Morgunblaðið - 08.11.1960, Síða 5
Þriðjudagur 8. nóv. 1960
MORGUHBLAÐIÐ
5
MENN 06
= malefni=
í frétt hér í blaðinu á dög-
unum var skýrt frá því, að
Bergur Lárusson frá Kirkju-
bæjarklaustri hefði aflað sér
Ieyfis, til þess að leita að
flaki hollenzks kaupfars, sem
talið er hafa strandað um 20
km. fyrir vestan Ingólfshöfða
árið 1667. Var skipið á leið
frá Austur-Indíum til Hol-
lands og þykir mönnum sjálf-
sagrt fróðleg-t að vita hvað bar
það upp að íslandsströndum
og verður vikið að því hér á
eftir.
Ginu samfelldu heimildirn-
ar um strand þetta munu
vera grein eftir Árna Óla, rit-
stjóra Lesbókar Morgunblaðs
ins, sem birtist í Lesbókinni
3. maí 1936 og síðar í bók
Árna, Frásögnum, er út kom
1955.
Heimildir þær, sem Árni
byggir grein sína á eru að
mestu Ieiti annálar. Það er
Vallaannáll, Fitjaannáll, Kjós
arannáll, Hestaannáll, Hirð-
stjóraannáll Jóns próf. Hall-
dórssonar, Annáll Magnúss
Magnússonar sýslumanns,
Vestfjarðaannáll yngri. Einn-
ig Árbækur Espolíns, Sýslu-
mannsæfir, fslands ártal Gísla
Konráðssonar, Álþingisbækur
(1669) og Onze IJsIandsvaard
ers in de 17de en 18de Eeuw
og doktorsritgerð ungfrú M.
Simon Thomas um siglingar
Hollendinga til íslands á 17.
og 18. öld, en flest skjöl og
skilríki fi-á tímum strandsins
munu vera glötuð.
Söfnun heimilda í þessa
grein var hið vandasamasta
verk og vakti hún mikla at-
hygli, því skipið „Het Wapen
van Amsterdam" (Skjaldar.
merki Amsterdam, var
eitt glæsilegasta skip holl-
enzka flotans, hlaðið dýrara
farmi en nokkurt skip, sem
strandað liefur hér við land
og einnig mun aldrei hafa
orðið jafn mikið mann-
tjón við nokkurt strand eins
og þá.
Um ferðir hollenzku kaup-
faranna segir Árni Óla í grein
inni: „Á þessum árum var
stríð milli Hollendinga og Eng
lendinga. Hin stóru kaupför,
sem til Indlands sigldu og
komu þaðan aftur með hina
dýrmætustu farma, þorðu því
ekki að sigla um Ermasund,
heldur fóru þau vestan við
Bretlandseyjar. Var það venj-
an að þau sigldu svo vestar-
lega, að ensk herskip næðu
þeim ekki. Kom þá stundum
fyrir að svo vestarlega var
siglt í Atlandshafi, að skipin
tóku fyrst land við Færeyjar,
en héldu svo rakleitt þaðan
til Hjaltlands. Þar biðu þeirra
hollenzk herskip til þess að
fylgja þeim heim.
Venjulega lögðu Indlands-
kaupförin af stað að heiman
seint um haust, eða fyrra
hluta vetrar, en frá Batavía
aftur næsta ár milli jóla og
nýárs, og voru væntanleg til
Hjaltlands eftir 8—9 mán-1
uði, ef engin sérstök óhöpp.
komu fyrir. Seinast í júli
eða fyrst í ágúst voru þvi
herskipin, sem áttu að fylgja
þeim norðan við Skotland og
yfir Norðursjó, komin heim
með þau. Höfðu Indlands-
kaupförin samflot, eftir þvi
sem unt var, svo að hægt
væri að fylgja þeim öllum
heim í einu Iagi“.
Samkvæmt skýrslum skipa
félags þess er átti „Het Wap-
en van Amsterdam" strandaði
það við ísland 19. september
1667 í fimmtu ferð sinni milli
Vestur-Indía og IloIIands.
