Morgunblaðið - 08.11.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.11.1960, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 8. nóv. 1960 MORGUHBLAÐIÐ 5 MENN 06 = malefni= í frétt hér í blaðinu á dög- unum var skýrt frá því, að Bergur Lárusson frá Kirkju- bæjarklaustri hefði aflað sér Ieyfis, til þess að leita að flaki hollenzks kaupfars, sem talið er hafa strandað um 20 km. fyrir vestan Ingólfshöfða árið 1667. Var skipið á leið frá Austur-Indíum til Hol- lands og þykir mönnum sjálf- sagrt fróðleg-t að vita hvað bar það upp að íslandsströndum og verður vikið að því hér á eftir. Ginu samfelldu heimildirn- ar um strand þetta munu vera grein eftir Árna Óla, rit- stjóra Lesbókar Morgunblaðs ins, sem birtist í Lesbókinni 3. maí 1936 og síðar í bók Árna, Frásögnum, er út kom 1955. Heimildir þær, sem Árni byggir grein sína á eru að mestu Ieiti annálar. Það er Vallaannáll, Fitjaannáll, Kjós arannáll, Hestaannáll, Hirð- stjóraannáll Jóns próf. Hall- dórssonar, Annáll Magnúss Magnússonar sýslumanns, Vestfjarðaannáll yngri. Einn- ig Árbækur Espolíns, Sýslu- mannsæfir, fslands ártal Gísla Konráðssonar, Álþingisbækur (1669) og Onze IJsIandsvaard ers in de 17de en 18de Eeuw og doktorsritgerð ungfrú M. Simon Thomas um siglingar Hollendinga til íslands á 17. og 18. öld, en flest skjöl og skilríki fi-á tímum strandsins munu vera glötuð. Söfnun heimilda í þessa grein var hið vandasamasta verk og vakti hún mikla at- hygli, því skipið „Het Wapen van Amsterdam" (Skjaldar. merki Amsterdam, var eitt glæsilegasta skip holl- enzka flotans, hlaðið dýrara farmi en nokkurt skip, sem strandað liefur hér við land og einnig mun aldrei hafa orðið jafn mikið mann- tjón við nokkurt strand eins og þá. Um ferðir hollenzku kaup- faranna segir Árni Óla í grein inni: „Á þessum árum var stríð milli Hollendinga og Eng lendinga. Hin stóru kaupför, sem til Indlands sigldu og komu þaðan aftur með hina dýrmætustu farma, þorðu því ekki að sigla um Ermasund, heldur fóru þau vestan við Bretlandseyjar. Var það venj- an að þau sigldu svo vestar- lega, að ensk herskip næðu þeim ekki. Kom þá stundum fyrir að svo vestarlega var siglt í Atlandshafi, að skipin tóku fyrst land við Færeyjar, en héldu svo rakleitt þaðan til Hjaltlands. Þar biðu þeirra hollenzk herskip til þess að fylgja þeim heim. Venjulega lögðu Indlands- kaupförin af stað að heiman seint um haust, eða fyrra hluta vetrar, en frá Batavía aftur næsta ár milli jóla og nýárs, og voru væntanleg til Hjaltlands eftir 8—9 mán-1 uði, ef engin sérstök óhöpp. komu fyrir. Seinast í júli eða fyrst í ágúst voru þvi herskipin, sem áttu að fylgja þeim norðan við Skotland og yfir Norðursjó, komin heim með þau. Höfðu Indlands- kaupförin samflot, eftir þvi sem unt var, svo að hægt væri að fylgja þeim öllum heim í einu Iagi“. Samkvæmt skýrslum skipa félags þess er átti „Het Wap- en van Amsterdam" strandaði það við ísland 19. september 1667 í fimmtu ferð sinni milli Vestur-Indía og IloIIands. „Hollenzku skipin munu hafa verið seinni til heim- Hollenzkt kaupfar frá 17. öld (likan). ferðar frá Batavia þetta ár heldur en endranær, lögðu þau ekki af stað þaðan fyrr en 26. janúar 1667. Fæ ég ekki séð hve mörg þau voru saman, þvi að í heimildum er talað aðeins um „nokkur skip“. Þessi floti kom til Góðra- vonarhöfða í maí og dvaldist þar fram í öndverðan júní. Þá var siglt af stað og sam- kvæmt fyrirskipun átti að halda rakleiðis norður undir Færeyjar. Gekk ferðin vel, en flotinn lenti nokkru vest- ar en gert var ráð fyrir, og var kominn undir Island, á 62. breiddargráðu. Þá var það, aðfaranótt 17. september, að á rauk æði- veður. Leystist þá flotinn sundur, og er sagt að veðrið hafi verið svo voðalegt, að menn hafi búizt við þvi að skipin myndu sökkva þá og þegar og hver stund væri þeirra síðasta. Flest skip'n hleyptu til Færeyja upp á líf og dauða. En vegna slrauma í sundun- um og óveðurs var ekki við- lit að leita hafnar er þangað var komið. Komust þó öll nema eitt í landvar hjá Hvalbö og lágu þar af sér mesta garðinn. Komust þau síðan inn til Þórshafnar 1. október. En eitt skipið fórst við Færeyjar. Það hét „Walcher- en“, eign verzlunar- og sigl- ingafélagsins Kamer Zeeland. Er mér ekki kunnugt um af- drif þess, nema hvað sagt er að 17 menn einir hafi kom- izt af. Það er frá „Het Wapen van Amsterdam“ að segja, að þessa sömu nótt sem ofviðr- ið brast á, rak það upp að suðurströnd fslands og fórst* þar við sandana tveim nótt- um seinna“. Talið er að bjargast hafi 50—60 