Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.12.1960, Blaðsíða 3
w 9 000 * -0- r r * #■# * -f -0 # *#-0 *:* 0 * 00f0f\ *s Föstudagur 23. des. 1960 MORr.VNnj 4Ð1Ð 3 i 0 m & \ Svipmyndir úr — Nei, þetta er næstsíðasta jélaskipið, segir karlinn á bryggjunni þegar við hittum hann niðri við Lagarfoss, — Goðinn kemur í kvöld og h-ann verður sá síðasti. Við prikum um borð í Lagarfoss í krapaslabbi og kuldanæðingi. Við komumst fram að fremsta spili og "klifrum upp til karlsins á spilinu, eða >(vinsumannsins“, eins og hann er kallaður fyr- ir norðan. — Eins og þú sérð allt á „full speed“. Þetta er ágætt spil, ja—á, segir hann Þor- kell Þórðarson og dregur ofurlítið seiminn. Hann lítur ekki af vörunum, sem hann er að draga með spilinu upp úr lestinni eða „slengjunni“ eins og þeir kalla það. — Er ekki kalt að norpa svona? — Jú, jæja. Það er öllum kalt sem híma. Annars hefir tíðin verði svo góð í vetur að það hefir ekkert verið kalt, segir Þorkell og horfir niður í lestina þar sem „slengjan“ er að fara af stað. — Eruð þið ekki komnir í jólaskap? — Jú,jú. Við erum allir í jólaskapi. Við erum yfirleitt alltaf í góðu skapi. Slettist stundum smávegis upp á vin- skapinn, en það er undirems rokið úr mönnum aftur. — Ertu búinn að vera lengi á spili? — Já, nokkuð. Alltaf af og til frá 1955. Nú hrópa karlarnir neðan úr lestinni. __ Keli, vertu ekki að láta veiða þig! Og Keli segir: — Talaðu heldur við þenn- an á „lúgunni“. Hann hefir sjálfsagt margt að segja þér, eða þéssir þarna upp í bryggj unni. Já. Þeir tala heifmikið. Ljósmj ndarinn mundar vél ina fyrir framan Kela. — Passaðu að „slengjan" fari ekki í hausinn á þér, iegir einhver við ljósmyndar- ann. Hann dokar við og smellir svo á Kela þegar öllu er óhætt. — Það koma sjaldan fyrir slys hérna er það ekki? — Jú, sem betur fer. Þetta eru mest vanir menn. — Ertu farinn að kaupa jólagjafirnar? — Nei. Maður dregur þetta fram á síðustu stundu. Það er nú þetta með aurana. Það er nú ekki of mikið af þeim. Maður gerir öll innkaupin á Þorláksmessu. Þá fer maður út. — Hafið þið kannske ekki tíma til að fara fyrr? — Jú, en maður revnir bara að halda í aurinn eins lengi og maður getur, segir Keli og brosir. — Taktu mynd af mér líka, er öskrað neðan úr lest. En ljósmyndarinn anzar því engu og við höldum af stað á ný. Okkur er orðið kalt að norpa yfir Kela, syo við kveðjum og óskum gleðilegra jóla. Það er nóg að gera á Póst- húsinu fyrir jólin. Á annarri hæð vinnur fjöldi fólks að því að lesa sundur póstinn. Það situr umhverfis stór borð og fyrir framan það iiggur urmull bréfa. — Eru þetta allt jólakort? spurði blaðamaður laglega stúlku, sem sat við eitt borð- ið. — Já, mest allt, og kannski stöku ástarbréf. — Nokkuð til mín? — Við lesum ekki nöfnin á bréfunum. Það mundi bara tefja fyrir. — Það er nóg fyrir okkur að vita hvort bréfin eiga að fara út á land, eða hvort það eru innanbæjarbréf, sagði stúlka við hliðina á henni. — Við vitum bara ekki alltaf hvert þau eiga að fara, sagði ungur maður við enda borðsins. — Vantar oft heimilisföng? — Það vantaði heimilisföng á sjö hundruð bréf í fyrra. Sjáou þetta til dæmis, það