Morgunblaðið - 21.07.1961, Side 19

Morgunblaðið - 21.07.1961, Side 19
Föstudagur 21. júlí 1961 M ORCUIVBL AÐ1Ð 19 — Um hvað er deilt ? Framh. aí bls. 6. sérstöðu vegagerðarinnar. Það sem aðeins kemur fyrir í und- antekningartilfellum hjá öðrum vinnuveitendum samkvæmt fæð isákvæði Dagsbrúnarsamningsins verður gildandi um 80% allrar vinnu hjá vegagerðinni, ef geng ið væri að kröfum ASÍ. Myndi þctta þýða 9—10% kauphækk- un hjá vegagerðarmönnum, um- fram hina almennu hækkun, ef miðað er við dagvinnu og ca 12%, miðað við venjulegan vinnustundaf jölda. Þess má enn- fremur geta að dagpeningar skv. fyrstu kröfu ASÍ hefðu kostað vegagerðina u. þ. b. 3 millj. kr. á ári eða álíka upphæð og all- ar liinar hækkanirnar saman- lagt. Simamenn Um Landssímann er það að segja, að allir meðlimir línu- mannafélagsins munu vera fé- lagar í Dagsbrún, hvar sem þeir búa og langflestir þeirra eru sendir út frá Reykjavík á vorin og eru síðan við vinnu með flokkunum hingað og þangað ■um land þar til vinnu lýkur á haustin. Er því alls ekki hægt með nokkurri sanngirni að telja þessa vinnu hliðstæða vegavinn- unni, þar sem forgangsréttur ein stakra félaga gildir skilyrðis- Jaust og vinnuflokkar eru stofn- aðir á hverju einstöku félags- svæði. Það er því ekki hægt að segja, að ósamræmi sé í því, þótt póst- og símamálastjóra sé heim ilað að semja um fæðispeninga en ekki sé samið hjá vegagerð- inni. Loks er rétt að taka fram, að enda þótt fyrirsvarsmenn vega- gerðarinnar inntu fulltrúa ASl eftir því, í hvaða formi og hve mikla fæðispeninga þeir téldu ihæfilega fyrir vegaverkamenn, félst engin viðurkenning í því á kröfunni. Að sjálfsögðu var nauðsynlegt að vita sem gerzt hverjar lágmarkskröfurnar væru. Það að hlýða á kröfurnar var ekki sama og að samþykkja þær. TTmsögn vegamálastjóra. í MbL sneri sér einnig tii Sig- nrðar Jóhannssonar vegamála- stjóra og bað um álit hans á ofanritaðri greinagerð. Lýsti hann sig í einu og öllu sammála hcnni og væru skrif Þjóðviljans og Tímans um, að hann hafi nokkru sinni verið reiðubúinn bð fallast á kröfur Alþýðusam- bandsins um fæðispeningana, úr lausu lofti gripnar. Hann hefði Ihlýtt á kröfurnar, en í því fæl- Ist vitaskuld engin viðurkenning eða viljaafstaða um að fallast á þær. — Ensk knattspyrna Framh. af bls. 18. land, sem hefur mikinn hug á að fcomast aftur í fyrstu deild ætlar að nota hann með George Herd sem keyptur var frá Skotlandi ; íyrir 40 þús. pund og Harry •Hooper sem keyptur var í fyrra fyrir 20 þús. pund. Arsenal hefur íiýlega keypt skotann Johnny fcfcLoed frá Hibernianan fyrir <40 þús. pund. McLoed hefur oft leikið í skoska landsliðinu og álit- inn mjög góður. — Sumarbúðir Framih. af bls. 18. EÍðasta námskeiðinu og síðar verður ef til vill efnt til sýning- brferðar með hana og hún sýnd í skóluim. H Nú eru síðustu forvöð að saekja Km aðgang að síðasta námskeið- tnu og eru umsóknir afgreiddar 6 skrifstofu ÍSÍ Grundarstíg 2b IRvk. simi 14959. — Bizerta Framlhald af bls. 1. kvöld eftir að hlé hafði verið á átökum miðhlutann úr deginum. ÍC „Gefumst aldrei upp“. Flestar verzlanir í Túnisborg voru lokaðar í dag og atvinnulíf lá að mestu niðri — og var þann ig lýst stuðningi við Búrgíba. Svipaða sögu er að segja frá Biz erta-borg, þar sem um 20 þúsund manns söfnuðust saman á götum úti og æptu slagorð ein og: „Við erum fús að deyja fyrir Bizerta" Washington, 20. júlí (NTB-AFP) BANDARÍSKA utanríkisráðu- neytið lét í dag í Ijós þá von, að Frakkland og Túnis hætti hið fyrsta átökunum út af Bizerta-stöðinni og leysi deilu málið með friðsemd. — Tals- maður ráðuneytisins sagði, að Bandaríkjastjórn vænti þess einnig, að ríkin tvö sýni hóf- semi við lausn þeirra vanda- mála, er leitt hafa til þess? ástands, sem nú ríkir. 