Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 24
DAGUR TIL JÓLA PwöwiWaMft LJ DAGUR TIL JÓLA J 295. tbl. — Föstudagur 23. desember 1960 Þuríður Gísladóttir og Kristín Matthíasdóttir eru ekkert nærsýnar. Sjá grein um svipmyndir úr jólaösinni á blaðsíðu 3. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Rekur lánas.arf- semi med 4-5 millj. . kr. umsetningu Hröð atburðarás á Akranesi Sigrún logadi — slysi forðað nicur — bakarar skelfast H J A sakadómaraembættinu er nú lokið dómsrannsókn þeirri er dómsmálaráðuneytið fyrir stuttu óskaði eftir að fram færi á lána- starfsemi þeirri, er maður að nafni Margeir Jón Magnússon, hefur stundað hér í bænum. Eftir hátíðamar mun málið verða sent til dómsmálaráðu- ncytisins til frekari ákvörðunar. Ármann Kristinsson, saka- dómarafulltrúi, hafði rannsókn þessa með höndum. Beindist hún einkum að útvarpssamtali, er Margeir hafði haft um lánastarf- semi sína. Kvað hann samtalið hafa átt sér stað, en því hefði verið hagrætt á segulbandinu og gæfi ekki rétta mynd af því. Voru í þessu sambandi kallaðir fyrir dóminn sjö menn. í sambandi við lánastarfsem- ina sjálfa hafði Margeir Jón ekki viljað gefa rannsóknardóm- aranum neinar upplýsingar um það frá hverjum hann hefði fengið peninga að láni, né held- ur hverjum hann hefði lánað peninga. Kvaðst hann ekki færa neitt bókhald yfir það. Lánastarfsemina kvaðst hann stunda þannig að í sumum til- fellum fær hann peninga að láni gegn 8% vöxtum og lánar þá út aftur gegn 10% vöxtum. Búðir opnar til kl. 24 í DAG á Þorláksmessu eru verzlanir í Reykjavík opnar til kl. 24 á miðnætti, en á morgun, aðfangadag, til kl. 12 á hádegi. Mjólkurbúðum er lokað kl. 6 í kvöld, eins og venjulega og kl. 2 e.h. á aðfangadag. t öðrum tilfellum hefur hann fengið peninga að láni gegn 10% vöxtum, og lánar þá út aft- ur með sömu vöxtum, en til þess að fá í sinn hlut 2%, eins og hann fær af lægri lánunum, hefur hann reiknað sér 2% í þóknun. Hann hafði skýrt rannsóknar- dómaranum frá því, að árleg umsetning lánastarfsemi hans væri 4—5 milljónir króna og hagnaður hans væri áður nefnd 2% af lánaviðskiptunum. Vientiane, 22. des. (Reuter) ALMENNIR borgarar Vientiane, höfuðborgar Laos, sem flúðu bæ- inn í bardögunum á dögunum, eru nú sem óðast að snúa heim og lífið í borginni smámsaman áð færast í samt lag. Samtímis er unnið að því að hreinsa rústir og koma rafmagni og símaleiðsl- um í lag í borginni. Aðalpósthús borgarinnar var opnað aftur í dag. Her hægrimanna heldur uppi lögum og reglu í Vientiane. Her- sveitír kommúnista og hlutleys- ingja hafa flúið borgina og ber- ast nú fréttir um það að her hlut leysingja undir stjórn Kong Leas hafi búið um sig í 60 km fjarlægð frá Vientiane, í héraðinu Pon Hong. Svo virðist af óljósum fréttum, að her hægrimanna hafi veitt þeim eftirför og vofi það- yfir hlutleysingjum að innikró- ast. Aðrar óstaðfestar fréttir herma að rússneskar eða kínverskar her flutningavélar hafi fyrir t.veimur AKRANESI, 22. des. — Laust fyrir kl. 11 árdegis í dag brauzt eldur út í mb. Sigrúnu, þar sem hún stóð í dráttarbrautinni, til viðgerðar. Logsuðumenn voru að sjóða í