Morgunblaðið - 05.11.1960, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.11.1960, Qupperneq 11
Laugardagur 5. nóv. 1960 MORCIJISBL ÁÐIÐ 11 77 Leikfélag Akraness: Þrír skálkar" i eftir Carl Gandrup Leiksf. Ragnhildur Sfeingrímsdóftir LKXKFÉLAG Akraness frum- sýndi fimmtudagskvöldið 27. okt. s.l. sjónleikinn Þrír skáikar, sem er gamansöngleikur í fimm þátt- um eftir Carl Gandrup, þýddur af Þorsteini Ö. Stephensen. Er þetta fyrsta verkefni félags- ins á þessu starfsári. Ekki þykir mér ástæða til að rekja hér sér- staklega efni gamanleiks þessa, enda mun það vera vel kunnugt flestum þeim, sem leikbókmennt- um unna, því að sjónleikur þessi hefur hvarvetna hlotið vinsælda og verið sýndur hér á landi öðru hverju frá því um 1930, auk þess sem hann var á sl. vori fluttur í útvarp. Mér er jafnan nokkur vandi á höndum þegar ég ræðst í að skrifa um leiksýningar sem þess- ar. Kemur þar ýmislegt til og þá ekki hvað sízt það, að gæta verður ítrustu hófsemi í gagn- rýni, þar sem eingöngu er um áhugafólk í leiklistinni að ræða, en ekki hálærða leikara. Auk þess er oftast nær meira og minna af algerum nýliðum í slíkum leik sýningum, og gildir um þá hið sama og allan nýgræðing, að mjög verður að fara um hann mildum höndum, ef hann á að blómgast og dafna og ná tilætluð- um þroska að minnsta kosti fyrst í stað. En þrátt fyrir ýmsa vankanta, tel ég leikstarfsemi sem þessa hafa svo mikið menningargildi, sé sæmilega vandað til verkefna, að fremur beri að hlúa að henni en rífa hana niður. Því er það, að ég hef jafnan tekið þann kost- inn að geta fyrst og fremst þess, sem vel er gert, en eyða færri orðum að hinu. Eru því þessar greinar mínar fremur í frétta- skyni ritaðar en að þær beri að skoða sem leiklistargagnrýni. Ætla ég svo ekki að hafa þenn- an formála lengri en snúa mér heldur beint að efninu. Svo sem að framan er getið, annaðist leikstjórnina að þessu sinni ungfrú Ragnhildur Stein- grímsdóttir. Hún er þegar lands- kunn sem duglegur leikstjóri, og geta Akurnesingar um það dæmt ýmsum öðrum betur, þar sem hún hefur tvívegis áður haft hér leikstjórn á hendi við góðan orð- stír. Ekki fæ ég betur séð en að leikstjórinn hafi unnið vel og sam vizkusamlega sitt verk. Er svið- setning leiksins góð, en ekki var frítt við að stundum örlaði á ónógri kunnáttu hjá sumum leik- aranna. Má vera að sú hafi með- al annars verið orsökin til þess að ég var ekki fullkomlega ánægð ur með heildarsvip leiksins. Tel ég, að betur hafi farið á því, að meiri léttleiki og hraði hefði ver- ið í sýningunni. En skylt er að hafa í huga, að það er engan veginn létt verk að þjálfa Itt vana eða algerlega óvana leik- ara, jafn fjölmennan hóp og hér um ræðir, svo að úr verði vei samræmd heild. Hygg ég, að það sem fyrst og fremst vantaði, hafi verið 2—3 aefingar í viðbót áð- ur en frumsýnt var. En slíkt er ekki ætíð hægt að kenna leik- stjóranum, sem jafnan hefur af- markaðan tíma til umráða á hverjum stað. Skálkana þrjá, þá Kurt söngv- ara, Bertel umferðasala og Diðrik skottulækni léku þeir Þorsteinn Ragnarsson, Júlíus Kolbeins og Sigurður B. Sigurðsson. Tel ég, að leikur Þorsteins í elskhugahlutverki sínu sem Kurt söngvari, hafi verið eðlilegur og með því bezta, sem sézt hefur hér af því tagi, en siík hlutverk eru jafnan vandmeðfarin. En miður vel tókst Þorsteini söngurinn, og bygg ég að þar megi að verulegu leyti um kenna sviðsskrekk, enda mun hann með öllu óvanur að syngja einsöng. Leikur Júlíusar Kolbeins í hlut verki Bertels