Morgunblaðið - 05.11.1960, Side 13
Laugardagur 5. nóv. 1960
MORGUNBLAÐlh
13
Dennis
Bloodwarth
TVENNT er það, sem ráða mun
mestu um stefnuna í alþjóðleg-
ttm viðskiptum á árinu 1961, es
það er fundur þeirra Krúsjeffs
og Mao Tse-tungs í Peking og
ráðstefna leiðtoga Kommunista-
fl. í Moskvu, 9. nóvemiber.
Margt virðist benda ti'l þess
að hin árásargjarna framkoma
Krúsjeffs hjá Sameinuðu þjóðun
um stafi fremur af ósamkomu-
lagi innan Sovétríkjasambands-
ins, en persónulegum vilja hans
til að auka alþjóðaspennuna.
Nokkra síðastliðna mánuði
hafa Kínverjar ráðizt á þá skoð-
un Sovétríkjanna, eins og frá-
leitan hugarburð, að styrjold sé
ekki lengur óumflýjanleg, að
mögulegt sé að hafa friðsamleg
samskipti við „Heijasvaldasinn-
ana“ með samningum og að hægt
sé að berjast fyrir málefnum
hins alþjóðlega kommúnisma,
hlóðsúthellingalaust, í andrúms-
lofti friðsamlegrar sambúðar.
Krúsjeff
hefur held-
ur viljað
láta aðra
hita sér en
hita
öðrum
sjálfur
sína eigin björgun, vegna þess,
að með ört vaxandi íbúafjölda,
sem mun komast upp í þúsund
millj. fyrir lok þessarrar aldar,
geta þeir ekki verið takmarkaðir
óendanlega af hinum efnahags-
Iegu og pólitísku takmörkum, er
óvinveittur heimur setur þeim,
eða kúgaðir af ógnun þess hern-
aðarlega varnarhrings, sem
Bandaríkin hafa reynt að loka
þá inni í.
Frá því árið 1958 hafa Kínverj
ar barizt ákaft gegn hugmynd-
inni um toppfund og vel má því
vera, að Mao hafi átt sinn þátt í
hinni ruddalegu framkomu Kru-
sjeffs á Parísarfundinum 1960.
Sú staðreynd að Krusjeff er
Krusjeff, stuðlar á engan hátt
að því, að sættir takizt milli
Moskvu og Peking. Við hátíða-
höldin 1. október var hið stóra
torg hins himneska friðar í Pek
ing skreytt með risastórum
myndum af Marx, Lenin, Engels,
Stalin, Sun Yat Sen (stofnanda
kínverska lýðveldisins) og Mao
Tse-tung. Það var myndasafn af
byltinga-hugsuðum og meðal
þeirra átti Mao, byggingameist-
ari kínversku byltingarinnar,
Atðkin milli Mao og Krúsjeffs
sinn stað sem nánasti arftaki, en
Krúsjeff ekki. í augum Kínverja
hefur Krúsjeff orðið eftirmaður
Stalins um stundarsakir, vegna
frábærrar leikni sinnar í brögð-
um og undirferli. En fyrir Mao
Tse-tung er það engin sönnun á
því, að hann sé hinn rétti og
verðugi valdhafi í Kreml.
Horfurnar á rólegri og ókvíðn-
ari heimi á komandi ári verða
að mjög miklu leyti undir því
komnar, hvernig Krusjeff tekst
að koma vilja sínum fram við
Mao á hinum fyrirhuguðu fund-
um í höfuðborgunum tveimur.
(Observer. Öll réttindi áskilin)
fyrri grein
Pekingstjórnin, sem heldur því
fram að styrjöld sé óhjákvæmi-
leg, samkvæmt kenningu Lenins,
hefur lýst því yfir, að Heims-
veldasinnar séu villidýr og eðli
þeirra breytist ekki. Það sé því
hættuleg heimska að reyna að
komast að samkomulagi við þá.
og einungis stöðug byltingasinn-
uð barátta gegn- auðvaldsöflun-
um geti skapað komm.úniskan
heim.