sundur gamla nagla og kveikti neistaflugið í stýrishúsi bátsins. Kallað var á slökkvilið- ið og slökkviliðsbíllinn þaut af stað. Þegar hann kom á móts við efra húshorn Alþýðubrauðgerð- arinnar á Skólabraut 12, var drengur á skíðasleða að renna sér á miðri götunni. Til að forða sljsi beygði bíllinn að gangstétt- I FYRRADAG var kveðinn upp í bæjarþingi Reykjavíkur dóm- ur, þar sem þjóðleikhússstjóra var fyrir hönd Þjóðleikhússins gert að greiða Þóru Borg, leik- konu nálega 71 þús. krónur með vöxtum í skaðabætur fyrir upp- sögn, og málskostnað allan. í júlílok 1949 sótti Þóia Borg um leikkonustarf hjá Þjóðleik- húsinu og tók til starfa þar það ár. Var hún fastráðin frá 1. nóv. 1949 til 1. sept. 1951 og átti samningur að vera uppsegjan- legur með 3 mánaða uppsagnar- fresti, en framlengjast ella. í lögum segir aftur á móti að ráðningartíma eigi að miða við lok leikárs. í maílok barst stefn- anda bréf frá stefnda, þar sem tekið er fram að samningur rynni út 1. sept. sama ár og at- hugun á endurnýj un beri að gera fyrir 1. júlí sama ár, og íj september annað bréf, þar sem segir að samningurinn verði ekki framlengdur, en tilboð uml B-samning standi til 25. sept. Þessu tilboði hafnaði Þóra Borg með bréfj 24. desember. Og 9. september s. á. ritaði Óskar Borg, fyrir hönd Þóru Borg til dögum varpað 26 förmum af birgðum niður í fallhlífum til hlutleysingjahersins. Hermálaráðherra kommúnista- stjórnarinnar í Norður-Vientnam Giap hershöfðingi hefur lýst því yfir, að stjórn hans geti ekki lengur horft aðgerðarlaus á það, að heimsvaldasinnar leggi Laos undir sig. Segir hann að foringjar hægrimanna í Vientiane stefni að því að gera ættjörð sína að ný- lendu og bandarískri hernaðar- bækistöð. Þungfœrt í GÆR var Hellisheiði orðin æði þungfær og mönnum ráðlagt að fara hana ekki nema á stærri bílum, að því er Snæbjörn Jón- asson, hjá Vegamálaskrifstof- unni tjáði blaðinu í gær. Var í gærkvöldi spáð versnandi veðri svo að búast mátti við að inni og rakst harkalega á ljósa- staur, sem steyptur var í haust, og braut hann. Síðan rann bill- inn með fram húshliðinni og braut rúðu þar. Var þá haldið rakleitt á bruna staðinn, þar sem stýrishúsið á Sigrúnu stóð í Ijósum loga og var brunnið að mestu. Tók 25 mínútur að ráða niðurlögum eldsins. En það er af Ijósastaurnum að segja, að nokkur hluti hans féll á gafl hússins og ljósastæðið braut rúðuna yfir borðinu, þar sem bakararnir voru að hnoða deigið og skreyta terturnar. — menntamálaráðherra og ve- fengdi að nefndur samningur væri úr gildi fallinn. Kom málið fyrir bæjarþing Reykjavíkur, sem komst að þeirri niðurstöðu að þar eð samningurinn hefði lögum sam- kvæmt átt að vera miðaður við lok leikárs, þá hafi uppsögnin ekki verið gerð með nægum fyr- irvara og samningur því fram- lengzt til 30. júní 1958. Var þjóðleikhússstjóra gert að greiða Þóru Borg kr. 70.944,01 með 6% ársvöxtum frá 30 júní 1958 til greiðsludags og kr. 9000 kr. í málskostnað. Dóminn kvað upp Magnús Thoroddsen, fulltrúi borgardómara. Spjöll unn- in a jola- . trjám MIKIÐ hefur borið á því að undanförnu, eða síðan kveikt var á jólatrjám þeim, er bær- inn