Þorsteinn Viggósson og frú velja barnabækur. stendur bara: Þrúður Guð- mundsdóttir. Eða Björn Jóns- son og frú. Ekkert meira. Á sumum er ekkert nema frí- merkið. — Er ekki helzt að senda jólasveininum svona bréf? — Við höfum sérstakan mann til að koma þessum bréfum til skila. — Heldurðu að það sé sent meira a*f jólakortum núna en Lögregluþjónn númer 134. í fyrra? — Já, þau eru áreiðanlega fleiri, en minni bögglapóstur. — Hvað vinnið þið lengi í kvöld? — Til miðnættis. Afgreiðsl- an er eiginlega búin, en stöku eftirlegukind er enn að koma með jólakort. — Lítið þið upp stúlkur, sagði ljósmyndarinn, ég ætla að taka mynd af ykkur. En það var ekki fyrr en blaðamaðurinn spurði hvort þær væru nærsýnar, að þær litu upp og brostu. Það var eins og jólakveðja, en ekki ástarbréf. Við erum komnir upp á hornið hjá Bókabúð Braga. Þar stendur ungur lögreglu- þjónn og baðar út öllum öng- um. Bílarnir þjóta fram hjá honum, ýmist norður, suður eða austur. bíl úti í Hafrtarstrætinu. Erik hefir ekki tíma til að skjóta að okkur nema setn- ingu og setningu, því hann verður stöðugt að vera að hlaupa frá og stjórna umferð- inni. — Hefirðu lent í nokkrum ævintýrum það sem af er? — Nei, ég hef eiginlega sloppið furðanlega vel. Eg hef mest verið á næturvakt frá því ég byrjaði. — Engin slagsmál? — Ekki stórkostleg. Svona smávegis. — Heldurðu að verði ekki meira fjör í þessu á morgun? — Jú, ég geri ráð fyrir því. ,— Þegar menn fara áð blóta heilagan Þorlák? — Já, þá verður sjálfsagt „hasar“, einhver að minnsta kosti. Annars er ég svo nýr i þessu. Ég þekkj þetta ekki vel ennþá. Nú kemur dama á fólks- vagni með gleraugu (þ. e. daman) og snarstanzar fyrir framan okkur. En hún á að halda áfram og Erik gefur henni hvatlega merki. Hún „spýtir í“, svo fólksvagninn spólar á malbikinu og eld- glæringarnar standa af snjó- keðjunum. — Númer hvað ertu?“ kalla ég til Eriks um leið og við höldum af stað. — 134, segir hann og ham- ast við að stjórna umferðinni. Hann l.citir Erik S*teinsson og byrjaði í lögreglunni um •íðustu mánaðamót. — Hvað gerirðu með þessa miða, sem eru þarna á frakka erminni þinni? — Þeir eru til þess að hengja á bílana, sem hafa •taðið of lengi við stöðumæl- «na og svo fyrir bíla, sem er ólöglega lagt, eins og til dæm- is þessum græna þarna, segir Erik og bendir á grænan fólks Það var mikil ös í hinni nýju og glæsilegu bókabúð AB í Austurstræti, bókabúð Sig- fúsar Eymundssonar. Nokkrir strákar flettu myndablöðum innst í verzluninni. Konur og karlar handléku bækur og gengu síðan að afgreiðsluborð unum. Ung hjón með litla stúlku stóðu við borð á miðju gólfi, þar sem barnabókunum er komið fyrir. — Er sú litla orðin læs? spurði blaðamaðurinn og vék sér að pabbanum. — Nei, en hún getur skoðað myndir. — Áttu fleiri? — Já, það er önnur þarna bak við konuna, en hún er ekki læs heldur. — Eruð þið að kaupa til jóla gjafa? Já, ég þarf að kaupa sjö barnabækur handa systkinum mínum. — Er vandi að velja? — Ja, það er hætt við að einhver annar sendi þeim sömu bækurnar, Shirley-bæk- urnar og Hönnu-bækurnar eru til dæmis mjög í tízku. — Af hverju gefið þið þeim þá ekki eitthvað annað? — Það er