Morgunblaðið - 15.01.1961, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.01.1961, Blaðsíða 23
Sunnudagur 15. jan. 1961 23 — Minningarorð — Ekið yfir Framh. af bls. 6. áhuga með frú Ragnhildi í hús- mæðrafræðslunni. Ég man, hvað ég dáðist að dugnaði hennar og stórhug, þegar hún, svo að segja upp á sitt eindæmi, festi kaup á húseigninni Sólvallagötu 12, sem nú er Húsmæðraskóli Reykjavík ur. Því að frú Ragnhildur voldi það ekki vansalaust, að í höfuð- stað landsins væri enginn hús- mæðraskóli. En margir siíkir skólar höfðu þá verið stofnaðir víðsvegar um landið. Ég hygg, að þær myndu ekki vera margar íslenzkar konur, sem sýndu slíkt framtak, þótt þær hefðu efni til Iþess. Frá stofnun Húsmæðra- skóla Reykjavíkur hefur hann alltaf verið hennar óskabam. Ekki get ég fullþakkað frú Ragnhildi hinar mörgu og ágætu heimsóknir 1 Húsmæðrakennara skóla íslands. Hún hafði þann sið, þegar nýtt kennslutímabil hófst að koma til mín fyrri hluta vetrar og hélt þá jafnan uppörvandi hvatningar- ræðu yfir nemendunum um að stunda námið af samvizkusemi meðan þær dveldu í skólanum. Brýndi hún fyrir þeim hin þýð- ingarmiklu verkefni, sem fram- undan væru að námi loknu. ( Vitnuðu nemendur oft í heim- sóknir frú Ragnhildar, því að persónuleiki hennar hlaut að verða ógleymanlegur, þeim sem kynntust henni, ekki sízt, þegar hún ræddi áhugamál sín. f í upphafi orða m,inna minntist ég á heimsóknir frú Ragnhildar á heimili foreldra minna. Þær umræður báru þann ávöxt, að árið 1930 sameinuðust flest kven félög landsins um stofnun Kven- (élagasambands íslands, en frú Ragnhildur var fyrsti forseti þess og gegndi því starfi með miklum sóma til ársins 1947, en þá baðst hún eindregið undan • endurkosningu. f Fyrstu árin voru fjárráð sam- bandsins lítil, en þó var skipu- lögð og framkvæmd fræðsla fyr- i ir húsmæður landsins. Ég hygg, að öll sú fræðsla hafi að mestu j verið skipulögð af frú Ragnhildi I og framkvæmd í samráði við for I menn kvenfélaganna. Því að allt af var hún, þrátt fyrir annir á stóru heimilí, reiðubúin að gefa sér tíma til að ræða við konur landsins um framtíðarstarf hvers (élags, og margar konur þekki ég, sem jafnan minnast ógleym- anlegra stunda á heimili frú Ragnhildar. Fáar íslenzkar konur munu hafa unnið húsmæðrafræðslu landsins jafn mikið gagn og frú Ragnhildur Pétursdóttir. Hún var mikil hugsjónakona, sem raunverulega sá langt fram í tím ann. Fyrir 30—40 árum taldi hún ajálfsagt, að samtök kvenna og hænda störfuðu saman að fræðslu húsmæðra, enda er nú ■vo komið, að unnið er að því, að Kvenfélagasamband íslands og Búaðarfélags íslands hafi sameig inlega sem víðtækasta fræðslu- ■tarfsemi með höndum. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa átt frú Ragnhildi að vini og ráSgjafa um langt árabil. Ég hef fcomið að Háteigi, þegar mér i þóttu vandamálin meiri en svo •8 ég fengi ein við ráðið. Ég fór æfinlega þaðan með því hugarfari, að vandinn væri leystur í það skiptið. Heimiliö í Háteigi er rammíslenzkt, þar rík- tr þjóðlegur menningarbragur. t>au hjónin áttu því láni að fagna •8 eignast þrjár mannvænlegar dætur, sem allar eru á lífi. Ég hef einkum kynnst yngstu dótt- urinn, Guðnýju. Var hún nem •ndi minn í Húsmæðrakennara- ■kóla fslands og lauk prófi þaðan árið 1946. p Nú að lokum vil ég færa frú Ragnhildi mínar innilegustu -þakkir fyrir margvíslegan stuðn- ing og hvatningarorð í starfi i tnínu og fyrir hin margvíslegu i etörf 1 þágu húsmæðrafræðslu j iandsins. [ Bið ég henni og íjölskyldu hennar