Morgunblaðið - 23.12.1960, Page 12

Morgunblaðið - 23.12.1960, Page 12
12 Moncvisnj 4r>if> Föstudagur 23. des. 1960 Útg.: H.f Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22430. Asknftargjald Kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. BÚNAÐAR- SJÓÐIRNIR UTAN IIR HEIMI Rússneeknr verksmiðjutogari. xandi samkeppni Framleio.sla Norðmanna á frystum fiskflökum jókst um þriðjung á síðasta ári. En þeir vilja lækka fisk- verð til að standast samkeppni verksmiðjuskipanna, sem þeir telja hættulegustu keppinautana að því er varðar vörugæði. HPÍMINN hefur mjög hamr- að á því undanfarið, að framkvæmdir hafi dregizt saman í sveitum landsins, og sé það mest því að kenna, að núverandi ríkisstjórn hafi vanrækt að tryggja sjóðum Búnaðarbankans, Ræktunar- sjóðnum og Byggingarsjóðn- um, nægilegt lánsfé. Tíminn fer hér eins og fyrri daginn með hreinar blekkingar. Vinstri stjórnin skildi við sjóði Búnaðarbank- ans eins og flesta, ef ekki alla aðra sjóði, í kalda koli. Leit því helzt út fyrir að starfsemi þeiVr"' myndi stöðv ast um þæ sem for- maður Frai- ..arflokksins stökk fyrir borð og gafst upp á að stjórna landinu með vinstri stjórn. Núverandi ríkisstjórn hef- ur hins vegar tekizt að út- vega bæði Byggingarsjóðn- um og Ræktunarsjóðnum lán til þess að halda áfram lána- starfsemi í þágu byggingar- framkvæmda í sveitum. Hef- ur Morgunblaðið birt töl- GAMLAR | TTFLUTNINGSFRAM- LEIÐSLA okkar á í miklum erfiðleikum. Meðal ástæðna þeirra eru aflabrest- ur og verðfall á afurðum. En þar koma einnig til gamlar syndir. Við íslendingar höf- um haft mikinn áhuga fyrir að endurnýja fiskiskipastól okkar og höfum unnið að því af röskleika og bjart- sýni. En okkur hefur sézt yf- ir nauðsyn þess að tryggja jafnhliða rekstrargrundvöll at vinnutæk j anna. Sjálfstæðismenn hafa á undanförnum árum aðvarað þjóðina í þessum efnum. Þeir hafa bent á að það sé ekki nóg að eiga glæsileg og full- komin framleiðslutæki, held- ur verði að vera hægt að reka þessi tæki, þannig að þau skapi arð og atvinnu. Þessum aðvörunum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Kommúnistar og ýmsir aðr- ir hafa lagt kapp á að hlaða stöðugt nýjum útgjöldum á hin nýju framleiðslutæki. Þa5 eru þessar gömlu syndir, sem dulbúnar voru með styrkja- og uppbóta- stefnunni, sem útflutn- ingsframleiðslan og öll ur frá Búnaðarbankanum, sem sanna að lánveitingar úr þessum sjóðum hafa sízt ver- ið minni árið 1960 en undan- farin ár. Þessar tölur segja sann- leikann allan um lánastarf- semi Byggingarsjóðsins og Ræktunarsjóðsins. Með þeim er niður kveðinn þvættingur Framsóknarmanna um það, að núverandi ríkisstjórn hafi vanrækt stuðning við þessar þýðingarmiklu stofnanir landbúnaðarins. Það er rétt, sem bankastjóm Búnaðar- bankans lýsti sjálf yfir hér í blaðinu fyrir skömmu, að erfiðleikar þessara sjóða spretta fyrst og fremst af því, að þeim hefur ekki ver- ið útvegað annað lánsfé en erlent, og þeir hafa því beð- ið mikinn hnekki við hverja gengisbreytingu, sem fram- kvæmd hefur verið. Núver- andi