„Hollenzku skipin munu
hafa verið seinni til heim-
Hollenzkt kaupfar frá 17. öld (likan).
ferðar frá Batavia þetta ár
heldur en endranær, lögðu
þau ekki af stað þaðan fyrr
en 26. janúar 1667. Fæ ég
ekki séð hve mörg þau voru
saman, þvi að í heimildum
er talað aðeins um „nokkur
skip“.
Þessi floti kom til Góðra-
vonarhöfða í maí og dvaldist
þar fram í öndverðan júní.
Þá var siglt af stað og sam-
kvæmt fyrirskipun átti að
halda rakleiðis norður undir
Færeyjar. Gekk ferðin vel,
en flotinn lenti nokkru vest-
ar en gert var ráð fyrir, og
var kominn undir Island, á
62. breiddargráðu.
Þá var það, aðfaranótt 17.
september, að á rauk æði-
veður. Leystist þá flotinn
sundur, og er sagt að veðrið
hafi verið svo voðalegt, að
menn hafi búizt við þvi að
skipin myndu sökkva þá og
þegar og hver stund væri
þeirra síðasta.
Flest skip'n hleyptu til
Færeyja upp á líf og dauða.
En vegna slrauma í sundun-
um og óveðurs var ekki við-
lit að leita hafnar er þangað
var komið. Komust þó öll
nema eitt í landvar hjá
Hvalbö og lágu þar af sér
mesta garðinn. Komust þau
síðan inn til Þórshafnar 1.
október.
En eitt skipið fórst við
Færeyjar. Það hét „Walcher-
en“, eign verzlunar- og sigl-
ingafélagsins Kamer Zeeland.
Er mér ekki kunnugt um af-
drif þess, nema hvað sagt er
að 17 menn einir hafi kom-
izt af.
Það er frá „Het Wapen
van Amsterdam“ að segja, að
þessa sömu nótt sem ofviðr-
ið brast á, rak það upp að
suðurströnd fslands og fórst*
þar við sandana tveim nótt-
um seinna“.
Talið er að bjargast hafi
50—60 manns af þeim 2—300,
sem á skipinu voru og munu
þeir hafa bjargað á land með
sér nokkru af farmi skips-
ins. Höfuðsmaðurinn á Bessa-
stöðum hirti góðan hlut af
því er á land rak úr skip-
inu, taldi hann það vogrek og
réttmæta konungseign.
f lok greinar Árna Óla
segir svo:
„Það getur verið, að enda
þótt mest af hinum dýra
farmi sykki með skipinu, og
Danir hafi komizt yfir margt
af því sem bjargað var, þá
sé til enn á landi hér gripir
úr því“.
Ungfrú M. Simon Thomas
segist hafa talaö við mann
austur í Öræfum, sem séð
hafi tvær tóbaksdósir úr
látúni, látúnshjörur og skrár-
umbúnað á kistu, sem hann
taldi komið úr þessu skipi.
Hvar þeir gripir eru nú nið-
urkomnir veit víst enginn.
En í Þjóðminjasafninu ef
einn gripur, sem Matthías
Þórðarson, þjóðminjavörður,
hyggur að sé frá skipinu
kominn i öndverðu. Er það
hurðarspjald með upp-
hleyptu flúri.
Sl. laugardag voru gefin saman
í hjónaband af séra Sigurjóni Þ.
Árnasyni, ungfrú Sólveig Frið-
finnsdóttir, Hringbratit 27, Hafn-
arfirði og Úlfar Andrésson, skrif
stofumaður, Suðurgötu 22, Rvík.
Heimili ungu hjónanna verður á
Hávegi 9A, Kópavogi.
Nýlega voru gefin sam-
an í borgaralegt hjónaband af
Bæjarfógeta Akureyrar ungfrú
Jóhanna Einarsdóttir frá Fá-
skrúðsfirði og Margeir Bragi
Guðmundsson, starfsmaður í vél-
smiðjuni Odda, Akureyri. Heim-
ili þeirra er að Hafnarstr. 35,
AkureyrL •
í þraut til krafta þinna
Átt þú með kæti að finna ,
það stærsta tak
þarf sterkast bak,
en stórt er bezt — að vinna.
Ef tæpt er fyrir fótinn
og fátt um vina hótin,
þá sjá þinn mátt.
