Morgunblaðið - 21.07.1961, Síða 20
Eistland
Sjá bls. 11.
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 18.
161. tbl. — Föstudagur 21. júlí 1961
Þrír dæmdir, dómsátt
viö fimmtán
Dómur i gjalteyrismáíinu á Inn-
flutningsskrifsiofunni
HINN 13. júlí 1959 lögðu forstjór-
ar InnfiutningáSkrifstofunnar
hér í bæ fram kæru í sakadómi
Reykjavíkur á hendi Reyni Þor-
grímssyni, þá starfsmanni á Inn-
flutningsskrifstofunni út af mis-
ferli í starfi. Misferli þetta hafði
komizt upp á meðan Reynir var
ytra í maímálnuði sama ár, en þá
hafði annar verið fenginn til að
gegna starfi hans á meðan. Reyn-
ir hafði haft það starf með hönd-
um á Innflutningsskrifstofunni
frá því á miðju sumri árið 1956,
að annast undirbúning og hafa
umsjón með öllum leyfisveiting-
um fyrir námskostnaði og færa
spjaldskrá yfir slik leyfi.
• 115 manns í málinu
Dómsrannsóknin í máli þessu
varð all-umfangsmikil og koma
115 manns við sögu í því. Rann-
sóknarskjölin eru 300 vélritaðar
síður. Brot Reynis reyndust í
því fólgin, að hann hafði aflað
sér námsmannagjaldeyris með
því að falsa skjöl og beita marg-
háttuðum blekkingum. Einnig
hafði han* útvegað nokkrum
Fyrsti eiginlegi
þurrkadagurinn
HÚSAVÍK, 20. júlí — Hér var á-
gætis sólskinsþurrkur í gær
Þetta er fyrsti eiginlegi þurrka
dagur í sumar. Var hann óspart
notaður af bændum, sem áttu orð
ið mikið úti af gamalli og nýsleg
inni töðu. Náðust víða inn mikil
hey í súgþurrkun, en hún er mjög
almenn hér, enda var unnið fram
á nótt af kappi við að bjarga
heyjunum, sem víða voru farin
að skemmast eftir langvarandi ó-
þurrka. Greiddi það nokkuð fyrir
hirðingunni, að hér var
þurrkur framan af degi í fyrra-
dag, þótt síðdegisskúri gerði til
skemmda. — Nú munu allir vera
byrjaðir að slá. Er mikið undir
því komið fyrir heyskapinn, að
framhald verði á þessum þurrki,
en nú er unnt að afla mikilla
hv.yja á ótrúlega skömmum tíma
við góð skilyrði. — Grasspretta
er nú orðin góð, þar sem tún eru
óskemmd af kali, en taðan er orð
in tilfinnanlega úr sér sprottin.
Fréttaritari.
kunningjum sinum námsmanna-
gjaldeyri með framanskráðum
hætti, þótt þeir ættu ekki rétt
á því. í ljós kom við rann-
sóknina, að ákærði hafði hafíð
brot sín þegar á árinu 1956,
skömmu eftir að hann tók við
framangreindu starfi og haldið
þeim áfram, unz hann fór utan
í maí 1959, eins og áður greinir.
Gjaldeyri þann, sem ákærða á-
skotnaðist, ýmist seldi hann á
svörtum markaði, notaði til að
flytja inn, út á sjómannaleyfi
svokölluð, sem hann hafði keypt,
bifreiðar, sem hann síðar seldi,
eða þá að hann notaði gjaldeyr-
inn til ferðalaga.
• Samstarfsmenn.