manns af þeim 2—300, sem á skipinu voru og munu þeir hafa bjargað á land með sér nokkru af farmi skips- ins. Höfuðsmaðurinn á Bessa- stöðum hirti góðan hlut af því er á land rak úr skip- inu, taldi hann það vogrek og réttmæta konungseign. f lok greinar Árna Óla segir svo: „Það getur verið, að enda þótt mest af hinum dýra farmi sykki með skipinu, og Danir hafi komizt yfir margt af því sem bjargað var, þá sé til enn á landi hér gripir úr því“. Ungfrú M. Simon Thomas segist hafa talaö við mann austur í Öræfum, sem séð hafi tvær tóbaksdósir úr látúni, látúnshjörur og skrár- umbúnað á kistu, sem hann taldi komið úr þessu skipi. Hvar þeir gripir eru nú nið- urkomnir veit víst enginn. En í Þjóðminjasafninu ef einn gripur, sem Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður, hyggur að sé frá skipinu kominn i öndverðu. Er það hurðarspjald með upp- hleyptu flúri. Sl. laugardag voru gefin saman í hjónaband af séra Sigurjóni Þ. Árnasyni, ungfrú Sólveig Frið- finnsdóttir, Hringbratit 27, Hafn- arfirði og Úlfar Andrésson, skrif stofumaður, Suðurgötu 22, Rvík. Heimili ungu hjónanna verður á Hávegi 9A, Kópavogi. Nýlega voru gefin sam- an í borgaralegt hjónaband af Bæjarfógeta Akureyrar ungfrú Jóhanna Einarsdóttir frá Fá- skrúðsfirði og Margeir Bragi Guðmundsson, starfsmaður í vél- smiðjuni Odda, Akureyri. Heim- ili þeirra er að Hafnarstr. 35, AkureyrL • í þraut til krafta þinna Átt þú með kæti að finna , það stærsta tak þarf sterkast bak, en stórt er bezt — að vinna. Ef tæpt er fyrir fótinn og fátt um vina hótin, þá sjá þinn mátt. í sorg þú átt þig sjálfan ,það er bótin. I*ví fjær sem heims er hyllin, er hjarta guðs þér nær. Björnson: í# þraut. — Þýð.: Einar Benediktsson. Söfnin Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið alla daga nema miðvikudaga frá kl. 1:30—6 e.h. Sýningarsalur náttúrugripasafnsins er lokaður. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla úni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema nánudaga. 2HII3 r SENOIBÍLASTÖOIN Vaktavinna Mig vantar vaktavinnu eða umsjónarstarf frá kl. 17 eða 18 til kl. 24. Vanur afgreiðslu. Sími 3-56-39 frá kl. 9—18. Tapað — kvenúr Laugard. 22. okt. tapaðist kvengullúr í Vesturbæn- um. Finnandi skili vinsam- lega á Lögreglustöðina. — Fundarlaun. Ibúð Óska eftir íbúð 4 til 6 herb. Uppl. i síma 15114. Viljum ráða lagtækan mann á verk- stæði. Þarf að hafa bílpróf. Reglusemi áskilin. — Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt. „1885“ fyrir fimmtudag. Keflavík Til sölu vegna brottflutn- ings, svefnsófi, armstólar, borð og ýmislegt fleirá að Ásbraut 16, niðri. Til sölu lítið notuð Optima ferðarit vél, einnig Philiphs ferða- útvarp. Uppl. í síma 32897 eftir kl. 1. Tilboð óskast i ákeyrðan vörubíl model ’46. Pallur 15 fet og sturt ur í góðu lagi. Tilb. merkt „Ákeyrður bíll — 1150“ sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ. m. Leigubílstjórar Hefi Kaiser árg. ’54, sem ég vil leigja eða gera út á móti manni sem hefur stöðvarpláss. Tilb. óskast sent Mbl. fyrir föstudag n. k. merkt. „Gagnkvæmt — 1883“ Sel góðan pússningasand Hagstætt verð. Kristján Steingrímsson. Sími 50210. Vikurgjallplötur 7 cm. Kr. 48,00 ferm. 10 cm. Kr. 64,00 ferm. Heimkeyrt. Bru,uasteypan s.f. Sími 35785 VANDAÐ NÝTT þýzkt karmannsreiðhjól til sölu. Hagamel 21 kjallara. Beaver pels til sölu. Stórt nr. — Sími 10335. Sendisveinn óskast strax hálfan eða all an daginn. Vald. Poulsen hf. • Klapparstíg 29 Bílskúr Til sölu góður bílskúr, heppilegur fyrir minni bíla. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl. fyrir föstud., merkt: „Bílskúr — 1149.“ Sníð og sauma dömukjóla. — Hálfsauma einnig. — Sími 18452. ísskápur til sölu vegna brottfluttn- ings. — Ódýr. — Uppl. að Tjarnargötu 22, sími 14610. Hafnarfjörður barnavagn til sölu. Uppl. Háabarði 10. 3ja herb. íbúð til leigu í miðbænum. Tilb. sendist til afgr. Mbl. fyrir miðviku - dagskv., merkt: „1152“ íbúð — Bíll Vil kaupa 2ja eða 3ja herb. íbúð gegn útb. með bif- reið, má vera í nágrenni Reykjavíkur eða Reykja- vík. Tilb. óskast sent Mbl. merkt. „íbúð—BÍU — 1884“ fyrir föstudag n.k. Húsnæði óskast fyrir hárgreiðslustofu í miðbænum — UppL í síma 19697. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en í öðrum blöðum. — Skrifstofuhúsnæði í Austurstræti til leigu. Uppl. Sími 13118 og 19157. Hveitipokar — Strásykurspokar Verð: 20 stk. Hveitip. kr. 75.00. 20 stk. Strásykursp. kr. 55.00. KATLA H.F. Laugavegi 178.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.