blessunar guðs. Helga Sigurðardóttir. Framh. af bls. 15. mörkinni, og hafa orðið slys af. Margrét og félagar hennar fóru því með ferju niður eftir Níl, frá Juba í Suður-Súdan til Kosti, og ætluðu að taka lest næsta spöl- inn. En þá hafði gleymst að bóka flutning á bilnum með lestinni, og þar sem þetta var Súdanmönn um sjálfum að kenna, gáfu þeir ferðafólkinu leyfi til að aka sól- arhringsferð yfir eyðimörkina. — Það var ljóta ferðalagið, seg ir Margrét. Þessi fíngerði sandur smaug alls staðar inn og settist á allt. Það var ekki hægt að sjá nokkurn mun á okkur og svert- ingjunum, er við stigum út úr bílnum, þakin svörtum sandi. Það er aðeins tvennt sem ég vildi ekki þurfa að endurtaka úr öllu ferðalaginu, að aka yfir eyði- mörkina í Súdan og fara með bát niður eftir Níl. Hitinn og mosk itoflugan ætluðu alveg að drepa okkur. Við miðjarðarbauginn var ekki nærri svona heitt, enda fór- um við yfir hann á hásléttunni í Ugaryja. En fallegt er meðfram Níl, allir bakkamir þaktir ynd- islegum hyasintum 1 bláum og bleikum litum. Seinasta spölinn gegnum Súdan tókum við annan Nílarbát að landamærum Egypta lands. — Ég hefði ekki trúað að til væri eins frumstætt fólk og : Súdan. Það eru regluleg náttúru börn, heldur Margrét áfram. Fólk gengur allsnakið, með perlufestar einar um hálsinn, nema í stærstu bæjunum. Það er alveg bannað að taka myndir landinu, því stjórnin vill ekki að umheimurinn fái að sjá hve stutt þjóðin er á veg komin. Jafnvel smástrákar vita að það má ekki taka mynd af þeim og hefja skít- kast, ef það er reynt. Krakkam- ir eru uppþembdir og belgmiklir af vannæringu, og einu sinni sá- um við krakka í leik, sem voru að kíkja undir vömbina hvert á öðru til að sjá hvort þau væru að leika sér við stelpu eða strák Súdanbúar eru mjög háir vexti, hæsta fólk sem ég hefi séð. Þeir eru ákaflega gestrisnir. Raka: inn í einu þorpinu bauð okkur heim, þar sem við vorum öll sett að matarborðinu. Allir fengu brauðbita og difu þeim svo ofan í sömu skálar með ýmsum rétt um. Hann fór líka með okkur til vinkonu sinnar, sem bjó í strá- kofa í einu smáþorpinu. Sú átti eitt borð og eitt glas, og var okk ur boðið upp á heimabrugg úr því. Þarna var hátíð og dönsuðu allir og hoppuðu um með logandi vendi — við auðvitað líka. Mátti ekki á milli sjá hvort við hlóg- um meira að þeim eða þeir að okkur. — Og þaðan hafið þið komið inn í arabamenninguna úr svert ingj alöndunum? — Já, og þar er miklu meiri skítur og sóðaskapur en hjá svertingjunum, sem að vlsu lifa frumstæðu lífi svo að segja jörðinni, en eru hreinlegir á sinn hátt. Þó verð ég að segja, að mér fannst munur að komast þangað sem menn kunna að nota salerni, Á lestarferðinni í Súdan gengu menn örna sinna út fyrir lestina, í hvert skipti sem stanzað var, jafnvel þó salerni væri í lestinni Kipptu þeir bara upp síðu skikk] unum sínum og settust niður röðum, notuðu hendurnar í stað- inn fyrir bréf og skoluðu svo af þeim í vatnskrukkum, sem þeir höfðu meðferðis. Já, það er ekki von að fólk trúi mér, þegar ég segi frá þessu, en satt er það. Áróður í Egyptalandi f Egyptalandi skoðaði ferða- fólkið grafhýsin frægu í Luxor, og dvaldist í Kairo í 10 daga, meðan beðið var eftir endurnýj- un á leyfinu fyrir bílinn. Heppi- legast þótti að taka skip frá Alex andríu til Lebanon, því ekki mun vera auðvelt að fá leyfi til að koma til ísrael frá Arabalandi. Sama er að segja hvað Egypta- snertir, þeir eru ekkert hrifmr af að fá ferðafólk, sem verið hef ur í ísrael og vilja alls ekki Gyð- inga. Einn