Morgunblaðið - 15.01.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.01.1961, Blaðsíða 24
Afríka Sjá bls. 11. Bitreiðaverksfœði Sjá bls. 9. janúar 1961 Tdlf ára skdlastiílka varð fyrir líkamsárás lllræðismaðurimi ófundinn í gærkvóldi HEITA má að allt lið rannsóknarlögreglunnar hafi í gær einbeitt kröftum sínum að því að hafa hendur í hári illræðismannsins, er á föstudagskvöldið framdi líkamsárás á 12 ára telpu á fáfarinni götu hér í bæn- um. Höfuðkúpubraut hann telpuna, og liggur hún ^nú í sjúkrahúsi. ★ Spurði til vegar Þessi óhugnanlegi atburður naun hafa gerzt um klukkan 10,20 á föstudagskvöldið. Telpan var þá á leið heim til sín og fór eftir Asvallagötunni. Hafði hún I verið hjá stöllu sinni um kvöld- Sá seki fundinn 1 þann mund er blað- ið var fullbúið til prent- unar í gærkvöldi, skýrði Sveinn Sæmundsson yf- irmaður rannsóknarlög- reglunnar blaðinu frá því, að þrítugur maður hefði þá nokkru áður verið handtekinn í sam- bandi við hina hrylli- legu líkamsárás á skóla- telpuna. Hefði maður- inn þegar við fyrstu yf- irheyrslu játað að hafa framið verknaðinn. Frekari upplýsingar kvaðst Sveinn ekki geta gefið á þessu stigi máls- ins. Ekki er að efa að almenningur samfagnar rannsóknarlögreglunni fyrir að hafa svo skjót- lega tekizt að hafa hendur í hári árásar- mannsins. ið. Vestarlega nokkuð hafði mað- ur gengið í veg fyrir hana og spurt hvort hún gæti sagt sér hvar Sólvallagata væri, og hvoit hann mætti verða henni sam- íerða. Telpan svaraði því rétt til og sagði honum hvar gatan væri. — En hvar er Framnesvegurinn? spurði hann þá. Voru þau þá komin vestur að gatnamótum Vesturvallagötu, sem sker As- vallagötuna. Illræðismaðurinn bað þá telpuna um að koma með sér og fylgja sér vestur á Fram- nesveg, en því neitaði hún. - ★ Árásin Það skipti engum togum, að maðurinn snerj sér leiftur snöggt að telpunni og lamdi hana. Hún reyndi að hrópa á hjálp, en illræðismaðurinn tók hana kverkataki. Þarna við Vesturvallagöt- una er leikvöllur og inn á dimman völlinn dró hinn óði maður barnið, og allt inn 1 opið leikskýli barna. Þar keyrði hann barnið inn í horn og sló höfði þess við stein- vegginn með þeim afleiðing- um að telpan féll í öngvit. Laust fyrir klukkan hálf- tólf vaknaði telpan aftur úr rotinu á leikvallarskýlinu. Hún gat komizt heim til sín hjálparlaust. Var hún þá þeg- ar flutt í sjúkrahús, þar sem læknisskoðun leiddi í ijós, að hún hafði höfuðkúpubrotnað. — Var líðan telpuimar eftir atvikum í gær. ★ Góð lýsing Sveinn Sæmundsson, yfirmað ur rannsóknarlögreglunnar, sagði blaðamönnum í gærkvöldi að telpan hefði gefið allgóða lýs- ingu á árásarmanninum. Hún taldi sig örugglega mundu þekkja hann aftur, hvar sem hún sæi hann. — Samkvæmt þeim lýsing um, er telpan hefir gefið rann sóknarlögreglunni var verið að vinna að málinu í gær. Þegar þetta var skrifað hafði enginn verið settur í varðhald. Að sjálfsögðu er það einlæg von allra góðra manna, að rann- sóknarlögreglunni takist að hafa hendur í hári þessa illræðis- manns. Er það um leið hin sjálf- sagðasta skylda hvers og eins, sem hönd getur lagt á plóginn, að veita rannsóknarlögreglunni alla þá hjálp, sem verða má. FlaggaS í tilefni reisugildisins í gær. — Sjá frétt á bls. Maðurinn látinn KEFLAVÍK, 14. janúar. — Daníel Matthíasson, sem varð fyrir bifreið hér í Keflavík hinn 11. þ. m. lézt sl. nótt af völdum slyssins. Kom hann aldrei til meðvitundar. Leit er enn haldið áfram að manni þeim, er valdur var að slysinu, en hefir ekki borið árang Kenningin um erfiðleika úfvegs ins vegna „vaxtaokurs" hrunin SYSTURBLÖÐIN Tíminn og Þjóðviljinn eru óðamála í gær af því tilefni, að Morg- unblaðið skýrði frá því í fyrradag, að eftir því sem næst yrði komizt, mundi hið margumtalaða „vaxtaokur" á útgerðinni nema sem svar- aði 20 millj. kr. á yfirstand- andi ári eða rúmlega 3Vz eyri á kíló fisks, miðað við aflamagn síðasta