ríkisstjórn hefur hins vegar tekizt að útvega sjóð- urum innlend lán og er það stórum hagkvæmara fyrir þá. SYNDIR þjóðin sýpur af seyðið í dag. Nýjar kröfur Núverandi ríkisstjóm hef- ur reynt að skera fyrir þetta mein. Hún hefur gert víð- tækar ráðstafanir til þess að koma framleiðslunni á heil- brigðan grundvöll. En menn- irnir, sem engum aðvörunum sinntu og héldu áfram að hlaða auknum rekstrarkostn- að' á atvinnutækin, halda á- fram að berjast fyrir enn auknum framleiðslukostnaði. Þeir taka engum aðvömn- um. Þeir halda áfram að segja þjóðinni að hún geti stöðugt gert nýjar kröfur á hendur útflutningsframleiðsl unni, án minnsta tillits til raunverulegrar greiðslugetu hennar. Ef íslenzka þjóðin var- ar sig ekki nú á þessu lýðskrumi, hlýtur illa að fara. Um það getur eng- um hugsandi manui bland azt hugur. STOFNUN eigin sölukerfis á erlendum mörkuðum hefur gefið mjög góða raun, og hefur Frionor aukið veltu sína á síðasta ári um full 35%. Við flytjum nú vörur okkar út til 28 landa og hef- ur komið í ljós að aukningin er mest í þeim löndum þar sem við höfum eigin dóttur- félög, segir Arne Asper, skrif stofustjóri Norsk Frossenfisk í viðtali við Óslóarblaðið Aftenposten. Vörugæði — Frionor hefur lagt höfuð- áherzlu á að kynna frosin fisk- flök sem gæðavöru. Ástæðan fyrir því að svo mikill fjöldi manna úti um heim hefur ekki borðað fisk er að talsverðu leyti sú að gæðin hafa verið lítil. Þessvegna höfum við orðið að sannfæra neytendurna um að frystur fiskur sé gæðamikil og góð næring. Þá höfum við að verulegu leyti þurft að kenna húsmæðrum hvernig á að fara með og matreiða fiskinn, segir skrifstof ustj órinn. — En ég vil ekki breiða yfir erfiðleikana, sem við höfum við að etja. Einn þeirra er óstöðug- leiki aðflutninga hráefnisins til frystihúsanna. Fjölgun frystiskipa — Hin stöðuga fjölgun frysti- skipa, togara, sem eru búnir vinnslu- og frystitækjum, er áberandi stefnubreyting alþjóða fiskiðnaðarins. Bæði í Vestur- Þýzkalandi og Bretlandi er nú verið að fjölga verksmiðjuskip- um. Þegar ég var fyrir skömmu í heimsókn í Hollandi, fékk ég einnig tækifæri til að sjá hol- lenzkan togara búinn frysti- tækjum. Hann var 475 lestir og 52 metra langur. Burðarmagn er 200 lestir af frystum flökum og unnt er að frysta 24 lestir á sólarhring. Sennilega er fjölgun verk- smiðjuskipanna mest í Vest- ur-Þýzkalandi. — Reiknað er með að þar verði árið 1961 25 verksmiðjuskip búin frysti tækjum. Áætlað er að þessi skip framleiði samtals 25.000 lestir af frystum fiskflökum árlega. Til viðbótar kemur svo það magn sem fryst er í landi, og er það áætlað um 15.000 lestir. — Heildarfram- leiðsla Vestur-Þjóðverja á frystum fiskflökum verður þannig 40.000 lestir á ári. Markaður fyrir hendi — Eg minnist á þetta til að sýna hina hörðu samkeppni, sem reikna má með í framtíð- inni. Það er ekki að efa að mark c'ður er fyrir aukna þýzka fram- leiðslu þegar tekið er tillit til þess að heildarsala á frystum fiski í Vestur-Þýzkalandi var að eins 3.000 lestir árið 1959, eða LONDON, 