Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 2
2 MORCVHPLAÐIÐ FðstudagUr 23. des. 196« Jóluósk deyj andi telpa STARFSMÖNNUM flug- turnsins í Reykjavík barst snemma í gærmorgun all- óvenjulegt skeyti. Það var sent frá Linker flugvellin- um í Oklahoma og segir þar að lítil stúlka, sem undan- farið hafi þjáðst mjög af beinkrabba, liggi nú fyrir dauðanum. Hún hefur látið í ljós sína síðustu ósk — að fá jólakveðjur sem víðast að. Ekki er greint frá aldri telpunnar í skeytinu, en hún heitir Doris Ridgway. Ekki er að efa, að margir íslendingar muni bregðast fljótt við, ef þeir sjá þessar línur og skrifa stúlkunni kveðju. Þótt of seint sé að koma jólakveðjum héðan af til Virginia, ættu nýjárs- kveðjur að komast þangað fyrir áramót. Vonandi end- ist Doris litlu lif til að veita þeim viðtökur. Nafn og heimilisfang stúlkunnar er: Miss Doris Ridgway, Route 1. Hardy, Virginia. USA. Merkilegar mýs eignast erfingja WASHINGTON, 22. des. (NTB). Sá atburður gerðist í dag, að músahjón ein eignuðust afkvæmi — fimm „mannvænlega“ músar- unga. Að öðru jöfnu þykir það ekki merkilegur viðburður þótt mús gjóti ungum, en að þessu sinni höfðu bæði músarhjónin orðið svo fræg fyrir tveimur mánuð- um, að fljúga upp í háloftinu og fara marga hringi kringum jörð- ina í bandarísku gervitungli. Á þeirri reisu fóru músahjón- in m.a. í gegnum sterk geislunar belti. Þessvegna þykir fæðing unganna í dag athyglisverður við burður í heimi vísindanna. Frjó- semi dýranna hefur ekki beðið baga af geisluninni. Ungarnir fimm voru allir rétt skapaðir og við beztu heilsu. Vorið býður til Kaupmhafnar BARNABLAÐIÐ Vorið á Akur- eyri efnir nú til verðlaunasam- keppni og eru verðlaunin þrenn: Allt flugferðir með Föxum Flug- félagsins — og sú lengsta frá Reykjavík til Kaupmannahafnar og aftur heim. Frá þessu segir í jólablaði Vors ins, sem er nýkomið út. Flugfé- lagið og Vorið efna sameiginlega til samkeppninnar og er þar um að ræða ritgerðarefni: Hvaða möguleika hefur ísland upp á að bjóða sem ferðamannaland? Fyrátu verðlaun eru sem fyrr segir ferð til Kaupmannahafnar, en hin eru flugferðir innanlands eftir eigin vali. Þar að auki veit- ir Vorið þrenn bókaverðlaun. Á brúnni á Fossvogslæk ÞETTA er landfræðilegur „err- oi“ sagði maðurinn í símanum, er hann benti á meinlega villu í blaðinu í gær. Þar, sem sagt var frá bílslysi á Hafnarfjarðar- vegi, var sagt að það hefði orð- ið á landamærum Reykjavíkur og Kópavogs, Kópavogsbrú. — Vissulega átti hér að standa Fossvogslækjarbrú. Komposition Þorvaldi Skúlasyni sýndur mikill heiður Talinn meðal urvals mdlara heimsins NÝLEGA valdi þar til kosin alþjóðleg dómnefnd 50 listamenn frá 20 löndum, er hún taldi skara fram úr í heiminum, og ákveðið listaverk eftir hvern þeirra, sem til greina kemur til að hljóta hin svokölluðu „Alþjóðlegu Hallmark-listaverðlaun“. Meðal þeirra sem valdir voru er íslenzkur listmálari, Þorvaldur Skúason. Þykir þetta mikill heiður fyrir listamenn frá hvaða þjóð scm er og set- ur hann á bekk með álitlegustu listamönnum heimsins. Málverk það eftir Þorvald sem valið var, vakti slíka athygli á sýningu í Galerie Creuze í París árið 1958. Var myndin keypt, eins og allar myndirnar 50, sem valdar voru, og hefir verið mynd uð úr þeim sýning, sem opnuð er í Wildenstein Gallery í New York og síðan fer sýningin milli 36 safna um öll Bandaríkin á næstu tveimur árum. Auk þess er gefin út bók með myndum af málverkum þessum, mynd af listamönnunum og kynning á t Arekstur þeim. Eru fjórum úr þeirra hópi síðan veitt alþjóðlegu Hallmark listaverðlaunin. Mikil listkynning Þetta er í fimmta sinn sem verðlaun þessi eru veitt siðan 1949, og eru málverk frá fyrri fjórum sýningunum enn í um- ferð milli sýningarsala. Er því gífurlega mikil kynning í þessu fyrir Þorvald Skúlason á alþjóð- legum vettvangi. Auk þess gerir salan á málverki þessu honur.i fært að komast nú í vetur til Par ísar, og fyigjast með því sem nú er hæst á baugi í listum. LÆGÐIN, sem var yfir vest- anverðu Atlantshafi á kortinu í fyrradag er nú allskammt suð.vestur frá Reykjanesi og stefnir til austnorðausturs eða rétt fyrir sunnan landið. Hiti er 2 st. í Vestmannaeyjum og yfirleitt má búast við spilli- blota á Suðurlandi, en síðan mun aftur sækja í norðanátt og kólna. Kaldast var á Sauð- árkróki 