7 Til svars við spurningul fréttamanna, sagði formælandi inn, að Bandaríkjastjórn hefði þegar tjáð stjórnarvöldum Frakklands og Túnis skoðun sína á málunum, cftir dipló- matískum leiðum. —i „Lifi Búrgíba" — „Niður með de Gaulle“. En forsetinn ávarp- aði mannfjö.dann og sagði m.a.: „Hvort sem átökin standa tíu daga, mánuð eða tíu ár, munum við aldrei gefast upp.“ Búrgíba tilkynnti á blaða- mannafundi í dag,-að stjórn sín hefði ákveðið að slíta stjórnmála sambandi við Frakkland, enda væri nú enginn grundvöllur fyr ir neinum samskiptum. (Frá Stokkhólmi hefir borizt sú frétt, að sænska stjórnin hafi tjáð sig fúsa til að gæta hagsmuna Túnis í Frakklandi.) — Forsetinn var mjög hvassyrtur í garð Frakka á blaðamannafundinum og sak- aði þá um árásarstríð. Hann full yrti og, að franskar flugvélar hefðu skotið úr vélbyssum — og jafnvel skotið flugskeytum — á óbreytta borgara. Einnig hefði verið skotið á Rauða kross bif- reið, sem var að flytja særða her menn á brott. 4r „Nýjar aðgerðir" Frakka. 1 orðsendingu, sem franska stjórnin séndi Túnisstjórn í dag segir m.a. að hin síðarnefnda skuli „enn einu sinni alvarlega vöruð við“ að halda áfram aðgerð um þeim, sem hún hafi hafið og „beri ein alla ábyrgð á“. Franska stjórnin sé reiðubúin að „gefa nauðsynlegar fyrirskipanir, svo að unnt verði að ræða um skil- yrði fyrir tafarlausu vopnahléi" — en jafnframt segir í orðsend- ingunni, að ef árásunum á Biz- erta verði haldið áfram, muni Frakkar gripa til „nýrra að- gerða“. Ekki er nánar tilgreint, hverjar þær verði. Milli 4 og 5 þúsund hermenn voru I flotastöðinni við Bizerta áður en átökin hófust þar. I gær var fluttur þangað liðsauki um 800 fallhlífahermenn — og enn kom nýr flokkur þangað síðdegis í dag, að því er franska frétta- stofan AFP segir. Þeir tóku þegar aj „hreinsa til“ kringum flotastöð ina, og blossuðu þá upp bardagar á nýjan leik eins og fyrr segir. Síðla kvölds viðurkenndi svo útvarpið í Túnis, að 100—150 tún iskir hermenn hefðu fallið í bar dögunum — og ekkert væri enn vitað um afdrif hinna 130 í stöð þeirri fyrir utan Bizerta, sem fyrr var getið um. — Útvarpið sagði jafnframt, að ástandið væri svo ákaflega óljóst, að ó- gerningur væri að fá nokkra heildarmynd af hinni hernaðar- legu stöðu kringum Bizerta. Túniska fréttastofan TAP sagði frá því í kvöld, að herflokkur sá, sem farið hefði inn í Sahara til þess að setja upp flagg Túnis við „stöð 233“ til þess að leggja áherzlu á kröfuna til hluta Sa- hara, hefði lent í bardaga við franska hermenn við Saint-virk- ið í grennd við landamæri Túnis. 4r Stuðningur Serkja o.fl. Útlagastjórn Serkja í Alsír hef ir lýst stuSningi við Túnis í á- tökunum um Bizerta og heitið á Alsírmenn í Túnis að gefa sig fram sem sjálfboðaliða til bar- áttunnar. Franskar stjórnarheim- ildir telja, að um 15.000 hermenn frá Alsír séu nú í búðum í Túnis. — Nasser forseti Arabíska sam- bandslýðveldisins, og Hassan, Marokkokóngur, hafa lýst stuðn ingi við Túnis. — Moskvuútvarp- ið sagði í kvöld, að aðgerðir Frakka væru „viðurstyggilegt af brot". ic Hvað ætlar Búrgíba sér? Ýmsar skoðanir hafa komið fram um það, hvers vegna Búr- gíba hafi nú gripið til svo harðra aðgerða til að hrekja Frakka burt frá Bizerta. Á sú skoðun talsverðu fylgi að fagna, að hann hyggist með þessu knýja Frakka til samninga um þann hluta Sa- hara, sem Túnis hefir gert kröfu til. Bent er á, að viðræður Serkja og Frakka