lét setja upp fyrir skömmu, að allskyns skemmd arverk hafa verið unnin á þeim. Fjöldi pera hafa verið skrúfaðar af trjánum og neðstu greinar þeirra eyði- lagðar eða jafnvel f jarlægðar. Sökum þessa hefur bærinn orðið fyrir miklum aukakostn aði og fyrirhöfnr. Jólatré þessi eru sett upp til þess að setja jólasvip á bæinn og prýða hann, bæjarbúum til ánægju. Þeim ber því skylda til að -stuðla að því af fremsta megni að jólatrén séu látin í friði og foreldrar ættu’ að brýna stranglega fyrir börn- um sínum að njóta einungis þess augnayndis, er trén veita en láta ógert að taka perurnar úr ljósastæðunum og eyði- leggja greinarnar. á heiðum færðin þar versnaði enn. Aðrar heiðar voru einnig orðnar þungfærar í gær, en færar þó, t. d. mátti leiðin til Ólafsvíkur heita lokuð. Og þar eð bætti heldur á snjó og skóf var ekki að vita nema leiðir lokuðust. Ijósastaur ekinn Hrukku þeir skelfdir frá undan glerbrotunum. — 13 ára dreng, Daníel Lárussyni, tókst með snarræði að hlaupa undan staurnum er hann féll. — Oddur. Samnings- fundur um fiskverðið í GÆR var haldinn í Reykja vík fyrsti fundur útvegs- manna og sjómanna um fisk- verðið á komandi vertíð. Áð- ur hafa samningarnir verið nærri jafn margir og útvegs- staðirnir á landinu, en nú er ætlunin að gerður verði heild arsamningur, sem gildi fyrir landið allt og með breyttu i fyrirkomulagi. Samninganefnd sjómanna- samtakanna hafði sl. þriðju- dag afhent kröfur sínar, og á fundinum í gær lögðu útvegs- menn fram drög að samningi, í öðnu samningsformi. Skipt- ust menn á skoðunum og var næsti fundur ákveðinn kl. 4 á þriðja í jólum. Skíðakennsla í Hveradölum EINS og kunnugt er mun Stefán Kristjánsson íþróttakennari, ann ast skíðakennslu við Skíðaskál. ann í Hveradölum um hátíðirn- ar. Allir þeir sem áhuga hafa á skíðaíþróttinni ættu að nota sér þetta sérstaka tækifæri, þar sem kennslan er ókeypis. Kennslan byrjar á 2. í jólum. Daglegar ferðir frá B.S.R. sem nánar eru auglýstar í dagblöð- unum. Ennfremur mun skíðakennsla fara fram við Ármannsskálann, kennari verður Ásgeir Eyjólfs- son, einnig verður KR með skíða kennslu við sinn skála í Skáin- felli. Týndur frá 4 til 8 LAUST fyrir átta í gærkvöldi auglýsti lögreglan að hjá henni væri fjögurra ára gamall dreng- ur, sem ekki gæti sagt hvar hann ætti heima. Hafði verið komið með hann á lögreglu- stöðina kl. 4 síðdegis, en enginn spurt eftir honum. 10 mínútur yfir átta hringdi svo fóstur- faðir drengsins og sótti hann. Aðalfundur Flugbjörgunar- sveitarinnar AÐALFUND sinn hélt Flugbjörg unarsveitin í Reykjavík fimmtu- daginn 15. des. 1960. Þessir mena voru kosnir í stjórn: Sigurður M, Þorsteinsson, Sigurður Waage, varaformaður, Magnús Þórarins- son, gjaldkeri, Axel Aspelund, ritari Árni Edwinsson spjald- skrárritari, og meðstjórnendur Stefán Bjarnason og Magnús Eyj. ólfsson. Varastjórn: Guðmundur Guðmundsson, Helgi Sigurðsson og Jakob Albertsson. Fráfarandi formaður, Björn Br. Björnsson baðst undan endurkosningu. Rústir hreinsaðar í höfuðborg Laos Þjóðleikhússtjóri areiði Þóru Borg nær 71 bús. króna skaðabætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.