Morgunblaðið - 21.07.1961, Side 5
Föstudagur 21. júlí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
.
n ''.u.
íift.
Á SUNNUDAGINN varð járn
brautarslys við Weeton, ná-
lægrt Blackpool í Eng-IandK.
Árekstur varð á járnbrautar-
teinunum og farþegalest, sem
í var rúmlega 300 manns
fór út af sporinu. 6 fórust, en
af þeim 300, sem lífs komust
af voru 118 særðir.
Áreksturinn varð kl. 10:30
f.h. en þá sáu 40 járnbrautar-
starfsmenn, sem voru að
vinna við flutningalest, hina
sex vagna farþegalest koma
á fullri ferð fyrir beygju,
beint á móti þeim, og lestarn-
ar skullu saman. Fyrsti vagn
farþegalestarinnar kastaðist
fram hjá 9 flutningavögnum
áður en hann rann 14 fet fram
af upphleðslunni. Annar vagn
inn fór einnig út af sporinu
og varð þess valdandi, er
hann stöðvaðist, að sá þriðji
hófst á loft. Lestin, sem var
á leið til Main eyjarinnar var
fuU af fólki, sem ætlaði að
njóta frídagsins þar og var
það flest frá Lancashire/Eftir
áreksturinn þyrptust farþeg-
arnir út úr lestinni, en þeir,
sem voru í þriðja vagninum,
30 feta hæð frá jörðu, máttu
ekki hreyfa sig, því minnsta
hreyfing gat orðið til þess, að
vagninn tapaði jafnvæginu,
urðu þau að bíða % klst. eftir
björgun. Járnbrautarstarfs-
menn mynduðu strax björg-
unarsveitir og koimu fólkinu
til hjálpar og einnig komu
slökkviliðsmenn hið bráðasta
á slysstaðinn. Mi'kið öngþveiti
var meðal farþeganna og leit-
uðu allir að ástvinum sínum
og ferðafélögum, sem þeir
höfðu orðið viðskila við, er
áreksturinn varð. Vagnar lest-
arinnar voru úr stóli og er tal-
ið að það hafi bjargað mörg-
um mannslífum, því að þeir
beygluðust ekki.
Farþegarnir komu frá mörg
um borgum í Lancashire,
meðal þeirra var Mr. Frank
Sowerbutts. Hann ferðaðist
einsamall, því að fjölskylda
hans hafði farið með flugvél
til Man eyjarinnar, en honum
geðjaðist ekki að flugvélum.
Hann sagði: Fyrst fann ég
til nokkuð einkennilegs titr-
ings, en síðan kom höggið.
Vagninn hentist upp í loftið,
óp kváðu við, en eftir nokkr-
ar sekúndur var dauðaþögn.
Eg var hátt uppi og gat séð
eftir miðjunni á hinum opna
vagni, vagninn, sem laskaðist
mest 20 fetum fyrir neðan
mig. Eg klifraði niður yfir
brotin sætin og komst út ó-
meiddur.
í þriðja vagninum var með-
al farþega 17 ára gamall pilt-
ur Dan Donegan. Hann lýsti
hinum hræðilega hálftíma
þannig:
— Við héldum að vagninn
myndi kollsteypast, ég kast-
aðist á gólfið og annar far-
þegi og töskurnar mínar ofan
á mig. Vagninn stöðvaðist og
stefndi þá upp í loftið. Eg ætl-
aði að reyna að rísa upp, en
þá fór vagninn að hrisstast og
hinir farþegarnir kölluðu. —
„Vertu kyrr“.
— Síðan þorði enginn að
hreyfa sig hið minnsta, það
var eins og við hefðum frosið
öll í einni kös í öðrum enda
vagnsins. Það var hræðilegt.
Loks braut björgunarmaður
upp dyrnar, sem vOru niðri
við jörðina og okkur var bjarg
að út einu og einu í senn. Að
lokum vorum við öll örugg á
jörðinni.
Með Dan var bróðir hans
Thimoty og þrír vinir þeirra,
sem sluppu allir ómeiddir.
Thimothy sagði: — Mér
fannst ég deyja öft á meðan
við biðum eftir björgun. Eg
hélt að við myndum alls ekki
sléppa lifandi.
Af þeim sem særðust í slys-
inu eru 18 enn í sjúkrahúsi.
En margir hlutu aðeins smá-
skrámur af völdum gierbrota.
Hríslan og v/ð
(Veizlusöngur Tcennara! Höfundur œtlast til, aö bragur
þessi sé aðeins sunginn undir lagi Inga T. L.)
„Gott áttu, hrísla, á grœnum bala
glöðum að hlýöa lœkjarnið.,<
Ekki er í tízku upp’ til dala
andskotans bölvað landsprófiö.
Þú, sem ert blávatns blíður granni,
berö ekki skyn á stagl og nám.
Garöurinn Eden, eini og sanni,
er ekki vaxinn skilningstrjám.
