Morgunblaðið - 21.07.1961, Síða 8
8
MORGVNBLAÐIb
Fostudagur 21. júlí 1961
SXJÓRN VARÐBERGS á fyrsta fundi sínum — daginn eftir stofnfund félagsins: Björgvin Vil-
mundarson, 2. varaformaður, Björn Jóhannsson, dr. Gunnar G. Schram, Bjarni Beinteinsson,
Guðmundur H. Garðarsson, formaður, Jón Rafn Guðmundsson, 1. varaformaður, Einar Birnir,
Jóhannes Söivason, ritari og Stefnir Helgason, gjalSkeri. — Ýmis mál eru þegar í undirbún-
ingi hjá hinni nýkjömu stjórn. .(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
A Hrappstöðum í Laxárdal
ríkir framkvæmdahugur
Heimsókn til Elísar G. Þorsteinssonar
formanns F. U. S. i Dalasýslu
HRAPPSSTAÐIR — í Laxárdal í
Dalasýslu standa norðan Laxár,
eigi langt frá Búðardal. Þar er
sögufrægur staður, eins og víða í
Dalasýslu. Þar bjó Víga-Hrappur
Sumarliðason, hinn mesti ójafn-
aðarmaður, jafnt lifandi sem lát-
inn. — Á Hrappsstöðum býr nú
Elías G. Þorsteinsson, formaður
Félags ungra Sjálfstæðismanna í
Dalasýslu og tiðindamaður sið-
urrnar hittj hann að máli fyrir
skemmstu, er hann var á ferð
í Dölunum.
* * *
Laxdæla er aðalheimildin um
atburði þá, er gerðust á Hrapps-
stöðum í eina tíð og sögur spunn
ust út af, og þær heimildir vild
um við kynna okkur áður en við
heimsóttum hinn sögufræga stað.
Hrappsstaðir hafa verið vildis-
jörð til forna og lýsir Laxdæla
henni svo: „Víðar lendur og fagr
ar og mjög gagnauðgar. Miklar
laxveiðar og selveiðar fylgdu þar.
Voru þar og skógar miklir."
Þrátt fyrir slíka landkosti mun
jörðin hafa farið í eyði og var
þar aðallega um að kenna aftur
göngu Víga-Hrapps.
Þegar leið að andláti Hrapps
mælti hann svo fyrir, að hann
skyldi grafinn standandi í eld-
húsdyrum. „Má ég þá enn vendi-
legar sjá yfir híbýli mín“, er
haft eftir Hrappi Og enn segir
Laxdæla: ,,En svo illur sem hann
var viðureignar, þá er hann lifði,
þá jók nú miklu við, er hann
var dauður, því að hann gekk
mjög aftur. Eyddist bærinn.“
Ólafur pái fékk landið með
góðum kjörum og reisti bú í
Hjarðarholti, sem nú er næsti
bær fyrir innan Hrappsstaði.
Laxdæla getur þess að nautafjós
Ólafs hafi verið brott í skógi,
eigi alllangt frá bænum í Hjarð-
arholtj og þá sennilega þar sem
nú er bærinn Fjós, ofan við Búð-
ardal. í fjósdyrunum lenti þeim
saman Ólafi pá og Hrappi og
segir um þá viðureign í Laxdælu:
„Ólafur gengur þá að durun-
um og leggur spjótinu til hans.
Hrappur tekur höndum báðum
um fal spjótsins, og snarar út af,
svo að þegar brotnar skaftið.
Ólafur vill þá renna á Hrapp, en
Hrappur fer þar niður, sem hann
er kominn. Skilur þar með þeim.
Hafði Ólafur skaft, en Hrappur
spjótið. — Um morguninn eftir
fer Ólafux heiman og þar til,
er Hrappur hafði dysjaður verið
og tekur þar til grafa. Hrappur
var þá enn ófúinn. Þá finnur
Ólafur spjót sitt. Síðan lætur
hann gera bál. Er Hrappur
brenndur á bálí og er aska hans
flutt á sjó út. Héðan frá verður
engum manni mein að aftur-
göngu Hrapps."
Er sagan af Víga-Hrappi ein
rammasta draugasaga fornsagn-
anna.
* * *
Er við ókum heim að Hrapps-
stöðum eitt góðviðriskvöld fyrir
skemmstu til að hitta bóndann
þar Elís G. Þorsteinsson mátti
sjá, að framkvæmdahugur ríkti
þar á bænum. Nýbyggð hlaða
og fjárhús og sundurgrafinn fló
inu niður að Laxá sýndi að þar
var ekki setið auðum höndum.