Akærði Reynir hafði ýmsa sam
starfsmenn til að koma í kring
brotum sínum. Voru tveir þeirra,
sem tekið höfðu þátt í allmörgum
brotum hans og uppvísir höfðu
orðið að skjalafalsi, ákærðir á-
samt honum í máli þessu. Mál-
um hinna heimilaði dómsmála-
ráðuneytið að ljúka með dóm-
sátt. Alls voru sektaðir með dóm
sátt 15 menn og námu sektirnar
Frh. á bls. 2
M. '/*/■.* vrs r-vÁ«-AvM'Avt‘>A Íaw /í.v saym/, v..
i
Skemmliierð
Heimdallor
Á MORGUN laugardag, verð-
ur ferð á vegum Heimdallar,
FUS, í Kerlingarfjöll. Lagt
verður af stað frá Valhöll við
Suðurgötu kl. 2 e.h. Þá verður
ekið í Kerlingarf jöll. Á sunnu ’
dagsmorgun mun verða geng-
ið á Snækoll, en þaðan mun
vera víðsýnast af öllu landinu.
Komið verður til Reykjavíkur
aftur á sunnudagskvöld.
Þátttakendur hafi með sér
nesti og tjöld, ef mögulegt er,
en heitt kaffi verður veitt á
tjaldstað. Allar nánari upplýs-
ingar eru veittar á skrifstofu
Heimdallar í Valhöll (sími
17102) og Æskilegast að fólk
hafi skráð sig til þátttöku og
tekið farmiða fyrir kvöldið.
Utför Jóns
Þorleifssonnr
ÚTFÖR Jón Þorleifssonar list-
málara var gerð frá Neskirkju
í gær. Séra Sigurður Einars-
son í Holti talaði yfir moldum
hins ágæta listamanns og
komst m.a. þannig að orði, að
ættjörð vor og íslenzk nátt-
úra hefðu með Jóni Þorleifs-
syni misst einn af sínum traust
ustu unnendum og snjöllustu
túlkendum. Fulltrúar Banda-
lags ísl. listamanna báru kist-
/ una í kirkju, en málarar úr
J íirkju.
Hvalur 6 kom í gœrkvöldi
SÍÐDEGIS í gær kom hingað
annar tveggja hinna nýju hval-
veiðibáta, sem Hvalur h.f. hefir
keypt hingað til lands frá Noregi.
Er það Hvalur 6 en Hvalur 7 er
væntanlegur í næsta mánuði. Eru
þeir keyptir hingað í staðinn fyr-
ir tvo gamla hvalveiðibáta, sem
nú hefir verið hætt að nota og
lagt upp í Hvalfirði.
• Fullkomið skip
Þessi nýi bátur er allmikið
frábrugðinn hinum eldri, og má
þar einkum til nefna stærð og
vélarafl. Gömlu bátarnir eru nú
orðnir yfir 30 ára gamlir en hin-
ir nýju smíðaðir um 1949. Þá eru
öll siglingatæki miklu fullkomn-
ari í nýju „Hvölunum“, og þar
er asdic-tæki, sem hægt er að
fylgjast með hvölunum neðan-
sjávar. Hvalur 6 er um 450 smá-
lesta skip, vélin 1800 hestafla og
ganghraði 16—18 sjómílur á klst.
Er að því hagræði mikið, bví að
miðin, sem hvalveiðibátarnir
verða nú að sækja á, eru orðin
um 200 mílur frá Hvalfirði.
í gærkvöldi hitti Mbl. nokkra
skipsmenn um borð í Hval 6, þar
sem hann lá við Ægisgarð, og
spurði lítillega um Hvalina nýju.
Voru þeir á einu máli um það
að skip þessi væru hin traust-
ustu, og ekki væri hægt að gera
annan samanburð á þeim og hin-
um gömlu en þann, sem gerður
tV
hefði verið á gömlu togurunum
okkar og hinum nýju. — Kváðu
þeir Norðmenn noía báta sem
þessa, og þeir hafi veitt á sama
konar bát og Hval 6 þrjú hundr-
uð hvali á síðustu vertíð.
Gagarin til íslands
SÍÐDEGIS á sunnudag er
rússneski geimfarinn Juri
Gagarín væntanlegur á Kefla
víkurflugvöll og mun hann
hafa þar um hálfs annars
tíma viðdvöl. Hann hefur
hér viðkomu á leið frá
Moskvu til Kúbu, en þangað
fer hann í boði Castros.
