Morgunblaðið - 05.11.1960, Page 22

Morgunblaðið - 05.11.1960, Page 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 5. nóv. 1960 „Rok”-afrek í kringlukasti Þá brustu vonir KRINGLUKASTARAR hafa ekki gefizt upp við æfingar enn, þótt nokkuð kalt sé orð- ið í veðri. í gær fóru fram tvö inannfélagsmót í kringiu- kasti á Melavellinum og kom glögglega í ljós að rokið er eftirlætis keppnisveður þeirra kringlukastaranna. — Glímufélagið Ármann stóð fyrir fyrra mótinu og náði þá Hallgrímur Jónsson þeim frábæra árangri að kasta kringlunni 53.64 metra. Fræðslufundir um frjdlsur íþróttir A MORGUN efnir Útbreiðslu- nefnd Frjálsíþróttasambands Is- lands til fræðslu og útbreiðslu- fundá á Selfossi og Akranesi, hefjast báðir fundirnir kl. 16 síðdegis. Fundurinn á Selfossi fer fram í Iðnskólahúsinu, en þar mun Benedikt Jakobsson flytja erindi um þjálfun, sýnd verður kvik- mynd og auk þess mun einhver kunnur íþróttamaður verða með Benedikt og mun hann ræða við hann um þjálfun. Á Akranesi verður fundurinn í íþróttahúsinu og þar flytur Guð- mundur Þórarinsson erindi, en auk þess mun Vilhjálmur Ein- arsson ræða um þjálfun og per- sónulega reynslu á því sviði. — Eihnig verður sýnd íþróttakiiík- mynd. T ékkar vinna Dani ÞAÐ eru fleiri en isl. hand- knattleiksmenn sem hafa heimsókn tékkneskra hand- knattleiksmanna. Tékkneska liðið Dukla frá Prag er i keppnisferð um Danmörku. Það lék fyrsta leik sinn á miðvikudaginn og mætti þá Koldings Idrætsforening, en 'það lið er í 2. deild danska handknattleiksins. Tékkamir unnu yfirburða- sigur, skoruðu 29 mörk gegn 17. í hálfleik stóð 15 gegn 7. Þess má geta að liðið sem er hér í Reykjavík, Gottwal- dow er meistari Tékkóslóva- kíu 1960 .Það lið og Dukla frá Prag hafa á undanfömum áT- um barizt harðri baráttu um meistaratitilinn og unnið hann til skiptis. Með leik þess ara liða hér og í Danmörku fæst því nokkur samanburður á íslendingum og Dönum — eftir því sem takandi er mark á slíkum samanburði miðað við húsnæðisvandræðin hér. ★ Hjá ÍR ÍR hafði einnig auglýst mót og meðan Hallgrímur var að kasta, safnaði Þorsteinn Löve höfuðkempa ÍR-inganna andleg- um og líkamlegum kröftum, í því augnamiði að hnekkja hin- um góða árangri Hallgríms, en eins og menn vita, þá er ávallt hin mesta keppni meðal beztu kringlukastaranna og oft meiri en góðu hófi gegnir. Og Þorsteinn lét ekki á sér standa og varpaði kringlunni 53,91 metra, en áður hafði hann náð bezt í sumar rúm- um 50 metrum, og var það í Danmörku. Þegar stangarstökkvarar sem mættu til keppni í Róm voru að undirbúa sig fyrir undankeppn- ina,' mæla atrennubraut og taka reynslustökk, varð einn þeirra fyrir óhappi.. Það var Rússinn Bulatov, einn bezti maður þeirra. Hann snerist mjög illa á ökla er hann lenti í gryfjunni. Varð að flytja hann í sjúkrahús og leikarnir urðu vonbrigði fyrir hann. Hann var fyrirfram lík- legur til að verða einn af sex fyrstu mönnum. Hér sjást aðrir keppendur hlaupa til að aðstoða hinn slasaða. Salarþrengslin hindruðu Tékkana i fyrri hálfleik Unnu yfirburðasigur 21; 13 yfir Víking Tékknesku * handknattleiks. | Leikurinn var hraður, jafn og meistararnir, Gottwaldow léku j spennandi. I hálfleik stóðu Ieik. fyrsta leik sinn hér á landi við,ar 7:7 en úrslit lciksins urðu gestgjafa sina „Viking“ í gær- , ’ kvöldi, að Hálogalandi. '22:13 fyrir tékkneska liðið. Hér birtast síðbúnar myndir af yngsta og elsta þátttakendanum í norrænu sundkeppninni á fsa- firði. Um 33% ísfirðinga syntu 200 metrana að þessu sinni og er það um 2% fleiri en árið 1957, en þá hafði ísafjörður hæstu hlut fallstölu þátttakenda