Er við höfðum setzt inn í stofu
hófum við að spyrja Elís og
fyrst lítið eitt um hann sjálfan.
— Ég er fæddur að Þrándar-
hæli í Laxárdal, en sá bær er
nú í eyði. Ég vann alllengi í
Búðardal, ýmsa algenga vinnu,
þar til fyrir tveirnur árum að
ég fluttist hingað að Hrappsstöð
um ásamt konu minni Emilíu L.
Aðalsteinsdóttur frá Brautarholti
í Haukadalshreppi. Við eigum nú
jörðina. Sá sem hér bjó á und-l
Gísli G. Þorsteinsson
an mér var Sigtryggur Jónsson,
er var hreppsstjóri í Laxárdal
um langt skeið. Hann er nú flutt
ur til Reykjavíkur, en við hrepps
stjórastarfinu tók Egill Benedikts
son bóndi að Sauðhúsum.
— Þú hefur greinilega ekki
setið auðum höndum hér þessi
tvö ár?
— Búið er nú ekki ýkja stórt
enn bá, en hér hefur verið reist
fjárhús, sem hýst getur 240 fjár
svo og hlaða. Svo hef ég nýlega
látið ræsa fram 20—30 hektara
hér í flóanum, sem vonandi
geta gefið af sér eftir 4—5 ár.
Svo hef ég ræktað um 7 hektara,
af þurru landi hér ofan við bæ-
inn. Stofnun bús kostar mikið
fé og ég hef reynt að drýgja
tekjur mínar með því að stjórna
veghefli á sumrin. Búreksturinn
mæðir þá meir á konu minni og
svo höfum við vinnumann í sum
ar.
— Menn reka aðallega fjárbú
VARÐBERG,
féiag ungra áhugamanna um
vesiræna samvinnu
Fjölmennur og öflugur stofnfundur
FJÖLMENNUR fundur ungra manna úr þremur stjórnmála
flokkum stofnaði sl. þriðjudagskvöld ný samtök, Varðberg,
félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu. Þessi
fjölmenni og öflugi fundur sýndi einhug hins unga fólks
£ að berjast fyrir lýðræðishugsjónum vestrænna menning-
arþjóða. Á fundi þessum sameinuðust menn, sem annars
eru úr ólíkum stjórnmálaflokkum, til baráttu gegn þeira
öfgastefnum og flokkum, sem nú eru við lýði á landi hér.
Nafn félagsins, VARÐBERG, ber vott þeim einbeitta ásetn-
ingi félagsmanna að standa vörð um lýðræðislega stjórn-j
arhætti í samstarfi við þær menningarþjóðir, sem okkur
eru skyldástar.
Aðalmarkmið félagsins eru:
að efla skilning meðal ungs
fólks á íslandi á gildi lýð-
ræðislegra stjórnarhátta.
að skapa aukinn skilning á
mikilvægi samstarfs lýðræðis-
þjóðanna til verndar friðin-
um.
að vinna gegn öfgastefnum
og öfgaöflum,
að mennta og þjálfa unga
áhugamenn í stjórnmálastarf-
semi, með því að afla glöggra
upplýsinga um samstarf og
hér í Laxárdal, er það ekki?
— Jú, hér eru yfirleitt góðar
fjárjarðir. Hins vegar hefur ver-
ið erfitt um vik með kúabú hér,
því að mjólkursala héðan hefur
engin verið nema á sumrin og
þá alla leið í Borgarnes. Nú er
hins vegar á döfinni bygging
mjólkurbús hér í Búðardal, og
er það að sjálfsögðu mikið hags-
munamál fyrir héraðið.
— Laxdæla lýsir Hrappstaða-
landi, sem mikilli hlunninda-
jörð. Sennilega eru öll þau hlunn
indi nú ekki lengur fyrir hendi.
— Nei, það lætur að líkum.
Jörðin hefur verið miklu stærri
til forna. Hrappsstaðir eru senni
lega fyrsti bærinn hérna meg-
inn í dalnum, Laxveiði hefur
sennilega verið góð hér í ánni,
enda er hér oft enn góð veiði.