Flugvélin, sem flytur Gag-
arín á þessu ferðalagi, er af
gerðinni Iljusin 18 og er áætl
Verkfallið fór út um þúfur
Megn óánægja á Þróttarfundi
með samkomulagið
SAMNINGANEFNDIR Vöru
bílstjórafél. Þróttar og vinnu
veitenda komust að samkomu
lagi um nýjan kjarasamning
laust fyrir hádegi í gærdag.
Hafði sáttafundur þá staðið
sleitulaust *frá því kl. 20.30
í fyrrakvöld. Félagsfundir
beggja aðila staðfestu sam-
komulagið í gær, og var verk
fallinu þar með aflýst.
Lyktir deilunnar urðu þær,
að Þróttur féll frá öllum helztu
kröfum sínum, m. a. kröfunum
um vinnuskiptingu og takmörk-
un á tekjueign vinnuveitenda,
og m. a. s. voru nú felldar nið-
ur flestar takmarkanir á tækja-
eign, sem voru í fyrri samningi.
Þá lækka taxtar allra stærri
vörubifreiða, en taxtar minni
bíla hækka lítillega, sem nem-
ur kauphækkun bifreiðastjórans
sjálfs í samræmi við Dagsbrún-
artaxta.
Morgunblaðið fór fram á það
við formann Þróttar í gær að
mega senda blaðamann til þess
að fylgajst með fundi Þróttar
um samningana í gær, en þeirri
beiðni var hafnað. En samkv.
upplýsingum, sem blaðið hefur
aflað sér, kom það greinilega
fram á fundinum, að félagsmenn
telja hina nýju samninga mun
óhagstæðari en hina eldri. M. a.
lýsti Einar Ögmundsson, formað
ur Þróttar, því yfir, að hann
skyldi verða manna fyrstur til
að viðurkenna, að félagið hefði
ekki fengið neinni þeirri kröfu
framgengt, sem mest áherzla hef
ur verið lögð á.
Vinnuveitendur urðu við kröfu
Þróttar um 1% greiðslu í styrkt
arsjóð félagsins, og verður
stjórn hans skipuð tveim mönn-
um frá Þrótti og tveim frá
vinnuveitendum. Þá fá Þróttar-
bílstjórar einn bíl á móti hverj-
um einum bíl vinnuveitanda við
uppskipun úr erlendum skipum,
sem umboðsmenn þeir-ra hér
skipa upp úr. Hér mun einkum
vera um að ræða vinnu við upp
skipun úr skipum, er flytja
varning til varnarliðsins.
aður komutími hennar 15.35
á sunnudag. Skv. upplýsing-
um Reketov, blaðafulltrúa
rússneska sendiráðsins hér,
munu sendiráðsmenn taka á
móti honum og einnig er
rciknað með að blaðamönn-
um gefist kostur á að hitta
hann. Flugvélin hcldur á-
fram ferðinni kl. 17.
Viðræður við
bæ j arstar f smenFi
hafnar
Morgunblaðið aflaði sér i
gær hjá frú Auði Auðuns for
seta bæjarstj., upplýsinga um
samningaviðræður fulltrúa
Reykjavikurbæjar og Starfs-
mannafélags Reykjavíkurbæj
ar. Sagði frú Auður, sem bæj-
arráð hefur kosið til viðræðn-
anna ásamt Magnúsi Ástmars
syni, að samningaviðræður
væru hafnar fyrir nokkru, en
enn sem komið værl, hefði lít
ið gerzt annað en það, að fuD
trúar Starfsmannafélagsins
hefðu skýrt kröfur bæjarstarfs
manna.
Sumarferð Varðar um
nœstu helgi
Í»AÐ er nú orðið Ijóst, að sumarferð Varðar n. k.
sunnudag verður mjög fjölmenn. Síðustu forvöð eru
að kaupa miða í dag, og verða þeir seldir til kl. 10
í Sjálfstæðishúsinu (uppi). Verð farmiða er kr. 225,
og er þar innifalinn hádegisverður og kvöldverður
ásamt öli og gosdrykkjum.