umferðasala var yfirleitt prýðilega af hendi leyst ur og tvímælalaust það bezta, sem hann hefur gert á leiksviði hér. Þá gerði Sigurður B. Sigurðs- son margt vel í hlutverki Diðriks skottulæknis, en þó tel ég, að mun meira hefði mátt úr því hlutverki gera. Bar nokkuð á ó- nógri kunnáttu hjá honum. Magnús Villi Vilhjálmsson leik ur Óla gráa malara. Verður per- sónan í meðferð Magnúsar eðli- leg og sönn, og slíkt er aðall góðra leikara að ýkja ekki né af- skræma. Ungfrú Elísabet Proppé leikur Mettu, dóttur Óla gráa. Skilar hún hlutverki sínu vel, ekki sízt þegar þess er gætt, að hún er alger nýliði á leiksviði. Skýrari mætti þó framburður hennar vera. Frú Sólrún Ingvadóttir leikur Nuri spákerlingu. Hún er eng- Aðalfundur Sfefnis félags ungra Sjálfsfæðismanna i Hafnai firði STEFNIR, félag ungra Sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði, hélt aðalfund sinn þriðjudaginn 25. október síðastliðinn. Á fundinum fóru fram venju- leg aðalfundarstörf. Formaður félagsins, Árni Grétar Finnsson, flutti skýrslu um starfserftina á liðnu ári. Mjög mikil gróska var í félagsstarfinu. Málfundir voru haldnir hálfsmánaðarlega yfir vetrarmánuðina. Þá gekkst félagið fyrir kvöldvökum, skemmtikvöldum og tómstunda- kvöldum og var þátttaka yfir- leitt mjög góð. Yfir 50 nýir fé- lagar gengu í Stefni á árinu og hefur félagatalan aldrei verið hærri en nú. Að skýrslu formanns lokinni voru lesnir upp og samþykktir serstakrar umsagnar, en hafa þó reikningar félagsins. sína þýðingu fyrir heildarsvip ' leiksins. Leiktjöld hefur Lárus Ingólfs- son málað af mikilli prýði Ljósa- Til vinstri Bogi Sigurðsson, sem Lási lærlingur böðuls- ins og Hannes Jónsson sem meistari Jokkum böðull. meistarar eru þeir Jóhannes GunnarsSon og Garðar Óskarsson. Leysa þeir hlutverk sitt af hendi með hinum mestu ágætum. Minn ist ég þess ekki að hafa séð ljós kunnáttusamlegar notuð eða snilldarlegar við leiksýningar hér. Leiksviðsstjóri er Gísli Sigurðs son, sem einnig hefur annazt leik tjaldasmiði ásamt þeim Inðibergi Árnasyni, aðstoðarmanni á leik- IÞá fór fram kosning stjórnar fyrir næsta starfsár, og er hún I þannig skipuð: Formaður Árni Grétar Finnsson, meðstjórnend- ur: Þór Gunnarsson, Guðlaug Kristinsdóttir, Sigurður Þórðar- son og Reimar Sigurðsson. Vara stjórn skipa: Sveinn Guðbjarts- son, Erlendur Guðmundsson og Kristján Loftsson. Endurskoðendur voru kosnir þeir Alexander Alexandersson og Einar Sigurðsson. — Þá var kosið í fulltrúaráð Sjálfstæðis- félaganna. Að loknum aðalfundarstörf- um var kosið í ýmsar nefndir, sem starfa á vegum félagsins, og eru þær þannig skipaðar: Málfundanefnd: Arngrímur Guðjónsson, Einar Þ. Mathie- sen, Illugi Óskarsson, Alexánder Alexandersson og Skúli Þórs- son. Skemmtinefnd: Ragnar Magn- Atriði úr „Þrír skálkar“ — f. v. (liggjandi): Alfreð Einars- son sem Istru-Morten (standandi), Sólrún Ingvadóttir sem Núrí, Sigurður B. Sigurðsson, sem Diðrik og Júlíus Kolbeins sem Bertel. — inn viðvaningur á leiksviðinu, enda skilar hún hlutverki sínu með sæmd. Var þó gervi hennar, og tilburðir stundum í unglegra lagi. Sólrún hefur oft áður sýnt ótvíræða hæfileika sína < vanda- sömum hlutverkum. Alfreð Einarsson leikur Morten Tipperup af góðum skilningi og nokkrum tilþrifum. Er hann enda orðinn sviðsvanur vel. Garðar Óskarsson leikur fóget- ann í Sæborg, Hulda Ágústsdótt- ir leikur séra Kaspar Twist, Hann es Jónsson leikur meistara Jochum böðul, Bogi Sigurðsson leikur Lása lærling hans og ung- frú Guðrún