Laxá er nú leigð stangaveiðifé-
lagi í Reykjavík. Hins vegar á
ég erfitt með að trúa því að hér
hafi verið mikil selveiði, a. m.
k. miðað við núverandi lands-
hætti, því að hér vantar alveg
sker. Annars er Hvammsfjörð-
ur alveg fisklaus. Hinar mörgu
eyjar loka næstum því firðinum
í mynni hans og eru harðir
straumar á milli eyjanna. Hins
vegar gæti ég trúað að Hvamms-
fjörður væri tilvalin uppeldis-
stöð, ef fiskræktun verður eitt-
hvað stunduð hér á íslandi i
oáinni fra'mtíð.
— Þú hefur verið formaður
Félags ungra Sjááfstæðismanna
í Dalasýslu alllengi, ekki rétt?
— Félagið verður 10 ára á
þessu hausti og hef ég verið
formaður þess frá upphafi. Að
sjálfsögðu hafa skipzt á skin og
skúrir í félagslífinu, en alltaf
hefur þó verið reynt að halda
strikinu. Skemmtanir hafa verið
haldnar, t. d. hafa tvær samkora-
ur verið haldnar það sem af er
þessu sumri. Ferðalög hafa verið
fastur liður í félagsstarfinu und-
anfarin sumur og hefur þátttaka
í þeim verið góð. Þeirri starf-
semi mun haldið áfram. Húsnæð
isleysi háir allri félagsstarfsemi
hér. Ekkert samkomuhús er hér
nema í Nesodda í Miðdölum. Þar
Frh. á bls. 13.
menningu vestrænna þjóða,
um markmið og starf Atlants
hafsbandalagsins svo og að
aðstoða í þessum efnum sam-
tök og stjórnmálafélög ungs
fólks, er starfa á grundvelli
lýðræðisreglna.
Fundurinn á þriðjudag
Fundurinn var haldinn í Tjarn-
arcafé og hófst kl. 8,30. Guðmund
ur H. Garðarsson, viðskiptafræð-
ingur, 'setti fundinn, en fundar-
stjóri var kjörinn Jón Rafn Guð-
mundsson, skrifstofustjóri. Fund-
arritari var Hrafnkell Ásgeirsson,
stud. jur., Sigurður Guðmunds-
son framkv.stj. las fundargerðir
undirbúningsnefndar, en Guð-
mundur H. Garðarsson lýsti að-
draganda að stofnun félagsins.
Stjórnarkjör
Er samtökunum höfðu verið
sett lög, fór fram stjórnarkjör
og voru eftirtaldir menn einróma
kjörnir í stjórn: Björgvin Vil-
mundarson, viðskiptafræðingur,
Björn Jóhannsson, blaðamaður,
Stefnir Helgason, verzlunarmað-
ur, Jón Rafn Guðmundsson, skrif
stofustjóri, Einar Birnir, skrif-
stofumaður, Jóhannes Sölvason,
stjórnarráðsfulltrúi, Bjarni Bein-
teinsson, lögfræðingur, dr. Gunn
ar G. Schram, ritstj. og Guðm. G.
Garðarsson viðskiptafræðingur.
í varastjórn voru eftirtaldir
menn kjörnir: Sigurður Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri,
Hrafnkell Ásgeirsson, stud. jur.,
Heimir Hannesson, stud. jur., Jón
Arnþórsson, sölustjóri, Birgir
ísl. Gunnarsson, lögfræðingur og
Þór Whitehead, nemi. Endurskoð
andi var kjörinn Björn Helgason,
lögfræðingur.
Að stjórnarkjöri loknu fóru
fram umræður um framtíðarstarf
samtakanna og tóku eftirtaldir
menn til máls: Sigurður Helga-
son, lögfræðingur, Jón Skaftason,
alþingism., dr. Gunnar Schram,
ritstjóri, Lárus Jónsson búfræð-
ingur, Jón Rafn Guðmundsson,
skrifstofustjóri og Unnar Stef-
ánsson, viðskiptafræðingur.
Kveðja frá NATO
Óttar Þorgilsson, fulltrúi í upp-
lýsingadeild NATO, flutti hinum
nýstofnuðu samtökum kveðjur og
árnaðaróskir Dirk V. Stikker,
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins.
Ræður manna svo og fundur-
inn allur bar vott um staðfastan
vilja fundarmanna til að berjast
dyggilega fyrir hugsjónum
félagsins. Frjálshuga og lýðræð-
sinnaðir ungir menn fagna stofn-
un samtaka þessara og vill Sam-
band ungra Sjálfstæðismanna
árna VARÐBERGI allra heilla.
Megi störf félagsins verða sem
árangursríkust.