islands hf.: — Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar kl. 7 í dag. Kemur aftur kl. 21:30 í kvöld. Fer til Glasgow og Khafnar kl. 7 í fyrramál- ið. Innanlandsflug: I dag til Akureyrar, Egilsstaða, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vestmannaeyja og Þórshafnar. A morgun til Akureyrar, Fagurhólsmýr- ar, Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkju- bæjarklaufiturs og Vestmannaeyja. Loftleiðir hf.: — Hekla er væntan- ieg kl. 8 frá New York, fer til Oslo, Gautaborgar, Khafnar og Hamborgar kl. 9:30. H.f. Eimskipafélag íslands. — Detti- foss er á leið til New York. Fjallfoss fór í gær til Siglufjarðar. Goðafoss er á leið til Leningrad. Gullfoss er í Leith. Lagarfoss er á leið til Rvíkur. Reykjafoss er í Rvík. Selfoss er á leið til Rotterdam. Tröllafoss er í Ham- borg. Tungufoss er á leið til Gdynia. Eimskipafélag Reykjavíkur hf. — Katia er í Archangelsk. Askja er á Spáni. Hafskip hf. — Laxá er í Vestmnna eyjum. Jöklar hf.: — Langjökull er á leið til Rvíkur. Vatnajökull er í Rvík. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fór vestur um land í gær. Esja er á Akureyri. Herðubreið er í Rvík. Þ»yrill er á leið til Manchester. Herjólfur fer frá Vest mannaeyjum í kvöld til Rvíkur. Bald- ur er í Reykjavík. Skipadeild SÍS.: — Hvassafell er á leið til Finnlands. Arnarfell er í Arch angelsk. Jökulfell er á leið til Rvíkur. Dísarfell er í Gdansk. Litlafell er í Rvík. Helgafell er í Gdansk. Hamra- fell er á leið til Islands. Sextugur er í dag Sigurjón Sigurðsson, Sigtúni 23. Hann dvelur í dag á heimili sonar síns Teigagerði 12. Söfnin Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla táni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema r íánudaga. Listasafn Einars Jónssonar er opið frá kl. 1,30—3,30 miðvikudaga og sunnu daga. Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga kl. 1—4, þriðjudaga, fiinmtudaga og laugardaga kl. 1—3 Náttúrugripasafnið: — Opið á sunnu- dögum kl. 13:30—15, og þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14—15. mánudag. Tæknibókasafn IMSÍ (Nýja Iðnskólahúsinu) Útlánstími: Ki. 4,30—7 e.h. þriðjud., fimmtud., föstudaga og laugardaga. — Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mið- vikudaga. — Lesstofa safnsins er opin á vanalegum skrifstofutíma og út- lánstíma. Bókasafn Lestrarfélags kvenna, — Grundarstíg 10. er opið til útlána mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—6 og 8—9. Listasafn ríkisins er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 1--3, Pennavinir Iranskur piltur um tvítugt hefur á- huga á að komast í bréfasamband við íslenzka stúlku 16—18 ára, skrifar á ensku. Nafn og heimilisfang er: IJ.M.D. C & M.P. Manocher Gholchin, Aghajary, Iran, Asía. 18 ára norskur drengur vill skrifast á við íslenzkan pilt eða stúlku á svipuðum aldri. Skrifar á ensku, nafn og heimilisfang er: Terje Kværnberg, Olav Ryes Pl. 5, Osló N.Ö., Norge. Enskur drengur óskar að skrifast á við íslenzkan dreng eða stúlku. Nafn hans og heimilisfang er: Nicola Gelhar, 43 Crownstone R.D., Brixton S.W.2., England. 16 ára amerísk stúlka, sem búsett er á Kýpur langar til að skrifast á við íslenzkan pilt eða stúlku og skipt- ast á póstkortum. Nafn hennar og heimilisfang er: Ruth Keshishian, 8, Averof, Nicosia, * Cyprus. • Gengið • Soiugengl 1 Sterlingspuna ........ Kr. 107,23 1 Bandaríkjadollar ...... — 38,10 1 Kanadadollar .......... — 38,96 300 Danskar krónur ....... — 553,20 100 Norskar krónur ....... — 534,35 100 Sænskar krónur ....... — 737,70 100 Finnsk mörk .......... — 11,90 100 Austurrískir shillingar — 147,30 100 Belgiskir frankar .... — 76,35 100 Svissneskir frankar .... — 884,95 100 Franskir frankar ...... — 776,15 100 Gyllini .............. — 1010,10 100 Tékkneskar krónur — 528.45 100 Vestur-þýzk mörk ..... — 913.65 1000 Lírur .................. — «1,39 100 Pesetar .............. — 63,50 ÁHEIT og CJAFIR Áheit og gjafir til Strandakirkju, afh. Mbl.: — Aheit afh. af séra Are- líusi Níelssyni 100 kr., JE 100, LK 40, NN 50, SH 50. EÞ 120, EE 100, KA 100, Fríður 20, ASA 300, HHN 100, AK 50. BO 500, Frá móður 200, Frá gamalli konu 30, VK 10, NN 100, NN 10, GEK 200, Nína 10, NN 100, Skerfirðingur 500, Langamma 10, Gömul móðir 10, Guðbjörg 50, ÞSG 100, SE 500, ÞK 25, BLB 100, NN 50, A 20, ÞÞ 10, Blá- stakkur 100, Dóra 450, KÞ 150, Rann- veig 25, ómerkt í bréfi 25, Ingigerður 20, NN 200, MM 200, Kona 100, Gamalt áheit JG 200, NN 100, ÞS 50, Agnes 50, SEB 60, ES 100, EG 100, Frá þakk- látri 101, NN 200, Jökull 500, REE 50, Gamalt áheit 100, NN 100, JHÞ 500, MÞG 120, SK 50, GA 20 kr. — Þú verður að fara varlega, þetta er síðasti boltinn okkar. — ★ — Aleinn ræ eg úti á djúpi, ó, sú sjónin skær! Sjórinn gullnum sólskinshjúpi sveipast fjær og nær. Sjór er gagnsær — grilli’ eg niður, gnötra eg við að sjá: Hafskip sokkið! — helgrár bryður hákarl bleikan ná. Áfram ræ eg, ei skal dvelja, áfram, bátur! svíf; yfir sólbros, undir helja, ó þú falska líf! Steingrímur Thorsteinsson: Efra og neðra. — Litla dóttir mín gleypti gull mola, og það þarf að skera hana upp. Eg veit ekki hvort óhætt er að treysta Gísla lækni. — Jú, án efa, hann er mjög heiðarlegur maður. — ★ — Kennarinn: — Geturðu nefnt mér dæmi um mildan vetpr? — Já, 1957, þá var kennarinn veikur í sex vikur samfleytt. — ★ — Hann: — Hvers vegna kaup- irðu alltaf of stórar skyrtur handa mér? Hún: — Heldurðu að ég vilji láta búðarmannin vita hvílíkum væskli ég er gift. Kona óskar eftir SKRIFSTOFUSTARFI heimavinna (vélritun) kem ur einnig til greina. Tilb. sendist Mbl. fyrir n.k. m. mót, merkt: „Vandvirkni — 1754“ Innréttingar í eldhús og svefnherbergi. Stuttur afgreiðslutími. — Sanngjarnt verð. Trésmíðavi.nnustofan Hefill Vesturg. 53B — Sími 23651 Til sölu Dodge ’42 ákeyrður. Uppl. í síma 19683. 2ja—3ja herb. og eldhús óskast strax eða fyrir 14. maí. Tilb., merkt: „3 í heimili — 1092“ send ist Mbl. sem fyrst. Pinnari og laghenlur maður óskast. Skógerðin h.f. Rauðarárstíg 31 Kvenmaður sem kann flökun óskast str*x í fiskbúð í tvo tima f.h. Tilb. sendist Mbl. — merkt: „Flökun — 1762“ Þvottavél Nýleg Thor-þvottavél til sölu. Uppl. í síma 34269. Pússningasandur Vikur — Bruni Sími 32181. Keflavík Til sölu sendiferðabíll í góðu lagi. Útb. kr. 15 þús. Uppl. í síma 2044 eða 2305. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en í öðrum blöðum. — íbúð til leigu Ný 5 herb. hað til leigu (ekki í fjölbýlishúsi). Ein- hver fyrirfranigreiðsla æskileg. Tilboð merkt: „íbúð — 1757“ sendist Mbl. sem fyrst. Onfirðingar Önfirðingar í Reykjavík og nágrenni Spiluð verður félagsvist og dansað kl. 8,30 laugar- daginn 29. okt. í Skátaheimilinu. Mætum öll og lögnum vetri. STJÓRNIN. Stúlka vön skrifstofustörfum óskast til heildverzlunar í miðbænum við vélritun, bréfaskriítir, símavörzlu o. fl. Vön stúlka gengur fyrir. — Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf eða nám sendist Morgunbl. fyrir laugardag merkt: „Skrifstofustörf 1751“. Iðnaðarhusnæði Til leigu á goðum stað 40—50 ferm. húsnæði, fyrir léttan og hrem'egan iðnað. Þeir sem hafa hug á þessu leggi tilboð inn á afgreiðslu blaðsins fyrir hádegi á laugardag merkt: „Iðnaður — 1759“. ATVINNA 2 stúlkur óskast í búsáhaldaverzlun allan og hálfan daginn. Uppl. í síma 23349. milli kl. 10—12 og 4—6. Sendisveinn óskast uuiBimuí Hringbraut 49.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.