Morgunblaðið - 27.10.1960, Síða 18
18
MORCVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 27. okt. 1960
Tékkneskt handkn attleikslib
með 6 landsliðsmenn leikur hér
Fyrsti leikurinn
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
Víkingur á von góðra gesta.
Ruza (t. ▼.), hinn frægi lands
liðsmaður Tékka og fyrirliði
landsliðs þeirra, sést hér
ásamt Birgi Björnssyni, fyrir-
liða íslenzka landsliðsins. —
Myndin er tekin er Birgir
veitti móttöku oddfána tékk-
neska sambandsins, er lands-
lið landanna mættust í heims-
meistarakeppnir.ni 1958. Ruza
hefur tekið þátt í 3 heims-
meistarakeppnum, leikið 51
landsleik og i þeim skorað
135 mörk.
er 3. nóvember
Er það tékkneskt handknatt-
Ieikslið, sem án efa má telja
eitt bezta handknattleikslið,
er sótt hefur íslendinga
heim. Lið þetta kemur hing-
að 3. nóvember nk. og leik-
ur hér að minnsta kosti 5
kvöld — hið fyrsta verður
á föstudag í næstu viku eða
4. nóvember.
Móttökunefnd Víkings, en for-
maður hennar er Árni Árnason,
ræddi við blaðamenn í gær. —
Sagði hún að Víkingur gengist
fyrir þessari heimsókn en áður
hafði HSRR gert áætlun um nið-
urröðun heimsókna erlendra liða
og átti Víkingur haustheimsókn í
ár. —
• Tékkneskir meistarar
Liðið sem fyrir valinu varð
til tslandsferðar er liðið T. J.
Gottwaldov. Það er geysi-
sterkt íþróttafélag sem rekur
23 deildir og hefur haft hand-
knattleik á stefnuskránni í 40
ár. Liðið hefur 5 sin.num orðið
handknattleiksmeistari Tékkó
sióvakíu, eða árin 1947, ’48, ’51
og nú 1960. Meginkeppnin í
tékkneskum handknattleik
stendur milli þess og félagsi,ns
Dukla Prag, en Dukla Prag
hélt meistaratitlinum 1952—
1959.
1 síðustu meistarakeppnl
Tékkóslóvakíu hlaut Gottwaldov
40 st., Dukla Fhag 35 st. og Sparta
27 stig. Slíkan ægishjálm bera
tvö beztu liðin yfir öðrum — og
landslið Tékka, sem er eitt sterk-
asta landslið heims er nær ein-
göngu skipað mönnum úr tveim
félögum. Með Gottwaidov koma
nú 6 menn sem leikið hafa í
landsliði Tékka.
• Góðir leikmenn
í hópi Tékkanna eru 20 menn,
þar af 16 leikmenn. í fararstjóm
er form. félagsins og fleiri af
æðstu og þekktustu handknatt-
leiksmönnum Tékka.
Liðið Ieikur hér að minnsta
kosti 5 kvöld. Hið fyrsta verð-
ur 4. nóv. gegn styrktu liði
Víkings. Síðan leika þeir 6.,
8., 10. og 13. nóv. gegja íslands
meisturum FH, ReykjaVíkur-
úrvali, tilraunalandsliði og
taka auk þess þátt í hrað-
keppnismóti.
Margir leikmenn liðsins eru
mjög þekktir handknattleiks-
menn. Þekktastur er Ruza sem
var í liði Tékka á heimsmeistara-
keppni 1954, 1956 og 1958 en
Tékkar hafa ætíð verið í röð
fremstu þjóða þar, nú síðasta t. d.
í öðru sæti — töpuðu í úrslita-
leik gegn Svíum með 22 gegn 12.
Ruza hefur leikið 51 landsleik
og skorað í þeim 135 mörk. 1 síð-
ustu meistarakeppni skoraði
hann 68 af 320 mörkum Gott-
waldov-liðsins.