í júlí skírskotaði Krúsjeff til
stuðningsmanna kínverskra sjón
armiðsins, er hann sagði: „Hver
sá sem heldur að kommúnisminn
verði efldur með styrjöld á
heima á geðveikrahæli". Og
Rússar hafa ráðizt á Kínverja
fyrir hið kreddufasta fylgi þeirra
við Lenínsku kenningarnar, sem
þróun síðustu 40 áranna hafi ó-
nýtt með öllu. Kínverjar hafa
hinsvegar mælt fastlega með því
að „allar tilraunir til að breyta
eða berjast gegn kenningum
Lenins verði algerlega kveðnar
niður“, og þeir hafa ásakað Krú-
sjeff fyrir það, að honum hafi
mistekizt að skilja sjálfan sig frá
„endurskoðunarstefnu í þjónustu
Heimsveldisstefnunnar".
Allt til septemfoerloka héldu
kommúnisku höfuðborgirnar
tvær áfram að skiptast á skot-
hríðum í orðum og aðrar at-
vikslegar sannanir voru til-
greindar til að sýna hversu sam-
bnndið þeirra á milli hafði versn
að.
Um 3,000 af 11,000 rússnesk-
um tæknilegum ráðunautum í
Kína, tóku saman pjönkur sínar
og fóru úr landi. Kinveriar tóku
ekki þátt í Austurlandaþinginu í
Mosvu í síðastliðnum mánuði.
Engir háttsettir opinberir Sovét-
fulltrúar voru viðstaddir á há-
tíðahöldunum í tilefni af ellefta
árdegi kínverska alþýðulýðveld-
isins, hinn 1. október. Rúmið fyr-
ir Sovét-fréttir í kinverskum
blöðum minn'kaði um helming
yfir sumarið. Báðir kommúnista-
flokkarnir, rússneski og kín-
verski, voru sagðir leita til allra
annarra, eftir stuðningi við hin
gasnstæðu sjónarmið sín.
Þessi deila er einstök i sögu
knmmúnistahreyfingarinnar, frá
því er Stalín komst til valda.
Það er deila milli kommúnista-
leiðtoga, sem hvorugur getur
drepið, útlægt eða sannfært hinn.
Krúsjeff hefur losað sig við fyrri
keppinauta sína í Sovétríkjun-
um, en hann veit að hann getur
ekki útrýmt Mao. Hann verður
því að komast að samkomulagi
við hann.
Sá möguleiki er heldur ekki
til, að deilunni ljúki með því að
Mao taki Tito sér til fyrirmynd-
ar. Formaður kínverska flokks-
ins er forvígismaður „samábyrgð
ar og samstöðu kommúnisku
landanna". Hann er raunveru-
lega keppinautur — keppinautur
Krúsjeffs um hugsjónalega for-
ystu í hinum socíaliska heimi. En
það er ekki rúm fyrir tvær við-
urkenndar „Flokkslínur" í
kommúnisku herbúðunum, frem
ur en það er rúm fyrir tvo páfa
innan katólsku kirkjunnar. Ef
viðurkenndar væru tvær gagn-
stæðar skoðanir á kommúniskri
herstjórnarlist og hlutverki, þá
væri Sovétríkjasambandið í
hættu statt, ekki einungis vegna
klofnunar, heldur algerðrar eyð-
ingar.
Mao á sína fylgjendur í komm
únistaflokknum annarra sov-
ezkra ríkja, einkum í Austur-
Þýzkalandi og gera má fastlega
ráð fyrir því, að hann geti reitt
sig á stuðning í hinum frjálsa
heimi. f fyrsta lagi, þá telur
hann að þessum flokkum eigi að
hjálpa og styðja þá í hinum
byltigarsinnuðu áformum þeirra
meðan Krúsjeff er hinsvegar
meðmæltur vinsamlegri sambúð
við „borgaraleg" ríki. í öðru lagi
vilja Kínverjar að kommúnista-
flokkar utan Sovétlandanna
sendi fulltrúa á fyrirhugaða ráð-
stefnu í Moskvu, þar sem Rússar
kjósg hinsvegar að takmarka
þátttökuna við fulltrúa frá
flokkum innan Sovétríkjasam-
bandsins.