21. des. (Reuter). — Sú óvenjumikla slysaalda, sem gengið hefur yfir, heldur enn á- fram. Meðal slysafrétta sem bár- ust í dag eru þessar helztar: Frá Rio de Janeiro kemur fregn um það, að 30 manns hafi drukknað þegar bílferja sökk við bæinn Recife í Pernambuco í norðausturhluta Brasilíu. Skeyti frá Madrid á Spáni seg- ir frá því, að 20 manns hafi drukknað, þegar 5000 tonna spænskt skip, Elorrio, r'akst á sker og sökk í stormi út af Gali- zano á NV-strönd Spánar. Livorno. — Hingað kom til hafnar í dag þýzka olíuskipið Essberger. Það hafði meðferðis fjóra skipbrotsmenn og fjögur lík áhafnar af ítalska strand- ferðaskipinu Gicia, er fórst suð- ur af Genúa í nótt. Brest. — f nótt kom upp eld- ur í 9000 tonna rússnesku olíu- skipi, Egorjevsky, á Biskajaflóa. Skipið sökk, en öll áhöfnin, 40 manns, þar með ein kona, komst í þrjá björgunarbáta. Síðar bjarg- aði enska olíuskipið Clyde Serg eant mönnunum og flytur þá til Gibraltar. Rotterdam. — Tvö stór olíu- flutningaskip rákust á nálægt Rotterdam á Maas-fljóti. Þau voru brezka skipið San Gaspar og Panama-skipið Alvenus. Skip- in voru hlaðin hráolíu. Ekkert manntjón varð. New York. — Seint í kvöld bárust fregnir af því að banda- riska 16 þús. tonna olíuskipið r.okkru minni en í Noregi. MiS- að við fólksfjölda hefði saiaa átt að vera nærri 50.000 lestir. Hingað til hafa vörugæðin verið styrkur okkar, en eftir því sem keppinautar okkar breyta yfir í verksmiðjuskip, aukast gæðin hjá þeim. Hráefnisverð — Það er ekki einungis Vest- ur-Þýzkaland, heldur fjöldi ann- arra landa í Evrópu, þar sem fiskneyzlan er lítil og sem gæti því orðið góður markaður fyrir fryst norsk fiskflök. En með aukinni samkeppni er það nauð- synlegra en nokkurn tíma fyrr að verð hráefnisins hér heima verði í samræmi við það sem fæst fyrir framleiðsluna. Fáist það, reiknum við með áfram- haldandi möguleikum og vexti, segir Asper skrifstofustjóri. Pina Ridge hefði brotnað i sund- ur í miðjunni í stormi út af Bost on. Á því var 39 manna áhöfn og er óttazt um afdrif hennar. Matsveina- og veitinga- þíónaskólamót NORRÆNT Matsveina- og veit- ingaþjónaskólamót var haldið i Sóla Strand hóteli við Stavanger dagana 24. til 26. okt. sl., og mættu þar fulltrúar frá öllum Matsveina- og veitingaþjónaskól um á Norðurlöndum. Frá ís- lenzka skólanum mættu skóla- nefndarmennirnir Pétur Daníels son og Janus Halldórsson. Þessi mót eru haldin til skiptis í hverju Norðurlandanna fyrir sig. Á þessu móti voru tekin fyrir mörg mál, er varða starf- semi skólanna. Haldnir voru fyrirlestrar m. a. um samstarf milli skólanna og veitingastað- anna, og um aukna verklega kennslu í veitingahúsum. Einnig var rætt um samræmingu á kennsluaðferðum, og um skipti milli skólanna á kennslutækjum, svo sem kennslukvikmyndum, kennslubókum o. fl. Á næsta ári verður þetta mót haldið í Svíþjóð, og síðan er fvr- irhugað að halda þessi mót ann- að hvert ár, og verður væntan- lega haldið í Reykjavík árið 1963. Slysaaída í he/mlnum !

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.