• Kærkomin heimsókn
íslendi(ngar hafa einu sinni
mætt Tékkum. Það var í síð-
ustu heimsmeistarakeppni. Þá
unnu Tékkar með 27 gegn 17.
Þótti frammistaða ísl. liðsins
mjög góð í þeim leik. Vonandi
verður hún það einnig nú
gegn þessu sterka tékkneska
liði — og vonnandi verður
heimsóknin lærdómsrík fyrir
okkar menn.
Marcel Gregorovic, einn af
leiknustu mönnum tékkneska
liðsins og landsliðs þeirra. —
Körfuknaitleikskeppnin
í kvöld
í KVÖLD kl. 8 hefst að Háloga-
landi körfuknattleikskeppni milli
íslenzkra og bandarískra körfu-
knattleiksmanna úr varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli.
Tveir leikir verða háðir og
keppa fyrst ÍR, íslandsmeistar-
arnir og úrvalslið körfuknatt-
leiksmanna, sem valið hefur hef-
ir verið úr 150 manna hópi varn.
arliðsmanna á Keflavíkurflug-
velli.
Síðari hálfleikurinn verður
háður milli KFR og úrvaldiðs,
sem valið hefir verið úr tveim
efstu liðum körfuknattleiks-
keppninnar á Keflavíkurflug-
velli.
Körfuknattleikur er sem kunn
ugt er ein helzta íþrótta Banda-
ríkjamanna. Meðal varnarliðs-
manna hafa oft verið þekktar
stjörnur körfuknattleiksins og
úrvalslið þeira hefur oft komizt
langt í körfuknattleikskeppninni
sem háð er árlega innan varnar-
sveita Atlantshafsbandalagsins.
England vann
Spán
í GÆR kepptu England og Spánn
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar og fór leikurinn fram
í Madrid. England vann leikinn
4:2, eftir að leikurinn hafði stað-
ið 1:1 í hálfleik.
Bæði liðin voru skipuð atvinnu
mönnum, en það skal þó tekið
fram að eingöngu Spánverjar
skipuðu lið Spánar, þar sem
Spánn gat lögum samkvæmt
ekki notað hina erlendu knatt-
spyrnumenn, sem skipa beztu lið
Spánar svo sem Real Madrid og
Barcelona.
1
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
Þegar
hesturinn
bjargaði
riddar-
anum
fara í smá ökuferð. Þegar
ég segi við, þýðir það, að
átt er við alla fjölskyld-
una, þ.e.a.s. Amalíu og
mig og alla ungana, sem
eru sjö eða átta, lauslega
talið. Þá má ekki gleyma
ömmu gömlu, sem er
mamma Amalíu, og svo
öllum frændunum og
frænkunum, vinum og
vandamönnum Að öllu
meðtöldu vorum við 20—
30 manns. Gamli bílinn
tekur að vísu ekki svo
marga, en afganginn sett-
um við á vagn, sem var
bundinn aftan í bílinn
með kaðli Ennþá vantaði
þó sæti fyrir nokkra, en
þeir settust þá bara upp á
þakið, ofan á vélarhlíf-
ina, eða utan á aurbrett-
in. Það var orðið svo fullt
í framsætinu, að þar var
ekkert rúm fyrir mig,
sem átti að stýra. Eg varð
því að standa úti á brett-
inu, en Óli, sonur minn,
sat á gólfinu frammi í og
steig á bensínið eftir
þörfum.
Allt var nú tilbúið og
við lögðum af stað. Þeir
sem sátu á vélarhlífinni
æptu „víkið úr vegi“, og
þeir sem voru á þakinu
ráku upp sírenugól, eins
og lögreglan eða brunalið
ið væru á ferð. Fólk
stanzaði og horfði á eftir
okkur og sumir eltu. Bíll-
inn fór ekki svo hratt, að
hætta væri á, að þeir
drægjust mikið aftur úr.
Eins og gefur að skilja
var bíllinn mjög hlaðinn.