12 st. frost um hádeg- ið, en víðast á landinu er 3—5 st. frost. Tveir féllu í sjóinn AKUREYRI, 22. desember. — Um kl. 7.40 í gærkvöldi voru tveir sjómenn að fara í land af togaranum Bjarnarey, þó ekki skipsmenn þar. Vildi þá svo slysa lega til að annar þeirra rann til á borðstokknum og féll í sjóinn milli skips og bryggju. Félagi hans, sem var nærstaddur kastaði sér þegar í sjóinn og kallaði jafn framt á hjálp. Kom þá skipsmað ur af Bjarnarey þar að og náði samstundis í þrjá skipsmenn af togaranum Skagfirðing, sem lá við sömu bryggju. Renndu þeir kaðli niður í sjóinn og drógu sjó- mennina upp. Sá er fyrr féll í sjóinn var þegar fluttur í sjúkrahús. Hafði hann drukkið talsvert af sjó og liggur þar enn. Hinn var fluttur heim til sín og kennir sér einskis meins — St. Sig. > Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi | SV-land til Breiðafjarðar og > miðin: NA-átt, víða allhvasst • og skýjað í nótt, kaldi og létt- \ skýjað á morgun, frost 4—7 S stig. i Vestfirðir til Austfjarða, ^ Vestfj.mið til NA-miða: Norð S an og NA kaldi, víða dálítil él. J SA-land, Austfjarðamið og ; SA-mið: Allhvass NA og skýj s að í nótt, kaldi og léttskýjað > i morgun. \ Floyd og Ingd hittost í mnrz New York, 22. des. Á K V E Ð I Ð er, að þriðja keppni þeirra Floyds Patter- sons og Ingemars Johanns- sons um hcimsmeistaratitil í þungavigt í hnefaleikum fari fram í Miami Beach á Flór- ída-skaga 20. marz nk. Óvenjulegt er að keppnin skuli haldin utan New York, en Flórída þykir heppileg á þessum tíma árs því að fjöldi fólks úr Norðurríkjunum dvelst þar í fríi að vetrinum. Þær komu ofan úr fjöllunum Ágætis hnefaleikasvið er I Miami Beach og taka áhorf- endasvæðin umhverfis 19 þúsund manns. á Akranesi AKRANESI, 22. des. — Stund- arfjórðungi fyrir kl. 12 í dag varð árekstur á horni Vesturgötu og Bárugötu. Bifreiðinni E-27 var ekið niður Vesturgötu. í því hún ætlaði að beygja inn í Bárugötu, kom fólksbifreiðin E-77 vestur úr þeirri götu. Varð ekki forðað árekstri. Bílamir skemmdust báð ir nokkuð, en fólk er í þeim var meiddist ekki. — Oddur. Síldin bregzt Þjóðverjura S í L D I N hefur brugðizt Þjóð- verjum hraparlega í Norður- sjónum í haust, segir Fishing News. Muna menn ekki eftir annarri eins aflatregðu. Afla- magnið í fimm aðalveiðimánuð- unum, júní—október, er aðeins 49 þúsund lestir af síld til manneldis á móti 76 þúsund lestum í fyrra og 67 þúsund lestum í hittifyrra. Var það ár þó það lakasta fram til þessa. Vegna þessa munu Þjóðverjar nú verða að flytja inn meiri sikl en áður. Nam innflutning- urinn sl. ár 95 þúsund lestum, en verður yfir 105 þúsund lest- ir í ár. Sýnilegt er að þýzkir útvegs- menn munu flestir tapa á út- gerðinni í haust og það þótt s'ldarverðið hafi hæ" " ''ð veru- lega vegna aflabrestcn. . Fallegt OLÍUFÉLAGIÐ Skeljungur h f., er um þessar mundir að senda frá sér dagatal fyrir árið 1961, eins og félagið gerði um síðast- liðin jól fyrir árið 1960. Félagið hóf útgáfu dagatals árið 1959, og valdi þá sem myndir íslenzka fugla. Vakti það þá þegar mikla athygli og þótti sérlega fallegt og bar vott um smekkvísi og fagr an frágang. Fyrir árið 1960 valdi félagið myndir af „þjóðlegum minjum' en janúarmánuð prýddi prentun í litum af handritj úr dagafal kristinrétti Jónsbókar, en yfir því stóð „Handritin heim“. Daga- tal þetta þótti hið fegursta og bar vott um menningu og góðan smekk, enda á titilblaði ábending um, hve þýðingarmikið væri fyr- ir þjóð vora að varðveita forna menningu og þjóðlegar minjar. Þótti dagatal þetta hið fegursta í alla staði og vakti óskipta at- hygli. Félagið heldur nú áfram á braut þeirri, er þáð hefur markað með útgáfu dagatala sinna, en það er að sýna ákveðna heild og benda á sérstæð og athyglisverð atriði í þjóðlífi voru, því að nú skreyta dagatalið endurprentanir a myndum úr ferðabók Gaim- ards frá 1836, myndir úr þjóðlífi vor Islendinga á þeim dögum, enda er „mottó" dagatalsins að þessu sinni „Gamlar þjóðlífs- myndir“. Þetta dagatal Skeljungs h.f. er alveg sérstaklega fagurt og smekklegt bæði í litum og öll- um frágangi. Lithoprent h.f. hef- ur séð um prentun og frágang. Myndin, sem hér birtist er úr ferðabókum GaimardTs 1836 og sýnir Aðalstræti í Revkiavík. Teikn. A. Mayer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.