Morgunblaðið - 09.11.1960, Page 12

Morgunblaðið - 09.11.1960, Page 12
12 MORGUNQT. AÐIÐ Miðvikudagur 9. nóv. 1960 Xrisfmann Guðmundsson skrifar um^ BÓKMENNTIR TRÚNAÐARMÁL eftir Friðjón Stefánsson. Útgefandi: Isafoldarprent. smiðja. fRIÐJÓN Stefánsson hefur get- ið sér allgott orð fyrir smásögur sinar og hafa sumar þeirra ver ið þýddar á önnur mál. Að þessu sinni birtir hann þrettán sögur í snoturri útgáfu. „Trúnaðarmál" heitir fyrsta sagan. Hún er vel sögð og skemmtileg aflestrar, en lítið skáldverk, boðun hennar hvorki frumleg né merkileg og endirinn reyfaralegur. Þess háttar hlutir geta svo sem gerzt í lífinu sjálfu, en alls ekki í skáldskap — nima því aðeins að þeir séu miklu betur undirbúnir en hér er. Alvarlegri og betur heppnuð tilraun til heimspekilegrar sögu gerðar er „í ljósaskiptunum‘, sem fjallar um mann, er íramið hefur sjálfsmorð — „í morgun loksins, undir ijósaskiptin, kom ég því í verk að skjóta mig“. Þó eru einnig hér hálfgerð vett- lingatök á efninu, sem vissulega er forvitnilegt. Smellin og læsileg er „Ástar- saga eftir pöntun“. Þar er frum- lega farið með ófrumlegt efni, sem sé ást og giftingar. Gamalt ævintýri um klókindi Konu er fléttað inn í kaldranalega ástar sögu: efnið er tekið föstum og listrænum tökum. „Klara" er verulega snjöil smásaga, þar sem óskhyggjan er tekin til meðferðar á sálfræði- legan hátt. Þetta er ein af beztu sögum Friðjóns, vel unnin og hófsamlega. „Við hvítu þiiin‘“ er sorgar- saga, sem hefði mátt vera bet- ur gerð, því að efnið er ágætt. Hemingway hefur tekið það til meistaralegrar meðferðar í „Sólin rennur upp“. En það verður að segjast, að sagan er snotur; höf. tekur létt á efninu, Málflutninsrsskrifstofa JÓN N. SIGURBSSON hæstaréttarlögmaður Laugavegi 10. — Sími: 14934. Friðjón Stefánsson og honum tekst að skapa angur- væra stemningu. Hvemig væri núna, ef ailt hefði farið öðruvísi en það fór? Þess hefur vatalaust margur spurt sjálfan sig. í sögunni „Gegnum úða fossins“ svarar höf. einni slíkri spurningu á skemmtilegan hátt. Þetta byrjar á björtum sumardegi við hvítan foss: „grannvaxin stúlka með rjóðar varir og spékoppa í kinn- um“, klædd í Ijósan kjól og gull. in á hár. hittir ungan mann, og ævintýrið hefst. Sumar og ást, kossar við hvítan fossir.n, trú- lofún og ákvörðun um að fara að búa í höfuðborginni. Mörg- um árum seinna er maðurinn aftur kominn að þessum fossi og sér í anda endi sögunnar: stúlk- an hans með annan mann í her- berginu hjá sér, þegar hann kom suður að vitja hennar. Sársauki í sálinni, einmanaleiki og frið- laust flakk um jörðina á eftir. — En var þetta rétti endirirn? — Maðurinn vaknar upp af dag- draumum sínum við það, að flámælt, skrækróma kvenmanns rödd kallar á hann. Og þar er reyndar komin grannvaxna gull hærða stúlkan og þó talsvert breytt. Þau hafa þá gifzt, þegar allt kemur til ails, og það hefur enginn annar komið í spilið, og hann hefur ekki misst hana. Höf. getur þess, að hún hafi breytzt — en sjálfur getur lesandinn gizkað á, að pilturinn ungi, sem mætti grannvöxnu stúlkunni við fossinn sé heldur ekki ;eng- ur sá samí. Snotur saga. „Svarað í síma“ er tilraun til að skýra sálarlíf okrara, og þótt mig gruni, að efnið sé ekki 'ærnt, þá er þetta laglega gert og all- trúverðugt. — Næsta saga hait- ir „Á leið í næturklúbb" og fjallar um liðhlaupa, en ég finn ekki í henni púðrið. Efnið er