Gústafsdóttir ieikur Möllu Skrepp. Eru þetta al'.t fremur lítil hlutverk en yfirleitt þokkalega með þau farið. At- hyglisverðan tel ég leik Hannes- ar Jónssonar í hlutverki böðuls- ins, sem verður eftirminnilegur i meðferð hans. Er hið bezta sam- ræmi í gervi hans og látbragði. Förumenn og fólk úr Sæborg- arsókn leika þau frú Sigríður Sigmundsdóttir, ungfrú Svala Ingvarsdóttir, ungfrú Sigríður Adda Ingvarsdóttir, ungfrú Bryn- dís Þorvaldsdóttir, ungfrú Guð- rún Vilhjálmsdóttir, Ólafur J. Þórðarson og Bergmann Þor- leifsson. Eru þetta allt lítil hlut- verk, sem ekki gefa tilefni til ússon, Stefán Ævar Guðmunds- son, Guðrún Madsen, Ragnar Jónsson, Kolbrún Jónsdóttir, Ottar Proppé, Hrönn Kjartans- dóttir og Júlí Sæberg. Kvöldvökunefnd: Þorgrímur Halldórsson, Jens Jónsson, Matthias Mathiesen, Sigurjón Gunnarsson og Jóhann Karls- son. Tómstundanefnd: Einar Þ. Mathiesen, Þórir Jónsson, Er- lendur Guðmundsson, Egill Svanur Egilsson, Magnús Magn- ússon, Jón Vignir Karlsson, Lúðvík Gunnarsson, Matthías Mathiesen, Hermóður Sigurðs- son, Oddrún Guðsveinsdóttir, Þórður Sigurðsson og Ólafur Ólafsson. Ferðanefnd: Þór Gunnarsson, Jóhannes Sæmundsson, Illugi Óskarsson, Erlendur Guðmunds- son, Sveinn Guðbjartsson, Svala Óskarsdóttir og Edvard J. Fred- reksen. Að lokum fóru fram umræð- ur um félagsmál. Tóku margir til máls og var mikill áhugi ríkjandi á því að vinna ötul- lega að eflingu félagsins á kom- andi vetri. Fundurinn var mjög fjölmenn ur. Fundarstjóri var Þorgrímur Halldórsson og fundarritari Alexander Alexandersson. Norðurleið Til Akureyrar: Þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga. sviði, og Lárusi Árnasyni. Undirleik við söngvana í leikn um annast frú Sigríður Auðuns á píanó og Grétar Jónsson á blokk * flautu. j Hárgreiðslu annast frá Ragn- heiður G. Möller og andlitsförðun j ungfrú Gunnur Axelsðóttir. Hvísl ari er ungfrú Margrét Valtýsdótt- ir. Búninga lánaði Þjóðleikhúsið. Bíóhöllin var fullskipuð áhorf- I endum á frumsýningunni og létu leikhússgestir óspart í ljós á- j nægju sína með öflugu lófataki l og var leikstjórinn sæmdur fögr' um blómvendi. Enginn veit, nema sá sem í því stendur, hversu mikla fyrirhöfn I og f jármuni ein leiksýning kostar. ‘ Erfiðið leggja leikendur og stjórn leikfélagsins á sig hverju sinni endurgjaldslaust til þess að auka þætti í skemmtana- og menning- arlífi þessa staðar. Nú er það okk ar allra hinna að sækja svo vel sýningar leikfélagsins, að það verði ekki tilneytt að hætta með öllu starfsemi sinni vegna fjár- hagsöðugleika. Það er ekki allt betra sem að er fengið. Verum samtaka um að efla og styrkja hverskonar menningarsbarfsemi í bæ okkar, en látum ekki tóm- i læti verða henni fjötur um fót. Valgarður Kristjánsson. j heldur Stýrimannaskólinn í Sjómannaskólanum í kvöld kl. 9. Góð hljóinsveit. HALLÓ! HALLÓ! Telpupils á 1-10 ára 150 kr Drengjapeysur. Vinnuskyrtur 65.00. Barnasokkar. Sokkahlífar. Sokkabuxur. Kvenblússur úr „popline“ og Blúndur. Kvensundbolir, allar stærðir. Kvenpeysur Kvengolftreyjur, allar stærðir o. m. m. fl. Nærfataverksmiðjan Lilla h.f. Smásala — Víðimel 63 6-10 ferm. gufuketill óskast keyptur. — Upplýsingar í KORKIÐJUNNI H.F. — Sími 14231 bbbbbbbbbbbbbtÍDbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb b STJÖRNULYKLASETT STAKIR STJÖRNULYKLAR TOPPLYKLASETT STAKIR TOPPLYKLAR HANDVERKFÆRI í miklu úrvali Qy ggingavörur h.f. Siml 35697 Laugove^ 178 b b b b b b b b b b b

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.