af Suður-Afríkubúun- um, sem hafði ætlað að koma með þeim félögum í ferðina, varð að hætta við það, vegna þess að hann var af Gyðingaættum og var neitað um vegabréfsáritun til Egyptalands. í Kairo hitti ferða- fólkið líka verzlunarmann, sem bað fyrir skilaboð til Englands. Hann hafði fengið skeyti frá ein- hverjum viðskiptavini þar, sem hljóðaði eitthvað á þessa leið: Hvernig eru viðskiptin við ísra- el“. Þessu skeyti hafði hann aldrei þorað að svara og aldrei skrifað þessum viðskiptavini aft- ur, af ótta við_ að vera álitinn njósnari fyrir ísrael. Bað hann nú ferðalangana að útskýra mál- ið fyrir þessum manni. í Egypta landi rekur stjórnin ákafan áróður, segir Margrét. Enda eru heimamenn farnir að halda að þeir standi öðrum þjóðum fram- ar. T.d. sáum við í einum bækl- ingi, sem dreift var, að Egyptar væru mesta iðnaðarþjóð í heimi. Ferðalangarnir sigldu svo frá Alexandríu til Lebanon, með við komu á Kýpur. Þau syntu í Mið- jarðarhafinu og sváfu á strönd inni í Lebanon, þar sem ríkir miklu meira hreinlæti en í öðr- um Arabaríkjum. En þar urðu þau vitni að ljótum leik, fiski- menn voru að veiða fisk með dinamitsprengjum. Enda segir Margrét að varla sé lengur nokk um fisk að sjá nálægt strönd- inni. Við verðum nú að fara fljótt yfir sögu. Ferðin yfir Tyrkland og Evrópulöndin gekk ágætlega og komið var til London eftir mánaða ferð. . » betri en þeir alsvörtu og þar sem þeir fá ekki að umgangast hvíta fólkið, halda þeir sig sér. Múlatt arnir tala flestir Búamálið og eru afkomendur Svertingja og Búa. Telja sumir skýringuna á því hve Búarnir eru ákveðnir í að halda hvítum og svörtum aðskildum, vera þá að þeir óttist að þeir verði sjálfir fyrstir til að bland- ast svertingjunum. Af hvítum mönnum eru 60% Búar í Suður- Afríku og 40% afkomendur Eng lendinga. Búarnir hafa þar af leiðandi völdin. Svertingjarnir koma ekki til greina, því þeir eru réttindalausir. Þetta er meira Dagskrá Alþingis Á MORGUN verSur fundur í Sam- einuðu Alþingi, er hefst kl. 1,30. — Fimm mál eru á dagskrá: 1. Byggingarsamvinnufélög. þáltill. — Frh. einnar umr. — 2. Jarðhitaleit og jarðhitaframkvæmdir, þáltill. — Ein umr. — 3. Hiutdelld atvinnugreina 1 þjóðarframleiðslunni, þáltill. — Ein umr. — 4. Niðursuðuiðnaður síldar, þáltill. — Ein umr. — 5. Virkjun Jök- ulsár á Fjöllum, þáltill. — Ein umr. Aðskilnaður hvítra og svartra Að lokum spurði ég Margréti svo ofurlítið um veru hennar í Suður-Afríku. Hún kvaðst lengst hafa verið einkahjúkrúnarkona á spítölum eða í heimahúsum í Jó hannesarborg og Höfðaborg, þar sem mest sé upp úr því að hafa. Þar er gott að vera, sífellt sólskin sagði hún, en auðvitað er ég mótfallin aðskilnaði hvítra og svartra, eins og hann er lögboð- inn af stjórninni. Samt held ég að svertingjarnir hafi betra kaup og séu yfirleitt menntaðri í Suð- ur-Afríku en annars staðar í Afríkuríkjunum. Þeir hafa sína skóla. En aðskilnaðarlögin loka öllum leiðum fyrir þeim. — Hvernig er það t.d. á sjúkra húsunum? — Annað hvort eru sér sjúkra hús •fyrir svarta eða sérstakar deildif á almennu sjúkrahúsun um. Hvít kona getur þó hjúkrað svertingja, en enginn hvítur maður mundi láta svarta hjúkr- unarkonu stunda sig. — Svo þú hefur lítið kynnst svertingjunum? — Ég hitti auðvitað marga, og talaði við þá, eins og t.d. konuna sem gerði hreint hjá mér. Það er leyfilegt að tala við svertngja á götu, en ekki umgangast þá náið. Hefði ég gert það, ég hefði umgengist svertingjana, þá hefði ég verið dregin fyrir rétt og fengið dóm. Þessi