Morgunblaðið - 05.08.1961, Page 5
Laugardagur 5. ágúst 1961
MORCUNBLAÐIÐ
5
Háskólabyggingin i LeopoWvilIe, en J»ar er samastaðiur þingsins. Fyrir utan bygginguna eru her-
rnenu úr gæzluliði Sameinuðu þjóðanna á verði.
Smurt brauð
Snittur, brauðtertur. Al-
greiðum með litlum fyrir-
vara.
Smnrbrauðstofa
Vesturbæiar
Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Silungsveiði í Selfjöm
Veiðileyfi seld hjá Ishúsi Reykdals, Hafnarfirði.
sími 50205 og Innri-Njarðvík (Hraðfrystihúsinu).
ByggingaféSag verkamanna
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Tjarnarcafé miðvikud
9. þ.m. kl. 20,30 e.h.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál.
STJÓRNIN.
Rauðamöl
Seljum mjög góða rauða-
möl. Ennfremur vikurgjall,
gróft og fínt. Sími 50447.
og 50519.
MFNN 06 4
= MAŒFNI=
„KONGÓ má ekki verða víg-
völlur kalda stríðsins“. Með
þessum orðUim skýrði Cyrille
Adoula, hinn nýkjörni forsæt-
isráðherra Kongó, stuttlega
þjóðernisstefnu sína.
I landi ofsafullra ræðu-
manna hefur Adoula vakið á
sér athygli fyrir að vera hæg-
látur, hnittinn og rökfastur.
„Við mumum aldrei vilja hlíta
erlendri vernd hvorki stjórn-
málalegri, né efnahagslegri“,
sagði hann fyrir skömmu.
„Yfirvöldin verða að njóta
virðingar og tii þess að það
megi verða verður stjórnin að
vera ákveðin, öflug og eining
að ríkja innan hennar“.
Adoula, sem er 39 ára, er
heimavanari í Leopoldvilie, en
þar hcfur hann unnið sem
bankastarfsmaður, en margir
samtíðarmenn hans í stjórn-
málum, hafa hugsað meira
um kynþætti þá, er þeir eru
upprunnir af.
1956 tók Adcula virkan þátt
í störfum Verkmannasam-
bands Kongó og tveimur árum
síðar átti hann þátt í stofnun
fyrsta stjórnmálaflokksins í
Kongó, Þjóðernissinnaflokks-
ins, ásamt Patrice Lumumba.
Áður en Kongó fékk sjálf-
stæði 30. júní 1960, þótti Ado-
ula vera í flokki liægfara þjóð
qrnissinna. Hann sagði skilið
við Lumumba 1959 og í sept-
ember sl. þegar Lumnmha
kallaði saman þingið til að
mótmæla því, að Kasavubu
forseti viki honum úr embætti
forsætisráðherra, sat Adoula
aðgerðarlaus.
Adoula tókst að hefja sig
upp yfir alla flokkadrætti og
ávann sér traust bæði andstæð
inga og fylgismanna Lum-
umba. Hann var sá, sem Kasa
vubu forseti vildi að yrði for-
sætisrá'ðherra.
Adoula er and-kommúnisti
og er litið á hann sem helzta
manninn til að eyða sundur-
þykkjunni, sem varð útaf
vinstri stefnu Lumumba.
Hann er feiminn og þegj-
andalegur og byggir mest á
rökfestu.
Hinn öri Lumumba byggði
aftur á móti helzt á ræðum,
sem líktust flugeldum.
Adoula var þingmaður fyr-
ir fæðingahérað sitt Equator.
^Þegar Joseph Ileo lók við em-
bætti forsætisráðherra af Lum
umba var Adoula gerður að
innanríkisráðherra, og þegar
Gyrille Aoula, hinn nýi for-
sætisráðherra Kongó
Moise Tshombe, forseti Kat-
anga héraðs, neitaði stöðu
varnarmálaráðherra, tók Ado-
ula einnig við henni.
Hann stendur fast við stefn
una um sameimað Kongó og
hefur það veitt honum áíit
meðal fyrrv. Lumumbasinna,
sem hafa fylkst undir merki
Antoine Gizenga, hins vinstri
sinnaða foringja, sem hefur
komið á laggirnar stjórn í
Stanleyville, sem er andstæð
stjórninni í Leopoldville.
Adoula skýrði frá því að
stjórn hans hyggðist koma
með áætlun um mikla vinmi á
vegum hins opinbera og reyna
að berjast fyrir því að komið
verði á fót nýjum fyrirlækj-
um.
Hinn nýi forsætisráðherra
Iifir kyrrlátu lífi í nýtízku-
legu húsi í Leopoldville með
seinni konu sinni eg finim
börnum. Hann reykir án af-
láts granna vindla og ræðir
tímunum saman við nána vini
lun framtíð þjóðar sinnar.
>
ÁTTl Jobbi eTcki kollgátuna
einsog fyrridaginn. Ekki var
pálmar hjálmár skáld fyrr kom-
inn noröur í nóttleysuna og
fyrrverandi síldarleysuna en
oppnaöist fyrir allar stíbblaöar
flóögáttir inntellígensíunnar og
listaverkin streymdu úr djúpum hins dulúðga skáldanda
einsog égveitekkikvaö.
Ekki veit ég, hvaö skáldiö bardúsar um daga, en
ncetur og morgunsár notar þaö til andlegrar framleiöslu
og keppvr i framleiöslugetu viö síldar- og gúanófabrikkur
ríkisins. Mætti segja mér, aö ekki heföi veriö hœrra risiö
ú skáldskap hans í París eöa á Nellunni í Kaupihhöfn.
Mér, sérlegum menningarfrömuði og úngskáldavernd-
ara, barst bréf frá honum í gærdag. Þaö er skrifað nokkru
fyrir sólarupprás og inniheldur þau listaverk, aö ekki munu
betri kveöin hafa verið í samanlögöum síldarbransanum.
Og hér höfum viö eitt þeirra:
kryddkvæöi no. 0013
jakobsensplaniö gamla
bíddú góöi
anaöu ékki sona
fram astralplaniö
baö geta veriö
fúaspýtur
sem leyna á sér
ílla negld borö
sem sporöreisast
og þú dettur
já góöi
festína lente
á la monsieur de la Villon
sem ég sá í nœturlestinni
frá Hof Sós
biddú góöi
það geta veriö skemmdir
í astralplaninu
Hestamenn
Til sölu er mósóttur hestur, 6 vetra, bróðir Guls
á Laugarvatni. Mósi er lítið taminn, en hefur háan
höfuðburð og að flestu leyti glæsilega reiðhesta-
byggingu. Hesturinn þykir líklegur til að veita fljót-
ustu hestum landsins harða keppni, ef hann verður
til þess æfður.
Nánari upplýsingar gefur Eiríkur Brynjólfsson,
Kristneshæli, sími 1292 um Akureyri.
Bílstjóri
Þekkt heildverzlun óskar að ráða vanan vörubíl-
stjóra, til að dreyfa vörum um bæinn. Reglusemi
áskilin. Tilboð merkt: „Vandaður — 136“ sendist
afgr. Morgunbl. fyrir 10. ágúst.
Atvinna
Nokkrar vanar saumakonur geta fengið
atvinnu nú þegar.
Upplýsingar eftir kl. 1 í dag í síma 22180.
AFMÆLISRIT DR. VALDIMARS J. EYLANDS
Arfur og Ævintýr
kemur út í september. Væntanlegir áskrifendur
snúi sér til Biskupsskrifstofunnar fyrir 20. ágúst.
CtgAfunefndin.
The Wanted Five
Sími 35936 skemmta í kvöld