gott, en meðferðin laus í reip- um. — Heldur losaraleg er eim. ig sagan „Kveðjur" og efnismeð- ferðin lítið sannfærandi. Athyglisverð er sagan „Öræfa- búi snýr við“. þótt hún heiði mátt vera betur smíðuð. En boðun hennar á erindi til manna, er gera sér leik að því að murka lífið úr saklausum frændum okkar meðal ferfæti- inga. „Jólasnjór" er dapurleg saga úr daglega lífinu. Hún fjallar um drykkjusjúkling og sýnir; hvernig hann fellur fyrir freist- ingunni á aðfangadag jóla. Hún er vel gerð og efnismeðferðin hófsöm, en nær vel tjlgangi sín- um. „Samlíking við saltfisk" er snoturt riss án mikilla tilþrifa. En síðasta sagan, „Feimni“ er ágæt, vel skrifuð og skemmtileg stúdía í þessum leiðinlega kvilla, sem margan manninn hriáir. Þar tekst höf. verulega upp, og enda þótt bók þessi bæti litlu við vöxt hans sem rithöfundar, lokar maður henni vel sáttur við skáldið. Mikil atvinna í Hornafirði Höfn í Hornafirði, 4. nóv.: — Slátrun sauðfjár er fyrir nokkru að mestu lokið hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga í Horna- firði.Alls var slátrað 11694 kind- um eða um 500 færra en í fyrra. Af þessu voru 11260 dilkar, með- alvigt þeirra var 13.5 kg. en var i fyrra 12,84. Þessi fjártala er það sem lagt er inn en auk þess er slátrað um 700 kindum sem teknar voru heim, í sláturhúsinu, og hjá Einari Eiríkssyni, kaup- manni, er slátrað um 1000 kind- um, svo heildarslátrun á Hófn er 13.400 kindur. Mesta meðalvigt hafði E'ías Jónsson Rauðabergi. Lagði hann inn 91 dilk þar af voru 70 tví- lembingar meðalv. 15.5 kgr en hann hafði alið iömbin á fóður- káli um mánaðartíma. Þyngs+an dilk í sláturhúsi átti Benedikt Egilsson, Þórisdal 28,5 kg. Sérstaka athygli vakti meðal vigt Guðmundar Jónssonar, Borg arhöfn, en hans dilkar voru 14,5 að meðalvigt, en í Borgarhöfn hagar þannig til að þar eru sum- arhagar mjög litlir eða nær ekk- ert afréttarland, en 6 bændur. Talsvert hefur orðið vart við útigöngufé. Er það að sjálfsögðu mest í Skaftafellsfjöllum, en þar sem ennþá er ekki nærri smalað þar til fullnustu. er ekki ennþá vitað, hversu margt kann að koma fram. Vitað er um tvær veturgamlar ær, sem sést hafa báðar með mjög fallegum lömb- um o. fl. Hreindýr. Mikið virðist hreindýrasíofn- inn vera að aukast í Skaftafehs- fjöllum. Þar sáust meðal annars nokkuð á annað hundrað dýr í einum hóp. Kartöfluuppskera. Ekki er fyllilega hægt að segja hvað kartöfluppskeran er mikil, en trúlega er hún í kringum 16 þúsund tunnur og þó líklega meiri. Sumsstaðar var uppsker- an allt upp í tuttugföld. Róðrar hefjast. Að úthallandi sláturtíð hófu 5 heimabátarnir hér róðra og hafa gæftir verið góðar í þessari góðu tíð, en ekki hafa útgerð- armenn verið ánægðir með afl- ann, telja hann litinn ,en hann hefur verið frá 4—7 tonnum í róðri. Óhætt er að segja að al- gengast hafi hann verið 5—6 tonn. Brúarsmíði. Lokið ei; nú að smíða brú á hina illfæru Fjarðará í Lóni Var það Þorvaldur Guðjónsson bi'ú- arsmiður, sem sá um byggingu. Síðan var hann við viðgerð á svo svokallaðri Melabryggju, en við hana eru afgreiddir allir flug vélafutningar eg eins mikill vöruflutningur um Mýrar og Suðursveit meðan brúin á Hornafj arðarf 1 j ót kemst ekki i not, sem væntanlega verður snemma á næsta sumri. Framkvæmdir. Ætlunin var að Þorvaldur steypti hér aðalgötuna á Höfn, en þar sem svo áliðið var, vildi hann ekki eiga neitt á hættu