árs. — Stjórnarandstöðublöðin hafa hinsvegar haldið því fram, að þessi fjárhæð næmi hundruðum milljóna króna. Staðreyndirnar eru þessar, hvort sem stjórnarandstæð- ingum líkar betur eða verr: Heildarútlán bankanna til sjávarútvegsins komust hæst á síðasta ári í nálægt 1500 Pétur G. Pétur Erlingur ÍMi SigurSur Valur Stjórnarkosningunni í Þrótti iýkur í kvöld f Stjórnarkosning í Vörubílstjóra tfélaginu Þróttí heldur áfram í dag. Kosið er í húsi félagsins við Rauðarárstíg og hefst kosn ingin kl. 1 e.h. og stendur til kl. 9 sd. og er þá lokið. j Listi lýðræðissinna er B-list og er hann þannig skipaður: — Pétur Guðfinneson, form., Pétur '•Hannesaon, varaform., Erlingur Gíslason, ritari, Sigurður Bárðar son gjaldkeri og Valur Lárusson, meðsitjórnandi. Þróttarfélagar, 'hrindið koomm- únistum af höndum ykkar. Vinn ið að sigri B-listans. Munið að kosningu lýkur kl. 9 í kvöild. í GÆR vildi það til við upp- haf kosninganna í Þrótti, að fulltrúum B-listans vai synj að um að vera viðstödduni er atkvæðakassinn, er nota skal i itf kosningarnar var innsiglaður. Fékk B-Iistinn engan fulltrúa í kjörstjórn úr sínum röðum, en formað ur kjörstjórnar, Einar Ögmundsson, skipaði nins vegar mann frá sér til þess að gæta réttar B-listans. Hér hefir verið brotið út af viðtekinni hefð, sem ávallt hefir ríkt í kosning- um Þróttar hingað til. milljónir króna. Má gera ráð fyrir að meðallán til sjávar- útvegsins í ár verði ekki yf- ir þeirri upphæð. Vextirnir eru nú 2% hærri en þeir voru fyrir efnahagsráðstaf- anirnar. Þannig mundi vaxta byrði sjávarútvegsins að ó- breýttum aðstæðum nema 30 milljónum króna fram yfir það, sem áður var. En þá er þess að gæta, að sett hafa verið lög um að veita útveginum hagkvæm lán til langs tíma til að greiða upp óreiðuskuldirnar frá uppbótatímabilinu. Ekki er enn vitað, hve hárri upp- hæð þessi lán muni nema né heldur um vaxtaupphæðina, en Morgunblaðið leyfir sér að halda því fram, að heild- arvaxtahagnaður útgerðar- innar af þeirri ráðstöfun muni ekki nema undir 10 milljónum króna. Þannig standa eftir þær 20 millj. kr., sem Mbl. nefndi í fyrradag. Á þessu stigi málsins mun erfitt að komast nær hinu rétta, en auðvitað er út í bláinn að tala um vexti af erlendum lánum vegna skipa kaupa í þessu sambandi, eins og Tíminn gerir. ur. Lögreglan hefir látið frá sér fara svofellda tilkynnmgu: Tilkynning lögregiunnar. Þann 11. jan. kl. 19,00 sást Volvofóliksbifreið aka á mikilli ferð norður Hringbraut. Er bif reiðin kom að gatnamótuimi Vatnsnesvegar og Hringbrautair flautaði bílstjórinn stöðugt en um leið var ekið 4ra manna bif- reið af Vatnsnessvegi og inn á Hringbrautina. Munaði mjóu að slys hlytist af. Það eru tilmiæli lögreglunnar í Keflavík að ökumaður 4ra manna bifreiðarinnar hafi strax samband við ihana. Sjónarvottur að þessum atburði var það f jarri að hann gat ekki greint útlit' hennar en gat sér til að hún hefði verið af Moskwitoh-igerð. Nokkru bjargaðl úr belgiska togskipinu Vestmannaeyjum, 14. jan. FRÉTTAMAÐUR blaðsins átti í dag tal við Theodór Georgs- son umboðsmann belgiskra skipa hér í Vestmannaeyjum spurðist fyrir um hvemig gengi með björgun Marie Jose Rosette, sem strandaði hér við Norðurgarðinn sl. þriðjudags- kvöld. Sagði hann að vélstjórinn af skipinu færi héðan í kvöld a- leiðis til Reykjavíkur með Herjólfi, en skipstjórinn mundi verða eftir, að minnsta ’ kosti í nokkra daga, til þess að kanna hvort nokkrar lík- ur séu til björgunar skipsins. Eins til að hafa eftirlit með því hvernig gengur að bjarga ýmsum hlutum úr því, en skipsmenn af varðskipinu Þór vinna að því. Hafa þeir þeg- ar náð ýmsum tækjum svo sem ratsjá, dýptarmæli, tal- stöð, nokkru af veiðarfærum o. fl. Haft er eftir skipherranum á varðskipinu Þór, að Marie Jose Rosette sé mjög illa far- in, botninn mikið dældaður. — Bj. Guðm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.