Amalía vegur rúm 100
kg., og svo var allt nestið
og teppin og leikföngin
handa krökkunum. Að
maður nú ekki tali um
allt fólkið Þegar við kom
um út úr bænum, slitnaði
vagninn aftan úr, og Óli,
sem átti þá að stanza,
var sofnaður með höfuðið
á benzíngjöfinni. Vitan-
lega gat enginn fundið
bremsurnar inni á milli
allra pakkanna og pinkl-
anna, sem staflað var á
gólfið. Fólkið í aftaní-
vagninum æpti og kallaði
en ekki dugði það til að
vekja Óla.
Hraðinn jókst nú og
brátt vorum við komnir
langt út í sveit. „Hérna
væri gott að borða“, köll-
uðu þeir, sem voru uppi
á þakinu, en það var ekki
hægt að stanza, því ÓIi
svaf ennþá.
Einhver sparkaði í end-
ann á honum, svo hann
vaknaði, en bíllinn stöðv
aðist ekki að heldur, því
að benzíngjafinn var nú
orðinn fastur og allt í
botni. Nú hófst ráðstefna
um, hvernig stöðva átti
bílinn. „ökum bara þar
til benzínið er búið“,
sagði einhver. Til allrar
hamingju komum við nú
að brattri brekku og á
leiðinni upp hægði bíll-
inn »vo á sér að allir
gátu klifrað út. En þegar
hann léttist jók hann aft-
ur ferðina og það var
með naumindum, að mér
tókst að stökkva upp í og
grípa stýrið.
Framhald.
ÆSIR og ÁSATRÚ
24. „Enginn af mínum
mönnum vill glíma við
aumingja eins og þig“,
sagði Útgarða-Loki „en
ég skal kalla á fóstru
mína, hana Elli gömlu,
hún hefur mörgum á kné
komið, sem voru sterk-
ari en þú“.
Þá gekk kerling ein í
höllina. Hún greip Þór
25. Eftir að glímunni
milli Þórs og Ellí var
lokið, gengu gestirnir til
fangbrögðum. Því harð-
ara, sem Þór sótti að
henni, því fastari var hún
á fótum. Loks tókst
henni með brögðum að
koma Þór á kné. Þá gekk
Útgarða-Loki á milli og
sagði, að nú væri full-
reynt með þeim, og Þór
þýddi ekki að etja kappi
við fleiri af sínum. mönn-
um.
borðs. Daginn eftir héldu
þeir heimleiðis, þegar að
loknum morgunverði. Út-
garða-Loki fylgdi þeirn á
leið, og þegar þeir voru
komnir út fyrir borgina,
spurði hann Þór, hvort
hann væri ánægður með
heimsókn sína til Út-
garðs.
„Siður en svo*, sagði
Þór, „jötnarnir hljóta að
halda, að ég sé lítill fyr-
ir mér“.
„Nú skal ég segja þér
eins og er“, sagði Út-
garða-Loki, „þú hefur
verið beittur sjónhverf-
ingum. Skrýmnir jötunn,
sem þú hittir í skóginum,
var ég sájlfur. Þegar þú
barðir mig höggin þrjú
með hamrinum, skýldi ég
mér á bak við fjall, —
sérðu fjallið þarna með
dalina þrjá? Það eru för
in eftir hamar þinn“.
★
Skrítlur
Kaupmaður: — Þessi
húfa er úr því bezta katt.
arskinni, sem hægt er að
fá.
Viðskiptavinurinn: —
Þolir hún ekki að blotna
í rigningu.
Kaupmaður: — Vitan-
lega. Haldið þér að kett-
irnir gangi með regnhlíf.
★
Jóhann: „Af hverju
ertu að vola?“
Litlibróðir: „Ég var að
taka úr mér tönn“.
Jóhann: „Það er þá
nokkuð til að væla yfir,
Pétur frændi tekur úr sér
allar tennurnar á hverju
kvöldi, án þess svo mikið
sem að gretta sig“.
*