með slíkt, þar sem alltaf mátti vænta að frost kæmu, en gata þessi er oft afarslæm. holótt og blaut. Eins og að líkum lætur hef- ur atvinna verið mjög mikil hér í kauptúninu til þessa. Ennfremur eru Rafmagnsveit- ur ríkisins að leggja jarðkapal í þann hluta kauptúnsins, sem áður hafði loftlínu, en það er um það bil helmingur kauptúnsins, þ. e. innri hluti þess. Snjór hefur ekki sézt ennþá, ekki einu sinni í hæstu tindum og hefur það valdið mönnum nokrum erfiðleikum með smala- mennsku, einkanlega í Skaftft. fellsfjöllum og víðar. CHAMPION Klskendur í París. (Austurbæjarbíó). 0í0.*.m + *># « skrifar um: KVIKMYNDIR HAFNARBÍÓ: EKKJA HETJUNNAR ÞETTA er ný amerísk mynd tek in í litum og Cinemascope. Segir þar frá ungri konu, sem aðeins hafði verið gift í fáar vikur er maður hennar var sendur tii Kóreu. Þremur árum síðar berst henni tilkynning um dauða hans. Síðan hefur hún búið hjá tengda- foreldrum sínum, sem eru vel efn um búin. Tengdafaðirinn Harley er ágætur maður en Virgily kona hans drambsöm úr hófi. Hún dáir mjög minningú sonar síns, en hatar tengdadóttur sína þó að hún láti ekki á því bera á yfirborðinu. Virgily fær þá hug- mynd að reisa sjúkrahús til minn ingar lun Donald son sinn og faðir Harleys, ríkur og ófyrir- leitinn stjórnmálamaður styður eindregið þessa hugmynd, því að hann og Virgily reyndar líka, eygja þann möguleika að þau geti náð í æðstu hetjuverðlaun landsins Donald til handa. En til þess vantar meðmæli Pike Yarv elss, flugstjóra, sem var með Donald er hann lét lífið. Christ- ine, ekkja Donalds býður Pike að koma til hátíðarhaldanna þegar hjúkrahúsið verður vígt. Har»n kemur, en verður þess brátt áskynja að honum er ætlað að gefa vottorð um hetjuskap Donalds, enda er honum jafnvei boðið mikið fé til þess. En Pike er heiðarlegur maður og einarð- ur. Hann neitar af vissum ástæð- um að votta hetjuskap Donalds og fer á brott. En sá er hængur á að ástir hafa tekizt með hon- um og Christine. Verða nú mikil átök milli hans og Christine annars vegar og Virgily hins veg ar, er lýkur með því, að Virgily verður harmi lostinn, er hún heyrir allan sannleikann um son sinn — og fellur grátandi í faðm eiginmanns síns. Þetta er mjög efnismikil mynd og áhrifarík, enda ágætlega leik- in. Fara þau June Allyson og Jeff Chandler með hlutverk Christine og Pikes, en hin heill- andi unga leikkona Sandra Dee leikur systur Donalds. AUSTURBÆJARBÍÓ: ELSKENDUR í PARÍS ÞESSI þýzka mynd, sem tekin er í litum, er gerð eftir skáld- sögunni „Mon p’ti“ eftir Gabur von Vaszani. Myndin gerist í París og segir frá ástum ungrar fallegrar stúlku Anne-Claire og Mon p’ti, sem er ungverskur teiknari, en þetta skrítna nafn gaf Anne-Cláire honum þegar þau hittust fyrst. Anne-Claire, sem haldin er sterkri óskhyggju, á erfitt með að halda sig að sann. leikanum um einkalíf sitt og hef- ur því talið Mon p’ti trú um ótal margt, sem ekki á sér stoð í veruleikanum. Þetta veldur þeim báðum meiri óhamingju en hana grunar og verður að lokum til þess að samvistum þeirra lýk- ur með hörmulegum hætti. Mynd þessi er ekki margbrot- in að efni til, að mestu leyti heillandi lýsing á ástarlífi sak- lausra og góðra unglinga. Því er þessi mynd einkar aðlaðandi og skemmtileg þrátt fyrir allt, enda aðalhlutverkin ágætlega leikin af Romy. Schneider og Horst Buch- holz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.