í kaupstöð- um landsins. Að meðaltali 70% af skólafólki tók nú þátt í sundinu. Bæjar- stjórn ísafjarðar hét verðlaunum yngsta og elzta bæjarbúanum í keppninni. Á meðfylgjandi mynd sjást verðlaunahafarnir, þeir Kon ráð Eyjólfsson nýlega orðinn 6 ára og Guðmundur Björnsson, kaupmaður, 72 ára. Þess má og geta, að næstelzti keppandinn var Konráð Jensson, veitinga- maður, en hann er afi Konráðs litla, sem fyrr er getið. Elzta kon an sem synti hér, Þuríður Vigfús dóttir, er 59 ara. ★ Sterkt lið. Víkingar mættu til ieiksins með styrktu liði og kom sér það vel. Lánsmenmrnir Karl Jó- hannsson. KR, Pétur Antonsson, F. H. og Sólmundur Jónsson, Val, báru hita og þunga leiks- ins, fyrir Víkinga, ef svo mætti að orði kveða. Karl skoraði 7 mörk þeirra og Pétur 4, en Sól- mundur varði markið með frá- bærri prýði, svo oft var unun á að horfa. Aðrir, sem skoruðd mörk Víkings voru Björn Krist- jánsson og Sigurður Bjarnason, sem skoruðu sitt markið hvor. ★ Þröngur salur Gottwaldow mennirnir voru Iengi að átta sig á hinu þrönga gólfi að Hálogalandi, og má segja að liðið hafi ekki náð sínu bezta fyrr en í síðari hálfleiknum, en þá voru líka yfirburðir Tékkanna miklir. Tékknesku handknattleiks- mennirnir eru augsýnileg þraut þjálfað lið og lítið dæmi er þess að allir leikmennirnir nema markmaðurinn skoruðu mörk í leiknum. Flest mörk skor- aði Vanécek (Nr. 1). Hann skor- aði 5 mörk. Næstur kom Provazník með 4 mörk og þá Rúza með 3 mörk, Kukula (Nr. 7) skoraði einnig 3 mörk og So- bora (Nr. 10) og Kostik (Nr. 11) skoruðu 2, aðrir leikmenn eitt mark hver. A Landsliðsmenn Rúza og Provaznik léku báðir í landsliði Tékka í heimsmeistara keppninni 1958. — Þeir voru og mjög áberandi góðir í þessum leik, en jafnbeztur leikmaður liðsins var markmaðurinn Stekl (Dolezal). Rólegur og öruggur og sást aldrei bregða skapi. Leikurinn var oft mjög hraður og færðist stundum nokkur harka í leikinn, en yfirleitt var leikurinn skemmtilegur og vel leikinn af báðum liðum. Víkingar mega vel við una þessum úrslitum, en áhorfendur bíða með eftirvæntingu leiksins á morgun er Reykjavíkurúrvalið mætir Tékkunum að Háloga- landi . Manch. United ”slegið út“ HIÐ FRÆGA enska knattspyrnu lið Manehester United átti ekki láni að fagna í nýju ensku bikar. keppninni. í annari umferð keppninnar tapaði liðið algerlega óvænt fyrir Bradford með 2 gegn 1. Keppnin er úrsláttarkeppni og liðið þar með úr keppninni. IUarkmaðurinn skipti um skó I leiknum KEPPNIN um Evrópubikarinn í! knattspyrnu er nú í fullum gangi. Á miðvikudag mættust í Máim-' ey liðin CDNA frá Búlgaríu og lið IFK Malmey. Leikurinn var lélegur — og Malmey vann 1-0. En önnur atriði gerðu leikinn sögulegan. Rétt áður en leikurinn hófst var fulltrúi Evrópusambandsins kvaddur til búningsklefa vegna deilu milli leikmanna og dótn- ara. Fulitrúi E-ráðsins var Erik Hyldstrup framkvæmdastjóri danska knattspyrnuliðsins. Þýzki dómarinn í leiknum sagði að of langir takkar væru á skóm Búlgaranna og væru þeir ólöglegir. Niðurstaðan varð, að takkar þóftu helzt til Iangir hjá markverði og einum framherja. Var fallizt á að þeir fengju að nota skóna, en gæta sín í návígj- um. Þessi var niðurstaðan, þar sem Búlgararnir kváðust ekki geta leikið á öðrum skóm en þessum. _En dómarinn sá ekki að mark maðurinn hafði aðra skó með- ferðis — þó hann leyndi þeim. Þá skó hafði hann með sér út á völlinn og þar sem hann kunni ekki við löngu takkana, skipti hann um skó í leiknum. Það sá dómarinn ekki. en margii aðrir undruðust óhreinlyndi markvarð arins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.