Til þess að halda Sovétríkjun-
um saman, hefur Krúsjeff valið
erfiðustu og óbilgjönustu aðferð-
ina, sem hann gat, í New York,
og gengið langt til þess að sanna
að hann hafi ekki í hyggju að
gefast upp fyrir auðvaldsheim-
inum. Hin óbeina hótun hans um
úrsögn úr samtökum hinna Sam
einuðu þjóða, sú fullyrðing hans
að afvopnun komi ekki til greina
ef Kínverjum verður ekki leyfð
þátttaka og aðrar hrokafullar yf-
irlýsingar hans og kröfur hafa
verið vel til þess fallnar að end-
urvekja traust Pekingstjórnar-
innar.
Menn hafa líka orðið varir við
yfirborðsleg merki um vaxandi
vinsemd og hollustu í framkomu
Kínverja gagnvart Moskvustjórn
inni. Á hátíðahöldunum í Pek-
ing, 1. október, lögðu ræðumenn
áherzlu á forgöngu Kína í frið-
samlegri sambúð, á Kínversk-
sovézka samstöðu og á viður-
kenningu Kínverja á „forystu
Sovétríkjanna". Einnig hafa rit
Mao Tse-tungs, frá árunum
1945—1949, hlotið talsverða út-
breiðslu nýlega. En í þeim sagði
hann að hægt væri að útiloka
hættuna á þriðju heimsstyrjöld
og, að í sumum málum — jafn-
vel þeim þýðingarmestu — gæAu
heimsveldasinnuð og sósíalisk
ríki komizt að samkomulagi.
En þessum ytri merkjum um
hollustu Kínverja við tíllögur
Krúsjeffs skyldi varlega trúað.
Hinn Kínversk-sovézki skoðana-
munur á sér dýpri rætur og
lengri aldur, en ágreiningur
þeirra á þessu ári.
Sovétríkin eru stórt og vold-
ugt heimsveldi, sem hefur miklu
minna að græða og meini að
tapa með því að taka upp áhættu
samá og byltingarkennda stjórn
arstefnu, en Kína, hið vantreysta
og vanvirta ríki, sem berst fyrir
viðurkenningu. Sovétríkin eru
háþróað iðnaðarland, þar sem
Kína verður hinsvegar að pína
milljónir sínar til svita og sjálfs
fórna og leiðtogar þess geta bezt
réttlætt svipuhögg sín í andrúms
lofti alþjóðlegrar spennu.
Kína er ennþá skipt land og
meginhluta þess er ógnað af þjóð
ernissinnastjórninni á Formósu,
vegna efnahagslegrar og hernað-
arlegrar aðstoðar Bandaríkjanna
við Chang Kai-shek.
Kínverjar kæra sig því ekkert
um að halda í þetta status quo
(sama ástand og áður) og þeir
líta á tilraunir Krúsjeffs til að
styðja alþjóða-skútuna, með ó-
blandinni tortryggni. Það er af-
skaplegt verkefni að byggja upp
nýtt Kína og því meiri efnahags-
aðstoð, sem Sovétríkin veita ó-
háðum löndum, þeim mun minna
geta þau látið af mörkum við
Pekingstjórnina. Rússland hefur
ekki veitt Kína lán til langs tíma
síðan 1941. Kínverjar verða stöð
ugt að herða meira og meira að
sér sultarólina, þar sem mestur
hlutinn af framleiðslu þeirra,
einkum landbúnaðarafurðir og
vefnaðarvörur, fer til USSR, sem
greiðsla fyrir rússneskar vélar og
tæknilega aðstoð, er þeir þörfn-
uðust við uppbyggingu næstum
300 iðnfyrirtækja.
Kínverjar trúa ekki aðeins á
kommúniska heimsbyltingu, held
ur treysta þeir líka á hana, sem
Mao'
Kvikmyndasýn-
in» Germaniu
FRAMHALD verður á kvik-
myndasýningum Germaníu, og
er næsta sýning í dag, laug-
ardag í Nýja Bíó. Sýndar verða
að venju frétta- og fræðslumynd
ir.
Fréttamyndirnar, sem sýndar
eru á kvikmyndasýningum fé-
lagsins verða æ vinsælli meðal
almennings, enda sést þar í stutt
um svipmyndum allt hið mark-
verðasta og fréttnæmasta, sem á
sér stað í hjarta Evrópu og nú
verða sýndar myndir af atburð-
um frá liðnu vori og sumri.