Þú ert sú hjartans hríslan eina
handan viö dagsins fjas og mein.
Án þinna Ijúfu, grœnu greina
getur et fengizt hugró nein.
Þá, sem t draumi dal þinn kanna,
dæmir þú milt á balanum.
Hvorki þinn lœk né leynda granna
lœtur þú kenna á skalanum.
B> áttu, litla birkihrísla,
Bakkusar veig að þekkja ei hót.
Ljúft mundi veröa viö að sýsla
vökva þann sjúga upp meö rót.
Þú mundir una i blœnum blíöa,
blessunarlega hress og spræk,
sjá gegnum dögg um veröld viöa,
veitandi blíöu þínum lœk.
„Gott áttu, hrisla, á grœnum bala,“
gleöi þú fœrir augunum.
Bláktir þú edein upp’ til dala,
enda evo sterk á taugunum.
— Laufiö þitt visnar loks og fýkur,
lendandi fjarri þinni rót.
Fögnuöur samt ei frá þér víkur.
Fari þaö eins um þetta mót!
ö. S.
í gær 20. júlí varð Jón Árna-
son, bóndi, Lækjarbotnum í
Landssveit 80 ára.
80 ára er í dag Guðmundur
Jón Guðmundsson frá Hesteyri,
Þrastargötu 7B. í dag verður
hann staddur á Kársnesbraut 38
í Kópavogi.
Á morgun, laugardaginn 22.
júlí verða gefin saman í Odense,
Danmörku ungfrú Ragnhildur
Gunnarsdóttir, Ásabyggð 2,
Akureyri og Ólafur Oddsson, vél
stjóri, Vesturgötu 56. Heimili
þeirra verður fyrst um sinn að
Absalonsgade 13, Odense.
Ef maður ætW að kynna sér óll
lögin, ynnist aldrei tími til að brjóta
þau. — Goethe.
Þegar kveður £ vopnunum, hafa
lögin hljótt um sig. — Cicero.
Lögin eru flóknust, þegar rikið er
spilltast. — Tacitus.
Lögin eru ekki sett sakir hinna góðu
þegna. — Sókrates.
• Gengið •
Sölugengi:
1 Sterlingspund ....... Kr. 106,13
1 Bandaríkjadollar ...... — 38,10
1 Kanadadollar .......... — 36,85
100 Danskar krónur ...... —- 549,80
100 Norskar krónur ........ — 531,50
100 Sænskar krónur ........ — 736,95
100 Finnsk mörk ........... — 11,86
100 Franskir frankar’...... — 776,60
100 Belgískir frankar ..... — 76,47
100 Svissneskir frankar .... — 882,90
100 Gyllini ............... — 1060,35
100 Tékkneskar krónur..... — 528,45
100 V.-þýzk mörk ......... — 957,35
1000 Lírur .............. __ 61,39
100 Austurrískir schillingar — 147,56
100 Pesetar .............. .. 63,50
Keflavík
íbúð 3 herb. og eldhús til
leigu. Uppl. Brekkubraut
1L
Húsnæði
Til leigu er 50—100 ferm.
góður kjallari í nýju hverfi
Hentugt fyrir fiskbúð eða
iðnað. Uppl. í síma 33939
og 36250.
Sjónvarpstæki
til sölu. Uppl. í síma 17354
ki. 7—8 eh.
2 skellinöðrur
til sölu (KK og NSU) —
Uppl. Laugateig i6 eftir kl.
7.
Takið eftir
Útlend kona gntur tekið
nokkra menn í fyrsta fl.
fast fæði. (Mjólk fylgir
máltíðum Grundarstíg 11
1. hæö.
A T H U G I Ð
að borið saman ð útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
MAX-FACTOR
varalitír nýjustu tízkulitir.
SNYRTIVÖKLUDEILDIN
Eymundssonarhúsinu, Austurstræti 18.
íbúð 'óskast
3—4 herbergja íbúð óskast til leigu í eitt ár. Þrennt
fullorðið í heimili. Fyrirframgreiðsla eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar í síma 10730 í dag eftir kl. 6
og næstu daga.
IMokkrar litlar 2ja manna
ibúðir til leigu
nú þegar eða síðar, með húsgögnum, síma og öllum
þægindum. Tilboð óskast send afgr. Morgunbl. fyrir
mánudagskvöld merkt: „Góður staður — 5477“.
Bakarí
Húsnæði fyrir bakarí vantar seint á þessu eða
snemma á næsta ári. Tilboð merkt: „Bakarí — 5471“
sé skilað á afgr. Mbl. fyrir 30. þ.m.
II. stýrimann
vantar á nýjan togara eftir nokkra daga.
Upplýsinffar í síma 16357.
Kjörbúð
Húsnæði fyrir kjörbúð óskast. Tilboð merkt: „Góður
staður — 5472“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir mán-
aðarmót.