hægt að skipta bókunum, ef þau fá þær sömu Enamh. á bls. 23. Kell á spilinu. mmm *-*'*-0‘* « m-m # S1A K S T11 \ A li Stefnulausir Á það hefur verið margbent hér í blaðinu, að stjórnarand- stæðtngar væru stefnulausir í efnahagsmálunum. Að vísu hef- ur það ekki verið talið til stórtíðinda, þó að kommún- istar væru ekki að burðast við að hafa sérstaka efna- hagsmálastefnu. Þeirra iðja væri hvort sem er niðurrif, ea ekki uppbygging. Á hinn bóginn höfðu menn ætlað, að Framsókn arflokkurinn reyndi að marka einhverja ákveðna stefnu, sem hann hygðist berjast fyrir, sam- hliða því, að hann berðist á mótl viðreisninni. Frá Framsóknarflokknum hef- ur hinsvegar ekkert heyrzt í þessu efni annað en „hringavit- Ieysan“ svonefnda, þar sem f senn átti að auka uppbætur og draga úr þeim, auka f járfestingu og minnka hana o. s. frv. Stefnuyfirlýsing í einu máli En nú hafa stjórnarandstæð- ingar birt sameiginlega stefnu- yfirlýsingu í einu máli. Hún er að vísu sett fram á nokkuð ó- vanalegan hátt en þó svo skýrt að ekki verður um villzt. Fram- sóknarmenn og kommúnistar höfðu samvinnu um kjör í hús- næðismálastjórn á Alþingi. Það út af fyrir sig vekur nú orðið ekki mikla athygli, að náin sam- vinna sé milli þessara flokka. En hitt var eftirtektarvert, að á lista þeirra voru nöfn beggja Guiu bókar höfundanna, þeirra Hann- esar Pálssonar og Sigurðar Sig- mundssonar. Er því ekki um að villast, að stjórnarandstæðingar telja stefnu þeirra í húsnæðis- málum í beztu samræmi við ósk- ir flokka sinrra. Þess vegna verð- ur ekki hjá því komizt að draga þá ályktun, að kosningu þeirra í húsnæðismálastjórn beri að skilja sem endurnýjun á stefnu ÍFramsóknarmanna og kommún- ista, sem túlkuð var í Gulu bók- inni á sinni tíð. Gula bókin Af þessum sökum er rétt að rifja upp nokkur atriði úr Gulu bókinni og Gula frumvarpimi, sem lögfesta átti á vinstri stjórn artímanum. Skal hér getið um fátt eitt af því, sem þar var boðað. en heykzt á eftir bæjar- stjórnarkosningarnar 1958, þeg- ar Sjálfsæðisflokkurinn fékk nær 60% kjósenda í Reykjavík. 1) Húseigendum skyldi sam- kvæmt Gulu bókinni bannað að gera leigusamninga án atbeina rikisins. 2) Ríkið skyldi ákveða upp- hæð húsaleigunnar. 3) Banirað skyldi að scgja upp húsaleigusamningum nema í und antekningatilfellum. 4) Rikið svipti húseigendur ráðstöfunarrétti yfir því hús- næði, sem það telur þá ekki full nýta eða skyldi þá til að borga „leigu" fyrir sitt eigið húsnæði. 5) Upphæð sem svarar til 5 ára leigu átti sá að greiða, sem vildi rá.ða yfir sinu eigin húnæði. 6) Þá átti að setja á ríkiseinka sölu fasteigna. 7) Húsnæðisskömmtun var boðuð, þar sem íbúðastærð væri takmörkuð við „þokkalega 3ja herbergja ibúð á 60 ferm. og 4ra herbergja á 80 ferm.“ 8) Stofnuð skyldi byggingar- vöruverzlun rikisins, sem fengi aðstöðu til einokunarverzlunar með byggingarefiri. 9) Lánveitingar skyldu tak- markaðar og eingöngu varið til opinberra íbúðabygginga en ein staklingar skyldu engin lán fá til að byggja sér húsiræði. Þetta voru nokkur meginat- riði Gulu bókarinnar, sem nú er boðuð á ný af stiómarsnd- stæðingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.