um framtíð Alsír eru einmitt að hefjast á ný í dag — en útlagastjórnin hefir krafizt Öryggisráð- íð í dag New York, 20. júlí 1 FORMADUR öryggisráðsins sagði í kvöld, að ráðið mundi koma saman til fundar um Bizertamálið á morgun. — í ikæru sinni sakar Túnisstjórn Frakka um árás, sem ógni heimsfriðinum og fullveldi og öryggi Túnis. — Er þess kraf- izt, að gerðar verði ráðstafan- ir til að stöðva þessar árásar- aðgerðir — og að allir franskir hermenn hverfi á brott frá Túnis. yfirráða yfir öllu Saharasvæðinu. — Stjórnmálafréttaritara greinir þó verulega á um það, hvað raunverulega vaki fyrir Búrgíba, en mörgum þykir augljóst, að hann sjái sér nú leik á borði að þjappa Arabaríkjunum um sig, en hann keppir að því að verða forustumaður rikjanna í Norð- ur-Afríku, að talið er. Agæt veiði Norð- maniia við Island Álasundi, 20. júlí (NTB) NORSKU síldveiðiskipin við fs- land hafa nú fiskað samtals 517 þús. hektólítra af síld í bræðslu Stærsta skipið, „Steinhauk“ frá Hörðalandi, sem tekur um 6.500 hl. og er nú á heimleið með fjórða farm sinn. Hefir skipið þá alls aflað um 24.000 hl., en verð- mæti þess afla mun nema um 800 þús. norskum krónum (yfir 4 millj. ísl. kr.). — Katanga Framlhald af bls. 1. lagið væri miðað við Mobutu einan og félli úr gildi, ef annar tæki við yfirstjórn Kongóhers. — Haft var eftir Mobutu í gær, eftir að samningurinn var undirritaður: — Nú eiga Sam- einuðu þjóðimar við mig að eiga í Katanga. Við komu sína til Leopold- ville í dag sagði Mobutu, að nú væri Katangaher ekki leng- ur til sem sjálfstætt lið — hann sameinaðist nú þjóðher Kongó, sem þá teldi samtals um 29 þús. manns. Mobutu sagði, að hann mundi nú ráða störfum 634 tæknisérfræðinga, sem undan- farið hefðu verið í þjónustu Katangahers — í eigin her hefði hann hingað til aðeins haft 1S slíka sérfræðinga. Hjartans þakkir til hinna fjölmörgu vina minna, er minntust mín á 70 ára afmælisdaginn. Sigurður Þórðarson, Laugabóli. Móðir okkar ÓLÖF GUÐMUNDSDÓTTIR andaðist að heimili sínu Ásmúla í Rangárvallasýslu mið- vikudaginn 19. júlí. Börnin. Hjartkær faðir okkar, fósturfaðir, afi og tengdafaðir AXEL JÓNSSON kaupmaður, Sandgerði, er lézt í Keflavíkurspítala 12. þ.m. verður jarðsettur að Hvalsneskirkju 22. þ.m. kl. 2 e.h. með húskveðju frá heimili hins látna. Þeir sem vildu minnast hins látna, vjnsamlega láti líknarstofnanir njóta þess. Börn, fósturbörn, barnabörn og tengdabörn. Áætlunarferð verður frá Bifreiðastöð Steindórs kl. 12,30. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðar för mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa GUÐJÓNS ÞÓRÓLFSSONAR Efstasundi 63. Guðlaug Pálsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móður okkar MARGRÉTAR GUDLEIFSDÓTTUR Sérstaklega þökkum við hjúkrunarkonum Lands- spítalans fyrir góða hjúkrun og hennar gömlu vinum, Fyrir hönd systur, fóstursystur og tengdabarna. Guðrún Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför karls alfreðs petterson Aðstandendur. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og veittu mikla hjálp við andlát og útför GRÓU GUÐLAU GSDÓTTUR Sogni. Sigurjón Ingvarsson, börn og tengdabörn. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að elsku- legi dóttursonur okkar, ERLENDUR ODDGEIR ODDGEIRSSON CULP andaðist af slysförum í Bandaríkjunum þann 4. júlí 1961. Kristín Ásmundsdóttir, Gísli Sigurðsson. Maðurinn minn GÚSTAV a. jónasson ráðuneytisstjóri andaðist Kaupmannahöfn 13. júlí. — Bálför fór fram þann 19. júlí. v Steinunn Sigurðardóttir og börn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.