aðskiln aðarstefna skapar alls konar vandamál. Þa ðeru líka hömlur á að Kínverjar og Indverjar megi umgangast hvíta. Ein kín- versk kunningjakona mín frá hjúkrunarkvennaskólanum í Eng landi, gat t.d. ekki stundað hjúkr un í Suður-Afríku. Hún fékk ekki að hjúkra hvítum og vildi ekki vinna á svertingjaspítala Þá kemur það, allir þykjast betri en einhver. Múlattarnir, sem mik ið er af í Höfðaborg, telja sig EGGERT CLAESSEN og GÚSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögm en.i>. Þórshamri við Templarasund. vandamál, en svo að hægt sé aS afgreiða það með nokkrum orð- um. Þegar ég fer að búa mig til ferðar og spyr Margréti hvort hún eigi ekki myndir úr þessu mikla ferðalagi, segist hún hafa tekið kvikmynd á 12 film- ur og fjölda af ljósmyndum, en . það sé allt í framköllun í Eng- landi. Myndirnar af fílunum, ljónunum, litlu beru Súdanbörn- unum, fjallinu Kilimanjaro og öllu hinu sem fyrir augu bar á þessu æfintýralega ferða1' gi Margrétar, förum við því á mis við. — E. Pá. i . Þeim, sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum sínum, heillaskeytum og gjöfum á áttræðis afmæli mínu^ bið ég innilega guðs blessunar og styrktar, er þeim mest á ríður. Hjallavegi 68, Einar Bogason frá Hringsdal Vinum mínum og vandamönnum, sem heiðruðu mig áttræðan 12. janúar, færi ég mínar alúðarfyllstu þakkir. Kærar kveðjur. Þórður Einarsson Þakka hjartanlega frændfólki og vinum góðar gjafir og hlýjar kveðjur á sextugsafmæli mínu 21. des. sl. Sömuleiðis Búnaðarfélagi íslands fyrir höfðinglega gjöf. — Með beztu kveðjum. Rannveig Sigurðardóttir, Brunngötu 21, Isafirðl Elskuleg móðursystir mín GUÐRÚN L. BLÖNDAL fyrrum kennslukona andaðist í Landakotsspítala í fyrrinótt. Fyrir hönd aðstandenda. Elín Jóhannesdóttir Utför mannsins míns, PÁLS ÞORLEIFSSONAR, bókara, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 18. janúar kl. 13,30. — Þeim, sem vildu minnast hans^ er bent á Minningarsjóð félags ísl. leikara, — minningarspjöld af- greidd í Baðstofu Ferðaskrifstofu ríkisins — eða líknar- stofnanir. Anna Guðmundsdóttir, Hagamel 29 Okkar hjartkæri faðir, tengdafaðir og afi BENEDIKT TÓMASSON skipstjóri, Skuld Akranesi, verður jarðsunginn þriðjudaginn 17. þ.m. og hefst með bæn að Sunnubraut 18, kl. 130 síðd. — Blóm vinsamleg- ast afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hans er vinsam- legast bent á líknarstofnanir. Karl Benediktsson, Pálína Sigurðardóttir, Guðmundur Benediktsson, Björgheiður Jónsdóttir, Valtýr Benediktsson, Bára Pálsdóttir Hákon Benediktsson, Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir. Garðar Benediktsson, Ásta Guðjónsdóttir, Sveinn Benediktsson, Guðrún Jónsdóttir, Lilja Benediktsdóttir, Gísli Guðjónsson, Gunnhildur Benediktsdóttir, Lárus Engilbertsson og barnabörn.' Maðurinn minn og faðir, BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON tónskáld verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 18. janúar kl. 1,30 e.h. Hólmfríður Guðmundsson, Margrét Björgvinsdóttir Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns, föður og tengdaföður okkar, PÁLS B. MELSTED stórkaupmanns. Elín Melsted, Bogi Th. Melsted, Ingibjörg Melsted, Inga Melsted Borg, Ragnar Borg. Hjartanlegustu þakkir færum við öllum þeim, sem veittu okkur vinsemd og samúð við andlát og útför móður okkar og fósturmóður JÓHÖNNU Ó. JÓNSDÓTTUR frá Laxárholti Ólöf Sigurbjörnsdóttir, Margrét Sigurbjörnsdóttir^ Sigurjón Sigurbjömsson, Guðný Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.