í sorg þú átt
þig sjálfan ,það er bótin.
I*ví fjær
sem heims er hyllin,
er hjarta guðs þér nær.
Björnson: í# þraut. —
Þýð.: Einar Benediktsson.
Söfnin
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er
opið alla daga nema miðvikudaga frá
kl. 1:30—6 e.h.
Sýningarsalur náttúrugripasafnsins
er lokaður.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
úni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema
nánudaga.
2HII3
r
SENOIBÍLASTÖOIN
Vaktavinna
Mig vantar vaktavinnu eða
umsjónarstarf frá kl. 17
eða 18 til kl. 24. Vanur
afgreiðslu. Sími 3-56-39 frá
kl. 9—18.
Tapað — kvenúr
Laugard. 22. okt. tapaðist
kvengullúr í Vesturbæn-
um. Finnandi skili vinsam-
lega á Lögreglustöðina. —
Fundarlaun.
Ibúð
Óska eftir íbúð 4 til 6 herb.
Uppl. i síma 15114.
Viljum ráða
lagtækan mann á verk-
stæði. Þarf að hafa bílpróf.
Reglusemi áskilin. — Tilb.
sendist afgr. Mbl. merkt.
„1885“ fyrir fimmtudag.
Keflavík
Til sölu vegna brottflutn-
ings, svefnsófi, armstólar,
borð og ýmislegt fleirá að
Ásbraut 16, niðri.
Til sölu
lítið notuð Optima ferðarit
vél, einnig Philiphs ferða-
útvarp. Uppl. í síma 32897
eftir kl. 1.
Tilboð óskast
i ákeyrðan vörubíl model
’46. Pallur 15 fet og sturt
ur í góðu lagi. Tilb. merkt
„Ákeyrður bíll — 1150“
sendist afgr. Mbl. fyrir 15.
þ. m.
Leigubílstjórar
Hefi Kaiser árg. ’54, sem ég
vil leigja eða gera út á
móti manni sem hefur
stöðvarpláss. Tilb. óskast
sent Mbl. fyrir föstudag
n. k. merkt. „Gagnkvæmt
— 1883“
Sel góðan pússningasand
Hagstætt verð.
Kristján Steingrímsson.
Sími 50210.
Vikurgjallplötur
7 cm. Kr. 48,00 ferm.
10 cm. Kr. 64,00 ferm.
Heimkeyrt.
Bru,uasteypan s.f.
Sími 35785
VANDAÐ NÝTT
þýzkt karmannsreiðhjól til
sölu. Hagamel 21 kjallara.
Beaver pels
til sölu. Stórt nr. — Sími
10335.
Sendisveinn
óskast strax hálfan eða all
an daginn.
Vald. Poulsen hf.
• Klapparstíg 29
Bílskúr
Til sölu góður bílskúr,
heppilegur fyrir minni bíla.
Tilb. leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir föstud., merkt:
„Bílskúr — 1149.“
Sníð og sauma
dömukjóla. — Hálfsauma
einnig. — Sími 18452.
ísskápur
til sölu vegna brottfluttn-
ings. — Ódýr. — Uppl. að
Tjarnargötu 22, sími 14610.
Hafnarfjörður
barnavagn til sölu. Uppl.
Háabarði 10.
3ja herb. íbúð til leigu
í miðbænum. Tilb. sendist
til afgr. Mbl. fyrir miðviku
- dagskv., merkt: „1152“
íbúð — Bíll
Vil kaupa 2ja eða 3ja herb.
íbúð gegn útb. með bif-
reið, má vera í nágrenni
Reykjavíkur eða Reykja-
vík. Tilb. óskast sent Mbl.
merkt. „íbúð—BÍU — 1884“
fyrir föstudag n.k.
Húsnæði óskast
fyrir hárgreiðslustofu í
miðbænum — UppL í síma
19697.
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en í öðrum
blöðum. —
Skrifstofuhúsnæði
í Austurstræti til leigu.
Uppl. Sími 13118 og 19157.
Hveitipokar — Strásykurspokar
Verð:
20 stk. Hveitip. kr. 75.00.
20 stk. Strásykursp. kr. 55.00.
KATLA H.F.
Laugavegi 178.