Fræðslumyndirnar verða tvær.
Önnur er um tómstundavinnu
ungra og gamalla. Eru verkefnin,
sem tekin eru fyrir, hin margvís-
legustu og þeir, sem að þeim
vinna, úr öllum stéttum þjóðfé-
lagsins. Hvíld frá daglegu starfi
er oft bezt fengin með nýju starfi
gerólíku hinu fyrra. Og tóm-
stundirnar verða hvarvetna
lengri og lengri vegna styttingar
vinnutímans við margvísleg störf.
Hvað er hægt að taka sér fyrir
hendur á þessum stundum? Mynd
in gefur nokkra vísbendingu í því
efni.
Hin fræðslumyndin er um
skipulagningu og byggingu borg
ar í Ruhrhéruðunum, sem
byggð var frá grunni.
Sýningin hefst kl. 2 e.h. og er
öllum heimill aðgangur, börnum
þó aðeins í fylgd með fullorðn-
Fróðleg kynnisferð á
vegum SH til Ameríku
I SÍÐUSTU viku bauð stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna 9 útgerðar og frystihúsa-
mönnum og tveimur blaðamönn-
um í kynnisferð til að ski.ða
starfsemi og sérstaklega fisk-
verksmiðjur fyrirtækisins í Eag
landi og Bandaríkjunum.
Meðal þess sem skoðað var,
má nefna hina stóru fisksuðu-
verksmiðju, sem Coldwater, dótt
arfélag Sölumiðstöðvarinnar
hefur komið sér upp í bænum
Nanticoke í Maryland-fylki í
Bandaríkjunum. Vakti starfið
þar óskipta athygli þáttakend-
anna, því að þar er fólginn einn
merkilegasti þátturinn í að
tryggja íslenzkum fiskafurðum
.öruggan markað í Bandaríkjun-
um í framtíðinm, það er fram-
leiðsla á tilbúnum fiskréttum,
fishsticks og fiskkökum. Eftir-
spurnin eftir þessari framleiðslu
Coldwater fer svo ört vaxandi,
að á næsta ári er fyrirsjáanlegt,
að þessi verksmiðja mun ekki
geta fullnægt henni.
Allir þátttakendur í ferðinni
luku upp einum rómi um að hún
hefði orðið þeim mjög ti' fróð-
leiks. Framleiðendum heima á
íslandi hefur ekki fyrr verið
gefin nslíkur kostur á að sjá,
hvemig varan er seld og með-
höndluð í markaðslandinu. Létu
menn það í ljósi, að það væii
þarflegt að fjlöga slíkum k/nn-
ingarferðum og mynda sem
traustast samband milli fram-
leiðendanna og þeirra, sem ann-
ast fisksölurnar erlendis.
Jón Gunnarsson framkvæmda
stjóri SH. var fararstjóri í ferð
þessari, en aðrir þátttakendur
voru: Björn G Björnsson frá
Sænska frystihúsinu, Einar Stein
dórsson frá Hnífsdal, Ingvar Vil
hjálmsson frá Isbiminum, Jó-
hann Sigfússon úr Hafnarfirði,
Jóhannes Stefánsson frá Norð-
firði, Ólafur Þórðarson forstjóti
Jökla hf„ Stur augur Böðvars-
son frá Akranesi og Sverrir Júl-
íusson formaður LÍÚ. Blaða-
mennirnir tveir voru Biörgvm
Guðmundsson frá Alþýðublað-
inu og Þorsteinn Thorarensen
frá Morgunblaðinu.
Sjálf kynnisferðin tók rétta
viku. Vor dagleiðir í henni oft
ærið strangar. svo sem þegar
ekið var mörg hundruð km leið
frá New York r.iður til verk-
smiðjunnar í Nanticoke Síðar
ákváðu bátttakendurnir að dvelj
ast enn nokkra stund í New
York, enda höfðu fæstir nokkru
sinni til Bandaríkjanna konrið og
einn þeirra aldrei áður út fyrir
landsteinana. Nokkrir þátttak-
enda komu heim í gærmorgun.
Fréttamaður Mbl. mun síðar
gerina nánar frá því sem fyrir
augu bar í ferðinni